Dagur - 22.12.1932, Page 1
D A GjU R
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjalddagi fyrir 1. júli.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Afgreiðslan
er hjá Jóni Þ. Þór,
Norðurgötu 3. Talsími 1135.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
XV. ár.
Akureyri 22: desember 1932.
" 51. tbl.
Gomul
spurning.
(Aðventurœða eftir séra
Benjamln Kristjánsson).
Texti: Matt. n. 2.—6.
>Ert þú sá sem koma á, eða eig-
um vér að vænta annars?* Pað er
Jóhannes skírari, sem spyr þessarar
spurningar, en Jesús Kristur sem
svarar. Oss undrar á spurningunni
vegna þess hver það er sem spyr.
Eftir því sem oss er skýrt frá í
nýja testamentinu, var það einmitt
Jóhannes skírari, setn fyrstur vakti
athyglina á Jesú, sem skírði hann
og varð þá undir eins til að trúa
á, að hann væri Messías. »Eg skíri
yður með vatni«, sagði hann, »en
þessi maður mun skfra yður með
heilögum anda og eldu. bað var
einnig Jóhannes, sem sagði þessi
einkennilegu orð: »Eg á að minnka,
en hann að vaxaU Pá var þaðjó-
hannes einn, sem virtist trúa því,
að Jesús væri sá, sem hann og
aðrir spámenn hðfðu spáð um. Nú,
þegar Jesús hafði þó ððlast tals-
vert marga lærisveina, sem trúðu á
hann, var eins og trú Jóhannesar
færi að dvina. Hann sendir til hans
og lætur segja við hann: »Ert þú
sá sem koma á, eða eigum vér að
vænta annars?<
Oss undrar enn meir á spurn-
ingunni, þegar vér athugum skap-
gerð Jóhannesar. Eftir því sem
Jesús hefir lýst hönum var hann
enginn veifiskati: »Hvað fóruð þér
út i óbyggðina að sjá? Reyr af
vindi skekinn? Eg segi yður: Eigi
hefir fram komið meðal þeirra, sem
af konum eru fæddir, meiri maður,
en Jóhannes skfrarú. Slfkur var
vitnisburður Jesú um þennan mann.
Hann virðist hafa verið sterkur og
ósveigjanlegur eins og klettur. Ekk-
ert fékk snúið honum né haft áhrif
á hann. Hann kom ekki til fólksins
eins og grenjandi lýðæsingamaður.
Fólkið kom til hans, öll Jerúsalem
og öll Júdeubyggð segja ritning-
arnar, þar sem hann prédikaði i
óbyggðinni hinn eindregna aftur-
hvarfs boðskap og skfrði menn iðr-
unarskfrn til undirbúnings hinu
komanda rfki. Vér skyldum því eigi
ætia að hleypidómar lýðsins eða
geðbrigði hefðu haft minnstu áhrif
á Jóhannes. Heilt konungsrfki eða
ðll auðæfi heimsins, mundn ekki
hafa haggað sannfæringu hans um
hársbreidd. Pví að hann var sér
þess fyrst og fremst meðvitandi að
vera spámaður guðs, og sú ábyrgð,
sem hann bar fyrir honum einum,
var i huga hans ðllu ððru meiri.
En nú er skyndilega svo komið,
að það er eins og þessi sterki og
trausti þjónn drottins sé farinn að
efaat. Vissan og ðryggi sannfær-
ingarinnar er horfið. Hann getur
ekki framar búrið djarfan og hik-
lausan vitnisburð og sagt: >Þessi
er sá sem andinn heilagi hvílir yfir«,
Hann getur aðeins spurt úg sagt:
>Ert þú sá sem komaá, eða eigum
vér að vænta annars?«
Hvað hafði komið fyrir? Til
þessarar breytingar liggja auðvitað
margar orsakir. Pó að Jóhannes
væri sterkur, var bann samt háður
umhverfinu, eins og vér erum óll.
Og umhverfið hafði breytzt. Fyrir
djarfyrði sfn og spámannlegan eld-
móð hafði Jóhannesi verið varpað
í fangelsi. Frjálsræði óbyggðarinnar
umvafði nú eigi framar hugsanir
hans. Nú var það fangelsisklefinn
rakur og kaldur. Kuldinn og myrkr-
ið smaug inn i sál hans. Og í
myrkrinu fölna vonirnar og hverfa,
en efinn læðist inn í hugann, spinn-
ur þar sinn mauravef, vex og marg-
faldast. Pað er auðvelt að trúa og
efast ekki meðan hamingjan er
oss hagstæð. En þegar atvikin snú-
ast gegn oss, verður allt ðrðugra.
Pessvegna var það ekkert að undra,
þó að Jóhannes treysti sjálfum sér
og dómgreind sinni meðan ðll
Jerúsalem og Júdeubyggð kom út
f óbyggðina til hans og hlýddi
hugfangin kenningu hans. Slikt
áhrifavald gerir menn i senn styrk-
ari og öruggari í sinni sök. En
þegar hann, vörður hins guðdóm-
lega réttlætís, varð að lúta i lægra
haldi fyrir andstæðingum sfnum;
þegar fjárgráðugir og siðlausir þjóð-
hðfðingjar stigu á háls honum og
menn fóru að gieyma honum i svart-
holinu, þá herjaði efinn fyrst á hann:
Hvar var Drottinn Zebaoth með
sína ósigrandi herskara? Hvf lét
hann slíkt ranglæti viðgangast, ef
hann var drottinn réttlátra? Studd-
ist þá sannfæring hans um >hinn
smurðac við nokkuð annað en raka-
lausa ímyndun? Og sama spurn-
ingin vaknar þá fyrír honum og
leitað hefir á hugi svo fjðlda margra
efahyggjumanna siðan: Er Jesús sá
sem koma á, eða eigum vér að
vænta annars.
Vér skulum fyrst reyna að líta á
spurninguna frá sjónarmiði Jóhann-
esar. Hann hafði enn ekki séð, og
sá aldrei f þessu lffi, nema rétt að-
eins byrjunina á starfsemi Jesú. Pað
var þvf meira af innsæju hugboði
en raunrænni þekkingu á þessum
manni, sem Jóhannes spáði um Jesú,
að hann væri hinn tilkúmandi
Messias. Brennandi sannfæring hans
fyrir því, að bjálpræði guðs hlyti að
vera í nánd, hefir vafalaust ráðið
miklu um, að hann sá það, sem
hann vildi sjá. Veruleikinn skapast
oft ihugum manna og imyndun
alveg eftir því sem þeir vilja sjálfir
vera láta. Ef Jóhannes hefði geng-
ið frjáls, mundi hann sennilega hafa
haldið áfram að trúa á Jesú, sem
hinn komandi friðarhðfðingja. En f
fangelsinu koma spurningarnar hver
af annari: Ef Jesús væri f raun og
veru Messias, hinn fyrirheitni höfð-
ingi réttlætisins og friðarins, hvi
sýndi hann þá ekki vald sitt með
þvi að brjóta opnar dyr dýflissunn-
ar, hann sem hlið heljar áttu ekki
að verða yfirsterkari ? Var ekki Jó-
hannés i fangelsi einmitt vegna
þess, að hann hafði gert skytdu
sina Og boðað komu hans? Oghvf
skyldi Messias þá ekki rétta hluta
hans, þar sem hann þjáðist fyrir
réttlætisins sakir.
Hann hafdi ávítað sjálfan kon-
unginn, Heródes, fyrir ranglæti hans
og ofbeldisverk, er hann rak burt
frá sér konu sína, en tók konu
bróður síns. Svo fágæt diifska þótti
óheyrileg, enda var honum þegar
varpað i fangelsi. En Jóhannes hélt
áfram að hlýða rödd samviskunnar
og ávita konunginn fyrir glæpi hans,
enda þótt hann bakaði sér einnig
með þvi fjandskap Heródfasar, sera
sat um hvert færi til að láta ráða
hann af dögum. Sjálfur næstum
þvf óttaðist konungurinn þennan
einarða, brennandi mælska spámann,
sem með- bersðgli sinni stakk svo
í stúf við smjaðrandi hirðina og
sagði aðeins það eitt, er hann hugði
rétt vera. Hann óttaðist líka vald
hans, af þvi að hann átti marga
lærisveina. Pessvegna vóg hann i
hendi sér örlðg hans, óviss hugar,
meðan Jóhannes dvaldi i fangelsinu,
einn með hugsanir sínar og vænti
þess fastlega að hinn útvaldi hðfð-
ingi réttlætisins, Kristur, léti nú til
sfn taka og leystl af sér bðndin.
En Jesús kom honum ekki til
bjargar. Pað leit jafnvel út fyrir að
hann hirti ekki hið minnsta um
hann. í engu var það sjáanlegt, að
Jesús léti sig nokkru skifta örlög
þess manns, sem verið hafði ffyrir-
rennari hans og greitt veginn fyrir
honum. — Og þá var ekki nema
eðlilegt, að sú spurning vaknaði,
hvort þessi maður gæti veriðKrist-
ur. Pvf að sá Kristur, sem spámenn-
ina hafði dreymt um, elskaði rétt-
lætið og steypti ranglætinu afstóii.
Hann þoldi engin ofbeldisverk, rétti
hluta lítilmagnanna en iægði dramb
hinna hrokafullu.
Og heimurinn hafði svo lengi
þráð réttlæti, en enginn konungur
hafði reynst fær um að framfylgja
því. Samt sem áður hélt heimurinn
áfram að láta sig dreyma um þenn-
an friðarhöfðingja, sem að lokum
mundi stofna rfki réttlætisins á jörðu.
Jóhannes hélt að það yrði Jesús —
en hann beið og ríkið kom ekki að
heldur. Að vfsu talaði Jesús um
réttlæti, um frið og sannleika. En
orð hans virtust ekki megna að
steypa ranglætinu af stóli. Hann
virtist ekkert hirða um það, þó að
saklaus maður væri þjáður f dýlf-
issu. Að minnsta kosti hreyfði
hann hvorki hönd eða fingur hon-
um til bjargar. Pessvegna kom
spurningin stöðugt raeð vaxandi
þunga: Gat Jesús verið sá sem
koma á, eða áttu þeir að vænta
annars ?
Sumir hafa sagt, að ótrúlegt sé
að jafnmikill spámaður og Jóhannes
var geti hafa efast. Frásagnir nýja
testamentisins staðfesta þetta hik-
iaust og það ér vafalaust satt. Enda
var f sjáifu sér ekkert eðlilega, því
að flestar staðreyndirnar virtust
ganga á móti sannfæring hans.
Vér skulum ennfremur aðgætaþað,
að sannfæring vor um andlega hluti
stendur jafnan veikari fótum, en
sannfæring vor um efnislega hluti.
Um efnislega hluti getum vér ávalt
sannfærst af reynslunni, en um
andlega hluti er eins og vér séum
meir háð ýmsum þeim lögmálum,
sem vér ráðum ekki við og skiljum
ekki. Styrkur trúar vorrar virðist
vaxa eða þverra eftir ýmiskonar á-
hrifum, sem vér verðum fyrir.
Pegar vel liggur á oss og allt geng-
ur að óskum, erum vér bjartsýn og
trúum þvi statt og stöðugt, að sjálf-
sagt sé að framfylgja öllu réttlæti
og að hið góða hljóti að vinna
sigur að lokum. - En vér erum
ekki alltaf jafnviss um þetta. Stað-
reyndir Iffsins virðast stundum mæla
svo ákaft á móti þvf, að það verð-
ur örðugra að trúa. Menn, sem af
alhug hafa viljað þjóna réttlætinu,
eru iðulega troðnir undir fótum, en
aðrir hefjast til auðs og valda með
rangindum og svikum. Petta er hin
eilifa og örðuga ráðgáta trúarinnar.
Peim, sem guð elska, samverka
allir hlutir til góðs, segir postulinn.
Pessu virðist oft vera farið á ann-
an vég. Peir, sem guð elska, virð-
ast engu að síður undirorpnir ýmis-
konar mannlegum hörmungum. Peir
eru hrjáðir og pfndir fyrir réttlætis-
ins sakir. Og óskiljanleg harmkvæli