Dagur - 20.04.1932, Síða 1

Dagur - 20.04.1932, Síða 1
DAGUR kemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi fyrir 1. júll. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- son í Kaupfél. Eyfirðinga. Afgreiðslan er hjá Jóni Þ. Þór, Norðurgötu 3. Talsími 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. XV. ár. Akureyri, 20. apríl 1032. 16. tbl. Stjórnarandstæðingar eru sitalandi um, að Framsóknarstjórnin hafi eytt ógrynni fjár »í heimildarleysit, eins og þeir kalla það. Meðal annars var Magnús Ouðmundsson margmáll um þetta atriði i >eldhúsinu< á dögunum. Að vísu ber þessurn mál- skjóðum sjaldan saman við sjálfa sig um þá fjárupphæð, sem stjórnin á að hafa sóað i leyfisleysi eða móti vilja þingsins, en venjulegast nefna þeir hana tUQÍ Itliljóna; þessari geisiháu upphæð hati stjornin í raun og veru Stolið, segja andstæðingarnir, og ennfremur prédika þeir fyrir kjós- endum, að með þessu óverjandi ráðlagi hafi stjórnin i sjálfu sér tekió fjárveitingavaldið af Alþingi og hrifsað það undir sig. Og venju- iega endar Morgunblaðið og dilkar þess ræður sínar um þetta efni á þessaleið: »Hve lengi ætla bændur að þoia þetta?< Hverskonar fé er það nú, sem stjórnin samkvæmt kenningum and- stæðinganna hefir notað i heimiid- arleysi ? Pvi er fijótsvarað. — Allt það fé, sem goidið hefir verið utan áællunar Ijárlaganna, teija þeir hafi verið tekið i algeróu heimildarleysi; þvi hafí öllu verið sóað að þinginu fornspurðu í eintóma vitleysu. Pvi hafi stjórnin stolið. Hvað er nú hæft i þessum ásðk- unum? Tii þess að svara þeirri spurningu er sjálfsagt að leita tii þeirrar beztu heimildar, sem hægt er að fá, en það eru landsreikningarnir. Á þeim þremur siðustu árum (1928—1930), sem landsreikningar hafa verið birtir fyrir, hafa samtals verið greiddar frá rikinu ails, auk þess, sem lagt hefir verið fram til bankanna, tæpar 52 miljónir króna. Af þessari upphæð hefir verið veitt samkvæmt áætlun fjárlaga rúm- lega 33 miljónir. Eftir eru þá um I8V2 miljón, sem greiddar hafa verið án heimildar i áætlun fjárlaganna. En hafa þá þessar 18 miljónir verið greiddar án allrar heimildar, úr því þær felast ekki i áætlunum fjár- Iaganna fyrir þessi ár? k Pvf vilja stjórnarandstæðingar halda fram. Peir staðhæfa, að aliar þær greiðslur ríkisins, sem ekki eiga heimild i fjárlagaáætlunum Alþingis, séu með öllu óheimilar, og að hver sú stjórn, sem slika synd fremji, hafi fellt dauðadóm yfir sjálfri sér. En þetta er með ðllu rangt og visvitandi blekkingar. Til þess að villa mönnum sýn, hefir verið rugi- að saman greiðslum utan fjárlaga og greiðslum i heimildarleysi, eins og það væri eitt og hið sama. Hverfum þá aftur að fyrgreindum 18 miljónum, sem stjórnin á að hafa eytt í heimildarleysi. í þessari upphæð felast greiðslur samkvæmt 22. gr. fjárlaganna, er nema 1.110 þús. kr, — Greiðslur samkv. heimild í sérstökum iðgum, en sem ekki voru teknar irin á fjár- lagaáætlun, að upphæð 5 060 þús. kr. Parna er þá komið nokkuð á 7. miljón, eða þriðjungur þeirrar upp- hæðar, sem stjórnarandstæðingar telja að eytt hafi verið í heimildar- leysi. Hér næst koma greiðslur, sem bein skylda var að inna af hendi, þó áð þær færu fram úr áætlun ijit- laganna. Nema þessar skyldugreiðsl- ur hátt upp í 5 miljónir kr. Par við bætist svo kostnaður við Alþingishátiðina, er nam 924 þús. kr. Og kostnaður við síldarverksmiðj- una á Siglufirði, er fór 425 þús. kr. fram úr áætlun. Allt þetta, er hér hefir verið talið, er annaðhvort greitt eftir beinum heimildum frá Aiþingi, eða það var skyida að greiða það og varð ekki undan komizt. Öll sú upphæð, sem hér undir heyrir, er nálega 12V2 miljón, eða 2h af því, sem verið er að reyna að telja þjóðinni trú um að landsstjórnin hafi eytt í óleyfi eða algerðu heimildarleysi. Hér í er innifalinn Alþingiskostnaður, kostn- aður við landhelgisgæzlu, heilbrigð- ismál (Landsspítali og Kleppsspítali), kennslumál,jarðræktarstyrkur,berkla- varnarstyrkur, endurgreiddur tollur og gengismunur, lögboðnar fyrir- framgreiðslur og sameiginlegur em- bættiskostnaður (fasteignamat, burð- argjöld, símagjöld o. fl.). Pá eru um 6 milj. eftir, sem segja má um, að ekki hafi verið bein skylda til að greiða. Af þeirri upp- hæð hefir verið varið: Til vega................. 752 þús; — brúargerða ... 641 — — símalagningar . . 424 — — reksturs símans vegna aukningar .... 528 — — vitamála. . . . . 253 — — póstmála .... 157 — — umframgreiðslu til nýrra héraðsskóla . 360 — Oerir þetta samtals á 4. milj. kr. og er þá búið að gera grein fyrir nálega 16 milj. af þeirri I8V2 milj., sem eytt var utan áætlunar fjárlag- anna á árunum 1928 til 1930. Pær 2 —3 miljónir, sem þá ereftir að gera grein fyrir, eru umfram- greiðslur á ýmsum liðum fjárlag- anna, sem farið hafa fram úr áætlun og ýmsar aðrar greiðslur, sem hver stjórn verður að inna af hendi, þó ekki sé fyrirfram gert ráð fyrir eða ekki hægt að gera ráð fyrir þeim á fjárlögum. Petta er það, sem andstæðingar Framsóknar kalla, að stjórnin hafi eytt »tugum miljóna< af rfkisfé f heimildarleysi og þvert í móti vilja þingsins. Petta er það, sem and- stæðingarnir nefna, að stjórnin hafi tekið fjárveitingavaldið af þinginu. Stjórnarandstæðingar láta i veðri vaka, að umframgreiðslur í tfð nú- verandi stjórnar séu einsdæmi i sögunni. Til þess að sanna að hér fari stjórnarandstæðingar með vísvit- andi blekkingar, birtast hér á eftir þær upphæðir, sem greiddar hafa verið umfram það, sem gert var ráð fyrir í fjárlagaáætlunum áranna 1917—1927, eftir þvi sem lands- reikningar þessara ára sýna. Ar 1917 .... kr. 11,596,413 - 1918 .... - 7,544,145 - 1919 .... - 13 884,943 - 1920 .... - 10,947,348 - 1921 .... — 7,479,379 - 1922 .... — 2,766,387 - 1923 .... — 3,213,489 - 1924 .... — 1,549,109 - 1925 .... - 3,383,602 - 1926 .... - 2,487,647 — 1927 .... - 1,752,520 Hvað leiða þessar umframgreiðsl- ur á tímabilinu 1917—1927 í Ijós? Pær sýna það, að greiðslur utan fjárlaga hafa að meðallalí verið á ári hverju 6.054,998 kr., eða nokkuð yfir sex miljonir króna. A árunum 1928—1930 hafa, eins og áður er sýnt, greióslur urnfram fjárlagaáætlun numið um I8V2 milj. Pegar þeirri upphæð er skift niður á þessi þrjú ár, verður meðaltalið nokkuð yfir 6 miljónir. Umfram- greiðslurnar f stjórnartfð Framsókn- arflokksins hafa þannig nokkurn veginn verið nákvæmlega hinar sömu eins og þær höfðu verið mörg und- anfarin ár. Séu nú árin 1917-1921 tekin sérstaklega, þá kemur í Ijós að um- framlreiðslur á þessum 5 árum nema alls 51,452,228 kr. Pað er hvorki meira né minna en 10,290,445 kr. til jafnaðar á hverju ári - eða nokkuð á II. miljún. Hverjir voru nú fjármálaráðherrar á þessu árabili, þegar umframgreiðsl- urnar voru svona geipilega miklar eins og hér er sýnt? Pað voru þeir Björn Kristjánsson, Sigurður Egg- erz og Magnús Guðmundsson. Pað situr því dálaglega á hinum síðasttalda fyrv. fjármálaráðherra að brígzla Framsóknarstjórninni um, að hún hafi greitt tugi miljóna >í heimildarleysi< úr ríkiskassanum, þegar hann og hans flokksmenn hafa gengið miklu lengra f umfram- greiðslunum. Ætti því sá herra að byrja á þvi að hreinsa hauginn frá sínum eigin dyrum, áður en hann þykist ætla að þrifa til hjá öðrum, ekki sízt þegar það er vitanlegt, að hann stakk inn í íslandsbanka 3 miljónum af enska láninu 1921 f fullu heimildarleysi þingsins. Hér að framan hefir verið sýnt fram á: 1. Að umframgreiðslurnar á árunum 1928—1930 hafa annað tveggja farið fram samkv. beinum ákvörð- unum þingsins, eða þær hafa verið óhjákvæmileg afleiðing af ráðstöfunum þess, annaðhvort f fjárlögunum sjálfum eða utan þeirra. Pær hafa þvf ekki farið fram i heimildarleysi, heldur með vitund og vilja þingsins. 2. En vilji stjórnarandstæðingar enn halda þvi fram, að greiðslur ut- an fjárlaga séu yfirleitt sama og greiðslur i heimildarleysi, þá verða þeir að >minnsta kosti að játa, að þeir séu sjálfir jafnsynd- ugir Framsóknarstjórninniiþessu efni, og að á vissu árabili hafi þeir Björn Kristjánsson, Sigurð- ur Eggerz og Magnús Guð- mundsson jafnvel drýgt miklu stærri fjármálasyndir én Fram- sóknarstjórnin hefir nokkru sinni gert. ■... 0 Upplognar sögusagnir um S.i.s. Morgunblaðið skýrir frá þvi 3. þ. m., að Samb. ísl. samvinnufélaga hafi orðið að kaupa megnið af efni því, er fór f stórhýsi það, sem það lét reisa á hafnarbakkanum i Reykja- vfk i sumar sem leið, hjá verzlun- um þar f bænum. Talar blaðið um þetta f þeim tón, að það sé ekki lítil minnkun fyrir Sambandið að þurfa að skriða á náðir kaupmanna i Reykjavfk til þess að fá efni f sitt eigið hús, af þvi að kaupmennirnir geti undirboðið Sfs. um verðlagið. Til sömu rótar segir Mbl. muni mega rekja það, að þegar tilboð fór fram i verkamannabústaðina, þá hafi Sambandið ekki hreppt nema lítinn hluta þeirrar verzlunar við þá > /

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.