Dagur - 23.03.1932, Blaðsíða 3
12., tbl.
DAGUR
47
Innilega þökkum við öllum,
fyrir auðsýnda hjálp og samúð
við andlát og jarðarför litlu
stúlkunnar okkar.
Akureyri 21. marz 1932.
Agnea Tryggvadóltir. Úskar Gíslason.
4) Enginn þeirra fulltrúa, er fund
þenna sitja hefir komiö fram með
ákveðnar tillögur, nokkurs nýt-
ar, að undanteknum tveimur full-
trúum, er enn hafa enga ábeyrn
fengið, enda ekki liklegt að þeir fái
hana á þessu þingi.
Pessir tveir menn eru Maxim
Maximovitsj L'tvinov, fulltrúi Soviet-
Rússlands, og André Tardieu, full-
trúi Frakka.
Tillaga Litvinovs var blátt áfram
fullkominn allsherjar afvopnun. En
fengist hún eigi samþykkt nú þeg-
ar, bauð hann, fyrir hðnd stjórnar
sinnar, að hún skyldi fúslega sam-
þykkja hverja aðra tillögu, frá hvaða
riki sem kæmi, er tryggði ákveðið
spor í áttina til afvopnunar, þ e.a. s.
afvopnun að einhverju leyti fyrst um
sinn. — Pessum tillögum hefir alls
ekki verið sinnt, bæði af þvi, að
mikill meiri hluti fulltrúanna hafa
ekkert umboðsvald til samninga eða
skuldbindingar frá stjórn sinni, og
svo hins, að engin þjóðin, a. m. k.
ekkert stórveldanna, sýnist hafa á-
kveðinn vilja til nokkurrar veru-
legrar afvopnunar. — En þótt Lit-
vinov hafi enn enga áhéyrn fengið,
þá hefir hann þó á hinn bóginn
engar skammir né brfgslyrði hlotið
að þessu sinni, eins og fyr á al-
þjóðasambandsþingi, er hann kom
fram með sömu tillögurnar.
Tillögur þær, er Tardieu bar
fram, voru allt aðrar, og út af þeim
hefir hinn mesti úlfaþytur orðið.
Mergur málsins f tillögum hans var
sá, að þessari samkundu væri næst
að átta sig til fulis á þvf, að allt
starf og bollaleggingar um þessi
efni er átt hefði sér stað f Qenf
undanfarin ár, væri hégóminn ein-
ber, og að nú yrðu þessir fulltrúar
að ráða það við sig, í eitt skifti
fyrir öll, hvort þeir viidu heldur
aðhyllast alþjóðabandalag, er hefði
við fullkomið framkvæmdarvald að
styðjast, eða aiþjóðabandalag, er
stæði raunverulega magnlaust gagn-
vart hverju fyllilega sjálfstæðu og
voldugu ríki. Pessvegna legði hann
til fyrir hönd frönsku stjórnarinnar
að alþjóðasambandinu skyldi feng-
in full umráð yfir:
1) aÖltu lang-dragandi stórskota-
liði veraldarinnar.
2) Öllum herskipum veraldarinn-
ar, er stærri væru en 10.000 smá-
lestir, eða búin öflugustu fallbyssum.
3) Öllum meiri háttar neðansjávar-
bátum i veröldinni.
4) Ölium óvfgbúnum flugvélum f
veröldinni, þeim er nota mætti ef
ófrið bæri að höndum og auk þess
flota miklum stórra flugvéla, er
búnar væru með sprengjum stærstu
tegundar, og smíðaðar væru ein-
göngu fyrir alþjóðabandalagið.
5) Alþjóðlegu lögregluliði (á sama
stæði hverju nafni það nefndist) tii
þess að beita þessum vfgbúnaði
gegn hverju þvf rfki, er tif ófriðar
AÐA T .FUNDTTR.
Aðalfundur Sambands norðlenzkra kvenna verður haldinn að
Laxárdal í Pistilfirði dagana 23. og 24. júní n. k.
STJÓRNIN.
Jörðiii HÁAGERÐi j Svarfaðardal
er laus til ábúðar í næstkomandi fardögum. Lysthafendur snúi
sér til undirritaðs, er gefur frekari upplýsingar ef óskað er.
Tjðrn 18. marz 1932.
Þór. Kr. Eldjárn.
Frá Húsavík.
stofnaði gegn vilja eður aðvörunum
alþjóðabandalagsins.
Pessum tillögum hefir verið tekið
hið versta, eigi einungis i Qenf,
heldur og af blöðum hverrar ein-
ustu þjóðar að heita má.
Enda er það eðliiegt, þótt fljótt á
litið mætti svo virðast, að alþjóða-
bandalaginu væri nauðsynlegt að
hafa slíkt framkvæmdarvald að baki,
ætti það að mega sin nokkurs.
Qaliinn er blátt áiram sá, að ef
tveimur eða fleiri stórveldum lenti
saman i ófriði, þá myndi þetta ai-
þjóðlega lögreglulið þegar lamað
verða af þvi, að ófriðarlöndin legðu
þvf aldrei lið á móti sjálfum sér. I
öðru lagi mega allir skilja, að meðan
að hvert ríki beldur áfram upptekn-
um hætti, að vígbúa sig sem mest
það má, þá halda þau lika upp-
teknum hætti með það, að bindast
samtökum innbyrðis, leynt og Ijóst,
eftir þvi sem þau sjá sér hagkvæm-
ast þá og þá stundina, og myndu
allar framkvæmdir hins alþjóðlega
lögregluliðs fara á algjörða ringul-
reið i allri þeirri hrossakaupaflækju.
Af þessum og öðrum orsökum eru
flest riki, a. m. k. stórveldin, alit
annað en fús til þess að lofa al-
þjóðabandalaginu slikum styrk.
Bandarikin fara ekki dult með það,
að þeim dettur ekki í hug að fá al-
þjóðabandalaginu nokkuð af herliði
sinu til umráða. Sama er að segja um
Breta, a. m. k. þegar um vígflota
þeirra er að ræða,
Annars dettur engum i hug að
Frökkum sé hin minnsta alvara með
þessar tillögur. Hefir það berlega
komið í ljós á fundinum. ftölsku
fulttrúarnir henda gaman að þvi, að
Tardieu hafi eigi þótt nóg að horf-
ast þarna í augu við 57 vigbúin
ríki, og þvi lagt til að koma á
laggirnar hinu 58. hernaðarstórveldi.
Annars virðist Dtno Qrandi, næst
Litvinov, helzt reiðubúmn til þess
að samþykkja ákveðin fyrirmæli um
afvopnun, fyrir hönd stjórnar sinnar
og er það að vísu i samræmi við
ummæli hans i Bandaríkjunum í
haust, er eg gat um hér i biaðinu
fyrir skömmu. Allir virðast nokk-
urnveginn sammála Dr. Curtius,
fyrv. utanríkisráðherra Pjóðverja, er
hann kvað þetta augljósa tilraun
af hendi Frakka til þess að sprengja
afvopnunarráðstefnu þessa. Einn
helzti fulltrúi Bieta, Cecil vísigreifi,
kvað þetta bera öfugt að bjá
Frökkum; þeir skyldu fyrst skyra
greinilega frá þvi, að hve miklu
leyti þeir væru fúsir að afvopnast.
Annar helzti fulltrúi Breta Sir John
Simon, sneri máli sinu beint til
frönsku fulltrúanna, um leið og
hann sagði, maðal annars: »Enginn
maður leggur nokkurn trúnað á það
lengur, að alheimsfriður verði
tryggður með vígbúnaði, svo áþreif-
anlega hafi sagan og staðreyndirn-
arafsannað það á síðustu timum<.
En annars hafa, sem sagt, engar
ákveðnar tillögur komið fram á
þessu þingi, aórar en þær, sem hér
eru þegar taldar. En afarmikið
hefir verið skrafað um þetta á vfð
og dreif, og ekki vantar að fagur-
lega sé að orði komist um nauð-
synina á allsherjarafvopnun ogalls-
herjarfriði. En tillögurnar eru flestar
loðnar, þokukenndar og barnalega
úreltar. T. d. tillögur SirJohnSimon
um að útlægja algjörlega vissar
manndrápsaðferðir, t. d. eiturgas og
gerlanotkun. Eins og nokkrum lif-
andi manni verði lengur á, eftir það
sem á undan er gengið, og að
fenginni hundrað alda reynslu um
mannlegt eðli, að trúa þvf að maó-
urinn drepi ekki með öllu sem tiltækt
er f-þvf augnamiði.þegar hanná annað
borð er f svo krappan kominn, að
hann verður að berjast fyrir lífi
sfnu. S. H. (. H.
-.. o —«"
(Niðurl.)
Kaupfélag Pmgeyinga hefir jafnan
— eins og samvinnufélagi ber —
komið sanngjarnlega fram við verka-
menn og eru reikningar kembivél-
anna hér að framan talandi vottar
þess — og það jafnvei um of.
Samkomulag milli K. P. og Verka-
mannaféi. Húsavíkur hefir líka verið
gott til skamms tima, og enn eru
hófsamir verkamenn og stjórnendur
K. P. í fullri sátt. En þetta þola
ekki kommúnistar, sem vilja ófrið
umfram alt, — og virðast því miður
hata mest þá, sem reynast bezt.
Umræddur bréfkafli er glöggtdæmi
þessa. Par er hafin árás á það, er
sízt skyldi, eins og eg hefi sýnt
fram á.
Bréfkaflaritarinn verður ekki af-
sakaður með ókunnugleika. Mánað-
arkaupsráðning okkar sem vinnum
við kembivélarnar, lá ekki f láginni,
og ekkert var auðveldara en að fá
á skrifstofum K. P. upplýsingar um
fjárhagslega afkomu kembivélanna.
K. P. hefir aldrei haldið leyndum
reikningum sínum fyrir þeim, sem
sýnt hafa viðleitni i að fylgjast með
þeim. í þessu efni þurfti ekki að
vaða fram í villu og svima. Og hafi
Árni Jónsson, sem stjórnar frysti-
vélum K. P. og er ráðinn til að
gera að kembivétum þess, þegar
þær bila, átt þátt f bréfkaflanum,
eins og sumir ætla, þá hefði honum
átt að geta verið sérstaklega hæg
heimatökin til að afla réttra upp-
lýsinga, ef hann hefði kært sig um.
Annars skiftir það litlu fyrir aðra
en kommúnista hver er höf. bréf-
kaflans. Nafnlaus skrif eins og þetta
skella á flokknum. Og þó stefna
flokksins sé harðvftug og gangi
langtíþví að telja að >tilgangurinn
helgi meðalið«, þá mun þó ekki
hjá þeim, sem skilja hvað kommún-
ismi er, vera svo öfug siðfræðin,
að þeir telji réttmætt að Ijúga upp
sökum og dæma án rannsóknar
eins og bréfritarinn gerir. Að minnsta
kosti er þvf haldið ákveðið fram af
markverðum rithöfundum þessarar
stefnu, að fyrirmyndin — Kommún-
istaflokkur Rússlands — geri strangar
kröfur til félagsmanna um siðferði.
Eftir þeim ritum að dæma mundi
höf. bréfkaflans teljast hafa svfvirt
flokkinn og ekki álitast hæfur til þess
að vera f honum.
Trúa hinir fslenzku kommúnistar
þessu ekki? Eða telja þeir sig svo
auðvirðilega, að þeir þurfi ekki að
gera slfkar kröfur til sfn og sinna
flokksmanna?
Eg spyr, þvf umrætt skrif bendir
f þá átt og sömuleiðis svfvirðilegt
bréf frá Húsavfk, sem »Verkamað-
urinn* flutti snemma f vetur.
Eg spyr, en vil ekki trúa hinu
verra. Og þessvegna ráðlegg eg
»Verkamanninum< að fara varlega
eflirleiðis f þvf að birta verkamanna-
bréf frá Húsavfk. Pá ráðleggingu
teldi eg vitanlega þýðingarlaust að
gefa, ef eg gerði mér ekki nokkra
von um það, að ábyrgðarmeno
tx'frá kr. 25.00 tunnan
Menntaskóla. Skilist á
Eyrarlandsveg 27, gegn fundarl.
Austfirðingamót.
Fáist næg þátttaka, verður haldið
Austfirðingamót nú á næstunni. —
Áskriftalistar liggja frammi f bóka-
verzlun Porst. M. Jónssonar og á
»HóteI Qoðafossc, til 3. apríl n. k.
Skíðastaðamenn!
Stefnt er ykkur fjalls f fðr;
fjærri götuháska;
æskunnar að auka fjör
annan daginn páska,
Komið árla, — kl. 7.
á katlinum snemma sýður.
Komið einir I Komið 2,
kaffið ykkar bfður.
blaðsins séu eitthvað vandaðri menn
en þeir, sem Húsavfkurbréfin hafa
skrifað, — eitthvað sannleikselskari,
og dálitið skynsamari menn líka.
Pétur Jónsson (rá Kasthvammi.
Ofanritaðri grein var synjað rúms
í »Verkamanninum« — þótti of löngí
□ Rún 59233298 - Frl.\
Fiðlumeistarinn norski, Lorentz Hop, lék
á hljóðfæri sitt í Nýja-Bíó á fðstudags-
kvöldið. Hann hlaut mikið lof áheyrenda
fyrir frammistöðu sína, eu aðsókn var
ekki mikil.
»Sál(ræði og duiskynjanir« nefndi frd
Kristín Matthíasson efni það, er hún ræddi
um í Samkomuhúsinu á sunnudaginn var.
Aðsókn var mikið meiri í þetta sinn en
að fyrsta fyrirlestrinum. Þriðji og síðasti
fyrirlesturinn verður kl. 2 á morgun (skír-
dag) á sama stað. Fjallar hann um trúar-
brögðin og frnmtíð þeirra.
Dánardægur. A þriðjudagsnóttina andað-
ist hér á sjúkrahúsinu ungfrú Sigrún Pálma-
dóttir, Jóhannssonar og Kristínar Sigfús-
dóttur skáldkonu. Sigrún var lítið yfir tví-
tugt og hin ágætasta stúlka I alla staði.
Taugaveiki hefir komið upp í Laugaskóla.
Einn aðkomumaður hefir veikst, en aðrir
ekki. Skólinn og næstu bæir við hann, er
settur í samgöngubann um tíma.
Rauða Kross Deiid Akureyrar. a aðai-
fundi Deildarinnar annan páskadag kl. 5í
Samkomuhúsinu, setlar Bjarni bankastjóri
jónsson, að flytja erindi um mannvininn
Willard Fiske. — Þeir sem vilja gerast
meölimir Deildarinnar eru velkomnir á
fundinn.