Dagur - 04.02.1932, Qupperneq 3
5. tbl.
DAGUR
19
til þess er að láta þau skrifa upp
úr bók. Læra börn meira á þeirri
einföldu aðferð en margan grunar<>
Bókin er samin með tilliti til og
í fullu samræmi við Ritreglur Frey-
steins skólastjóra Gunnarssonar og
Málfræði Benedikts Björnssonar
skólastjóra, ágætar bækur, er útg.
þessarar bókar, Porsteinn M. Jóns-
son hefir einnig gefið út, ásamt
stafsetningarorðabók Freysteins. A
útgefandinn mikla þökk skilið fyrir
dugnað sinn f þvi að koma á mark-
aðinn þessum nauðsynjabókum, er
til ættu að vera á bverju íslenzku
heimili, þar sem tekið er á penna,
og sjálfsögð eign allra barna, ungl-
inga og skólanemenda.
S. H. f. H.
------o------
v Fréttir.
Hjúhruncvrfélagið Hllf er 25 ára í
dag. Hefir það unnið mikið og þarft
verk hér í bæ á þessum síðasta aldar-
fjórðungi, létt undir með fátækum og
sjúkum á margan hátt.
Nú lítur félagið svo á, að síður sé
þörf fyrir starfsemi þess á sama hátt
og áður, þar sem Rauði-Krossinn starf-
ar á því sviði með góðum árangri. Þess-
vegna var ákveðið á aðalfundi félags-
ins, að það breytti um starf og jafn-
framt um nafn að nokkru leyti. Heitir
það hér eftir Kvenfélagið Hlif og breyt-
ir um starfsemi þannig, að það leggur
eingöngu áherzlu á að koma sem fyrst
upp sumarbústað fyrir veikluð börn.
Þær stofnanir munu annarstaðar hafa
reynzt vel, meðal annars til að hefta út-
breiðslu berkla. Hefir nú félagið tekið
sér fyrir hendur að safna í sjóð í þess-
um tilgangi og heitir á alla, konur jafnt
og karla, að styðja að því, að það komi
þessari hugsjón sinni í framkvæmd hið
allra fyrsta.
Formaður félagsins er frk. Anna
Magnúsdóttir.
Kvöldskemmtun. — N emendasamb and
Gagnfræðaskólans efnir til ágætrar
kvöldskemmtunar í Nýja Bíó nsesta
þriðj udagskvöld, 9. febrúar. Verður
nánar auglýst á götum bæjarins. Frú
Þorbjörg Halldórs frá Höfnum leikur á
flýgil; þeir Sigurður O. Bjömsson og
Sigfús Halldórs frá Höfnum syngja
s>Glunta« með aðstoð frú Þorbjargar, og
Sigfús les upp kafla úr s>Sögu Gösta
Berling«, snilldarverki Selmu Lagerlöf.
Og að auki verður sýnd ágæt kvikmynd:
»Vitavörðurinn«. Frekari meðmæli með
slíkri skemmtun ættu að vera óþörf.
Dómur er nýlega fallinn í hæstarétti
í máli því, er dr. Helgi Tómasson höfð-
aði gegn ríkisstjóminni í sambandi við
frávikningu sína úr Kleppsspítala.
Hafði Helgi krafizt eins árs launa og
greiðslu ferðakostnaðar frá Kleppi og
auk þess 10 þús. kr. í skaðabætur. Rétt-
urinn dæmdi H. T. eins árs laun, en
sýknaði stjómina af kröfunni um ferða-
kostnaðargreiðsluna og 10 þús. kr.
skaöabætumar. Rétturinn lét þess get-
ið að hann legði engan dóm á geðveikis-
þátt málsins.
Enskur toga/ri strandaði austur á
Melrakkasléttu nú nýlega. Varðskipið
JEgir náði honum út og kom með hann
hingaö 1 fyrradag.
Helga Torvö skíðaíþróttakennari kom
hingað til bæjarins með Lagarfossi í
síðustu viku. Er hann ráðinn kennari
við fyrirhugað skíðanámsskeið á vegum
Knattspymufélags Akureyrar. En nú
sem stendur verða skíðaíþróttir ekki
iðkaðar hér vegna snjóleysis.
Á mánudagskvöldið flutti Helge Torvö
erindi í Akureyrarbíó og sýndi jafn-
framt skuggamyndir. Skýrði hann þar
frá skíðaþróttum og lýsti gagnsemi
þeirra. Var erindi þetta vel sótt og því
vel tekið.
Rlkisútvairpið ætlar á komandi vori að
láta hljóðrita íslenzkan söng. Standa nú
yfir samningar milli þess og söngfélaga
landsins um að syngja á plötur. Stend-
ur nú meðal annars í samningum milli
söngfólagsins Geysir hér í bæ og út-
varpsins um þetta.
Geysir söng í Samkomuhúsinu á
sunnudaginn var við dágóða aðsókn og
ágætan orðstír. Eitt nýtt lag eftir
Björgvin Guðmundsson varð söngflokk-
urinn að þrítaka.
Vinnudeilumar í Keflavík eru komn-
ar í hendur sáttasemjara ríkisins.
Aðalfundur Verkamannafélagsins
Dagsbrún í Reykjavík var haldinn á
sunnudaginn var. Formaður var kosinn
Héðinn Valdimarsson og varaform. Ól-
afur Friðriksson með á 4. hundr. atkv.
hvor. Formannsefni kommúnista fékk
milli 90 og 100 atkv.
Jónas Sveinsson læknir á Hvamms-
tanga er skipaður læknir í Blönduós-
héraði.
Drukknun. Ungur maður, Hjalti Sig-
mundsson að nafni, féll nýskeð út af
bryggju á Isafirði og drukknaði.
-----o-----
DAGSKRÁ
útvarpstns i Reykjavík.
Fastir liðir: Veðurfregnir kl. 10,15 (á
sunnud. 10,40) — 16,10—19,30. Kl. 19,05
þýzkukennsla, 19,35 enskukennsla, nema
á laugardögum og sunnudögum. Kl.
20,30 fréttir (á sunnud. kl. 20). Á laug-
ard. kl. 19,05 og 19,35 fyrirlestrar Bún-
aðarfélags íslands.
FÖSTUDAGUR 5. febr.
Kl. 20 erindi (Gunnlaugur Einarsson).
21 grammófónhljómleikar.
LAUGARDAGUR 6. febr.
Kl. 18,40 barnatími. 20 upplestur
(Halldór K. Laxness). 21 hljóml.
SUNNUDAGUR 7. febr.
Kl. 11 messa í dómkirkjunni (sr.
Friðr. Hallgrímsson). 18,40 barnatími.
19,15 grammófónhljóml. 19,35 erindi
(Pálmi Hannesson). 20,15 Opera. Dans-
lög til 24.
MÁNUDAGUR 8. febr.
Kl. 20 bókmenntafyrirlestur (Gísli
Guðmundsson). 21 hljóml.
ÞRIÐJUDAGUR 9. febr.
Kl. 20 erindi (Jón Eyþórsson). 21
grammófónhljóml. 21,15 upplestur. 21,35
grammófónhljóml. .
MIÐVIKUDAGUR 10. febr.
Kl. 18,15 háskólafyrirlestur, 20 erindi:
Félag llligfa Framsöknarmanna
heldur fund n. k. sunnudag, 7, þ. m., kl. 1 e. h. á skrifstofu
Framsóknarflokksins í nýja verzlunarhúsi Kaupfélags Eyfirðinga.
Mikilsvarðandi mál á dagskrá. Stjórnin.
Irsfundur
Mjólkursamlags K. E. A. verður haldinn á Ak-
ureyri laugardaginn 27, febrúar n. k. og hefst
kl. 1 eftir hádegi.
Dagskrá samkvæmt reglugerð Samlagsins.
Félagsstjórnin.
Frá útlöndum (sr. Sig. Ein.). 21 gram-
mof ónhl j ómleikar.
FIMMTUDAGUR 11. febr.
Kl. 20 erindi. 21 hljóml. 21,15 upplest-
ur. 21,35 grammófónhljómleikar.
-----o------
Fyrr og nú.
(Pýtt úr amerísku blaði).
Fyrir nokkrum áratugum voru
Bretar framsækin og vinnufús þjóð.
Brezk skip sigldu um 511 hðf með
fullfermi af hverskonar framleiðslu
til allra heimsins landa og fluttu
hráefni heim til Bretlands til vinnslu.
Brezkir bankar urðu öflugustu pen-
ingastofnanir f heimi. 1 öllum verk-
smiðjum og námum landsins var
unnið af kappi. Verkamenn voru
ánægðir með kjör sin og komust
yfirleitt vel af. Velmegun ríkti í
Bretlandi á 19. öld og fram á þá
20. — En nú er öðruvísi ástatt í
Bretlandi. Skipin liggja í höfnum f
þúsundatali, — þau hafa ekkert að
flytja. í flestum verksmiðjum er enn
unnið, en aðeins nokkurn hluta
sólarhringsins. Margar kolanámur
Bretlands eru ekki starfræktar. At-
vinnuleysingjar, sem mist hafa alla
vinnulöngun, ráfa sinnuleysislega
um götur og torg. Fjöldi þeirra
myndi hafna vinnu, er i boði væri.
Og hvemig ætti öðruvisi að vera,
þegar menn fá allt að því eins
mikið fyrir að ganga iðjulausir og
að stunda heiðarlega vinnu helganna
á milli? Brezkir atvinnuleysingjar í
þúsundatali hafa verið árum saman
styrkiir vegna atvinnuleysis, allt frá
þvl að þeir hættu skólagðngu. Peir
hafa aldrei unnið. Dæmi eru til
þess, að piltar og stúlkur láti gefa
sig saman, þótt þau hafi ekkert sér
til lifsviðurværis annað en atvinnu-
leysisstyrkinn. Pað er farið í kring-
um lögin, til þess að geta komið
svo ár sinni fyrir borð. Pað virðist
auðgert. Atvinnulausri verksmiðju-
stúlku býðst L d. að fara í vist fyrir
gott kaup. En hún kann ekkert að
heimilsstörfum og fær vottorð um
það og getur þá haldið áfram að
fá atvinnuleysisstyrk. Ogþegarpilt-
ur og stúlka, sem bæði eru atvinnu
laus, fá atvinnuleysisstyrk, geta þau
hæglega lifað áhyggjulausu Iífi á
kostnað rfkisins, þótt þau stofni
heimili. Undir slikum kringumstæð-
um drepa menn f sér allan metnað.
Menn og konur hafna auðlærðri
vinnu til þess að geta lifað áfram
í iðjuleysi á sveita annara. Pannig
er sama vinnukonuleysið f Bretlandi
og víða annarstaðar, þótt verksmiðju-
stúlkur í tugþúsundatali gangi at-
vinnulausar. — En það er skemmti-
legra að vera frjáls og láta rfkið
sjá fyrir sér.
Dæmi eru einnig til þess, að
drykkjumenn fái atvinnuleysisstyrki,
hafi fé handa á milli til þess að
greiða sektir o. s. frv.
í kolanámu-héruðunum er víða
aumlegt ástand. Sum kolanámuþorp
eru nú mannlaus meðöllui íbúðar-
húsin hafa verið rifin eða standa
auð og úr sér gengin. En ekki ein-
göngu í þessari atvinnugrein, kola-
iðnaðinum, heldur mörgum öðrum,
er slæmt ástand, og allt frá árinu
1920, hefir stórhrakað f baráttunni
að koma iðngreinum áleiðis, svo
Bretar gæti orðið samkeppnisfærir
aftur við aðrar þjóðir. Vefnaðar-,
kola-, járn- og stáliðnaðurinn, hafa
orðið harðast úti og má rekja erf-
iðleika þessara iðngreina að miklu
leyti til þess, að óhagstæð aðstaða
til samkeppni við þjóðirnar á meg-
inlandinu skapaðist, er horfið var
aftur að gullinniausn. Hvernig ræt-
ist úr erfiðleikum Breta, er enn
óvíst, en eigi er ólíklegt, að breyt-
ing verði til batnaðar, þar sem
horfið hefir verið frá gullinnlausn
og auk þess hafa Bretar loks lært
það á ósigrum sínum í viðskiftasam-
keppninni við aðrar þjóðir, að þeir
verða að skipuleggja atvinnugreinir
sínar betur en áður.
(Heimskringla).
%
—--- 0
Hvað veldur?
Fyrir nokkru var þess getið í
fréttum í Degi, að nafngreind stúlka
á Nolli i Grýtubakkahreppi væri
trúlofuð nafngreindum manni á
Jarlsstöðum. Alþýðublaðið í Reykja-
vík, er út kom á gamlársdag, tekur
þessa trúlofun upp, en gefur jafn-
framt i skyn, að stúlka þessi sé
trúlofuð tveimur, og nefnir blaðið
þetta »sparnaðarráðstðfun«.
Hvað veldur því, að Alþýðublaðið
er á þenna hátt að reyna að kasta
skugga á mannorð saklausrar stúlku,
sem það að iíkindum ekkert þekkir?
Er það strákskapur, eðahvað?
Spurull.