Dagur - 08.06.1933, Side 3
23. tbl.
DAGUR
91
Laugavatnið í Glerárgili.
Nokkur félög og áhugamenn á
Akureyri bafa gengizt fyrir þvi að
hafizt verði handa með að Ieiða
heita vatnið úr Glerárgilslaugum
niður í sundlaug bæjarins.
Undanfarin tvö ár hefir verið unnið
að því af þessum sömu mönnum
að fá áætlanir um kostnað ogfyrir-
komulag þessa verks. — Hefir nú
fengizt tilboð frá Höskuldi Bald-
vinssyni verkfræðingi um að full-
gera leiðsluna í gljúfrunum, sem er
erfiðasti hluti leiðarinnar, og að út-
vega pípur i leiðsluna frá því gljúfr-
unum sleppir og niður i sundlaug-
ina. Tilboð hans er tæplega 22 þús.
kr., og hefir bæjarstjórn samþykkt
að leggja það fé fram gegn þvi, að
áhugamenn og félög i bænum út-
vegi bænum 11 þús. kr. lán til 10
ára og leggi fram alia vin'nu, sem
með þarf, til að koma ieiðslunni
frá þeim stað, sem pípurnar koma
upp úr gljúfrunum, og niður i
sundlaug.
Hefir þegar verið útvegað umrætt
lán frá ýmsum veiunnurum þessa
máls hér i bænum, og hafa um-
ræddir áhugamenn og féiög i bæn-
um einnig tekið að sér alia fram-
kvæmd verksins með þvi skilyrði
að boði Höskuldar sé tekið og við
það staðið.
Tii þess að framkvæma verk það,
sem ætlast er til að unnið sé með
frjálsum samskotum, þurfa bæjar-
búar að leggja fram mikla vinnu,
en svo almennur áhugi virðist vera
meðal allra bæjarbúa, jafnt yngri
sem eldri, fyrir þvi, að verk þetta
megi verða framkvæmt sem alira
fyrst, að ekki mun þurfa að kvíða
þvi, að þvi muni ekki almennt vel
tekið að leggja fram vinnu ogpen-
inga.
Ef bæjarbúar ganga að þessu
vérki méð ósérplægni og áhuga,
má vænta þess að okkur gefist
kostur á að baða okkur í heitri
laug hér i bænum nú á þessu
sumri.
Sameinumst öll um að svo megi
verða. Abugamaður.
Árbók Fornleifafélagsins
1932.
Þó að kynlegt megi heita, virðist
fornleifafræða-áhugi íslendinga vera
fremur af skornum skammti, þegar
frátekin er starfsemi nokkurra ágætra
menntamanna i höfuðstað lands-
ins. Fornleifafræði er þó næstum
þvi undantekningarlaust afbrigða
hugnæmt viðfangsefni. Telja má, að
meðal menningarþjóða sé hún jafn-
vel fremri vegvisir i þekkingu á liðn-
um tima, heldur en sjálf sagan.
Par fletta fornfræðingar blöðum
sinum langt, langt aftur i fornar
aldir úg stafa furðu vel. Frá þeirra
sjónarmiði mundum við ísiendingar
raunar ekki teljast eiga neinar forn-
leifar, og þar af leiðandi ekki geta
talað um fslenzka fornleifafræði, þar
sem við erum að rusla i dóti feðra
okkar, sem iifðu aðeins fyrir fáum
öldum, að kalla má» Víð gétum að
vissu leyti viðurkennt sannindi
þeirrar skoðunar. En frá okkar
einka-þjóðlega sjónarmiði eru það
endemi mikil, að litilsvirða nokkuð
það, sem getur aukið þekkingu á
lifi og starfi þeirra íslenzku kyn-
slóða, sem horfnar eru >inn i blá-
móðu aldanna*. Starf, eins og rann-
sóknir fornra mannvirkja, söfnun
fornminja o.þ.h., er alveg hliðstætt
söfnun þjóðsagna og örnefna og
varðveislu ísléndingsagna og annara
gagna f sögu þjóðarinnar. Pað ætti
því að vera hugljúft hverjum sæmi-
lega vitibornum íslendingi, að hlynna
eftir megni að öllu þvi, sem styður
viðgang þessara fræða.
Hið íslenzka Fornleifafélag í Reykjavik
hefir geíiö út ÁrbÓR í rúmlega fimm-
tiu ár. Er þar saman komið allt það
helsta, sem ritað hefir verið um ís-
lenzka fornleifafræði, og er það
hið skemmtilegasta ritsafn, Af rit-
gerðum f nýustu árgöngum Arbók-
arinnar vil ég sérstaklega nefna langa
og afarmerkilega grein eftir Matthías
Pórðarson fornminjavörð, sem fjall-
ar um manngerða hella á Suðurlandi.
Um aldur þessara hella hafa verið
skiftar skoðanir, og er sjáifsagt að
kynnast þessu máli með því að
lesa ritgerð M. P. — Árbókin fyrir
1932 hetir nýlega verið send með-
limum Fornleifafélagsins. Er hún
vönduð að pappfr og leturgerð og
einkar fjölbreyttað efni. Árgangurinn
byrjar með Iangri ritgerð eftir M.P. um
rannsókn á fornum bæjarrústum á
Ðólstað við Alftafjörð. Var rannsókn-
in framkvæmd sumarið 1931, og
m. a. fyrir tilmæli frá Fornritafélagi
í jlands og í tilefni af þvi, að í ráði er
að Eyrbyggjasaga komi bráðlega
út i vandaðri útgáfu. En Bóistaður
er einn af söðustöðum Eyrbyggju,
sem kunnugt er. Leiddi rannsóknin
ýmislegt i Ijós og fylgja ritgeröinni
18 myndir af rústunum og ýmsum
munum þaðan. Einnig fylgja f við-
bæti athugasemdir um nokkra staði,
sem getið er i Eyrbyggjasögui
— Næsta ritgerð Árbókarinnar er
athugasemdir við ritgerðir um sögu-
staði o. fl. í Njálu, ritaðar af Skúla
Guðmundssyni, og flytja mikinn
fróðleik. — Porvarður Porvarðsson
prófastur ritar smágrein um athug-
unarför á Arnarstakksheiði og fylgir
athugasemd frá Mattb. Pórðarsyni.
— Pá koma tvær smágreinar, önnur
um fornleifafund f Úivarsfelli, hin
um forn jarðgöng, senrfundust síð-
astliðið sumar að Keldum á Rangár-
völlum. — Porsteinn Konráðsson
ritar Ianga og merkilega skrá yfir
eyði-býli -hjáleigur og sel í Húna-
þingi. Tekur hann hvern hrepp
sýslunnar útaf fyrir sig, og er skrá
hans hin ágætasta fyrirmynd, handa
þeim, sem semja vildu likar skrár
um aðrar sýslur. En slíkt er tnjög
æskilegt. — Stutta en gagnmerka
grein um örnefni á Gnúpsverja-
hreppsafrétti, ritar Porsteinn Bjarna-
son frá Háholti. Fylgir sérstök nafna-
skrá yfir örnefnin Fleiri svona grein-
ar þurfa að birtast. — Um örnefni
f Miðfellshrauni og á Miðfellsfjalli
í Pingvallasveit skrifar Ásgeir Jón-
asson frá Hrauntúni. — >Goðkennd
örnefni eystra* heitir ágæt grein
eftir Sigfús Sigfússon þjóðsagna-
fræðing. >ís!enzka þjóðin má eigi
hætta þvf að virða það, sem hún
hefir hlotið virðingu fyrir, þ. e.
Rinso leysir úr
þvottaerf iðinu
Erfitt nudd á þvottabrettinu, sem
bæði skemmir hendur og þvott,
er óþarft nú. Rinso þvær þvottinn
meðan þjer sofiö. Það sem þjer
þurfið aö gera, er aÖ leggja þvottinn
í bleyti í Rinso-upplaustn næturlangt,
og skola hann og bengja til þerris
næsta morgun. Þvotturinn er búinn
án erfiðis og tímaeyðslu. Rinso
gerir hvítan dúk skjallhvítan og
mislitur þvottur verður sem nýr.
Fatnaðurinn endist einnig lengur.
Reinið Rinso einu sinni og þjer
munuð altaf nota það.
Rínso
VERNDAR HENDUR, HELDUR ÞVOTTÍNUM ÓSKEMDUM
M-R 78-33 IC
R. S. TIUDSON LIMITED, LIVERPOOL, ENGLAND
sögurnarc, segir S. S. — Um Saur-
bæ á Hvalijarðarströnd, ritar Snæ-
björn bóksali Jónsson. Fylgir bragur
mikiil og forn er nefnist >Kola-
gerðarvísurc. — Að lokum er árs-
skýrsla Fornleifafélagins og félaga-
tal.
Hið íslenzka Fornleifafélag er
merkt og gagnlegt. Pað er efnalítið
og meðlimum þess þarf að fjölga.
Æfitillag er 50 krónur, árstillag að-
eins 3 kr. Félagar Bókmenntafélags-
ins og Sðgufélagsins geta fyrst og
fremst ekki verið þekktir fyrir að
tilheyra ekki Fornleifafélaginu líka.
Öðrum, sem fáar bækur kaupa, má
benda á, að fyrir einar þrjár krónur
árlega fá þeir ekki betra lestrarefni
en Áibók Fornleifafélagsins. Utaná-
skrift félagsins er: Hið íslenzka
Fornleifafélag, Reykjavík. Einniggela
menn snúið sér til undirritaðs.
Sigurður Kristinn Harpann.
F r éttir.
var slitið um miðaftansleyti á
laugardaginn fyrir hvítasunnu og hafði
þá átt setu í 109 daga, Haldnir voru 94
þingfundir í neðri deild, 91 í efri deild
og 10 í satneinuðu þingi, alls 195 þing-
fundir. Pingið afgreiddi 89 Iðg og sam-
þykkti 25 þingsályktanir.
Kosningar til Alþingis eru ákveðnar 16.
júli í sumar. Framboðsfrestur er til 16.
júní. *
Póstbíll fer vikulega milli Reykjavíkur
og Akureyrar i sumar. Eru þær ferðir
þegar hafnar.
BÍISllfS varð á akbrautinni fyrir framan
Vil kaupa
nú þegar nokkra duglega
hrekkjalausa áburðarhesta,
er eiga að fara til Græn-
lands. — Ennfremur ræð
eg mann til Grænlands-
ferðar með hestunum og til
dvalar þar í sumar. Kemur
aftur í septembér.
Einar ^rnason Eyrarlandi.
Hrafnagil á annan í hvítasunnu. Steyptist
billinn um og brotnaði, en fólk, sem f
honum var, meiddist, einkum bílstjórinn,
Árni Jóhannesson frá Brunná.
Maður kastaðist af reiðhjóli hér á göt-
unni á annan í hvítasunnu og fékk svo
vonda byltu, að hann lá meðvitundarlaus
fyrst í stað og var þegar fluttur á sjúkra-
hús allmikið meiddur. Maðurinn sem
fyrir slysinu varð, heitir Barðl Brynjólfs-
son.
Samhanú íslenzkra samvinnuíélaga heidur
aðalfund sinn hér á Akureyri að þessu
sinni, og hefst hann 15, þ, m.
Grasspretíutiorfur eru ágætar hér um
slóðir. Eru menn i þann veginn að byrja
slátt á sáðlandi og er það óvenjulega
snemma.
hér í bænum er ólíkt fjöi
meira nú en það var í fyrra, Mikil fisl
vinna er hér í sumar og taisvert ur
byggingar.
Malbikun er verið að undirbúa í Hafna
stræti, frá »SkjaIdborg« og inn að San
komuhúsi bæjarins. Einnig er ákveðlð a
malbika í sumar suðurhlutann af Brekki
götu.