Dagur - 07.07.1932, Side 1
I
D AGUR
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjalddagi fyrir 1. júlf.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirftinga.
Afgreiðslan
er hjá Jðni Þ. Þ&r,
Norðurgötu 3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin vift ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
Akureyri, 7, júlí 1032.
27. tbl.
Lík sonar okkar og bróður, Konráðs Kristjánssonar
cand. theol., kemur með »Súðinni« og verður jarðsett að
Hálsi í Fnjóskadal þriðjudaginn 12. þ. m. kl. 1 e. h.
Kristján Halldórsson, Liney Kristjánsdóttir,
Kristín Kristjánsdóttir, Doróthea Kristjánsdóttir,
Kristbjörg Kristjánsdóttir, Gerða Kristjdnsdóttir,
Jrá Litlu-Tjörnum.
Sonur okkar og bróðir, Arngrímur Árnason, andaðist í Reykja-
vík 30. júní s.l. — Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju,
laugardaginn 9. júlí, kl. 2 e: h.
Foreldrar og systkini.
Jarðarför Sigurbjargar Jónasdóttur, sem andaðist 1. júlí síðastl.,
fer fram mánudaginn 11. júlí næstkomandi og hefst frá heimili
okkar, Oddeyiargötu 23 hér í bæ, kl. 1 e. h.
Eggert Ól. Eiriksson, Ingunn Eiríksdóttir, Ingibjörg Eirlksdóttir,
Margréi Eiriksdóttir, Elisabet Eiriksdóttir.
Hér með tilkynnist að Nikólína Jónsdóttir frá Lynghóli í Gler-
árþorpi, andaðist í Kristneshæli ' miðvikudaginn 29. júní s.l. —
Jarðarförin er ákveðin á Grund þann 12. þ. m. kl. 12 á hádegi.
Faðir og systkini.
Skiiting tekjuafgangs.
Eftir tillögu stjórnar S. í. S. sam-
þykkti aðalfundurinn með samhljóða
atkvæðum að ráðstafa arði þeim, kr.
64.631.87, sem varðá rekstri Samb.
síðastl. ár, þannig:
a. Til garnastððvar. kr. 25.635.41
b. Til gæruverksm. kr. 10.661.00
c. Til klæðav. Oefjun kr. 4.669.05
d. Yfirfærist til næsta árs 23.666.40
Skýrsla framkvæmdastjóra innllutningsdeildar.
Framkv.stjóri innflutningsd., Að-
alsteinn Kristinsson, gerði grein
fyrir innflutningi erlendra vara 1931.
Hafði vörusala Samb. á þvíáriorð-
ið 1,7 milj. kr. lægri en 1930. Vör-
ur böfðu verið keyptar frá 12 lönd-
um, og gerði framkvæmdastjórinn
grein fyrir þvi, hvaða vörutegundir
voru keyptar frá hverju landi. —
Við umræðurnar gat Vilhjálmur Þór
þess, að venjulega hefði Samband-
ið geta boðið Kaupfél. Eyfirðinga
betri kaup á erlendurn vörura en
ðnnur firmu. T. d. hefði Samb.
undantekningarlaust boðið kaupfé-
laginu hagkvæmust kaup á kolum,
salti og timbri undanfarin ár. f*á
lýsti hann ánægju sinni yfir hinni
nýju kaffibætis verksmiðju Sambands-
ins og taldi nauðsynlegt að það
færi að framleiða fleira af >efna-
gerðar«-vörum, t. d. sápu og saft,
strax þegar ^ástæður leyfa. Svo-
hljóðandi tillaga frá V. P. var sam-
þykkt í einu hljóði:
»Jafnframt því að lýsa ánægju
sinni yfir þvi að Sambandið hefir
nú byrjað á kaffibætisgerð, væntir
fundurinn þess, að það -komi á
framleiðslu á fleiri iðnaðargreinum<.
Skýrsla Iramkvæmdastjóra útfiutningsdeiidar.
Jón Árnason framkvæmdastjóri
gaf ítarlegaskýrslu um sölu islenzkra
vara hjá Sambandinu siðastliðið ár.
Alls hafði söluverð innlendra vara
numið ca. 6,9 miij. kr. Oaf fram-
kvæmdastjórinnyfirlitumsöluhverrar
einstakrar vörutegundar og verð
hennar. Ennfremur gaf hann skýrslu
um rekstur gæruverksmiðjunnar og
garnahreinsunarstöðvarinnar. Fór
framkvæmdastjórinn siðan nokkrum
orðum um þá miklu örðugleika,
sem nú eru i viðskiftalífinu. Toll-
múrar og innilokun þjóðanna gerir
viðskiftin mjög erfið, og virðist sú
styrjöld áframhaldandi. Pótt allmikið
sé rættum eftirgjöf stríðsskuldanna
og fleira, sem orðið gæti til að
draga úr erfiðleikunum, eru fram-
kvæmdir I þá átt alls engar. í Mið-
jarðarhafslöndunum hefir tollur á
fiski verið hækkaður og í Englandi
hefir verið lagður 10% tollur á fisk,
en þar eru nú háværar kröfur ýmsra
um hærri toll á þá vöru. Einnig
hefir verið nokkurt umtal um að
tolla kjöt, flesk og hveiti þar i landi.
í Noregi skellur kjöttollurinn á 1.
júli þ. á.
Prátt fyrir hina margháttuðu erf-
iðleika kvaðst framkvæmdastjórinn
vænta þess, að úr þessum málum
rættist betur en nú á horfist. — Pá
tók framkvæmdastjórinn það fram,
að nauðsynlegt væri að nota frysti-
húsin sem ailra mest, og að félögin,
sem hafa frysthús, sendi ekki salt-
kjöt á innanlandsmarkaðinn, svo að
önnur félög, sem þurfa að salta allt
sitt kjöt, geti notið hans, þar sem
bætta er nú á því, að markaðurinn
f Noregi lokist að miklu ieyti.
Klæðaverksmiðjan Gefjun.
Jón Árnason framkvæmdastjóri
gaf skýrslu um framleiðslu verk-
smiðjunnar 1925—1931, og um starf-
semi hennar síðan hún var keypt.
Snemma á yfirstandandi ári voru
dúkar verksmiðjunnar iækkaðir i
verði um 10—20%, og hefir fram-
leiðslan aukizt til muna síðan.
í mai 1931 var sett á stofn út-
sala frá verksmiðjunni i Reykjavík.
Var nokkur halli á rekstri hennar
s. l. ár, en þá fékk útsalan aðeins
15% umboðslaun af seldum vörum.
í sambandi við útsöluna er rekin
saumastofa. Náðusthagkvæmirsamn-
ingar við klæðskera, sem veitir
henni forstöðu. Hefir rekstur sauma-
stofunnar gengið vel, og vinnur nú
9 manns á saumastofunni. Á Akur-
eyri hefir verksmiðjan einnig sauma-
stofu, sem var sett á stofn i sept-
ember siðastl.
Vilhjálmur Pór kaupfélagsstjóri
las upp reikninga verksmiðjunnar
fyrir s. I. ár. og skýrði þá. Á árinu
fékk verksmiðjan greiddar 108 þús.
kr. f vinnulaun og 62 þús. kr. fyrir
seldar framleiðsluvörur. Tekjuaf-
gangur verksmiðjunnar nam kr.
4.669.00, Ræðumaður taldi, að bjá
mörgum kaupfélögum væri ekki
nægilega mikill áhugi fyrir hags-
munum verksmiðjunnar. Æskilegt
væri, að félögin hefðu fyrirliggjandi
ýmsar af vörum verksmiðjunnar,
sem þau gætu afhent viðskiftamönn-
um gegn ull og greiðslu vinnulauna.
Hvatti ræðumaður ménn til að standa
saman um verksmiðjuna og skifta
við hana. Taldi heppilegt að kaup-
félagsstjórarnir söfnuðu pöntunum
á kembingu og létu verksmiðjunni
í té áætlanir um hve mikið fétögin
þyrftu af lopa og öðrum vörum
verksmiðjunnar. Var samþ. tillaga
þessu viðvikjandi. Ennfremur var
samþykkt:
»Fundurinn skorar á stjórn Sam-
bandsins að vinna að því, að stjórn
heilbrigðismála og menntamála rík-
isins beiti áhrifum sínum í þá átt,
að sjúklingar á heilsuhælum og
spítðlum landsins og nemendur í
skólum þess klæðist sem mest inn-
lendum ullarfötum<j
Samvinnuskólinn og »Samvinnan«.
Jónas Jónsson skólastjóri gaf
skýrslu um kennsluna f Samvinnu-
skóianum og kennaralið skólans og
gerði grein fyrir f járhagsaf komu hans.
Síðasta vetur var nemendafjðldi
skólans svo mikill, sem húsnæði
frekast Ieyfði.
Pá gaf J. J. einnnig skýrslu um
útgáfu ti'maritsins »Samvinnan<,
Urðu töluverðar umræður, og kora
fram almennur áhugi fyrir því, að
timaritið yrði gert fjölbreyttara að
efni og ötullega unnið að útbreiðslu
þess.
finnur mál.
Svohljóðandi tiltögur samþykktar;
»Fundurinn felur stjórn S. í. S,
að reyna að komast í samband við
Kaupfélag Eyfirðinga um áfram-
haldsrannsóknir á frystingu skyrs
og heimilar litilsháttar fjárframlag i
þessu skyni, ef með þarf<.
>Fundurinn heimilar stjórn S.Í.S.
að leggja fram nokkurt lánsfé til
að koma upp dúnhreinsunarstðð f
Stykkishólmi<.
Kosningar.
a. Tveir stjórnarnefndarmenn til
3ja ára:
Einar Árnason Eyrarlandi með 42
atkv. og sr. Sigfús Jónsson Sauð-
árkróki með 28 atkv. — Jón í Stóra-
dal hlaut 18 atkv.
b. Varamaður til eins árs: Sigurð-
ur Jónsson á Arnarvatni með 30
atkv. — Jón f Stóradal hlaut 9 atkv.
c. Tveir varastjórnarmenn tileins
árs: Vilhjálmur Pór og Jón ívars-
son kfstj. Höfn, með30atkv. hvor.
d. Endurskúðandi til 2ja ára:
Tryggvi Ólafsson Reykjavík með
26 atkvæðum.
e. Varaendurskoðandi til eins árs:
Ouðbrandur Magnússon forstj.
Rvík, með 25 atkv.