Dagur - 28.04.1932, Side 3
DAGUR
67
17., tbl.
Framsóknar sé rétt á enda runninn
og að íhaldið taki þá við völdun-
um. Út frá þessu er það Ijóst, að
blað Ihaldsins er að tilkynna les-
endum sínum, að væntanlegt íhalds-
ráðuneyti verði >ósvífin ríkisstjórn«,
sem muni hagnýta sér æðsta dóm-
stól Iandsins í >pólitískum tilgangic.
En eigi þetta nú samt sem áður
ekki að skiljast á þann veg, úg að
með >ósvífinni ríkisstjórn* hafi
fhaldsblaðið átt við Framsóknar-
stjórn, þá er það sönnun þess, að
fhaldsmenn hafa enga trú á þvf, að
þjóðin feli þeim stjórn rikisins, og
er þá allt hjal þeirra um, að þeir
taki nú bráðlega við völdunum,
ekkert annað en mikilmennskuórar
þeirra vesælu manna, sem vita sig
gersigraða, og að þeir eigi sér enga
uppreisnarvon framar.
Hvor skilningurinn, sem f þetta
er lagður, er hann jafnhraklegur
fyrir íhaldið.
Játning Morgunblaðsins.
Mbl. játar það 13. þ. m., að ef
tillögur þeirra jóns Porl. og Péturs
Magn. i stjórnarskrármálinu næðu
fram að ganga, yrði afleiðingin sú,
til þess að fá rétt hlutföll milli
flokka, >að i einhverju kjördæmi
hlyti kosningu þingmaður af öðrum
flokki en þeim, er flest hefði feng-
ið atkvæðic. Blaðið játar það og,
að sú tilhögun væri >óheppileg
sem almenn regla<, en þar sem
þetta verði fremur undantekning en
aðalregla, þá stafi ekki af því nein
>þjóðarhætta<.
Pessi játning Mbl. er dágóð sönn-
un fyrir þvf, hvílíkt afskræmi till.
íhaldsmanna eru f stjórnarskrármál-
inu. Eða hvernig mundu kjósend-
ur þess þingmannsefnis, er flest
fengi atkvæði, una því að sagt væri
við þá: Ykkar frambjóðandi verður
nú að sitja heima, þó að atkvæða-
magn hans væri mikið, en hinn
frambjóðandinn, sem færri atkvæði
fékk, og þið viljið ekki að fari á
þing, hann skal nú samt verða þing-
maður ykkar kjördæmis, þvi að
Jón Porláksson hefir fyrirskipað
það f sfnum háfleygu kosninga-
reglum.
Pað er svona lagað kosninga-
fyrirkomulag, sem forvígismenn
Ihaldsflokksins hafa narrað ijölda af
kjósendum til að biðja um með
undirskriftum. En vissu þeir allir,
hvað þeir vóru að biðja um, þegar
þeir voru að skrifa nöfn sin undir
bænarskjaiið? Leiddi þar kannske
blindur blindan?
Bótin er, segir Mbl., að þetta
hneyksli verður ekki algild reglal
Eitt ofaníátið enn.
Mbl. birtir 15. þ. m. leiðréttingu
frá Aðaisteini Kristinssyni, framkv.-
stjóra S. í. S., þar sem“ rekin eru
ofan f blaðið atvinnnurógsskrif þess
um Sambandið; er þetta gert með
tveimur vottorðum, öóru frá bygg-
ingarmeistara þeim, er tók að sér
að reisa vörugeymsluhús S. I. S.,
hinu frá formanni Byggingarfélags
verkamanna f Reykjavfk.
Mbl. gerir enga tilraun til að af-
saka sig, eða réttlæta gagnvart vott-
orðum þessum, og rennir þannig
þegjandi niður ósannindum sínum
um Samband isl. samvinnufélaga.
ASTMA
Lungnasjúkdömar, lungnakvef,
nasa-.háls- og slimhimnubólga,
í hálsi, svefnleysi, taugasién.
DR. HOSSENGAMPS »MEDICAIUS«.
Leiðarvísir og meðpæli eru send
ókeypis og burðargjaldsfrítt.
— VERÐ kr. 25.00. —
ALEXDNDER D. JÚNSSON, Reykjavík.
Gagnfræðaskóla Akureyrar
verður sagt upp iaugardaginn, 30. apríl, ld. 8 síðdegis.
Skölastjöri.
Matjurtagarðarnirí Búðargili
verða leigðir út í smáspildum í
sumar til matjurtaræktar.
Umsóknum sé skilað á skrifstofu
mína fyrir 6. mal n. k.
Bæjarstjórinn á Akureyri, 25. apríl 1932.
Jón Sveinsson.
Ferjubóndinn.
Á bakka, nærri striðum straum,
er stöðvast rétt um sinn,
sem viðsjáll hylur, við þinn bæ,
eg veit þig, karlinn minn.
Par bjóst þú lengi, býr þar enn
tií bjargar snót og hal,
sem þurfa far um fljótið strangt
á ferð um Vesturdal.
Svo dagar ei, né dregur að nótt
að dökkblá augu þfn
ei skygnist yfir fljótsins flaum
að ferðamanna sýn.
Pú sefur, eins og sðngfugl, létt
hver sveifla, er hljóðið ber
að þinni hlust á nóttu nær —
ef nafn þitt kallað er.
Á fæturl Pótt ei gangi greitt
við gigtarsting að fást.
Á fæturl Pótt að svefnlaus sért.
— Pað sjaldan gestum brást
þar eftir fyrsta ferjukall
með fögnuði að sjá
þinn opinn bæ, þinn greiða gang
að grænni hrikalá.
I náttkyrð gellur grjótið við,
er greitt þú ýtir fram
úr grunnri vlk við gretta klöpp
þeim gamla ferjupramm.
Hvert áratak er eins og Ijóð,
sem utan að þú manst;
þér skilar drjúgt - þótt skylli flóð
tii skjálfta ei þú fannst.
í lending fyrst þú lítur við; —
sem Ijósið kviknar von,
þá fóikið þreytt f ferju sér
einn fjalldals konungsson,
með fagurt enni, fagra brún
og fannhvítt skegg á brjóst.
Að engu er hætt und árum hans
er öllum þegar ijóst.
* *
*
I litinn bæ þú leiddir inn
með likn um hálfa öld,
jafnt einkavin sem óvin þinn.
Hver eru nú þín gjöld?
Pau mestu og beztu er maður fær:
að mega fagna þvf
er æfi lýkur, allt er kvitt
og ekkert skuldablý.
Hulda.
Messað 4 Möðruvöllum í Hörgárdal
sunnudaginn 1. mat og á Hvítasunnudag
(ferming og altarisganga); í Glassibæ I
Uppstigningardag,
Stór dós .... Kr. i.xo
MiÓlungs stær'S Kr. 0.60
Lítill pakki . . Kr. 0.25
Málning getur altaf
litiö út sem ný ef
bvegið er úr Vim.
Dreyfið Vim á deyga
ríu og þar sem
henni er svo stroKiO
um verðnr allt bjart
og glansandi, sem
nvmilað væri.
og önnur óhreimndi
hverfa úr hrókum og
kymum. J afnframt
bví sem Vim heldur
máluðum hlutum
ávalt sem nýjum,
fegrar j?að flötinn og
f ægir allar rispur, J>ar
sem óhreinindi gætu
annars leynst í.
Notið Vim og látiö
allt sem málað er.
altaf líta út sem
nýmálað vten.
HREINSAR OG
FÁCAR
LEVER BROTHERS LlMlTED, PORT 9UNLIGHT, ENGLAND
M-V 1 36*50 !C
E.s. „Brúarfoss"
kemur hingað fyrstu daga maf-mánaðar f stað aprílferðar
e.s. „Goðafoss“
sem feliur niður. — Skipið fer héðan beint til Reykjavíkur vestur um iand.
Akureyri 26. aprfl 1932.
Afgreiðsla H. f. Eimskipafélags Islands.
Skr á
yfir niðurjöfnun aukaútsvara f Akureyrarkaupstað, fyrir árið 1932, liggur
frammi — almenningi til sýnis — á skrifstofu bæjargjaldkerans, dagana
1. til 14. mai n. k., að báðum dögum meðtöldum*
Kærum yfir niðurjöfnuninni sé skilað til formanns niðurjöfnunarnefnd-
ar innan Ioka framlagningarfrestsins.
Bæjarstjörinn á Akureyri, 25. aprll 1932.
Jón Sveinsson.
Heinrich Erkes apríi s.i. pessa
mæta manns vérður
bókavörður ( Kölu andaðist 1. nánar getið i næsta blaði.