Dagur - 08.06.1933, Page 2
90
D AGUB
23. tbl.
immmimmmym
farmar, WillH.
Enn stórkostleg verðlækkun á timbri.
E Kaupfélag Eyfirðinga.
I|| Byggingarvörudeildin.
mmmmmmmmm
Myndastofan
Oráaufélagsgötu 21 er opin alla
• daga frá kl. 10—6.
Guðr. Funch-Rasmussen.
>Fundurinn leggur til að 14. grein
laga um barnavernd, sem hljóðar
svo: »Að þvf leyti sem framfærslu-
maður greiðir eigi meðlag, eða
hluta þess, samkvæmt framanskráðu,
geldur sveitarsjóður, eða bæjar það,
og telst þá það af meðlaginu, sem
aðilja var skylt að greiða, sveitar-
styrkur til hans«, breytist þannig,
að niðurlag greinarinnar verði, » —
og telst það af meðlðginu, sem að-
ilja var skylt að greiða, ekki sveitar-
styrkur«.
5. Námsskeið. Málshefjandi Snorri
Sigfússon. ( þvi máli var samþykkt
svobljóðandi tillaga:
»Fundurinn óskar eftir þvf, að
stjórn félagsins leitist við að koma
hér á fót nokkurra daga námsskeiði
i barnavinnu i haust.
6. Lestrarkennsla. iMáishefjandi
Svafa Stefánsdóttir. í þvi máli var
gerð svohljóðandi fundarsamþykkt:
»Fundurinn skorar á barnakenn-
ara:
1. Að kynna sér eftir getu nýjustu
aðferðir við lestrarkennslu, og
taka þær upp í skólum þar
sem það er hægt.
2. Að vinna af alefli að þvi að
skólaskylda sé færð niður i 6
ára aldur, og skólarnir, með
þar til hæfum kennurum, ann-
ist kennsluna frá byrjun.c
7. Kennslubækur. Frummælandi
Hannes J. Magnússon. í því máli
var samþykkt svohljóðandi ályktun:
»Um Ieið og fundurinn leggur
rfka áherzlu á að mjðg verði vand-
að til samningar og útgáfu skóla-
bóka fyrir barnaskóla, lætur hann
það álit sitt i Ijós, að ríkisútgáfa á
skólabókum, í sambandi við kenn-
arastéttina, myndi tryggja barna-
skólum betri bókakost enn þann,
sem við eigum nú við að búa.<
8. Lesbókasötn. Málshefjandi Snorri
Sigfússon. I þvf máli var samþykkt
svohljóðandi ályktun:
íFundurinn telur mikla nauðsyn
á að koma upp lesbókasöfnum til
afnota við lestrarkennslu í öllum
barnaskólum, og vill benda á þá
leið, sem farin hefir verið við barna-
skóla Akureyrar og vfðar, að börn-
in leggi fram visst gjald á hverju
hausti til lesbókakaupa, og skóla-
héraðið jafn mikið, og verði svo
lesbækurnar eign skólans.*
9. Handiðja i skólastofunni. Frum-
mælandi Arnfinna Bjðrnsdóttir. í
sarnbandi við það mál var samþykkt
svohijóðandi ályktun:
»Fundurinn telur brýna nauðsyn
á að leiða meiri handavinnu inn i
skólastarfið, en verið hefir, sérstak-
lega í sambandi við aðrar náms-
greinir, og telur samstarfið milli
huga og handar, er hún veitir, hafa
svo mikið uppeldislegt gildi, að
ekki megi láta sifka þróskamögu-
leika ónotaða<.
10. Kennslumálin f sveitunum.
Málshefjandi Jakob Ó. Pétursson.
í því máli voru gerðar eftirfarandi
samþykktir:
a) »Fundur f »Félagi barnakenn-
ara við Eyjafjðrð« lítur svo á, að
það sé með öllu ófært að lítt-
læs, eða ólæs börn séu tekin inn f
farskólana og lýsa farkennarar sýsl-
unnar, sem hér eru mættir, yfir þvf,
að þeir muni framvegis ekki sjá
sér annað fært, en að láta lög um
fræðslu barna, er til þessa atriðis
taka, hafa framgang þegar á næsta
hausti, og taka engin börn inn í
farskólana, sem ekki eru læs við
inntökupróf.«
b) »Fundur i »Fé!agi barnakenn-
ara við Eyjafjörð* skorar á stjórn
»Sambands fslerzkra barnakennara<
að beita sér fyrir þvl, að ekkert
farskólahérað á landinu fái undan-
þágu frá því að skólaskyld börn
njóti 12 vikna kennslu á vetri (sbr.
7. gr. laga um fræðslu barna frá
1926).«
Auk þeirra mála, sem að framan
eru talin, var rætt um landsprófin
og kom fram allmikil gagnrýni á
verkefnum sfðasta landsprófs og
tilhögun þess.
Ennfremur var rætt um kennara-
námsskeið á Norðurlandi, og skipu-
lagningu á stéttasamtökunum í
Norðlendingafjórðungi og hafði
stjórnin undirbúið hvórttveggja að
nokkru.
í stjórn félagsins fyrir næsta ár
voru kosnir, formaður: Snorri Sig-
fússon. Meðstjórnendur: Ingimar
Eydal og Hannes J. Magnússon,
allir endurkosnir. Endurskoðendur
reikninga Einar Jónasson og Stein-
þór Jóhannsson, einnig endurkosnir.
Fundurinn var hinn ánægjulegasti.
Miklar umræður urðu um flest mál-
in, og öllum kennurum virðist vera
Ijós tilveruréttur sinn sem stéttar {
þjóðfélaginu, og þá ekki sfður sú
mikla ábyrgð, sem þvi fylgir að ala
upp syni og dætur handa framtíð-
inni. H. J. M.
o ■
Skuldir saiub. ísL
siinÉlap.
Oísli Sigurbjörnsson birti f mái-
gagni »Pjóðernishreyfingarinnar<
18. f. m. eftirfarardi
„Áskorun til Alþingis.
Pjóðernishreyfing íslendinga skor-
ar á Alþingi, að hlutast til um, að
framkvæmdastjórarnir Jön árnason og
Svafar Guðmundsson víki tafarlaust úr
stöðum sfnum, sem bankaráðsfor-
menn Landsbanka íslands og Út-
vegsbanka íslands b.f.
Báðir þessir menn hafa fengið
stöður þessar vegna stjórnmála-
skoðana sinna en ekki af þvf, að
þeir hefðu til að bera neina sér-
þekkingu, til þess að gegna þeim.
Peir eru báðir starfsmenn Sambands
fslenzkra samvinnufélaga, sem vitað
er um, að skuldar stórfé f ofan-
nefndum bönkum og nú á við
erfiðan fjárhag að búa. í Lands-
banka íslands munu skuldir þess
vegna lána og ábyrgða, nema 12
— 14 miljónum króna.
Dað er pvl reginhneyksli, aö starfsmenn
félagsins séu æðsfu forröðamenn beggja
olannefndra banka og mundi ekki veröa
polaö i nokkuru siðuðu landi. Verði Jll-
Pingismenn eigi við pessari áskorun, mun
öll islenzka pjöðin állta pá rúna allri
velsæmistilfinningu.
F. h. þjóðernishreyfingarinnar
Gfsli Sigurb]örnsson.<
Næst skeður það f máli þessu að
birt er I blaðinu Framsókn eftirfar-
andi
Vottorð:
»Samkvæmt tilmælum Svafars
Ouðmundssonar vottast hér með,
að Samband ísl. Samvinnufélaga f
Reykjavfk er með ðllu skuldlaust
við Útvegsbanka íslands b.f., og
að Útvegsbankinn stendur íengum
ábyrgðum fyrir Sambandið.
Reykjavík 18. maí 1933.
F. h. Útvegsbanka íslands h.f.
Helgi Guðmundsson.<
Priðji þáttur þessa máls er sá, að
í Tímanum birtist eftirfarandi
Yfirlýsing:
»{ 2. tölublaði Islenzkrar Endur-
reisnar er »Áskorun til Alþingis<
undirskrifuð af Oisla Sigurbjörns-
syni fyrir hönd þjóðernishreyfingar-
innar, þar sera reynt er að gera
fjárhag Sambands fsl. samvinnufé-
lagatortryggilegan. Segirf ȇskorun<
þessari, að Sambandið skuldi Lands-
banka íslands og Útvegsbanka ís-
lands stórfé og að skuld þess f
Landsbankanum vegna lána og
ábyrgða muni nema 12-14 miljón-
um króna.
Út af þessu vil eg taka fram, að
Sambandið er skuldlaust við Útvegs-
banka íslands, en ástæður þesa hjá
Landsbankanum eru nú sem hér
segir:
Skuldir við bankann samtals kr.
3.809.023.93. Ennfremur ábyrgðir
Sambandsins fyrir lánum samvinnu-
félaga i bankanum og ábyrgðir
bankans fyrir Sambandið samtals
kr. 572.150 00.
Af þessu er Ijóst, að QísliSigur-
björnsson hefir farið með stórkost-
leg ósannindi um fjárhagsástæður
Sambandsins, og hefir þvf verið
ákveðin málshöfðun gegn honum.
Reykjavík, 26. mai, 1933.
Sigurður Kristinssoo.*
Oisli Sigurbjörnsson stendur því
afhjúpaður ósannindamaður i þessu
máli. Hann segir, að Sambandið
skuldi stórfé f Útvegsbankanum,
þar sem það skuldar ekki svo mikið
sem einn eyri, og hann þrefaldar
skuldina i Landsbankanum.
Ef Ofsli Sigurbjörnsson biðst
ekki afsökunar á þessum gífurlega
ósannindaþvættingi sínum, þá er
það slfkt >reginhneyksli<, að öll
íslenzka þjóðin mun álfta hann rú-
inn »allri velsxmisti!finningu<, svo
að hans eigin orð séu notuð.
O -...
Minningarorð.
Hinn 13. maf s.l. andaðist að
heimili sfnu á Akureyri, Ounnlaug-
ur Jónsson frá Höfn i Bakkafirði,
fæddur 13. október 1876. Foreldrar
hans voru merkishjónin Jón Sig-
urðsson, er lengi var oddviti f
Skeggjastaðahreppi, og Ouðrún Sig-
valdadóttir kona hans. Hann aflaði
sér meiri sjálfsmenntunar á yngri
árum en þá var almennt títt, las
og skrifaði öll Norðurlandatungu-
málin og var góður frönskumaður.
Hann skrifaði prýðilega rithönd,
átti gott bókasafn og ias öllum
stundum, enda var hann mjög
fróður og minnisgóður. Hann var
hreppstjóri f Skeggjastaðahreppi 18
ár og sýslunefndarmaður um langt
skeið, einnig gegndi hann fjölda-
mörgum öðrum trúnaðarstörfum,
var sáttasemjari, formaður skatta-
nefndar o.fl. Hann var átta ár
verzlunarstjóri við verzlun Jakobs
Ounnlaugssonar á Bakkafirði, þar
til hann lét af þvf starfi vegna
heilsubrests og flutti til Akureyrar
fyrir rúmu ári siðan; Pað sem ein-
kenndi öll störf hans var ná-
kvæmni og vandvirkni. Hann var
aldrei að flýta sér, en leysti þó öll
sfn margbrotnu stört prýðilega af
hendi. Hann var prúðmenni hið
mesta og bjartagóður, enda vinsæll
í héraði. Hann var giftur Oktavfu
Jóhannesdóttur, systur Pórhalls Jó-
hannessonar fyrv. héraðslcknis á
Pórshöfn, og lifir hún mann sinn
ásamt fimm börnum.
Heimili þeirra var hið prýðileg-
asta.
Hann var einn af þeim mönnum,
sem mikið var gefið, enda var lffs-
starfið glæsilegt. Slfkir menn eru
gæfumenn og þjóðar sómi.
Jósel M. Thorlasíus.
ÍVÖ flutningaskíp, hlaðin byggingivörum
til Kaupfélags Eyfirðinga, komu hingað f
fyrrakvöid. Er nú verið að afieita þau.
Timbur Ixkkaði í verði i fyrra hjá K. E.
A. um 20% og lækkar nú enn um 15%,
Steinlim er aðeint kr. 8,50 tunnán.