Dagur - 04.02.1932, Síða 4
20
DAGUR
5. tbl.
Þakkarávarp.
Hjartans beztu þakkir faeri eg hér með
hjónunum Sveinbirni Lárussyni og konu,
ennfremur ungfrú Hlíf Eydal, fyrir það, sem
þau sendu mér og börnum mínum, og bið
eg góðan guð að launa þeim það á sinn
ríkuiega hátt.
Grímsstöðum í Glerárþorpi 31. jan. 1932.
Sigríður Jónsdóttir.
Pétur Sigurðsson
tónskdld.
Minningar æskudaganna.
L
Oft er það, þegar maður er fjarri
æskustöðvunum, þar sem maður hefir
hlaupið á bamsskónum sínum í gleði
og sorg, að minningarnar gleymast,
sem þó eru þær kærustu og ógleyman-
legustu allra þeirra minninga, sem haft
hafa mest áhrif á líf vort. Þessar gömlu
minningar verða oft á margan hátt
vaktar til nýs lífs í hugum vorum, ann-
aðhvort með gleði- eða sorgarfréttum.
Komi minninga-dísin með gleðifréttir
inn í hús vor, frá æskustöðvunum, þá er
það aðeins stutta stund, sem maður
hugsar með barnslegri gleði um sporin,
sem liggja þar, en vinna og alvara lífs-
ins fyrir hinu sífelda »ég« tekur mann
tökum og þrýstir manni til að hugsa um
hina líðandi stund. En komi minninga-
dísin með sorgarfréttir, að einhver
æskuyinurinn hatfi farið yfir á landið,
þar sem skáldið segir að sé »grösugra
og grænna en jörðin — og — geislar
stafi af hafi blá«, verður manni þó
þungt fyrir brjósti — þó maður viti að
æskuvinurinn sé kominn tii landsins,
þar sem fullkommm fullkomnunarinnar
er. Og það sé aðeins um stutta stimd
að ræða að hittast aftur og fá notið
samvinnunnar, eins og á æskudögunum,
aðeins í fullkomnari mæli.
Þegar minninga-dísin ber að dyrum
okkar með slíkar fréttir, hverfur alger-
lega úr huganum manns eigið »ég« og
hugurinn hverfur heim til æskustöðv-
anna, með vininum látna, og upplifir
með honum fegurstu minningamar, sem
æskudagaxnir komu með til okkar.
II.
Það eru nú mörg ár síðan; ég var 19
ára, en Pétur 17 ára. Við vorum mikið
skyldir, og að mörgu líkir, elskuðmn
söng og músík og góða hesta.
Pétur spilaði ágætlega á orgel, lærði
hjá hinum góðkunna orgel-spilara Sig-
urgeir Jónssyni á Akureyri.
Við áttum heima hjá pöbbunum og
mömmunum okkar, Pétur á Geirmund-
arstöðum, en ég á Litlu-Seylu á Lang-
holti — það var »í góðri færð« tveggja
tíma ferð á milli bæjanna, og komum
við oft saman, Pétur spilaði og ég söng.
Það voru yndislegir tímar, sorgir þekkt-
um við engar, og sungum og spiluðum
af hjartans ánægju og tókum himinlif-
andi glaðir á móti öllum þeim nýju
sönglögum, sem við gátum fengið.
Eitt sinn kom Pétur með þá uppá-
stungu, að stofna karlakór í sveitinni,
og kom okkur saman um að biðja 8 af
beztu söngmönnum sýslunnar að taka
þátt í þeim félagsskap, en það voru
þessir.
Benedikt Sigurðsson, Fjalli.
Jónas Sigurðsson, Fjalli.
Þorvaldur Guðmundsson, Sauðárkr.
Þorbjöm Bjömsson, Heiði.
Sæmundur Ólafsson, Dúki.
Kristján Hansen, Sauðárkróki.
Bjarni Sigurðsson, Sauðárkróki.
Sigurður, bróðir Péturs.
Viðvíkjandi málaleitun okkar voru
undirtektir þessara manna allar á einn
veg, að þeir með gleði vildu styðja fé-
lagið með söng sínum, ráðum og dáð.
Allir voru þessir menn ágætir dreng-
ir og söngmenn góðir, sérstaklega var
Benedikt á Fjalli ágætur bassamaður,
og hefi ég aldrei heyírt jafn fallega
bassarödd, nema ef vera skyldi hjá
Kúban-Kósakkakórnum. Þá var Þor-
björn á Heiði ógleymandi tenoristi —
tárhreinn og hljómfagur tenor.
Æfingar voru ákveðnar tvisvar í
viku og meðlimirnir skyldugir að mæta
á Sauðárkróki, hvemig sem veður væri,
aðeins veikindi var afsökun. Margir af
okkur áttum langt að sækja, 30—50
km., en við létum það ekki fyrir brjósti
brenna, en sóttum æfingarnar, eins og
lög félags okkar ákváðu.
Félag okkar starfaði í 5 ár, og var
Pétur alltaf söngstjóri þess, og engin
þótti sú samkoma góð í Skagafirði eða
Húnavatnssýslu ef ekki söng »Bænda-
kórinn skagfirzki« þar. Nafnið á
flokknum var valið þannig, af þvl að
allir félagsmenn voru bændur og bænda-
synir.
Minningarnar þyrpast til mín frá
þessum góðu, gömlu dögum. Eg sé og
heyri okkur félaga syngja »Ólaf
Tryggvason«, »Brúðarförina í Harð-
angri« og »Grænlands-vísur«, sem kann-
ske gerðu alltaf mesta, »luklcu« hjá okk-
ur.
Pétur, alltaf myndugur og ákveðinn
söngstjóri; hans minnstu hreyfingu
fylgdum við sem einn maður. Og félag-
arnir allir innbyrðis sem einn maður;
aldrei kom upp misklíð í þau 5 ár, sem
við störfuðum saman; allir unnum við
í bróðerni og vináttu; öfund og illvilji
þekktist ekki í hugum okkar.
Nú smáfækkar þessum æskuvinum
mínum. Tveir eru dánir fyrir nokkrum
árum, báðir ungir menn, þeir Sæmund-
ur og Sigurður bróðir Péturs, og svo nú
25. ágúst dó söngstjórinn okkar, Pétur,
33 ára gamall.
III.
Pétur Sigurðsson var orðinn kunnur
um allt ísland sem eitt af beztu yngri
tónskáldum. Lögin hans »Erla«, »Harp-
an mín«, »Vor«, »Litli Jón og litla
Gunna« og »Hún kom« eru þekkt og
sungin af öllum heima á Fróni. Enda
eru þau lög hreinustu perlur í íslenzkri
tónlagagerð. Fjölda mörg önnur lög var
Pétur búinn að semja; hann var snill-
ingur að raddsetja lög. Eg minnist þess,
þegar ég söng lagið hans »Erla« á
hljómplötu í Berlín, að sá sem sþilaði
fyrir mig, Erg. Salomon, er var mjög
þekktur pianisti og afar »kritiskur« á
alla músík, taldi að lagið »Erla« sem
vöggulag gæti staðið við hlið Schuberts
og Brahms-sönglögum.
Pétur var að mestu sjálfmenntaður,
en tónfræði — Kontrapunkt — og fuga-
form kimni hann og skrifaði merkilega
vel af ólærðum manni. Pétur naut aldrei
neinnar peningahjálpar frá neinum.
Hann starfaði aðallega að húsabygging-
um síðustu árin og sýndi þar sömu at-
orkuna og frábsera dugnaðinn sem 6
Skattanefnd Akureyrar
verður til viðtals á skrifstofu bæjarstjórans, kl. 8 —10 siðdegis virka daga,
febrúarmánuð út. Á þessum tíma eru skattskyldir menn í bænum beðnir
að afhenda framtalsskýrslur sínar og vitja eyðublaða undir skýrslur, ef
einhverjir skattgreiðendur skyldu ekki hafa fengið þau.
Skorað er á atvinnurekendur að gefa hinar lögboðnu skýrslur um
starfsmannakaup á tilsettum tíma.
Akureyri, 1. febrúar 1932,
Skattanefndin.
Jörð til leigu.
Jðrðin Mýrarlón i Glæsibæjarhreppi er laus til ábúðar í næstkomandi
fardögum. Eftirgjald er áskilið kr. 700,00 og má væntaniegur ábúandi
vinna af sér 2/s eftirgjalds í jarðabótum.
Væntanlegir umsækjendur skili umsókn til mín fyrir lok febrúarmán-
aðar n. k.
Akureyri, 28, jan. 1932.
Jón Sveinsson
— bæjarstjóri. —
sviði tónlistarinnai'. Með framúrskar-
andi dugnaði vann hann fyrir fjöl-
skyldu sinni, og var orðinn sæmilega
efnaður maður.
Lög Péturs eru ólík sumra annara
lögum að því leyti að hann átti þau
sjálfur, hann tók ekki eina nótu frá
öðru tónskáldi, hann var svo ríkur af
skáldskap, að hann þurfti þess ekki.
Organisti, eins og ég áður hefi sagt,
var Pétur ágætur, erfið verk eftir Bach
og Hándel spilaði hann ágæta vel.
»Minningarnar mætar mýkja hverja
þraut«, segir eitt góðskáldið íslenzka,
og einmitt mætu minningarnar frá
æskudögum okkar Péturs og hinna
tveggja vina minna, gera mér léttara í
skapi. Eg finn í huganum nálægð
þeirra, ég sé broshýru andlitin þeirra,
og hlusta á fjörugar samræður þeirra
— eins og svo oft heima í Skagafirðin-
um fagra, á laugardagskvöldum á
sumrin, þegar við þeystum á góðhestum
okkar fram Skagafjörðinn, eftir að hafa
sungið og æft allan laugardaginn, ell-
egar eftir vel-góðan konsert, annað-
hvort I Skagafirði eða hjá Húnvetning-
um. Þá vorum við bamslega glaðir og
ánægðir; það var líka eins og kláramir
okkar fyndu það á sér, að við vomm í
góðu skapi, því þeir voru þá alltaf til-
búnir að gefa okkur góðan sprett, frís-
uðu, spertu eyrun og drógu taumana af
okkur; það var eins og þeir vissu, að
við söngmennirnir hefðum sungið vel
það og það kvöld, og vildu gera sitt til
að fullkomna ánægju okkar.
Kæri æskufélagi minn, vinur og
frændi. Eg þakka þér allar þær yndis-
stundir, sem við áttum saman í æsku
okkar, og eins eftir að við urðum full-
orðnir, aldrei hefi ég kynnst betri dreng
en þér, og ég á svo bágt með að trúa
því, að þú sért farinn, og Skagafjörður-
inn minn verður mér svo eyðilegur og
hljómlaus. En lagið þitt síðasta, sem þú
samdir við kvæði mciataraakáldsins okk-
ar íslenzka, Stefáns frá Hvítadal, veit
ég' að »Nökken« í skagfirzku fossunum
syngur, og spilar á hörpuna sína — að
Oft er söngvari sár,
þráir samúð og tár.
Drottinn himnanna hár
mér er hrollkalt í ár;
þegar hretviðrið hvín,
Fægiduítið ,Dyngja‘
(kraftskúripúlver)
er ómissandi í hverju eldhúsi og
baðherbergi, til að hreinsa með:
potta, pönnur, eldavélar, eldhús-
borð, vaska, baðker, flísar, gamla
málningu óhreinar hendur o. fl.
o. fl. »DYNGJA« er ódýrasta og
bezta efnið til þesskonar hreins-
unar. »DYNGJA« fæst hjá öll-
um sem verzla með hreinlætis-
vörur. »D Y N G J A« er íslenzk
framleiðsla.
Styðjið islenzkan iðnað, með pví að kaupa
— ætíó það íslenzka. —
„IÐJ A“ Akureyri.
Sími 190, Box 111.
leitar hugurinn þín.
Sendu dýrðlegan dag
yfir draumalönd mín.
Eg hef óskamergð átt,
fundið æskunnar mátt,
þá var heiðið svo hátt.
Lífið hamingju-blátt.
Hvort er sólminning sú
aðeins sveimhugans trú;
blær hins fjarlæga fjalls
vill hann freista mín nú?
Guð í hæðunum hátt,
þetta heimslán er smátt,
tak mig særðan í sátt,
veit mér söngvanna mátt;
verði harpan mín hlíf,
inní heiðið ég sveif.
Heyr þú barnshugans bæn.
Ó, ég bið þig um líf.
St. Peters-klaustri í október 1931.
Sig. Skagfield.
Ritstjóri:
Ingimar Eydal. Gilsbakkaveg 5.
Prentsmiðja Odds Björnssonar,