Dagur - 22.12.1932, Blaðsíða 3

Dagur - 22.12.1932, Blaðsíða 3
51. tbl. DAGUR 205 ar og tortryggni. eigingirni og hverskonar smásálarskapar hrynur af sál vorri eins og ryð af stáli, svo að hún getur gengið hrein og djörf fram fyrir skapara sinn. Og eyrun opnast fyrir nýjum sannleika, sem menn skildu ekki áður. Pau opnast fyrir rödd samviskunnar og kærieikans. Pá iís mannlélagiö dauft og dofið upp til nýs lits. Allt, sem hér er í rústum og dauða, eða fer á ein- hvern hátt aflagá i voru samfélagi, stafar af skorti á þessu þrennu: Viti, vilja eða kærleika. — Kærleik- urinn var lausnarorð Jesú á öllum hörmungum mannanna, af þvi að hann var fyrir honum allt i senn: Vitsmunaleg lausn á gátu lífsins, vegur til lífernis og tilfinning, sem hratt viijanum tii athafna. Höfum vér fundið nokkurn ann- an veg, sem liklegri sé til hamingju en vegur kærleikans? Hefirfátækum verið boðaður gleðilegri boðskap- ur en boðskapur kærleikans, ef vér tryðum honum og breyttum eftir honum ? Getur nokkur Messias unnið dásamlegri kraitaverk en þau, sem Jesús Kristur getur gert á hverjum þeim, sem á hann hefir trúað ? Petta eru spurningar, sem vér verðum að leggja fyrir oss, þegar vér höldum afmælishátíð hans og vér verðum að ieggja þær fyriross með alvöru og einlægni. Vér erum öll fátæk af flestu þvi, sem máli skiftir, þeim fjársjóðum, sem hvorki mölur eða ryð grandar. Ritningin segir, að Kristur hafi gerst fátækur vor vegna, til þess að vér gætum auðgast i fátækt hans. Hver maður gerist fátækur, sem lifir misskildu lífi til þess að boða daufum og dumbum og vanþakklátum lýð guðdómlegar kenningar. En þetta var gert með þeirri von, að ein- hverntíma mundu augun og eyr- un opnast og þá mnndi mannkyn- ið geta auðgast af fátækt hans. Og það er enginn efi á þvi, að mannkynið getur lært óendaniega mikið af Jesú Kristi ennþá, ef það fæst aðeins til að trúa á hann. Fyrst þegar vér förum að lifa og starfa i anda Krists, sjáum vér, hvort hann er sá sem koma á. En Jesús kúgar engan til fylgis við sig. Veg- ur kærieikans er ekki vegur þræi- dóms heidur frelsis. Einmitt þess- vegna er þetta vegurinn, sem er mjór og torfundinn. Pessvegna sit- ur Heródes enn að völdum, hinn undirföruli þjóðhöfðingi, sem Jesús nefndi eitt sinn ref. Hann er mað- urinn, sem dýrið er rikara i en andinn. En vér vonum að veldi hans hrynji að lokum og andinn beri hærra hlut. Herodfas kona hans hefir einnig mikil völd meðal vor og áhrif. En einhvern tima líður að þvf, að sú konan, sem á aðeins fegurðina, en enga mannkostina, verður lftils metin og nær ekki að ganga á milii bols og höfuðs á spámönnura guðs. Jóhannes skirari situr enn f fangelsinu um stund. í slíkum heimi, sem .enn er svo skammt á veg kominn, hlýtur sak- leysið að þjást vegna hinna seku og dyggðinni að vera varpað i fangelsi við og við. En á endanum verður það dyggðin og sakleysið, sem ber bærra hlut. Dyggðín próf- ast og verður ósigrandi af þjáning- unni og jafnóðum hverfa skuggar þess illa eða ófullkomna á braut. Pessi sýnist hafa verið trú Jesú Krists og þannigtrúir sérhvermað- ur, sem vill feta f bans fótspor. Og þó að fáir hafi ennþá verið nógu miklir til að vera sjálfum sér samkvæmir alit f gegn eins og hann og sigra illt með góðu eins og hann, þá er engin önnur leið til að kom- ast að endanlegri raun um sann- leiksgildi kristindómsins önnur en lifa í kristindómnum. Vor jólagleði og jólaheitstrenging sé að vinna verk Jesú Krists. Með þvi eina móti höidum vér heilaga þessa hátið til minningar um hann. Látum yndisleik lífernis hans og heilagan frið trúar hans fylla hugi vora og hjörtu birtu nýrra hug- sjóna. Látum hann opna augu vor og eyru, styrkja máttvana vilja, hreinsa likþráan hug og reisa kær- leik vorn upp frá dauðum. Með þvf móti nær dýrð guðs i upphæð- um að skfna niður á jörðina og útbreiðast yfir hanafrá sólarupprás eins langt og röðull rennur. Pá vex friður guðs og velþóknun meðal mannanna. Pá skfn Betlehemsstjarna sannleikans yfir öllu mannkyninu og vitringarnir koma úr öllum átt- um tif að votta friðarkonunginum lotningu. Ef jólaæfintýrið er ekki veruleiki nútíðarinnar, þá töpum þó ekki trúnni á það, að það geti orðið og eigi að verða sannleiki framtíðarinnar. Bjóðum hver öðrum .gleðileg jól f þeirri vissu og trú. ■-----o.... Hjálp í viðlögum við slys og sjúkdóma. Pað er kunnara en frá þurfi að segja hve nauðsynlegt er hverjum manni og konu að kunna að veita bráðabirgðarhjálp áður en næst til iæknis eða hjúkrunarkonu, þegar skyndilega vilja til slys eða sjúk- dóman Rauði Kross íslands hefir nú f nokkur ár sent hjúkrunarkonu viðs- vegar um landið til að kenna slfkt og hafa margir notið góðs af og skilníngur alþýðu hefir vaxið á því hve góð og gagnleg slík tilsögn getur verið. Hjúkrunarkona Rauða Krossins frk. Sigriður Bachmann, hefir nú um tima dvalið hér fyrir norðan og haldið námskeið á ýmsum stöð- um, sfðast á Siglufirði. Meðan bún enn dvelur hér, ætlar hún að tilhlutun Rauða Kross Deild- ar og Slysavarnarsveitar Akureyrar að gefa bæjarbúum kost á að njóta tilsagnar i hjálp f viðlögum, laust eftir áramótin. Peir sem vilja sinna þessu geta skrifað sig á lista, sem verður lagð- ur fram í Bókaverzlun Porst. M. Jónssonar og nánari upplýsingar getur undirritaður gefið (Brekkugötu kl. 1— 2 daglega)enda verður seinna ákveðið betur um stað og stund kennslunnar. Sleinorlmur Maltbiasson. ------O....- Dómur hœsíaréíiar í máli C. Behrens og Magnúsar Guðmundssonar féll 19. þ. m. Var dómurinn á þá leið, að hæstirétt- ur fann hvorki blett né hrukku á framferði hinna ákærðu og dæmdi þá báða, Behrens og M. G., al- sýkna saka. Aðalmálgagn íhaldsflokksins, Morgunblaðið, lýsti því yfir, löngu áður en mál þetta var tekið fyrir í hæstarétti, að Magn. Guðm. væri saklaus og að allir »sjálfstæðis- menn« vissu, að hæstiréttur sýkn- aði hánn. Það verður naumast lit- ið á þessa yfirlýsingu Mbl. öðru- vísi en svo, að blaðið hafi gefið hana út í umböði hæstaréttar, áð- ur en rétturinn tók málið til með- ferðar og athugunar. Hæstiréttur hefir með öðrum orðum staðfest dóm Mbl. yfir M. G. Sé það nú svo að starf hæstaréttar sé einkum og fyrst og fremst í því fólgið að staðfesta áður uppkveðna dóma Mbl. yfir vel klæddum íhalds- burgeisum, sem almenn réttai- meðvitund dæmir seka, þá sýnist raunar að þjóðin geti sparað sér hæstarétt og falið Mbl. einu að kveða upp dómana. Fullyrt er að það hiksti í mörg- um íhaldsmanni yfir því að Beh- rens skyldi vera dæmdur sýkn saka. Þeir segjast ekki hafa átt von á því og ekki ætlast til þess að hæstiréttur gengi svona langt, og það sé líka heldur nm of áber- andi. Þeir hefðu látið sér nægja, að Magnús var sýknaður. En þeir geta þess ekki, að það var með öllu ógerningur að sýkna Magnús, nema Behrens hlyti einnig sýknu- dóm. Hitt vissu allir áður, að í- haldsmönnum var alveg sama m Behrens, með því þeir telja bann einn af smælingjunum og sér ó- viðkomandi. Síðar mun gefast tækifæri til að minnast nánar á þenna sýknu- dóm hæstaréttar. O----- t Kristján N. Wiium bóndi i Fagradal í Vopnafirði. Fæddur 23. april 1880. Dáinn 1. júní 1932. Það bezta í mönnunum œttjörðin á af orku og kærleik og vilja, pá gleymt er ei honum, sem gott allt er frá og gaf okkur vit á að skilja að lausnin er hentugust þróttvana þegn, sem þráir að starfa fen er það um megn. En okkur finnst sárast að misas þá menn sem mest vilja laga og bæta, sem helzt vildu afreka afköstin þrenn og ætíð að skyldunum gæta, sem andlega og verklega vinna í senn fyr’ víngarðinn drottins og samtíðar- menn. Eg vissi það, góði, að andláti að hlaut eymdin þig skjótlega að bera, en samt varð ég hljóður, er heyrði ég það, en hugsunin nóg hafði að gera, — JÖRÐ — 2. árg. er nýkomin úL 240 bls.; par af um 10 bls. myndir. Verð: 5 kr. I úskrilt, 6kr. í lausasölu. Fæst hjá búksölum og aígreiðsl- unni Lækjarg. 6A., Reykjavik. 2 orgel. Nýtt Köhler-orgel með tvöföldu hljóði og aotað Östlind&Almqvist- orgel með fjórföldu hljóði, til sölu með tækifærisverði og góðum greiðsluskiimálum.— Bezta jólagjöfl Hljóðfœrav. Gunnars Sigurg.ss. Krómatisk barmonika tíl sölu. Tækifærisverð. Hljóð.f.v. Gunnars Sigurgeirss. Grammofónplötur f afar fjölbreyttu úrvali. Piötur við ALLRA hæfi. Kærkomnustu jóia- gjaíirnar eru grammofónplötur úr tiljóðfærav. Gunnars Sigurg.ssi því minningar fagrar um manndóminn þinn þar mörkuðu sporin, er geymast um ainn. Þá einhvers af kærleika hendi var hreyíð, þitt hjarta það titraði af gleði, ef aðeins var hagsbót þeim aðþrengda leyfö svo aftur hann fluginu réðL Hið þegjandi tillit sem talandi mál það túlkaði bezt þina göfugu sáL Haf alúðar þökk fyrir æfinnar starf og ágætar samveru stundir; svo heilsteypta mannvini þjóðin mtn þarf, sem þrekraunir mýkja og undir, sem lífs eru’ og dauðvona örfandi afl unz yfir er lokið með hérvistar tafl. Holldór Benedikt88on. ■ 0 Fréttir. Ný jólabók. Þórhallur Bjamarsoil prentari í Reykjavík hefir gefið út mjög snotra, litla jólabók, er heitir »Jólin koma«. Eru það barnakvæði eft- ir Jóhannes úr Kötlum, prýdd teikning- um við hvert kvæði, gerðum af Tryggva Magnússyni. Eru margar teikningar af jólasveinunum, einnig af Grýlu, jóla- kettinum o. fl. Letrið á kvæðunum er stórt og aðgengilegt til lestrar fyrir börn, og er bókin tilvalin jólagjöf handa börnum. Bráðabirgðalög um »heimild fyrir ríkisstjórnina til íhlutunar um sölu og útflutning á fiskiframleiðslu ársins 1933« háfa verið gefin út af útvegs- málaráðuneytinu (Ólafi Thors) og stað- fest af konungi 6. þ. m. Hefir viðkom- andi ráðherra nú þegar gefið út tilskip- un saankvæmt þeim lögum, sem gengur í gildi um áramót. Sölusamlagið hefir samkvæmt þv£ einkasölu á ísl. saltfiski til útlanda frá 1. jan. næstk. og skal greiða 25 kr. sekt fyrir hvert skp., sem flutt er út utan samlagsins og í bága við bráðabirgðalögin. Þó ná þessar ráðstafanir eigi til þess fiskjar, sem lagður er 6 land fyrir áramót.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.