Dagur - 22.12.1932, Blaðsíða 2
204
DÁGUR
51. tbU
nufntnfflfflfitiimi
■>* ■
fSf II I I * I I r m
r
eru enn óseld. — Seljum þau fáu stykki sem eftir
eru af meters trjám fyrir kr. 4,00 stk. og 2ja
metra trjám kr. 5,00 stk. — Þeir sem enn eiga
eftir að kaupa jólatré ættu að nota tækifærið og
panta eitt strax, meðan ekki er um seinan.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Járn- og glervörudeildin.
Éuuuiuiuiiiuuiiíia
My ndastof an
Oránufélagsgötu 21 er opin alia
daga frá kl. 10 — 6.
Guðr. Funch-Rasmussen.
eru stundum lögð á þá, þjáning,
sem örðugt er að skilja að geti
gert nokkurn mann betri eða sé
lögð á menn af nokkru yfirlögðu
vísdómsráði guðlegrar miskunnar.
Surnir hyggja ,að þetta séu eins-
konar syndagjöld liðinnar æfi, eða
jafnvel margra liðinna lífsskeiða og
að á þennan hátt verði menn að
jafna reikninga sina við tilveruna
fyrir bérnskugiöp sin og jafnframt
aé þjáningin emskonar deigla, sem
prófar sálirnar til skilnings og sam-
úðar og þolinmæði. En þetta, að
guð sé kærleikur, þrátt fyrír allt,
verður að sjálfsðgðu aldrei sannað.
Pað verður ailt að vera trúaratriði,
þvf að staðréyndir hins ytra veru-
leika virðast æpa hver á móti ann-
ari.
Pannig erum vér: trúaðir, þegar
geisiarnir falla á oss, en undireins
og vér erum lokaðir inni í dýflissu
brjótast spurningarnar fram. En vér
skulum ekki imynda oss að spurn-
ingarnar séu syndsamiegar eða verðí
oss til ills. Pví að trú sérhvers
mikilmennis hefir prófast af efanum
og enginn kemst auðveldlega að
sannfæringu, sem nokkurs er virði.
Jafnvel varð Jesús sjálfur eitt sinn
að ganga í gegnum þetta sama
fangelsi efans og þá spurði hann
spurningar, sem virðist brjóta i bág
við ailar kenningar hans. Hann
hrópaði i örvæntingu sinni þessa
æfafornu spurningu sálmaskáldsins
Og allra sem staddir eru i nauðum :
>Ouð minn, guð minn, hvi hefir
þú yfirgefið mig?< Jafnvel trú Jesú
Krists gat spurt slíkra spurninga.
Pessvegna ásakar hann heldur ekki
Jóhannes skirarai Hann skildi hann
áreiðanlega og hafði samúð með
honum. Og hann svaraði honum.
En svarið virðist oss við fyrsta
tillit hafa hlotið að verða vonbrigðii
Jóhannes sendir lærisveina slna til
hans og lætur þá spyrja hann mjög
ákveðinnar spurningar. Pað mætti
ætla að svarið yrði þá á sama hátt
beint og skýiaust. Pvi að það er
einlægur maður, sem spyr í alvöru,
og hann spyr þannig að ætla mætti,
að svarið yrði annaðhvort já eða
nei. En það er eins og Jesús fari
kringum spurninguna og hliðri sér
bjá þvf að svara henni beint pg
ákveðið. Allt, sem hann segir, er
þetta: >Farið og segið Jóhannesi,
hvað þér sjáið og heyrið«.
Vér vitum ekki hversu vel þetta
svar hefir nægt Jóhannesi. Oss
virðist það i fyrstu óákveðið. En
eins og mörg tilsvör Jesú skýrist
það og vex í huga vorum því meir,
sem vér hugsum um það. Og þeg-
ar vér förum að virða það betur
fyrir óss, lýkst það skyndilega upp^
fyrir oss, að það hefir einmitt guð-
dómlega vizku að geyma. Vér sjá-
um allt í einu í hverju fullkomið
svar er fólgið. Pað er ekki fólgið í
þvf, að svara i fullyrðingum og
kennisetningum, sem ætlast er til
að skilyrðislaust sé trúað. Pað er
fólgið í þvi, að ýta þann veg við
athygii og hugsun umspyrjandans,
að hann læri að álykta og svara
sér sjálfur. Á annan hátt verður öll
trú vor hégilja og sannfæring vor
hleypidómur.
Samkvæmt þessari reglu bendir
Jesús iærisveinum Jóhannesar á þá
dásamlegu hluti, sem allstaðar ger-
ast, þar sem hann er að starfi.
>Blindir menn fá sýn og haltir
ganga.<-------Petta átti einmitt að
gerast á dögum friðarkonungsins,
samkvæmt spádómunumi En vafa-
laust talaði Jesús með þessum orð-
um í likingu og viidi einnig benda
með þeim til þeirrar meginviðleitni
sinnar að lækna sálirnar og mann-
félagsmeinin, engu sfðui en mein
líkamans. En í þessu starfi, sem
hann var að leitast við að vinna
og áleit köllun sina að vinna, sagði
hann Jóhannesi að leita vitnisburð-
arins um það hver hann væri.
Petta er sá mælikvarði, sem iika
er sjálfsagt að leggja á hvern mann.
Vitnisburðurinn um það hver hann
er, hlýtur að vera fólginn f því
fyrst og fremst hvað hann starfar
og 'vill, en ekki í hinu, af hvaða
aett hann er eða með hverju móti
hann hefir fæðst. Mörgum finnst
jólasagan tapa öllu gildi sínu, ef
vér förum að álíta það, að Jesús
hafi í raun og veru fæðst á svip-
aðan hátt og aðrir menn og að
helgisðgnin um fæðingu hans^ sé
aðeins fallegur skálddraumur um
hluti, sem enginn veit eða getur
vitað til fulls. Auðvitað er þetta
fulikominn misskilningur á öllu því,
sem máli skiftir um Jesú. Jólin
öðlast ekkert gildi af þvf, hvernig
Jesús f æ d d i s t. Þau öðlast allt
gildi sitt af þvf, hvernig Jesús
I i f ð i. Pað er þessvegna, sero vér
höldum fæðingarhátið hans, að
hann lifði þannig og starfaði þann-
ig, sem mannkynið, það er að segja
hinir fullkomnustu," vitrustu og
beztu menn þess, hafa ávalt þráð
að starfað væri. Vér getum ekki
trúað á Jesúm vegna neinnar helgi-
sagnar aftan úr forneskju, sem vér
vitum að á margar hliðstæður í
ýmsum trúarbrögðum. Vér getum
aðeins trúað á hann, ef úss virðist
að líf hans og kenningar hafiverið
i samræmi við það, sem vér vitum
bezt og fegurst og ef vér erum
viss um, að slíkt líf og hans muni
að lokum lyfta byrði armæðunnar
af herðum mannkynsins, ef menn-
irnir Iærðu yfirleitt að breyta á
sama hátt.
Að þessu laut hin æfaforna
spurning, sem vakti i huga Jóhann-
esar fyrir nitján hundruð árum og
hinnar sömu spurningar er spurt
enn í dag. Og hvernig stendur á
því eftir allar þessar aldir, sem
menn hafa þó trúað á Jesú, að
hann hefir þó hlútið viðurkenningu
margra kynslóða?
Pað er vegna þess, að ennþá sit-
ur Herodes Antipas að völdum,
hinn grimmi harðstjóri, og Jesús
hefir ekki steypt honum af stóli.
Ennþá situr Jóhannes skirari í
fangelsi, án þess að fjöturfnn sé
brotinn af bonum. Hann er líflátinn
í fangelsinuí Ennþá gengur rang-
lætið fjöllum hærra, glæpir og
hermdarverk, en sakleysið þjáist i
böndum, án þess að Jesús geri
nokkuð. Kirkjur hans gera heldur
ekki mikið. Pær boða kærleikann, en
hatrið veður uppi. Pær prédika frið,
en meðan er unnið að herbúnaði.
Pessvegna spyr heimurinn f nauð-
um: Eigum vér að vænta annars?
Pegar mannkynið er í vanda statt,
svipast það alltaf um eftir nýjum
spámanni. Mörg augu horfa nú í
allar áttir eftir nýjum Messiasi,
hjálpræði, sem megi frelsa heiminn
úr nauðum. Sumir trúa þvi að
vísindin verði þessi hjálparhella,
sem mannkyninu bjargar. Peir vilja
hylla þau sem hinn nýja Messías.
>Vísindin efla alla dáð< kveður eitt
af þjóðskáldum vorum, bg þau
geta gert það, ef með þau er farið
af forsjálni og drengskap. En þau
geta líka verið tvíeggjað vopn,
hættulegt og skaðsamlegt, ef mann-
kostir eru ekki með i leiknum.
Aðrir trúa því, að nýtt þjóðskipu-
lag verði oss til bjargar frá öllum
meinurm En ekkert skipulag dugir,
ef hugarfarið sjálft er rangsnúið og
vanþroska. Enn aðrir halda að sálar-
fræðin verði oss leiðin til bjálpiæð-
is. Hún getur vafalaust leitt oss til
skilnings á mörgu, en þó vantar
hana sjálfa endanlegan skilning á
sínu eigin viðfangsefni, þvi að eng-
inn veit i raun og veru hvað sál
er. Og ioks eru ýmsar fræðikenn-
ingar og trúvfsindastefnur, sem all-
ar þykjast hafa fundfð stein vizk-
unnar.
Allt er þetta vafalaust einhvers
virði og margt stórmikils virði, ef
þess er gætt f réttum hlutföilum og
menn læra að færa sér það i nyt
og brjóta til mergjar hverja nýtilega
hugsun. En það er alveg þýðing-
arlaust fyrir mannkynið að leita að
nýjum spámönnum á meðan það
hefir ekki skilið þá gómlu, meðan
það grýtir eða krossfestir hvern
þann, sem til þess er sendur, ef
ekki á tré eins og Oyðingar, þá á
krossi þagnarinnar og skilnings-
leysisins með fullkomnu afskiftaleysi
sínu og deyfð fyrir andlegum hlut-
um. Petta er það, sem vert er að
athuga, þegar vér spyrjum um það,
hvort Jesús sé sá, sem koma á,
eða hvort vér eigum að vænta
annars. Pað má virðast einkenni-
legt að spyrja þessarar spurningar
i kristinni kirkju. En vér gerum
það samt f hreinskilinni viðurkenn-
ingu þess, að kirkja Krists hefir
enn ekki áorkað þvf, að »frelsa oss
frá illu<. Mannkynið er ennþá statt
i myrkrinu úti á Betlehemsvöllum,
litlu nær um frelsi sitt, en fyrrir
tvö þúsund árum siðan.
Nú á hinni komandi jólahátfð
liggur þessi spurning fyrir oss og
krefst hiklaust svars: Höfum vér
alla vora æfi haldið jólahátiðina i
hugsunarieysi Jesú Kristi til dýrðar,
án þess að til þess séu neinar á-
stæður aðrar en æfagamall trúar-
vaninn? Er Jólahátiðin aðeins gjafa-
og átveizluhátíð, sem notar nafn
Jesú fyrir ástæðu, en gæti eins vel
notað nafn Saturnusar eða Míþra
sólguðs? Eígum vér að vænta
annars ?
Hvaða svar höfum vér á reiðum
höndum? Aðeins það sama ogfyr-
ir nítján ðldum: >Farið og segið
hvað þér heyrið og sjáið: Blindir
sjá og haltir ganga, líkþráir breins-
ast, daufir heyra, dauðir rísa upp
og fátækum er boðað fagnaðarer-
indið.< — Allstaðar i heiminum,
þar sern menn hafa orðið kristnif
meir en að nafninu, þar gerast
þessi sömu undur enn í dag. Og
áður en vér leitum annars spá-
manns, verðum vér að reyna kenn-
ingar Jesú Krists. Meðan kenning-
ar hans komast ekki lengra en í
prédikunarstólinn á sunnudögum,
er ekki að búast við árangri af
þeim i lifi þjóðfélaganna. En þégar
menn fara að >Iifa íKristu einsog
frumsöfnuðirnir komust að orði,
það er að segja að lifa i anda bans
og breyta samkvæmt kenningu hans
— þá fer fyrst að komast raun á
það, hvort Jesús er sá sem koma
á, eða vér verðum að vænta annars.
Svo bjartsýn verðum vér að vera
og sannsýn um kristna kirkju og
margan félagsskap annan, sem rót
sína á að rekja til kristinna áhrifa
að enda þótt misbrestir hafi oft
verið á, hefir þó mörgu miðað i
það horf, sem Jesús benti til. Jesús
hefir átt margan trúan og einlægan
lærisvein þrátt fyrir allt. Og allstað-
ar þar sem unnið hefir verið f þá
áttina, sem Jesús vildi og af þeirri
trú, sem Jesús boðaði og með því
hugarfari sem einkenndi hann, þar
hafa gerst þessi kraftaverk: Blindir
sjá sýn; það þýðir: Augu manna
hafa opnast fyrir ýmiskomar rang-
indum eða böli, sem þeir höfðu
ekki tekið eftir áður. Menn verða
einnig skyggnir á hið fagra og
góða og fara að þrá það af öllum
mætti hugans. Haltir ganga. Pað
þýðir: Hið andlega þrek vex jafn-
framt svo undrun sætir. Styrkur
viljans vex i réttu hlutfalli við skiln-
ing manna og tilfinningu fyrir þvf,
sem betur má fara. Likþráir hreins-
ast. Pað þýðir: Vesaldóraur öfund