Dagur - 23.03.1932, Qupperneq 4
48
ÐXGUR
12. tbl.
Geysir sðng á sunnudaginn
í Samkomuhúsi bæjarins, fyrir fullskip-
uðum bekkjum. LOKSINS, varð manni
að hugsa.
Því »Geysir« hefir mátt þreifa á því
í vetur, að völt er veraldarhyllin. Hvað
eftir annað hafa þeir boðið og laðað, en
lýðurinn daufheyrst og látið þá um
hversu þeim tsekist að tjá list sína tóm-
um veggjunum, að segja má. Þangað
til á sunnudaginn, að maður fékk von
um að bæjarbúar væru aftur að glöggva
sig á sínum vitjimartíma.
Því »Geysir« á það skilið að vera af
oss vel metinn. Vér eigum erfitt að-
stöðu á ýmsa lund, en því síður megum
vér vanrækja nokkuð það, er eflt getur
menningu vora á einn og annan hátt.
Af þeim stofnunum, er taldar eru, með
siðuðum þjóðum, hyrningarsteinar æðri
menntunar og hinna fögru lista, eigum
vér, enn sem komið er, aðeins tvær, er
svo hafa starfað, að vér getum stært
oss af út á við. Önnur er hinn ungi
menntaskóli, sem í höndum góðs og gáf-
aðs skólastjóra og manns, er þegar orð-
inn bæjarsómi út á við, og á vafalaust
eftir að verða það betur. Það munu all-
ir óvilhallir og réttdæmir bæjarbúar
sammála um. Hin er söngfélagið »Geys-
ir«. Ég efast dálítið um, að bæjarbúum
sé jafnljóst hve vel það félag hefir
hlaðið, og hleður, undir hróður vom út
á við.
Það hefir undanfarið verið allt of
hljótt meðal vor um félagið og starf-
semi þess. Því enginn bæjarbúi má vera
óvitandi um það, að hún er oss til hinn-
ar mestu sæmdar. Ég er sannfærður
um það, af býsna víðtækri kynningu, að
mjög fáir bæir — eða þorp — ef nokkr-
ir eru, hvar í veröldinni sem leitað er,
eiga jafngóðum karlakór á að skipa
sem Geysi, hvað þá betri. Söngflokkur-
inn er í rauninni aðdáunarverður, ekki
sízt, er litið er til þess, að allir með-
iimir hafa mikilli skylduvinnu að
gegna; margir líkamlegri vinnu, og
henni stundum ali erfiðri, og verða að
skjótast í æfingarnar á hlaupum frá
dagstritinu, að kalla má.
Vafalaust er hér allmikið af söng-
hæfileikum og góðum röddum. Sérstak-
lega hafa norðlenzkir tenórar fengið
orð á sig, og maklega. En fremd félags-
ins er ekki eingöngu, né endilega fyrst
og fremst að þakka góðum röddum,
heldur söngstjóranum, hr. Ingimundi
Árnasyni. Félagið hefir verið að öllu
leyti heppið, að fá að njóta hans. Hann
er músíkalskur í bezta lagi, og að eðlis-
fari listrænn, smekkvís og ákveðinn
stjómari. Það er alkunnugt að hann er
sjálfur afburða raddmaður, hitt kann-
ske síður, sem eðlilegt er, hversu óeig-
ingjarn og starfsfús hann er, hversu
mikið starf hann hefir við söngstjóm-
ina af mörkum lagt frá önnum dag-
legrar atvinnu.
Mér datt í hug á sunnudaginn, að ef
til vill hefði nafn Hreins Pálssonar
haft svona mikið aðdráttarafl á bæjar-
búa. Sönghæfileikar hans og framkoma
hans öll á það í sjálfu sér vel skilið. En
vér ættum ei að síður að viðurkenna
það fúslega, að vér höfum eigi verið
líkt því nægilega vel vakandi undanfar-
ið til þess að votta félaginu og söng-
stjóra þess þakklœti og viðurkenningu,
meó þv$ aó sækja, wtIð vel samkomur
500
krónur
ioo
krónur
5°
krónur
PAÐ GETUR VEl SKEÐ AÐ
ÞÚ VINNIR VERÐEAUNIN
Sá sem vill vinna verðlaunin skal setja
tölur framan vi'S hvem hinna io kosta Rinso
í keirri rö'ð sem hann álítur að )>eir skuli
teljast. Sá sem t.d. álítur að „Sparar vinnu"
sje mesti kosturinn, hann merkir \au or'S
meS tölunni „i". Og ef hann svo hyggur aö
„Leysist upp í köldu vatni" sje næst besti
kosturinn pá setur hann „2“ vi'S pau or'S og
svo koll af kolli. VerSlaunin vinnur pú ef
listi pinn er í samræmi viS j?á röS, sem
alsherjar úrskurSur ákveSur. Þetta kostar
ekkert -—séndu bara eina framhlið af Rinso pakka
með hverjum seðli, sem þú sendir í samkeppnina.
SíSar verSur auglýst hvenær samkeppninni
verSur lokiS.
°9
AUK ÞESS FIMMTIU
VERÐLAUN, HVER:
3STK.^LUX HANDSÁPU
RIHSO
/
ÞVÆR AN NUNINGS
SEÐILLiNN
10 RINSO KOSTIR
TÖLUSETJIÐ ÞÁ EFTIR YFIRBURÐUM
(a) Heldur Hninu drifhvitu
(b) Drjúgt í notkun
(c) Einfalt i notkun
(d) Alt nugg ónauösynlegt
(e) Skemmir ekki hendurnar
(f) Hreinn þvotturinn ilmar yndislega
(g) Einhlítt til allra þvotta
(h) SkaSar ekki þvottinn
TÖLURNAR HJER
(i)
(i)
Leysist upp í köldu vatni
Sparar vinnu
Legg hjer innan i
(stóra)
(litla)
framhliö af Rinso
pakka
Nafn__________
Heimilisfang...
Framleiðendur gefa endanlegann úrskurö. Engum fyrirspurnum um samkeppnina verSur svaraö.
KHppiö þenna miða ,_ar og sendiö hann tii
'ASGEIR SIGURÐSSON. REYKJAVIK, PÓSTHÓLF 498 .
M-R 52-042A IC
R. S. HUDSON UMITED, LIVERPOOI., BNGLAND
þess og viðurkenna oftar með því, og á
annan hátt, opinberlega starfsemi þess.
Áhugi vor og viðurkenning gefur félag-
inu starfsþrótt og blæs í það sífellt
endurnærandi lífsanda. Þögn vor og
skeytingarleysi er vissasta vopnið til
þess að drepa í dróma starfsgleði með-
limanna, er oft eru nógu þreyttir af
öðrum störfum, og svæfa sjálfstraust
þeirra í þessa átt.
Þætti einhverjum, sem oflofi væri hér
ausið, þá er því til að svara, að svo er
eigi, því öll þessi ummæli mega óhögg-
uð standa, þótt það sé vitanlegt að með
lengri aldri og auknum viðfangsefnum
eigi bæði kór og söngstjóri enn þroska-
skeið fyrir höndum. Þau skilyrði getum
vér bæjarbúar skapað með samúð og
stuðningi, og ekki útlátameiri en það,
að sækja fyrst og fremst samkomur
þess. Eigi gjörum vér það heldur mest
fyrir félagið, heldur fyrir oss sjálf, að
hefja oss um leið og vér heyrum góða
söngmenn túlka list sína, og þroskum
oss þannig til þess að hlynna hér að
sem fjölskrúðugustu menningarlífi í
heimi, S, B, /. H,
Höfum 111:
Handverkfæri allskonar
og garðyrkjuverkfæri
Amerísk, sænsk^og norsk.
Beztu gerðir og bezta verð.
Samband ísL samvinnufélaga.
Ritstjóri: Prentsmiðja Odda Björnasonar.
Ingituar Eydal. GUabakkBveg 8.
.«1