Dagur - 07.01.1932, Page 4
4
DA'GUK
1. tbl,
. #-■ # . » »■» m » « »« « «-»« «
Fréttir.
Jónas Lárusson fyrv. bryti kom hing-
að til bæjarins fyrir síðustu helgi og
starfar hér þessa dagana að því að
kenna fólki að meðhöndla og matreiða
síld á þann hátt, að flestum mun þykja
hún lostæt fæða. Fer kennsla þessi enn
sem komið er fram í skólunum og í
Kristnesi. J. L. notar eingöngu innlend
efni til þess að gera síldina að herra-
mannsmat.
Hjónaefni: Ungfrú Hulda Káradóttir
símamær og Theodor Lilliendahl símrit-
ari. Ungfrú Signý Stefánsdóttir og
Þórður Jóhannsson smiður. Ungfrú
Svafa Friðriksdóttir og Kristján Aðai-
steinsson smiður. Öll til heimilis hér í
bænum.
Fulltrúav 100 þúsund verkamanna í
Danmörku, bæði kaæla og kvenna, sem
vinna að járniðnaði, í prentsmiðjum o.
fl., hafa sagt upp gildandi launasamn-
ingum, þar sem samningsumleitanir um
breytt vinnukjör hafa ekki borið árang-
ur. Orsakirnar eru raktar til kreppu-
ástandsins og óvissunnar um gengi
krónunnar.
Sjómannafélag Reykjavíkwr hefir ný-
lega samþykkt að heimila meðlimum
sínum vinnu á íslenzkum togurum, þar
til félagið gerir aðra ályktun, fyrir
sama kaup og sömu kjör og síðastliðið
ár.
Atvinnurekendur á Patreksfirði hafa
sagt upp samningum við verklýðsfélagið
þar og krefjast 15% kauplækkunar.
Verklýðsfélagið hefir svarað með verk-
falli.
Slys. Maður í Vestmannaeyjum, ólaf-
ur Guðjónsson að nafni, hrapaði á nýj-
ársdag niður stiga í húsi sínu og beið
bana af byltunni. Lætur hann eftir sig
konu og 7 böm.
Tóbakseinkasalan tók til starfa nú
um nýjárið. Hefir ráðuneytið gefið út
reglugerð um framkvæmdir hennar. Er
öllum öðrum en henni óheimill innflutn-
ingur alls tóbaks frá síðustu áramótum.
Tóbaksbirgðir, sem fyrir eru, verða
keyptar af heildsölum, ef um semst, ella
lagt 15% gjald á útsöluverð þess. Smá-
sölum leyft að selja birgðir sínar til 1.
júní.
Ný dýralækningabók er komin út í
Reykjavík. Höfundur hennar er Magnús
sál. Einarsson dýralæknir.
Skorri og Flóka voru tvö sauðnaut
nefnd, er Ársæll Árnason bóksali í Rvík
keypti frá Noregi í fyrra og kom fyrir
á bæ einum í Skorradal til dvalar. Síð-
astliðið sumar tapaðist Skorri úr heima-
högum og fannst nokkru síðar uppi á
heiði kviðlaus og magur. Var hann þá
tekinn á tún og hjarnaði við í bráð, en
síðan dró af honum og hann drapst.
Dýralæknir krufði dýrið og fann bólgu
í maga þess. Kenndi hann því um, að
dýrið hefði ekki þolað kjarnfóðrið á
heiðinni.
Hungurdauði er talið að blasi nú við
miljónum manna í Bandaríkjunum
vegna atvinnuleysis og þar af leiðandi
skorts á lífsnauðsynjum. Talið er óhjá-
kvæmilegt að þjóðþingið skerist í leik-
inm
Enginn botnvörpungur hefir bætzt í
brezka fiskiflotann á síðasta ári. Er
það í fyrsta sinni að svo hafi verið síð-
an á stríðsárum.
Síðustu fregnir af Mansjúríudeilunni
herma, að Kínverjar fari stöðugt hall-
oka í skærunum við Japana. Talið er,
að 1500 hafi fallið af Kínverjum í or-
ustum, sem háðar voru nú um áramót-
in og fjölda margir særst þar að auk.
Indíánum fer fjölgandi í Bandaríkj-
unum, eftir því sem skýrslur um mann-
tal þar sýna. Eru þeir nú taldir 314
þús. alls í ríkjunum. Bendir þetta ekki
á, að þjóðflokkurinn sé að deyja út eins
og áður hefir verið álit manna.
-----o-----
Guðmundur Friðriksson
Lézt á Kristneshæli 16. nóv.
1931, 31 árs að aldri.
Eg kynntist Guðmundi sál. ekki
fyrr en hann var orðinn sjúkling-
ur á Kristneshæli, og mun ég
lengi minnast stillingar hans og
þreks í baráttunni við veiki þá,
er síðast dró hann til dauða.
Minningin er björt og skuggalaus;
hann stendur mér fyrir hugskots-
sjónum sem hugprúður, hraustur
riddari í hinni miklu og erfiðu
baráttu, sem svo margir verða að
heyja og falla að lokum með
heiðri. Enginn má sköpum ráða,
en flestir hygg ég að geti að
nokkru ráðið um hvort endalokin
verða sigursæl eða ekki, þó ekki
af eigin krafti, heldur almáttugs
guðs, sem hefir gefið okkur leið-
arvísi son sinn Jesús Krist. Guð-
mundur sál. þráði að komast heim,
hann átti gleðilega heimvon; í því
er sigurinn fólginn. Það eitt get-
ur huggað harmþrungna, aldraða
móður, sem hefir orðið að sjá á
bak tveimur öðrum ungum, efni-
legum sonum, með stuttu millibili.
Nú á hún sjálf aðeins eftir fáein
fótmál, þar til hún fær að faðma
af sér ástvini sína, sem á undan
henni eru komnir í eilífa dýrð. Já!
dýrð sé guði fyrir það, að fyrir-
heit hans bregðast aldrei.
Guðmundur sál. var meira en
meðalmaður á hæð og vel vaxinn,
ljós á hár og bjartur yfirlitum;
svipur hans var jafnan hýr og
lýsti innri rósemi og friði. Svo
listhagur var hann, að með af-
brigðuin þótti; svo haganlega skar
hann út og málaði í tré, að unun
var á að horfa, og einnig bjó
hann út bréfspjöld til ýmsra tæki-
færisgjafa. Meira að segja sá ég
hann hekla ýmiskonar dúka úr
garni og gáfu þeir ekki eftir
handavinnu velvirks kvenfólks.
Það mun hann þó meira hafa gert
til þess að stytta tímann, heldur
en til að æfa eða sýna fjölhæfni
sína og list.
Eg hygg, að allir, sem kynnt-
ust Guðmundi sál., hafi ósjálfrátt
laðast að honum, enda virtist mér
hann hvers manns hugljúfi; lynd-
iseinkunn hans hafði þar einnig
nokkuð að segja, þar sem hann
sást aldrei skipta skapi sínu þann
tímaf er ég var honum samtíða,
Það hlýtur að vera bjart yfir
minningu slíkra manna, sem berj-
ast með heiðri og falla með sigri,
en krafturinn verður að koma of-
an frá.
Farðu vel Guðmundur. Hafðu
þökk fyrir allt. Eg veit að nú ert
þú alsæll, laus við sjúkdómsfjötr-
ana, laus við stríðið. Vertu sæll.
Hugrúru
------o-----
DAGSKRA
útvarpsins i Reykjavik.
Fastir liðir á hverjum degi:
Kl. 10.15 — 16.10 — 19.30 veðurfregnir.
20.30 fréttir,
FÖSTUDÁQUR 8. jan,
Kl. 19,05 þýzka, 19,35 enska. 20 erindi
(Quðmundur Hannesson). 21 grammófón-
hljómleikar,
LAUOARDAQUR 9. jan.
Kl. 18,40 barnatími. 19,05 og 19,35 fyr-
irlestrar Búnaðarfél. ísl. 20 upplestur
(Halldór Kiljan Laxness). 21 hljóml,
SUNNUDAOUR 10. jan.
Kl. 14 messa í dómkirkjunni (sr. Friðrik
Hallgrímsson). 18,40 barnatími. 19,15
grammófónhljóml. 19,35 erindi (Ásmundur
Quðmundsson), 20 fréttir. 21 Opera og
danslög.
MÁNUDAOUR 11. jan.
Kl. 19,05 þýzka. 19,35 enska. 20 bók-
menntafyrirlestur (Jón Sigurðsson). 21,05
hljómleikar.
ÞRIÐJUDAQUR 12. jan,
Kl. 19,05 þýzka. 19,35 enska. 20 erindl
(Quðm. Hannesson). 20,05 hljómleikar.
21,20 upplestur, 21,35 grammófónhljóml.
MIÐVIKUDAQUR 13. jan.
Kl. 18,40 barnaiími. 19,05 þýzka. 19,35
enska, 20 erindi. Frá útlöndum (sr. Sig.
Einarsson), 21,05 grammófónhljóml.
FIMMTUDAQUR 14. jan.
Kl. 17,05 þýzka. 19,35 enska. 20 erindi:
Verzlunarmál. 21,05 hljóml. 21,20 upplest-
ur, 21,35 hljóml.
------o—....
Verðlag d tilbúnum dburði.
í sambandi við auglýsingu frá Áburðar-
sölu rikisins i síðasta blaði, höfum vér
fengið þessar upplýsingar um verðlag á
tilbúnum áburði;
Vegna hinna sífeldu breytinga á gengi
og gjaldeyri, er mjög erfitt að gefa
ákveðnar upplýsingar um verð á áburðin-
um. Flestar áburðartegundirhafastórlækkað
í verði, en eins og kunnugt er hefir ís-
lenzka krónan einnig lækkað ásamt gjald-
eyri margra annara landa.
Verðfallið á Kalksaltpétri nemur álíka
miklu og verðfall ísl. krónunnar og er
þvf von um að verðið á Kalksaltpétri
haldist óbreytt frá því i fyrra og verði um
kr. 20.00 pr. 100 kg. á höfnum. Nitrop-
hoska hefir því miður ekki lækkað nærri
eins mikið í verði. Ef það gengi, sem nú
er, helzt Iítið breytt, kemur Nitrophoska
til að kosta ca. kr. 34.00—35.00 pr. 100
kg. á höfnum. Superfosfat hefir lækkað
ofurlítið og má gera ráð fyrir að það
kosti um kr. 7.00 pr. 100 kg. á höfnum.
Um verðlag á Kalí er því miður ekki
hægt að gefa neinar upplýsingar, en búast
má við að það verði sama og óbreytt frá
því í fyrra.
Prentsiniðja Odds Björnssonar,
Sonarminning.
Rögnvaldur Rögnvaldsson
frá Kvíabekk i Ólafsfirði.
Æ! sár er þinn missir sonur ástkær,
nú saknaðar flæða mér tárin.
Með léttúðar-glaðværð þú lífðir f gær,
þín Ijúf voru fullorðins árin.
Svo öruggur heimanað fórstu okkur frá
og fannst enga hættu þér búna.
En skærustu vorsólar-birtunn! brá,
því bylgjurnar geyma þig núna.
Þó hættunnar hvergi við horfum á mið
og heimsgleði nóg sé oss fundin,
þá dauðinn, sem engum hér gefa vill grið,
hann geisar, ef komin er stundin.
Vér sjáum og finnum að farinn ert þú,
það fela vill dagana björtu.
ÖH systkinin kveðja þig samhuga nú
með saknaðar-harmþrungin hjörtu.
Og faðirinn gráhærðl fellir sín tár,
sem fúslega drottin vill biðja
að mýkja og græða hvert svíðandi sár,
þvi sú mun og dagleg hans iðja.
Fyrst okkur ei leyfist þig látinn að sjá
og legstað þér búa hér heima,
í hjartanu lifir sú lamandi þrá,
sem lífið hér aldrei mun gleyma.
Þó hvílir þú dáinn f kveinandi dröfn
og kveði þér öldur við hjarta,
þá lifir þinn andi í Ijósanna höfn
á landinu eilifa, bjarta.
Minn sonur ástkæri, þinn sælasta blund
þú sofnað nú burt héðan hefur.
Við finnumst aftur á friðarins stund,
það faðirinn aldanna gefur.
Móöirin.
------o------
Skammdegi.
— Morgunn. —
Birtingin hikar á hjarnstorknum tindi,
hreyfir í náttfari blástjömur strjálar
miðsvetrar dagrenning vakin með vindi
voldugra geðhrifa úthiminssálar.
Sólbaði litbrigða ljósroðar fossinn
lífgjafi alheims úr fjarlægu veldi.
Fannbarðir hamrarnir hýrna við
kossinn,
hreinlega alklæddir nývetrarfeldi.
— Kvöld. —
Þunglega andvarpar árstraumur máttar,
æðandi vindhviða jarðskefur snjóinn.
Uppgefinn dagur á hátindi háttar
til heilagrar hvíldar við eilífa bláinn.
Magnþrungnir lífgeislar máttvana
hníga,
moldin í svefnböndum aflvana syrgir.
Tröllauknir skýheimar sortna og sfga,
sólvökuhimin og fjallstindinn byrgir.
Tryggvi Emilsson.
------o......
Staka.
Ætíð skaltu á hæsta hnjúk
hugarstyrkur ganga,
norðan- þó að napurt -fjúk
næði stritt um vanga.
Jónatan Sigtryggsson frá Tungu.
Ritstjóri:
Ingimar Eydal. Gilsbakkaveg 6.