Dagur - 07.07.1932, Blaðsíða 4
im
DAGUR
21. tW,
Vasklega gert.
Pegar Lagarfoss var staddur á
Norðfirði i siðustu ferð sinni hing-
að, féll einn af þjónum skipsins
fyrir borð á næturþeli; með hvaða
atburðum það hefir skeð, veit eng-
inn. í sömu svipan kom einn af
hásetum skipsins, Jakob Porsteins-
son, bóksala Jónssonar, hér i bæ,
fram á bryggju þá, er skipið lá við,
og heyrir þá hrópað af annari
bryggju, að raaður sé i sjónum.
Vindur jakob sér þegar upp á
skipið og gérir einhverjum af yfir-
mönnum viðvart um, hvað fyrir
hafi komið. Siðan hleypur Jakob
aftur eftir þilfari skipsins og sér þá
á mann i sjónum náiægt 60 metr-
um frá landi; kastar þá Jakob af •
sér yfirkiæðum og steypir sér fyrir
borð i sjóinn og syndir þar að,
sem maðurinn er. Sá hann aðeins
á treyjulaf hans upp úr, Tók sund-
maðurinn þá að bjarga sundmann-
inum nær meðvitundarlausum i Iand.
í sömu andránni hrundu tveir menn
í landi báti á flot, til þess að hjálpa
til við bjðrgunina. En þá tókst svo
slysalega til, að báturinn renndi á
bjðrgunarmanninn og árarblað slóst
f öxl honum, svo að hann hlaut
nokkur meiðsl af. Lá þá bátnum
við hvolfi, en jakob hjálpaði til að
rétta hann við. Bátsmenn reru sið-
an i land með manninn i eftirdragi,
en Jakob synti til lands. Lifgunar-
tilraunir voru gerðar við manninn
er í sjóinn féll, og raknaði hann
við eftir 15 minútur og hresstist
fljótlega. Hefði hann efalaust drukkn-
að þarna, ef snarræði og sundkunn-
áttu Jakobs Porsteinssonar hefði
ekki notið við.
Jakob hafði verið nokkuð kvef-
aður að undanförnu og versnaði
honum svo við sjóvolkið, að hann
varð að ganga af skipinu og er nú
við rúmið hér heima hjá foreldrum
sinum.
Fyrir þessa björgunarþrekraun
sina ætti Jakob það skilið að fá
verðlaun úr þar til ætluðum sjóði
eða einhversstaðar að, og það ekki
sfður þegar þess er gætt, að hann
hefir nú um sinn orðið að iáta af
atvinnu sinni fyrir vasklega og
drengilega framgöngu i að bjarga
mannslífi.
Jakob Porsteinsson er aðeins 20
ára gamall. Hann hefir lært sund i
Laugaskóla,
----o----
Maður hverfur.
Miðvikudaginn 29. f. m. gekk
Ouðmundur Skarphéðinsson, skóla-
stjóri á Siglufirði og formaður
verkamannafélagsins þar, frá heimili
sfnu um 10-leytið árdegis. Sást
hann siðast f bænum að afliðandi
hádegi sama dag, en sfðan hefir
ekkert til hans spurzt. Hefir hans
verið ieitað daga og nætur af
hundruðum manna, bæði á sjó og
landi, en engan árangur borið.
Munu nú flestir vera úrkula vonar
um, að Quðmundur sé á lifi. En
hvernig dauða hans hefir að hönd-
um borið, er enginn til frásagnar
um'
Skoðun bifreiða.
Skoðun bifreiða skrásettra í Eyjafjarðarsýslu og Akureyrar-
kaupstað, fer fram dagana 12., 13., 14. og 15. júlí n. k.
Hinn 12. mæti A 1 til A 40
13. — A 41 - A 80
14. — A 81 - A 125
15. — E 1 - E 40
Ber öllum bifreiðaeigendum eða umráðamönnum þeirra, að
mæta með bifreiðar sínar þessa tilteknu daga á grasfleti norð-
austan Glerárgötu á Oddeyri frá kl. 9 til 12 f. h. og 1 til 6
e. h; Við skoðunina ber bifreiðaeigendum ennfremur að færa
sönnur á að bifreiðar þeirra séu í lögboðinni vátryggingu, og
greiða bifreiðaskatt lögum samkvæmt, eða semja um greiðslu hans.
Þeir bifreiðaeigendur, sem eigi mæta til skoðunar með bifreið-
ar sínar á tilsettum tíma, eða tilkynna gild forföll, sæta sektum
samkv. ákvæðum 8. gr. reglugerðar 1. febrúar 1928 um skoð-
un bifreiða.
Skrifstofu Eyjafj.s. og Akureyrarkaupst., 6. júlí 1932.
Bœjarfógetinn.
Ouðmundur var hjartabilaður mað-
ur og mun þvi hafa þolað illa sterk-
ar geðshræringar. Jafnvel er sagt
að komið hafi fyrir, er hann var að
vinnu i barnaskólanum, að hann
hafi tilefnislaust hnigið niður og
þurft að bera hann heim.
Að morgni þess dags, er Quð-
mundur hvarf, átti hann simtal við
mann f Reykjavík; voru honumþá,
eftir beiðni hans, lesnir kaflar úr
afar svæsinni skammagrein, er
Sveinn Benediktsson, stjórnarnefnd-
armaður rikisverksmiðjunnar, hafði
um hann ritað i Morgunblaðið.
Ouðmundur Skarphéðinsson var
prúðmenni í framgöngu, velkynnt-
ur almenningi og góðum hæfileik-
um gæddur. Hann tók mikinn þátt
i bæjarlífinu á Siglufirði, var í bæj-
arstjórn þar, og einnig var hann i
kjöri við síðustu Alþingiskosningar
i Eyjafirði af hendi Alþýðuflokksins.
■ o ■ —i 'n'
. ... . —4 ... i-JJj
Davið Porvaldsson,
skdld,
andaðist á Landsspitalanum i Rvik
á sunnudaginn var. Ekki varð hon-
um aldurinn að meini, þvi að hann
var aðeins 31 árs, nálega jafngam-
ail Baldvin Einarssyni, er dó fyrir
hartnær 100 árum. Davíð var sonur
Porvalds sál. Daviðssonar, kaupm.
og bankastjóra hér i bæ, og konu
hans, Jóhönnu Jónasdóttur frá Prast-
arhóli, sem látin er fyrir nokkrum
árum. Davið gekk skólaveginn, og
eftir að hann tók stúdentspróf frá
Menntaskólanum i Reykjavik, stund-
aði hann jarðfræðinám i Parísarborg.
En vegna heilsubilunar, og ef til
vifl fjárskorts, varð hann að hætta
námi. og snerist þá hugur hans tii
skáldskapan Hann ritaði >Björn
formaður og fleiri sögur<, og ann-
að skáldsagnasafn hefir komið út
eftir hann, er nefnist >KaIviðir<.
Enn fleiri smásögur hafa komið út
eftir hann. Bera sögur hans þess
ljósan vott, að hann hefir átt við-
kvæmt hjarta og verið fullur sam-
úðar með þeim, sem hart urðu úti
í lifinu, jafnt mönnum sem málleys-
ingjum, enda fékk hann sjálfur að
kenna á hörkutökum lífsins. Á
bernsku- og æskualdri var Davíð
fjðrmikill og lífsglaður, en gieðin
og lifsfjörið dvinaði með þroska-
aldrinum fyrir sigð heilsuleysis og
annara örðugleika. í öllu sínu dag-
fari var hann yfirlætislaust prúð-
menni og má um hann segja hið
sama og kveðið var fyrir iöngu um
annan gáfumann látinn:
>Sem um haga sólarfjós
gekkstu saklaus, hægur, hljóður,
hýr og skemmtinn, öllum góður,
smáðir gort og glys og hrós«
o '
Fr éttir. -
Eggert Stclánsson söngvari, kemur hing-
að með Gullfossi í dag og ætiar að syngja
hér aðeins í eitt skifti,
Dánardægur.t Látinn er á öxnhóu \
Hörgárdai bændaöidungurinn Sigurður
Slgurðsson, kominn á níræðisaidur. Hann
var orðlagður dugnaðar- og kraftamaður.
Nýlega er látin i Kristneihæii unginí
Nikoiina Jónsdóttir kennara Kristjánssonar;
hún var tvítug að aldri, gáfuð efnisstúlka.
Pá er og nýlátin á sama hæli frú Nanna
Margrét Júliusdóttir, kona Júliusar Jóns-
sonar frá Borgarhóli.
Fyrir skömmu andaðist Ólafur Gisiason
í Viðey. Hann var kvæntur Jakobínu
Davíðsdóttur Ketílssonar héðan úr Eyjafirði.
Litin er að heimili sínu, Oddeyrargötu
23 hér í bæ, Sigurbjörg Jónasdóttir, há-
öldruð kona, sem verið hefir á vegum
Elísabetar Eiriksdóttur kennslukonu og
þeirra systkina.
Austan- og norðanátt með stórrigningum
annan spretttinn er nú á degi hverjum.
Víða er búið að slá mikið á túnum og
liggja töður manna undir 3tórskemmdum
vegna stöðugra óþurka.
Valtýr Stefánsson ritstjóri, frú hans og
tvær dætur, dvelja hér í bænum þessa
dagana í sumarfríi.
Grænlandsleiðangur. Tvö dönsk skip,
»Gustav Holnu og »Godthaab«, hafa leg-
ið hér á höfninni að undanförnu. Eru þau
á leið til Grænlands og flytja þangað
vísindaleiðangursflokk undir forystu Lauge
Kochs Iandkönnuðs. Tvær flugvélar eru
með í förinni. Leiðangursmennirnir ætla
að mæla og kortleggja svæði á Austur-
Grænlandi, sem er meira en tvöfalt að
stærð við ísland,
Enskir vísindamenn, 6 að tölu, lögðu
fyrir skömmu á stað úr Hornafirði upp á
Vatnajökul. Ætla þeir að dvelja þar
nokkrar vikur við rannsóknir.
Iveir fpróttaflokkar, undir stjórn Her-
manns Stetánssonar, fóru fyrir nokkru til
Reykjavíkur, til þess að keppa við íþrótta-
félögln þar, Var það knattleikaflokkurinn
úr K. A. og iþróttaflokkur kvenna. Úrslit
kappleikanna urðu þessi: K. A. vann
»Fram« með 2 :0 og »Víking« með 3:0,
en tapaði fyrir »VaI« með 1:0 og K. R.
með 4:1,— í handknattleik kvenna úr
K. A. og K. R. unnu Akureyrarstúlkurnar
með 13:1.
Konráð Kristjánsson, cand. theoi. frá
Litlu-Tjörnum, andaðist fyrir nokkru austur
i Fljótsdalshéraöi. Með afburða dugnaði
hafði hann brotizt gegnuw mikla örðug-
Fægidui ,Dyngja'
(kraftskúripúlver)
er ómissandi í hverju eldhúsi og
baðherbergi, til að hreinsa með:
potta, pönnur, eldavélar, eldhús-
borð, vaska, baðker, flísar, gamla
málningu, óhreinar hendur o. fl.
o. fl. »DYNGJA« er ódýrasta og
bezta efnið til þesskonar hreins-
unar. »DYNGJA« fæst hjá öll-
um sem verzla með hreinlætis-
vörur. »D Y N G J A« er íslenzk
framleiðsla.
Styðjið íslenzkan iðnað, með pvi að kaups
— ætíó það íslenzka. —
„I Ð J A" Akureyri.
^ á aðeins
kr. 1.00 pr. kg. B
Kjötbúðin.|
HBk.e.a.hhbS
iióð sneuiiær kýr ~
Upplýsingar gefur Árni Júiiannss. K.E.fi.
leika á námsbraut sinni. Hann var maður
ágætlega vel látinn af öllum, er honum
kynntust, og þeir, sem þekktu hann bezt,
gerðu sér glæsilegar vonir um framtiðar-
starf hans. En þegar að því kom, að hinn
eiginlegi starfsdagur skyldi hefjast, hvarf
hann skyndilega út yfir landamæri jarð-
lifsins.
Ritstjóri:
Ingimar Eydal, Gilsbakkaveg 5.
Prentsmiöja Odds Bjömssonar.