Dagur - 10.12.1931, Blaðsíða 3

Dagur - 10.12.1931, Blaðsíða 3
57. tbf. DAGUK 223 Framsöknarfélag Akureyrar heidur fund á venjulegum stað á föstudaginn kemur kl. 8V2 e. m. Mörg árfðandi mál á dagskrá. Dr. Kristinn Ouðmundsson hefur umræður. S T J Ó R N I N. fflir yðar pvegiiir ér LUX þola betur og eru ávalt sem nýir. S.OKKARNIR’eru viðkvæmar flíkur,gaf öllum tizku klæðnaði þurfa þ’eir því bezta meðferð. Sé varúðar gætt í þvotti, eykur það endingu þeirra. LUX notkun heldur þeim sterkum og sem nýjum löngujeftir að önnur sápuefni mundu hafa slitið þeim til agna, því _Lux-löðrið er hreint eins og nýj- asta regnvatn. — Oll óhreinindi hverfa af hverjum silkiþræði fyrir hinu mjúka Lux-löðri. —^Þeir haida hinum upprunalega gljáa. — Lux gerir sokkana yðar aftur sem nýja, og eykur endingu þeirra. Hafið því LUX ávalt handbært. LUX . W-UX MKM Litlir pakkar 0.30 Stórirpakkar 0,60 UBVBR BROTHBRS LtMlTBD, fORT»WUGHT.Br------ .BNOLAND, Það sem þolir vatn þolir LUX. skíðanImskeið verður haldið á Akureyri, frá 15. jan, til 15. febt- n. k. Kennari verður Helgi Torfö. — Þátttakendur snúi sér til undirritbðra,* sem gefa allar upplýsingar um fyrirkomulag og þátttökugjaid. F. h. KNATTSPYRNUEÉLAGS AKUREYRAR. Jón Sigugeirsson, Júnas Jónsson., Stelán Bjarnason, Hafnarstræti 106, Brekkugötu 21. Menntaskólanum. Jörðin BREKKUKOT f Svarfaðardal er til sölu og laus til ábúðar frá næstu fardðgum (1932). Jörðin er 6V2 km. frá sjó og bílfær vegur heim í hlað. Hún gefur af sér í meðalári 150 hesta af tððu og 120 hesta af útheyi. Hlðður yfir allt hey. Byggingar i góðu standi. Tilboð i jörðina séu komin fyrir 10. janúar 1932 til Árna S. Jóhanns- sonar Akureyri eða Sveinbjarnar Jóhannssonar Dalvik, sem gefa nánari upplýsingar og semja um kaupin. nútiðarlífsins verður skipulögð Og samrýnid heiibrigðu gagnvirku þró- unarlögmáli. Slgtúnum. Jósef M. Ihorlacius. 0----- iþróííahús við Laugaskóla. í ár var lokið við stórt og vand- að íþróttahús við Alþýðuskóla þingeyinga á Laugum. Er það 23X9 metrar að grunnfleti, 6 metr- ar að vegghæð og rishátt. íþrótta- salurinn er I8X8V2 meter að gólf- fieti og 6 metrar á hæð. Yfir saln- um og forstofunni er stórt loft og verða þar 9 íbúðarherbergi, fyrir 2—4 menn hvert. Húsið er allthit- að með laugavatni eins og ðnnur húsakynni á Laugum. íþróttasalur- inn verður fullgerður um jól og hefst þar iþróttakennsla fyrir nem- endur skólans á Laugum þegar jóla- leyfi er lokið. En með þorrakomu, þegar ibúðirnar f húsinu verða íbúðarhæfar, verður bafið þar nám- skeið fyrir unglioga 14 — 17 ára, og stendur það tii loka einmánaðar. Verða kenndir þar fimleikar og íþróttir ýmislegar, þar á meðal sund. En jafnframt verður þar nokkur bókleg kennsla i íslenzku, dönsku, reiknmgi og iandafræði. Er það námskeiö augiýst i siðasta blaði. Ef til viil geta fáeinir ungling- ar eldri en 17 ara, er notiö hata góörar kennslu, notið iþrótta- nams og bókiegs náms meö yngri deild Laugaskóla trá Porrabyrjun. Frá barnaskólanum. Það er með vissu vitað, að heim- ilin, félagarnir og umhverfið allt hafa fyrstu og varanlegustu á- hrif á börnin, og leggja fyrstu drögin til mótunar skapgerðar þeirra. Síðar kemur svo skólinn til hjálpar. En hann verður að hyggja starf sitt á heimilunum að langmestu leyti. Þessvegna er samstarf heimila og skóla sjálf- sagt og gagnkvæmur skilningur nauðsynlegur. — Nú er það svo, að í fjölmennum bæ, eins og t. d. Akureyri, er harðla erfitt fyrir skólann að kynnast öllum heimil- um barnanna að verulegu ráði, og foreldrafundir, án persónulegrar viðkynningar, hafa ekki reynst mikil meinabót í þessum efnum. Þess vegna óska ég nú eftir því, að sem allra flestir aðstandendur barnanna finni mig að máli hér I skólanum, og hefji með því þá við- kynningu, er leiða mætti til auk- ins skilnings og samstarfs til um- bóta á mörgu því er miður fer í hinu langþýðingarmesta máli allra dagskrármála í uppeldi þeirra, sem erfa eiga kmdið. Að forfallalausu verð ég ávalt til viðtals hér í skólanum kl. 2— 31/2 á mánvd., þriðjud., miðvibud. og fimtud. og væri þá best, að þeir sem böm eiga í 4., 5. og 6. bekkjum, kæmu tvo fyrstu dag- ana, en aðstandendur barnanna í 1., 2. og 3. bekkjum, kæmu tvo hina síðari daga. Hefjum samstarfið, góðir að- standendur! — og gott eitt mun af því leiða. Snorri Sigfússon. -----0----- Simskeyti. (Frá FB). Rvík 8. des. Blaðið Vísir skýrir frá því í dag, að landsstjórnin hafi ákveðið að gefa út bráðabirgðalög, sem nemi úr gildi lögin um síldar- einkasöluna og muni þau verða birt á morgun. London: Sterlingspund komst niður í 3,24j/2, miðað við dollar í gær. Washington: Þjóðþingið sett í gær og demokratinn Garner val- inn forseti fulltrúadeildarinnar. Atvinnubætur eru nú hafnar í Reykjavík, og matgjafir byrja upp úr áramótunum. Rvík 9. des. Madrid: Lokaatkvæðagreiðsla fer fram í spánverska þjóðþinginu í dag um stjórnarskrá lýðveldis- ins. Washington: Þegar þjóðþingið kom saman, sendi forsetinn því hinn árlega boðskap. Mesta eftir- tekt vekja þau ummæli, að Banda- ríkin verði að hlaupa undir bagga með Þjóðverjum, til þess að bjarga þýzku þjóðinni frá yfirvof- andi voða. Lögin um afnám síldareinkasölu- laganna kváðu verða auglýst í Lög- birtingablaðinu á morgun. Dráttarvextir á útsvörum hækka í Reykjavík úr y%% upp í 1% á mánuði frá áramótum. Hinn 7. des. slasaðist hásetinn Ólafur V. Ásmundsson á botnvörp- ungnum Maí; var hann lagður á sjúkrahús á fsafirði. ólafur and- aðist í gær. Hann var 29 ára og ókvæntur. Slysið vildi þannig til, að vír frá vörpunni slóst í hann. -----0----- S í 1 d a r á t. Maður er nefndur Jónas Lárus- son. Hann var um skeið bryti á skipum Eimskipafélagsins og orð- lagður fyrir snilli í tilbúningi matar. Jónas þessi hefir tekizt á hendur að ferðast um landið og kenna mönnum að meðhöndla síld á þann hátt að úr verði hin góm- sætastá fæða. Hann ætlar með öðrum orðum að kenna mönnum sílda’rát, sem því miður allt of fáir •hafa lært. Eins og kunnugt er, er síldin næringarmikil, holl og ódýr fæðutegund, en þrátt fyrir þessa miklu kosti hafa íslendingar ekki almennt komizt upp á að færa sér hana í nyt nema að litlu leyti og miklu minna en vert væri. Væri stórt framfaraspor stigið, ef þetta gæti færst til réttara horfs. úr þessu hyggst Jónas Láíus- son að bæta. Er hans von hingað í sveitir innan fárra daga í fyr- greindum erindagjörðum. Ætlar hann þá að hafa námsskeið bæði innan og utan Akureyrar og verð- ur nánar tilkynnt um þau, þegar þar að kemur. Aðferðin við mat- reiðslu síldarinnar er mjög svo fljótlærð og munu námsskeiðin ekki standa yfir nema einn ein- asta dag. Eyfirzkar húsmæður ættu að færa sér komu J. L. kostgæfilega í nyt og læra af honum að mat- reiða síld, svo að öllum þyki hún herramannsmatur. Slíkur lærdóm- ur er hinn mesti búhnykkur, ekki sízt nú á þessum krepputímum. Eyfirzkar konur! Látið ekki tækifærið ganga yður úr greipum. -----0—— Stökur. (Aðsendar). Þegar frétt vwr um kosningamar. Hákon fallinn, Einar eins og Eggerz gleðill, Nú er þingsins íhalds aðall: óli blaðra og Mangi vaðall. Þingtíðindin þenur mælgis þeirra froða; gusa mest þeir grynnst er vaða, gjammið stundum er til skaða. öll er lærir þjóðin það að þekkja kjama hismi frá og voða vama, velferð eflist landsins bama. ómar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.