Dagur - 17.12.1931, Qupperneq 4
228
DAGUR
58. tbl.
RAFTÆKJAVERZLUN
EINKAUMBOÐ FYRIR ÍSLANDS H. F
ALLGEMEINE ELEKTRICTÁTS
GESELLSCHAFT
Útsala: Vesturgðtu 3. Sími 1510. Skrifstofa: Sambandshusinu. Sími 1126.
Hefir til sýnis og selur allar teg. af rafmagnstækjum og áhöldum.
AEGI
eldhúsmótorinn má ekki
vanta í neitt eldhús.
Hann vinnur störfin fljótt
og vel og er húsmóð-
urinni til sannrar gleði.
er nafnið á ryksugunni, sem hefir
mest sogafl. Vampyr ryksugan er
létt í meðförum og henni fylgja
9 aukahlutir, þannig, að bæði má
hreinsa með henni, föt, teppi,
bækur og fleira.
Vampyr er bezta
og ódýrasta ryksug-
an. Verð aðeins kr.
175.00.
RAFMAON SB ÖKTJN AROFN.
Hafið þér reiknað út, hvort ekki sé virkilega
ódýrast að sjóða og baka við rafmagnshita? Enda
þótt ekki sé tekið tillit til þess, hve rafmagnssuða
er marfalt hreinlegri en annarskonar suða, er
samt óhætt að fullyrða, að rafmagnssuða sé í
mörgum tilfellum ódýrust hér á landi. En ef þér kaupið AF? SPARN-
AÐAR-SUÐUVÉLAR, verður suðan miklu ódýrari. Sparnaðar-suðuvélarnar
sjóða »automatiskt« og stilla sjálfar hitagráðuna.
KAUPFELAG EYFIRÐINGA
hefir nú fyrirliggjandi: Rafmagnsofnar, suðuplötur, bakaraofnar, straujárn, skaftpottar, hárþurkur,
rafmótorar af ýmsum stærðum, brauðristarar og útvegar auk þess allar ofantaldar vörur.
Fréttir.
Skilanefnd hefir verið sett, til þess að
gera upp bú Síldareinkasölunnar.
Nefndina skipa Lárus Fjeldsted og
Svafar Guðmundsson. Kom hinn síðar-
nefndi hingað norður með »Drottning-
unni« síðast og vinnur að því að rann-
saka hag dánarbús Einkasölunnar.
Ríkið stendur í hálfrar milj. kr. á-
byrgð fyrir Sildareinkasöluna og auk
þess skuldar hún ríkissjóðnum hátt á
þriðja hundrað þús. kr. útflutningstoll
af síld.
Hæstaréttard&mur er fallinn í máli
því, er Kristján Karlsson fyrv. banka-
stjóri Islandsbanka höfðaði gegn Út-
vegsbanka íslands. Krafðist Kristján
þess, að bankinn greiddi sér eins árs
laun, eftir það að hann lét af banka-
stjórninni. Dómur Hæstaréttar féll á
þá leið, að Útvegsbankinn var sýknaður
af kröfunni og Kristján dæmdur í 300
kr. málskostnað fyrir Hæstarétti.
Leikfélag Akureyrar sýndi leikinn
»Húrra krakkik á Siglufirði um síðustu
helgi við góða aðsókn. Leikendumir
fóru vestur með »Drottningunni« og
komu aftur með Brúarfossi í fyrradag.
Látin er nýlega á Kristneshæli frú
Þorbjörg Stefánsdóttir, kona Jóhanns
Haraldssonar næturvarðar á símastöð-
inni hér. Þorbjörg sál. var kornung
myndarkona.
Riddarakrossi Fálkaorðunnar hefir
nýlega verið sæmdur Magnús Einarsson
organisti hér í bæ. Mun öllum sýnast
hið sama, að hann sé vel að þeirri sæmd
kominn fyrir ósérplægið starf við söng-
kennslu um langa æfi og útbreiðslu á
söngþekkingu.
Hjónaband: Á laugardaginn var voru
gefin saman af sóknarprestinum hér
ungfrú Anna Árnadóttir, gjaldkera K.
E. A., og Kristján Valdemarsson bíl-
stjóri hér í bæ.
Skarlatssótt og mislingar hafa stung-
ið sér niður hér í bænum. Mislingar eru
sagðir á tveimur stöðum svo vitanlegt
sé.
-----o-----
Simskeyti.
(Frá FB).
Rvík 15. des.
Gengi sterlingspunds fer nú
hækkandi og komst upp í 3,451/2
dollar í New York.
Tveir norskir bankar, Den
Norske Kreditbank, með 33 milj.
kr. hlutafé, og Bergens Privat-
bank, með 30 milj. kr. hlutafé,
hafa stöðvað útborganir. Báðir
bankarnir hafa fengið þriggja
mánaða greiðslufrest samkvæmt
bankagj aldþrotalögunum. Talið
er líklegt, að Kreditbank hafi
nægilegt fjármagn til að halda á-
fram viðskiftum á öruggum
grundvelli, en hinsvegar búizt við,
að Bergens Privatbank muni af-
skrifa núverandi hlutafé og reyna
að afla sér nýs hlutafjár.
Maður sá, sem stal hér í sumar
10 þús. kr. út á sparisjóðsbók
gamallar konu, hefir verið dæmd-
ur í 12 mánaða betrunarhúsvinnu.
Norðmaðurinn Johansen hefir
verið dæmdur í 10 daga fangelsi
og 1000 kr. sekt fyrir vínbruggun.
Skúli fógeti hefir selt afla sinn
fyrir 1101 sterlingspund, en
Tryggvi gamli fyrir 1829 pund.
Togararnir Baldur, Hannes ráð-
herra og Ver búast á veiðar.
Ritstjóri:
Ingimar Eydal, Gilsbakkaveg 6.
Prentsmiðja Odds Bjömasonar.
DAGSKRÁ
útvarpsins f Reykjavfk.
Fastir liðir á hverjum degi:
Kl. 10.15 — 16.10 — 19.30 veðurfregnir.
20.30 fréttir.
FÖSTUDAGUR 18. des.
Kl. 19,05 þýzka. 19,35 enska. 20 er-
indi: Jón Bergsveinsson. 21 grammófón-
hljómleikar.
LAUGARDAGUR 19. des.
Kl. 18,40 barnatími. 19,05 og 19,35
fyrirlestrar Búnaðarfél. Isl. 20 leikrit:
Soffía Guðlaugsdóttir. 21 Grammófón-
hljómleikar. Danslög til 24.
SUNNUDAGUR 20. des.
Kl. 11 messa í dómkirkjunni (sfra
Friðrik Hallgrímsson). 18,40 barnatími.
19,15 hljómleikar: Jólamusik. 19,35 og
20 óákveðið. 21 grammófónhljómleikar.
MÁNUDAGUR 21. des.
Kl. 19,05 þýzka. 19,35 enska. 20 er-
indi. 21 hljóml.: Jólalög. Einsöngur.
Grammófónn.
ÞRIÐJUDAGUR 22. des.
KI. 19,05 þýzka. 19,35 enska. 20 er-
indi. 21 Grammófónn: Islenzk einsöngs-
lög. 21,15 upplestur. 21,35 grammófón-
hljómleikar.
MIÐVIKUDAGUR 23. des.
Kl. 18,40 barnatími. 19,05 þýzka. 19,35
enska. 20 erindi: Frá útlöndum (Vilhj.
Þ. Gíslason), 21 grammófónhljóml.