Dagur - 09.03.1933, Blaðsíða 2

Dagur - 09.03.1933, Blaðsíða 2
38 DAGUB ÍO. tbl. • • ••• • • •••••• ••-•••-• •-• • i MfHHHfHffHnHHH Útgerðaroörur. Línuverk, ódýrast í bœnum, Línubelgir, Bambus- stengur, Bdtalugtir, Botnfarva og allskonar skipamdlningu, Báta- og skipasaum í öllum stœrðum. — Blakkir og kaðlar. Kaupfélag Eyfirðinga. Jdrn- og glervörudeildin. ••I Myndastofan Oránufélagsgðtu 21 er opin alli daga frá kl. 10—6. Guðr. Funch-Rasmussen. Fóðursíld. Hefi nokkrar tunnur af fóður- sild til sölu. — Verðið lágt. Sendið pantanir sem allra fyrst. Virðingarfyllst. Kristján Árnason. Gæzla landhelginnar. Aðaltil- gangurinn með þessu frv. er að leggja landhelgissjóð niður sem sérstakan sjóð, en að tekjur þær, er nú renna í hann, fari í ríkis- sjóð, og að hann greiði svo hinn árlega kostnað við landhelgisgæzl- una. Breyting á lögum um laun em- bættismanna. Með frv. þessu er staða heilsuhælislæknisins í Krist- nesi tryggð með því að fella hana inn í launalögin og gera hana hlið- stæða stöðu heilsuhælislæknisins á Vífilsstöðum. Réttindi og skyldur embættis- manna. SafnaJö er saman í einn bálk þeim eldri lagaákvæöum, sem til eru um þessi efni og þeim breytt í ýmsu og aukið við þau. í hugasemdunum segir, að ekki hafi þótt þörf á að taka upp í frv. á- kvæði um aldurshámark embættis- manna. Sérstök heimild til að afmá veöshuldbindingar úr veömálabók- um. i athugasemdunum segir m. a. svo: »Það er ekki ótítt, að þegar eig- endur fasteigna ætla að fá lán gegn veði í þeim, þá kemur það í ljós, að á þeim hvíla óaflýst veð- bönd skulda, sem eru greiddar, svo ekkert getur orðið af lántöku fyrr en fenginn hefir verið ógild- ingardómur, en það tekur langan tíma og veldur talsverðum kostn- aði«. úr þessu er frv. ætlað að bæta með endurskoðun veðmálabók- anna. Frv. til Ijósmæöralaga. Land- læknir hefir gengið frý frv, þessu, Segir hann í greinargerð, að höf- uðástæðan til þess að frv. komi fram sé sú, að gildandi yfirsetu- kvennalög nái aðeins til skipaðra ljósmæði*a en ekki til annara starfandi ljósmæðra. Engin breyt- ing er gerð á launakjörum ljós- mæðra í frv. þessu. Breyting á lögum um brúar- geröir. Þar er svo fyrir mælt, að ríkisstjórninni sé heimilt að taka lán til brúargerða þeirra, sem taldar eru í 2. gr. brúarlaganna, hjá sýslu- og sveitafélögum á á- byrgð ríkissjóðs, allt að 60 þús. kr. á ári í fjögur ár, 1933—1936. Lánin endurgreiðist á 6—8 árum, og séu vextir 1/2% hærri en hæstu innlánsvextir í Landsbankanum. Frv. fylgir tafla, er sýnir greiðslur ríkissjóðs til brúargerða 1920—1932. Greiðslurnar eru sem hér segir, taldar í heilum þúsund- um. 1920 544 þús. kr. 1921 152 — — 1922 147 — — 1923 168 — — 1924 25 — — 1925 108 — — 1926 177 — — 1927 275 — — 1928 319 — — 1929 458 — — 1930 507 — — 1931 190 — — 1932 205 — — Breyting á lögum um bann gegn dragnótaveiöum. Þetta eru bráða- birgðalögin, sem út voru gefin 6. 'júlí f. á., þar sem gerðar voru til- slakanir á gildandi lögum. ...Bann gegn jaröraski viö sjó í kawpstööum, kaugtúnum og sjáv- arþorpum. 1. grein er þannig: »í kaupstöðum, kauptúnum og sjávarþorpum er bannað grjót- nám, malartaka og annað jarð- rask í fjörum og svo langt frá flóðmáli, að öruggt sé að ekki stafi af því landbrot eða aðrar skemmdir af völdum sjávar. Bann þetta nær þó ekki til jarðrasks er leiðir af hafnarmannvirkjum, ruðningi á vörupi og bátalending- um«, — Ákvæði þessi gilda 500 m. út fyrir takmörk verzlunarlóða og 800 metra frá byggð í sjávar- þorpum, til beggja handa með- fram fjöru. (Framh.). Dánardœgur. Hinn 29. jan. s.l. andaðist í Húsavfk Jón Sigurjónsson útgerðar maður. Jón var drengskaparmaður hinn mesti, er aldrei vildi vamm sitt vita. Hann var athafnamaður mikill og gekk með festu og heilhug að hverju starfi. Um langt áraskeið hafði hann á hendi ýms trúnaðarstörf fyrir hrepps- félag sitt, þar á meðal organleikara- starfið i Húsavikurkirkju. Jón var bindindismaður og studdi drengilega málefni bindindisvina sem félagi i bindindi og stúku. Sterkustu eðlisþættir hans voru trúmennskan, hógværðin og góð- semin, er lýstu sér i öllu dagfari hans. — Oott var með Jóni að vera, og verður hans jafnan minnst af kunn- ugum með söknuði og virðingar- hugi - Kona Jóns er Björg Ounnars- dóttir Benediktssonar verzlunar- manns á Akureyri. Fjögur börn þeirra hjóna eru á lifi, hið yngsta 13 ára. — Fyrir tveim árum misstu þau dóttur, mannvænlegustu mey áæskuskeiði. E. I>. 0 — Heilög ást. — Brot. — Pú komst svo lítil, Ijúf og góð í léttum sumarblæ. Er kvöldsins bjarta geislaglóð brá glampa á loft og sæ. — Pú komst með eld, sem aldrei brást og unað veita má. — Með brjóstið fullt af æsku og ást og augun lýst af þrá. — Eg hljóður kraup og kyssti þig í kvöldsins tðfra dýrð. Pín blíða hefir blessað mig og birzt mér — endurskhð. — Frá þeirri stund er þig eg leit eg þekki ei lánið valt. — Eg gaf þér vina heilög heit, sem helga lif mitt allt. — — Nú allt er þrungið sumri og söng og sælu i kring um mig. Nú verða ei dægrin dimm og löng — Mig dreymir aðeins þig. Mér vorið hefir blóm sfn breitt og bergð er lifsins skál. — Eg élska þig svo undur heitt af öllu hjarta og sál. — Nú fagnandi eg klðkkur krýp og kyssi sporin þín. — Eg hugsa um þig og höfði drýp þú hjartans vina mfn. — Og hata aiit það kærleiks kvik, sem kveikir villu þrá, þvi ástin mfn er bjarma blik þess bezta sém eg á. — — — Valdimar Hölm Hallstað. Stelðn skðld Irð Hvítadal andaðist t gær eftir langvarandi veikindi. Hann var rdm- lega fertugur að aldrl. Öllum þeim mörgu, er sýndu sam- úð og hjálp í sorg okkar, við and- lát og jarðarfðr elsku litla drengs- ins okkar, vottum við af alhug okk- ar innilegasta þakklæti. Fjölskylda Olg. Benediktssonar. Framkvænuiir síðari m. Einn kafiinn í ræðu þeirri, er sr. Porsteinn Briem atvinnumálaráð- herra flutti á sfðasta fullveldisdegi, fjallaði um framkvæmdir íslendinga, eftir að þeir fengu fjárforræði 1874 og þó einkum síðan 1918, eftir að fullveldið var fengið. Sá kafli ræðunnar, sem hér hefir verið getið, var á þessa ieið: »Á fyrstu 44 árunum eftir að vér fengum fjárrforræði voru gerðar 59 brýr iengri en 10 metra, og lagði lands- sjóður til brúargerðanna 860 þús. kr. samtals. Voru margar þeirra úr timbri og ýmist fyrndar eða fallnar nú. En síðan 1918 hófum vér gert 150 brýr lengri en 10 metra, og hefir ríkissjóðurinn varið tíl þeirra á 4 miljón kr. Par af hafa 11 verið gerðar nú i ár og hafa þær kostað um 205 þúsundir. En til stærstu brúnna nú i ár hafa héröðin sjálf boðið lánsfé, 155 þús. alls. Frá þvi vér fengum fjárforræði 1874 og fram til þess er vér feng- um fullveldið 1918 hafði landssjóð- ur varið til vegagérða og viðhalds 23/4 miljónum kr. allsi En árin 1919—1932 hefir ríkissjóður varið til veganna á 10. miljón (9.070.000) samtals. Par af á þessu ári um 630 þús. kr. Til þess að reisa vita varði lands- sjóður rúmri 1/2 miljón alls fram til 1918. En siðan hefir ríkið reist nýja vita fyrir 1.700.000 kr. sam- tals. Tii þess að sigla eftir vitunum hefir þjóðin siðan 1918 flutt inn 166 skip og báta, er hafa kostað 30 miljónir og hálfri betur, svo að allmjðg mundi nú Jónasi gamla Hallgrfmssyni þykja allt breytt orð- ið frá því er hann kvað skopvísuna. Langmestur hluti þessa skipa- flota hefir verið notaður til þess að afla lífsbjargar og auðæfa úr djúpi hafsins, en stærstu skipin og dýrustu til þess að bæta samgöng- ur eða verja landhelgisrétt vorn. Öll hafa skip þessi verið knúin vélaafli og getum vér þvf sagt, að allvei hafi ræizt spádómur Hannes- ar Hafsteins í aldamótakvæðinu. Náskyld samgöngubótunum eru sfmamálin. Einnig þar hafa verið stigin drjúg spor áleiðis. Sfðan 1918 hefir verið varið til nýrra síma og simstöðva og loftskeyta- stöðva 7»/2 miljón kr. samtals. Hæst fer þar árið 1931. Pá er varið til sima og simstöðva fast að 2 milj- Austfirðingamót verður haldið hér í Sam- komuhúsinu n,k. Iaugardagskvöld. Áskriftar- listar Iiggja framml i bókaverzlun Þorst. M. Jónssonar og hjá Magnúsi Sigbjörni- syni Lækjargötu 6.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.