Dagur - 20.04.1933, Qupperneq 3
16. tbl.
DAGUB
63 1
Framsóknarfélag Akureyrar
heldur fund í Skjaldborg laugardaginn 22. þ. m. kl. 81/2 e. h.
Efni: Fréttir af flokksþinginu o. fl.
STJÓRNIN.
Á undanförnum árum hafa
norsku heimilisiðnaðarfélögin
haft 6—800 vefara í þjónustu
sinni árlega víðsvegar um landið
og hafa greitt þeim um 200.000
kr. árlega samtals í vinnulaun.
Það sem hefir átt einna mest-
an þátt í að vekja og glæða skiln-
ing og áhuga fyrir heimilisiðnað-
inum hin síðari árin eru hinar
mörgu sýningar, sem haldnar
hafa verið til og frá um landið,
handavinnukennslan í húsmæðra-
skólunum og verkleg námskeið
víðsvegar um landið — og nú síð-
ast »íslenzka vikan« með þeim
eggjunarorðum, sem henni fylgdu.
Sem dæmi um árangur »Vik-
unnar« má geta þess, að Kaup-
félag Eyfirðinga á Akureyri seldi
þá viku og næstu vikurnar frarn
eftir vorinu prjónavarning úr ís-
lenzkri ull fyrir hátt á annað þús-
und krónur í Akureyrarbæ og ná-
grenninu. Vörurnar voru að
mestu teknar í fastan reikning
félagsmanna í kaupfélaginu og
seldar við sannvirði og með lítilli
álagningu. Sýndi stjórn og fram-
kvæmdastjóri góðan skilning og
mikinn áhuga fyrir þessu máli.
Þeir hyggjast nú í vetur að taka
enn stærra átak.
Menn hugðu gott til glóðarinn-
ar, þegar þessi tilraun gekk svo
vel að vinna nú mikið, bæði af
prjónlesi og bandi, því K. E. A.
gerði það þjóðræknisbragð að
panta ekkert útlent ullargarn í
haust, en ætlar að selja íslenzkt
band eingöngu. Sumir félagsmenn
K. E. A. héldu mestallri ull sinni
eftir heima síðastliðið vor.
Það er vel til fallið, að sam-
vinnufélög bænda ríði á vaðið
með tilraunir í þessa átt, enginn
stendur betur að vígi en þau í
þeim efnum.
öll stærri kaupfélög landsins
voru á síðastliðnu hausti beðin
að hafa til sölu í verzlunum sín-
um ýms þau efni, sem almenning-
ur þarf til heimavinnu, svo sem
vefjaraskeiðar, ullarkamba, góð-
an lit o. s. frv. (Frh.).
Halldóra Bjarnadóttir.
o —
Flokksþing
Framsóknarmanna
bófst f Reykjavík miðvikudaginn 5.
þ. m. og var lokið þriðjudaginn þ.
11. 8> m. og stóð þannig yfir eina
viku. Ýmsir flokksmenn voru hrædd-
ir um, að þingið yrði fásótt vegna
kreppuvandræðanna og þar af leið-
andi máttiítið, og andstæðingarnir
vonuðu og trúðu að svo yrði. En
raunin varð öll önnur. A þinginu
mættu nálægt 200 fulltrúar úr öllum
sveitakjördæmum landsins og auk
þess fulltrúar frá Reykjavlk og Ak-
ureyri. Ennfremur fulltrúar flokksins
á Alþingi* Pingið var sett f kaup-
þingsalnum f Eimskipafélagshúsinu
af formanrii framkvæmdaráðsins,
Sgurði Kristinssyni íorstjóra, en
brátt kom í Ijós, að þingsóknin var
miklu meiri en svo, að það húsrúm
nægði, og var þvf horfið að því
ráði að útvega stærri fundarsal f
íþróttahúsi Knattspyrnuf élags Rey kja-
vfkur.
Flokksþingið ræddi þjóðmálin af
lifandi áhuga og fjöri og gerði um
þau djarfiegar ályktanir, Prjú voru
þau aðalmál, er þingið hafði til
meðferðar: kreppumálið, kjördæma-
málið og skipulag flokksins. Fleiri
mál hafði það og með höndum,
svo sem löggæzlu og launamálið.
Fiokksþing Framsóknarmanna
kom skipulagi flokksins i fastara
og öruggara horf en áður var og
samdi og gekk frá ýtarlegum regl-
um i þvi efni. í miðstjórn flokks-
ins eiga sæti 25 menn og auk þess
10 varamenn, sem þó eiga sæti sem
aðalmenn á aðalfundi mióstjórnar.
Fimmtán miðstjórnarmenn skulu
búsettir í Reykjavik og grend, en
20 aðalmenn og varamenn, i hér-
uðum utan Reykjavíkur, og ekki
fieiri enn einn af þeim búsettir í
sama kjördæmi. f reglunum ersagt
fyrir hvernig kosningu miðstjórnar-
manna skuli hagað. Formaður mið-
stjórnar er jafnframt formaður Fram-
sóknarflokksins.
Áhuginn og einbeitnin, sem lýsti
sér i störfum og starfsháttum full-
trúanna á flokksþingínu, er talandi
vottur þess, að Framsóknarmenn
um allt land eru vel vakandi og
ráðnir í þvi að fylkja sér fast um
velferðar- og framfaramál þjóðar-
innar. Vonir andstæðinganna um
fámennt og kraftlaust Framsóknar-
þing hafa brugðizt.
Síóar verður nánar vikið að störf-
um þingsins.
------0-----
Dagur móðurinnar,
Úti í heimi hefir hin síðari ár
eflst og útbreiðst mjög fögur og
góð hugmynd. Hún er að helga
móðurinni einn helgidag ársins. Pá
sé móðirin heiðruð, umhyggju hennar,
fórntýsi og ástar minnst — alis þess,
sem hún er og starfar. Hugmyndin
er upprunnin í Ameriku og þar hef-
ir 2. sunnudagur f maf, ár hvert,
verið helgaður móðurinni um langt
skeið, og það var amerísk kona,
Jane Jarvies að nafni, sem innleiddi
þennan dag i Englandi árið 1913.
Paðan hefir siður þessi breiðst út
um Evrópu og hafa nú 10 lönd
tekið hann upp, þar á meðal Dan-
mörk. Par hefir dagur móðurinnar
verið haldinn hátiðlegur í 3 ár. í
vor var dagurinn mjög hátiðiegur.
Prestarnir töluðu um móðurina i
prédikunarstólum slnum. Formaður
móðurdags-nefndarinnar flutti fyrir-
lestur í útvarpið, sem þennan dag
var helgað þessu markmiði. Var
lesið upp f því æfintýri H. C. An-
dersens >Historien om en Moder*
Ódýrir rykfrakkar.
RYKFRAKKAR á kvenf. frá kr. 22.00
RYKFRAKKAR á telpur--10.00
RENNILÁS-STAK KAR drg. — 4 50
BRAUNS VERZLUN.
Páll Slgurgelrsson.
og sungnir I þvi yndistegir rnæðra
söngvar.
Vió Islendingar þurfum nauósyn-
lega að taka upp þennan dag og
er kirkjan sjálfkjörin til forystu.
Hreyfa þarf málinu við prestafélög
in, einkum þó Prestafélag íslands
og er hér með skorað á það, að
undirbúa málið svo, að framkvæmd
geti hafist á tilsettum tíma, 2 sunnu-
dag i mai næsta vor (1933).
Mér finnst svo kalt i heiminura
og að mennirnir kunni ekki nægi-
lega að elska — af þvi stafa mein-
in mörgu. Menn hafa liklega ekki
gætt boðorðsins, sem einn þýzkur
heimspekingur gaf: »Elskið eitthvað
e i 11, þá lærið þér fyrst að elskac.
En mamma er það, sem við eigum
fyrst að læra að elska — hún, sem
vaggaði okkur litlum og nærði við
brjóst sér, lagði svalandi hönd á
okkar litla, sjúka höfuð, huggaði
okkur blíðmáli á beiskri stund,
söng von og vor f sálir okkar.
Hún er hið e i n a, sem ást okkar
á allra fyrst að helga. Verður sú
ást hin mikla, veglega lind, sem
sérhver kærleikur tif annara ástvina,
meðbræðra, til guðdómsins og
móður v o r r a r k i r k j u n n a r
á upptök sín f. Fátt verður þvf
nauðsynlegra fyrir farsælt Iff ein-
stakimgsins, en að hafa svalað and-
legum þorsta sínum — Ijósþrá og
lifssókn — sem oftast og sem bezt
í þessari himnesku lind, alt frá
fyrstu dögum sjálfsvitundar, og
ekki aðeins það. Koma stöðugt á
ný að henni á fullorðinsárunum.
Og umgeiin hugmynd vill leiða
alla, alla að henni, ákveðinn dag
ársins, lyfta öllu mannkym til veg-
legrar pílagrimsgöngu til þess stað-
ar, þar sem ást og yndi lítsms á
upptök sín.
íslenzka þjóð! Oetur
kirkjan gefió þér nokkra betri gjöf
en móðurást, svo að þú verðir
ekki i framtiðinni gleymin á hið
góða og fagra, sem þú þvi miður
vanrækir um of nú. Móðirin bregst
aldrei skyldu sinni, gleymir aldrei
bami sínu. Og sé hægt að tala um
það sem veruteika, að elska náung-
ann eins og sjálfan sig, þá er það
móðurinni að þakka. Annað betra
en móðureinkennin verður ekki
gefið þeirri þjóð, sem á við að
strfða sundrungu, hatur, léttúð og
margskonar upplausn. Ást, tryggð
og fórntýsi móðurinnar — þessi
öft sett til valda i þjóðlífinu —
bæta þau mein. Og vió, einstak-
lingar þjóðiélagsins, þurfum að
læra að verða góð börn þeirrar
móður, sem gefur okkur brauð og
björg, Ekki slæm börn, sem blóðga
móðurhjartað, gleyma móðurinni
og fara vill vegar á refilstigum
heimsins.
Allt þetta getur það kennt
þjóð og einstaklingum að helga
móðurinni einn dag á ári hverju —
allt hið besta og fegursta getur það
kennt oss að segja sem oftast:
m a m m a,
af öilu hjarta. Pað er falslaus og
eilífur hljómur f orðinu. Hvar í
heiminum, sem börntn sjá dagsins
Ijós, hvort heldur f gyltum vagni
eða aumum tötrum, i heiðri eða
vansæmd, þá er mamma ætíð h 1 ð
bezta. Oetur þá nokkur gleymt
mömmu? Já, því miður vill ottsvo
verða. Við gleymum henni, sem
aldrei gleymir okkur. Pað er íyrsta
spor ógæfunnar. Fleira kemur á
ettir. Pegar gleymist að elska h i ð
eina, gleymist einnig að elska
annsð. Pegar gleymist að elska
h a n a, sem jafnvei á sjálfri dauða-
stundinni heidur oss föstu taki,
hvemig förum vér þá að muna
annað hið góða?
Sem íæsta hendi slíkt. En til
fremdar hinu fagra og góða, skul-
um við koma með í piiagrímsgöng-
una til mömmu. Qefum henni rúm
i hjörtum okkar. Reynum að skapa,
2. sunnudag i maí, unað á heimil-
unum umhverfis hana, gera daginn
að heiðursdeigi hennar, gera bjart
og hlýit inni hjá henni. Peir sem
eru tjarri henni, sendi henni hjart-
anlega kveðju. Peir sem hafa kvatt
hana f hmsta sinn hér f heimi,
geri daginn að minningardegi
hennar.
K i r k j a í s 1 a n d s 1 Eg bið þig
að taka þetta málefni að þér.
22. sept. 1932.
Sigurður Ofslason,
P.S. — Allir, sem fjarverandi eru,
og eiga móður, senda henni þenna
dag skeyti, kveðju, bréf, gjafir o.fl.