Dagur - 02.07.1931, Síða 3

Dagur - 02.07.1931, Síða 3
34. tb!. DAGUR 131 Framsóknarfélag Akureyrar. Fundur í Skjaldborg laugard. 4. þ. m. kl. 81/2 e. m, Fjölmennið! STJÓRNIN. batnað sunnanlands upp á síðkast- ið, vegna hlýinda og nokkurrar úrkomu, sem þó er allsendis ónóg. ---0---- íþróttir. Fimtudaginn s. I. kom hingað frá Reykjavík með Dr. Alexandrine, íþróttaflokkur Knattspyrnufélags Reykjavíkur undir forustu for- manns félagsins, herra Kristjáns Oestssonar. Fiokknum veitti mót- töku Knattspyrnufélag Akureyrar. Alls var flokkurinn 50 manns, knárra drengja og ungfreyja. í flokk þess- um er bezti knattspyrnuflokkur lands- ins undir stjórn kennara sins Quð- mundar Ólafssonar. Hefir knatt- spyrnuflokkur þessi unnið fslands- bikarinn 7 sinnum. Þreytti K. R( hér við knattspyrnuféiögin K. A. og Pór. Fóru Ieikar þannig, að K. R. vann K. A. með 6:2, en Pór með 10:1. Prátt fyrir þenna mikla mun var það sýnilegt, að K. A. átti góðum kröftum á að skipa, urðu jafnir vinningar fyrri hálfleikinn 2 :2 en síðari hálfleikinn hallaði til muna á K. A., enda áttu þeir þá móti vindi og undir sól að sækja. Ójafnari var Ieikur K. R. og Pór, en samt á Pór ennþá marga góða knattspyrnumenn og var auðséð að þar voru góðir kraftar, Iítið æfðir. Dómari var Ounnar Schram stöðv- arstj. Milli hálfleikanna var háð 800 m. og 1500 m. kapphlaup og vann bæði hlaupin Ólafur Kristinsson úr K, R. Pá hlupu þeir þolhlaup, Haukur Einarsson og Magnús Ouðbjartsson. Hlupu þeir frá Fagraskógi til Akur- eyrar, er sú leið ca. 28 km. Fór Magnús vegalengd þessa á 1 tima og 45 mín., en Haukur á 1 tíma og 52 mín., báðir úr K. R. Olímumenn, alls 9, glímdu bæði i Samkomuhúsinu og úti á íþrótta- velli. Olímdu þeir fyrst sýningar- glímu og síðan bændaglimu. Qlíman i Samkomuhúsinu tókst mjög vel, sérstaklega sýningarglíman. Lðgðu glímumenn yfirleitt hrein brögð og ákveðin. Bændaglíman fór einnig vel fram. Stóð f bæði skiftin einn uppi Porgeir Jónsson bóndi frá Varmalæk, var glima hans mjög traust og ákveðin. Fyrir þrem árum vann hann bæði beltið og stefnishornið, var þvf eigi við neinn meðalmann að eiga. — Pað verður eigi annað sagt, en að það væri heldur áfátt fyrir okkur Akureyring- um, að geta ekki boðið görpum þessum i bændaglímu og vonast eg tii að við höfum þann metnað, að við getum boðið þeim það næst er þeir koma. Pá var og sýnt spjót- og kringlu- kast. Fimleikaflokknum stýrði ungfrú Unnur Jónsdóttir frá Egilsstöðum, voru það 8 stúikur er sýndu fim- leika eftir undirspiii. Pá kepptu þær í boðhlaupi við kvenflokk úr K. A. og unnu K. R. Síðan þreyttu stúikur úr K. R. og K.A. handbolta og fóru leikar þannig, að K. A. vann K. R. með 10:3. Var góð skemtun að horfa á leik þenna, er íþrótt þessi falleg og sjálfsagt holl, ættu sem flestar stúlk- ur að iðka hana. Má svo ségja, að Akureyrarstúlkurnar hafi haldið uppi heiðri íþróttanna hér í bæ með þvi að vinna sigur í iþrótt þessari og þar með að láta eigi alla vinninga úr höndum okkar ganga. íþróttafl. K. R. fór með Ooða- foss á mánudaginn. Pökk sé honum fyrir komu sína hingað. O. J. -----0----- Fréttir. FM.\ □ RÚH 5931778 - I. Prestasfefna var háð í Reykjavik dagana 18—20. júní. Um 40 prestar voru mættir. Biskup landsins gaf yfirlit um kirkjuleg mál síðasta fardagaár. Minntist einnig Al- þingishátíðarinnar, sem hann kvað hafa orðið landi og lýð tii hins mesta sóma. Samþykkt var meðal annars að prestum skyldi leyft að ferma börn án biskupsleyf- is, þó ekki væru 14 ára, ef þau næðu þeim aldri fyrir næstu áramót á eftir. Ársþino Stórstúku íslands hófst í Reykja- vik í fyrradag. Var það hafið með guðs- þjónustu í Fríkirkjunni. Séra Halldór Koi- beins predikaði. Adalfundur Eimskipafél. íslands er nýlega afstaðinn. Eignir og skuldir félagsins stand- ast nokkurnveginn á. Rekstursafkoma fé- lagsins var örðug síðasta ár. Halli á rekstr- inum nemur 4 þús. kr. auk fyrningar á skipunum, sem er á þriðja hundr. þús. kr. Fundurinn skoraði einum rómi á íslenzku þjóðina að Iáta skip félagsins sitja fyrir flutningum i framtíðinni. Vill Dagur hér með taka eindregið undir þá áskorun, Talmyndir verður innan skamms farið að sýna í Nýja Bíó hér í bænum. Er verið að setja þar upp útbúnað til þess. LÚtÍn er á Siglufirði frú Rakel Páls- dóttir, kona Sigurðar Egilssonar frá Laxa- mýri. — Einnig er látin hér í bænum gömul kona, Rannveig Bjarnadóttir, móðir Páls Jónatanssonar frá Búðarnesi og þeirra systkina. Leikendurnir úr Reykjavík, sem áður hefir verið getið um að von væri hingað, komu með Ooðafossi á sunnudaginn var. Einar H. Kvaran rithöfundur kom hingað til Akureyrar á fimtudaginn var, til þess að vera hér við sýningarnar á Ieik sínum >Hallsteinn og Dóra«, Dormóöur nefnist hið nýkeypta skip Samvinnufélags sjómanna hér í bænum. Er það nýlega hingað komið og talið vera einn stærsti og myndarlegasti lfnuveiðari landsins. Skipstjóri er Sigurður Sumarliða- son. • Grasspretta hefir tekið miklum framför- um síðan brá til votviðra. Talið líkligt að túnasláttur byrji víða úr annari helgi. Leikfélag Reykjavfkur sýnir SJÓNLEIKINN HALLSTBINN OG DÓRA eftir EINAR H. KVARAN í Samkomuhúsi Akureyrar, LAUGARDAO og SUNNUDAO 4. og 5. júlí, kl. 8'/2 e. h. Húsið opnað kl. 8. Aðgöngumiðar seldir í Samkomuhúsinu. Auglýsing. Útflutningsnefnd Síldareinkasölu íslands hefir ákveðið, að gefa síldarsöltun að þessu sinni frjálsa, þannig, að síldareigendur semji sjálfir við söltunarstöðvarnar og beri ábyrgð á síldinni gagnvart einkasölunni, uns síldin er henni afhent af saltanda. Einkasalan hefir þó ákveðið hámark þess, er salta má á hverri stöð. Einkasalan getur ráðstafað söltun þeirrar síldar, sem engir samningar hafa verið tilkyntir um fyrir 10. júlí n. k. og ákveður hún þá söltunargjald fyrir þá síld. Síldareinkasalan greiðir söltunarlaun beint til saltenda, nema skilríki liggi fyrir um að þau séu greidd á annan hátt, enda hafi ekki komið fram kröfur um ógreidd vinnulaun. Akureyri 20. júní 1931. Fyrir hönd Útflutningsnefndar Síldareinkasölu Islands. Erlingur Friðjónsson. —■wmxfi maanaaem I Ðændur | ^ Kaupum egg á kr. 2.50 kg. J Mannaldt. Látnir eru fyrri hluta júnímán- aðar fjórir merkis- og dugnaðar- bændur í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði. Voru tveir þeirra á bezta aldri, Stefán Jónatansson á Þorsteinsstöðum og Sveinn Svein- bjarnarson á Mælifellsá. Báðir létu eftir sig konur og mörg börn. Er að þeim hinn mesti mannskaði. Hinir tveir voru.við aldur, annar nær áttræður, IJannes Hannesson á Daufá, áður bóndi þar (f. 1855), alkunnur sæmdarmaður, og Ófeig- ur Björnsson í Svartárdal (f. 1864), mikill dugnaðarmaður. Dvaldi um hríð í Vesturheimi. Ennfremur nýdáin á Sauðár- króki Jón Eiríksson verkamaður og Steinunn Stefánsdóttir; voru þau Stephan G. Stephansson skáld og hún systkinabörn. Tófuhvolpar ti! söiu. Upp- lýsingar gefur PORSTEINN HALLASON Oaltalæk. Gúmmí- hanskar bestir og ódýrastir. (Aðsent). Sendiherra íslands og Danmerkur í Vínarborg, Paul Viktor Bigler, lézt 27. apríl s.l. úr heilablóðfalli. Naut hann jafnan vináttu allra góðra manna, er hann þekktu, Og virðingar. Hann átti sæti í nefnd þeirri, er stóð fyrir íslandssýningunni í Vín- arborg í fyrra, þeirri er málarinn Theo Henning átti frumkvæðið að. Bigler sendiherra varð 53 ára að aldri, og hafði gegnt sendiherrastðrf- um I Vín frá 1922. drekka allir góðir íslendingar. Fæst alstaðar þar sem öl er selt. Leikíélag Rvikur sýnir Ieikinn Hallsteinn og Dóra nostk. laugardags- og sunnu- dagskvöld í Samkomuhúsinu, Leiðrétting; Misprentast hefir á bls. 132 i þessu blaði, í auglýsingu um Mannborg orgel-harmonium og Steinway & Söns flygel og piano, Sveinn Bjarnason, á að vera SVEINN BJARMAN.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.