Dagur - 12.01.1933, Page 4
6
DAGUR
2, tbl.
söngvin er hún, og auðsjáanlega
samvizkusötn, þvl að það er hin
r é 11 a aðferð, að láta myndun
tónanna sitja fyrir öllu öðru. Styrk-
ur raddarinnar eykst af sjálfu sér,
og fullkomin túlkun laganna kem-
ur með auknum þroska.
Síðast en ekki sízt vil eg minn-
ast á Hljómsveit Akureyrar. Hún héit
hljómleika í Nýja-Bió sfðastl.fimmtu-
dagskvöld með aðstoð söngfél.
»Geysis«.
Hljómsveitin er að vfsu ekki
nema vísir til þess, sem hún á að
verða, en sá vfsir er svo fagur og
þroskavænlegur, að ætla má, að
hann verði fagur ávöxtur, er hann
nær fullum þroska.
Okunnugir geta ekki gert sér neina
hugmynd um það feikna starf og
alla þá þolinmæði, sem þurft heflr
til að koma þessari hljómsveit það
áleiðis, sem hún er komin og þess-
ir hljómleikar báru vott um.
Hljómsveitarstjórinn, Karl 0. Run-
ÓlfSSOn, er starfi sinu fyllilega vaxinn
og ágætur stjórnandi: röskur, á-
kveðinn, nákvæmur og hefir góðan
skilning á viðfangsefnunum. Einna
bézt þótti raér takast Berceuse eftir
Armas Jarnefelt.
Lag Karls Ó. Runólfssonar: FörU’
mannaflokkar peysa, sem >Oeysir< söng
með hljómsveitinni, er eftirtektavert,
það er mjög myndauðugt og tákn-
andi. Virðíst hðfundinum láta vel
sú list, sem kölluð er íðnamðlverk.
Pótt sitt hvað megi finna að
hljómsveitinni (I. d. vöntun kontra-
bassa, »alt<-fiðlu og tréblástur-
hljóðfæra), er starf hennar svo þýð-
ingarmikið fyrir menningarllf bæj-
arins, að bæjarbúar ættu að styðja
hana af fremsta megni, t. d. með
þvi að sækja hljómleika hennar.
Þeir eru einhver bezta og ho'lasta
skemmtun, sem hér er fáanleg, og
auk þess vottur um menningarvið-
leitni, sem er bænum til mikils sóma
og þvf aðeins getur náð fullum
árangri, að bæjarbúar skilji gildi
hennar og hlynni að henni.
Akureyri 1. jan. 1933.
Áskell Snorrason.
Páll Jónsson,
bóndi á Sauðanesi,
Ásum, Húnavatnssýslu.
Fæddur 15. marz 1815 Oáinn 24. okt. 1932.
Mig langar að syngja þér saknaðar óð,
og safna því bezta er eg á,
en ef til vill skynjar þinn andi mín ljóð
og afsakar brotin mín smá.
Pegar vinabönd slítur helköld hönd,
þá hljóðna vor andans gögn —
og þá brestur mál, svo að Braga stál
er bundið í djúpri þögn.
Pó svo oft væri lamandi erfitt þitt pund,
var innra hið sólríka vor —
Pú áttir svo hreina og Hfsglaða lund,
sem að létti þér æfinnar spor.
Bæði síðar og fyr gaf þér bjartsýnin byr,
sem að bjargaði á torfærri braut,
hún var ylur og ijós, hún var ávallt sú rós,
sem að andi þinn geymdi og naut
Við óðal þitt bundin var umbóta þrá,
sem alltaf til framkvæmda brauzt,
en skórinn var þröngur og skilyrðin
og skrefið því styttra en þú kaust.
Pó aðfléttuðu bönd bæði hugur oghönd
við heimilis annir og störf,
þá var ávalt þitt mið að leggja þeim lið,
sem leituðu til þín af þörf.
Nú hnípir þitt heimili, og harminum þjáð
er þín hjartfólgna kona og börn,
eg veit að þú óskar, að alföðurs náð
sé öilum þeim framtíðar vörn.
Ogþau kveðja þig nú.meður kærleik ogtrú
að þau kenni þig hæðum á
ofar jarðneskri braut viður skaparans skaut,
og þið skiljið ei framar þá.
Svo kveð eg þig, vinur, í síðasta sinn,
þú svífur úr mannanna byggð.
Eg þakka þér viðmót og vinarhug þinn,
sem að vottaði einlæga tryggð.
Út í ómælisgeim—inn í andanna heim
leitar ástvinakveðjan til þín.
Lifi andinn þinn æ meður æskunnar blæ,
þar sem eilffa vorsólin skín.
lómas R. Jonsson.
> '
Fr éttir.
□ Rún 59331178-Frl/. Atkv.
Skip brennur. Fyrir skömmu kom upp
eldur í einu af stærstu farþegaskipum
Frakka, er það var á ferð í Ermar-
sundi. Skipið var farþegalaust, þegar
slysið vildi til, én skipsmenn voru 280
að tölu. Björguðust þeir að 16 undan-
skildum. Skipið rak logandi í sundinu
þegar síðast fréttist og útilokað að því
yrði bjargað.
Boðberinn nefnist fjölritað mánaðar-
blað, sem kennaralið barnaskólans hér
er farið að gefa út. Er ætlast til að það
verði tengiliður milli skólans og heimil-
anna. Af því eru komin út tvö blöð. í
síðara blaðinu er grein eftir skólastjór-
ann, með yfirskriftinni: »Mjólkin og
lýsið í bamaskólanum«. Þar segir meðal
annars á þessa leið:
»Fyrir jólin drukku daglega um og
yfir 280 börn mjólk og luku alls við 750
lítra, og 100—140 börn fengu daglega
lýsi. Fjölda mörg börn borguðu sína
mjólk sjálf, og ýmsir gáfu fje til
styrktar, t. d. tveir borgarar andvirði
sinna 200 lítranna hvor. Bærinn hefir
því engan eyri þurft enn að borga. En
nú verður ekki á annað að ganga cn
þessar fáu krónur, er skólinn á yfir nð
ráða til þessa máls. En þess er fastlega
vænzt, að margir góðir menn og konur
í bænum láti einhverja litla gjöf af
hendi rakna enn, um leið og þcir og
þær ganga inn í hið nýja ár með óskir
sínar og vonir. í nafni mannúðar og
menningar skulum við heilsa nýju ári.
— Við þyrftum endilega að geta hald’ð
út með mjólkur- og lýsisgjöfina í næstu
tvo mánuðina að minnsta kosti. En það
er ekki hægt, nema að örlæti borgar-
anna verði drjúgt<.
Fundi þeim, sem framkvæmdanefnd
Umdæmisstúkunnar boðaði ýmsum
borgurum bæjarins í gærkveldi, er frest-
að til mánudagskvelds 16. þ. m., kl. 8%
síðd”. — Fundinum va frestað sakir ó-
veðurs. Verður hann haldinn, eins og til
var stofnað upphaflega, í Skjaldborg.
Menn eru beðnir að mæta stundvíslega
á njánudagjim.
jlðalfundur
Búnaðarsambands Eyjafjarðar verður haldinn
mánudaginn 30. janúar n. k. í Gróðrarsiöðinni
á Akureyri. —
Fundurinn hefst kl 1 e. h.
Stjórnin.
LAUS JÖRÐ.
Pjóðjörðin Litlihóll hér í hreppi, er laus til ábúðar í næst-
komandi fardögum.
Þeir, sem óska eftir að fá byggingu fyrir nefndri jörð, sendi
skriflegar umsóknir sínar tii undirritaðs fyrir iok febrúarmánaðar
næstkomandi, og geri ákveðið tilboð um eftirgjaldið.
Hreppstjóri Hrafnagilshrepps, Kroppi 4. janúar 1933.
Davið fónsson.
Hús til sölu.
Húsið Fagrastræti 1 er til sölu og laust til íbúðar 14. maí.
Húsið stendur á einum fegursta stað bæjarins, rétt við listigarðinn.
Aðgengilegir greiðsluskilmálar — Nánari upplýsingar gefur
Vigfús Sigurgeirsson
Ijósmyndari.
W Allt ineð íslenskniii skipum!
Hljómsveit Akureyrar endurtók með
aðstoð Geysis hljómleika þá, er fram
fóru 29. f. m., í Samkomuhúsinu síðastl.
föstudagskvöld. í þetta skifti var að-
gangur ókeypis, enda kom svo margt
fólk, að frá urðu að hverfa tugir ef
ekki hundruð manna.
Trúlofanir: Ungfrú Hrefna Hallgríms-
dóttir og Jón Sigurgeirsson stúdent.
— Ungfrú Sigurlaug Jónsdóttir og Jón
Tétursson bflstjóri.
Bæjarstjórnarfundur var haldinn í
fyrradag. Fyrir lágu umsóknir 24
manna um lögregluþjónastöðumar í
bænum. Þessir sóttu: Dúe Benediktsson,
Gunnar Jónsson, Gustav Andersen,
Bjórn Axfjörð, Friðjón Axfjörð, Arni
Ólafssor,, Aðalsteinn J. Bergdal, Bjarni
M. Jónsson, Gestur Bjarnason, Guð-
mundur Kristjánsson, Jóhann Kristj-
ánsson, Jón G. Jónsson, Karl Sigur-
jónsson, Páll Guðbjartsson, Pétur Tó-
masson, Randver Pétursson, Sigfreður
Guðmundsson, Sigurður Hólm Jónsson,
Sigurður Magnússon, Sveinn Bjarna-
son, Tryggvi Emilsson, Zóphonías Áma-
son, Þúrarinn V. Magnússon, Þorsteinn
G. Halldórsson.
Um heilbrigðisfulltrúastöðuna sækja:
Sig. Ein. Hlíðar, Halldór Friðjónsson,
Magnús Sigbjörnsson.
Um byggingafulltrúastöðuna sækja:
Halldór Halldórsson, Sigtryggur Jóns-
son, Gunnar Guðlaugsson, Eggert Mel-
stað.
Frestað aö veita stöðurnar þar til á
næsta fmjdi.
Vökuvelllr við Akureyri: Tún
8 dagtl, og íbúð, faeit til kaups.
Sigtrygqur Jónalansson.
jörðin Bláíeigur
i Skriðuhreppi fæst til ábúðar i
næstu fardðgum. Kaup geta Ifka
komið til mála og þá þægilegir
borgunarskilmálar. Heyfengur af
jörðinni er 400 hestar og þar yfir.
Semjið sem fyrst við undirritaðan.
Pórður Sigurjónsson,
Hvammi í Ariiarneshreppi.
ÓDÝR og
einkar hent-
ug til að
skreyta kistur, ávalt til sölu f Odd-
eyrargötu 4. Reynið viðskiftin!
Aðalfundur
Skógrœktarfélags Eyfirðinga
verður haldinn í Samkomuhúsinu
»Skjaldborg« fimmtud. þann 19.
þ.m. og hefst kl. 7.30 e. h.—
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Akureyri 9. janúar 1933.
Stjórnin.
týndíst 3. þ. m.,
á leiðinni frá Stef-
ániJónassyniAk.,
fram að Skálpagerði. — Finnandi
skili til Bifreiðastöðvar Oddeyrar,
gegn fundarlaunum.
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
Prentsmiðja Odds Bjömssonar.