Dagur - 08.06.1933, Blaðsíða 4
92
DAGUE
23, tbl.
Tannlækningasfofa
mín verður lokuð frá 15. júní til 1. júlí, vegna fjarveru minnar.
Engilbert Guðmundsson
tannlæknir.
Sameiginlegur FUNDUR
verður haldinn í IÐNAÐARMANNAFÉLAGI AKUREYRAR og IÐNRÁÐI
AKUREYRAR, sunnudaginn 11. júní, ld. 4 e. h., í Iðnaðarmannahúsinu í
Lundargötu. — ÝMS IÐNMÁL Á DAGSRÁ. — Prófnefndarmenn
í hinum ýmsu iðnfögum eru beðnir að mæta.
Stjórn Iðnaðarmannafélags Akureyrar.
Framkvœmdanefnd Iðnráðs Akureyrar.
Speglanir.
Sumir eiga háar hallir
— heiðra drauma glæsta borg. —
Fagnandi með fulla sjóði
fara um lifsins stræti og torg.
Og flestir þeirra fyrirlita
fátæklingsins djúpu sorg.
Aðrir sínar leiðir leggja
löngum yfir grýtta storð,
þó að stundum blíðu bresti
bænir, eða hugljúf orð. —
Neyta þess, sem neyðin gefur
— naktir, við sitt lagaborð. —
Auðnulausir þreytu þola,
það er ný og gömul sögn.
Er fátæklingar falla, — deyja,
felast þeir sem lítil ögn.
Yfir gröfum einstæðinga
alltaf rfkir — dauðaþðgn, —
Pó á lífsins heljar hafi
heyjum stranga sókn og vörn,
og okkur kannske af mildi mælist
misjafnt sáld úr Hfsins kvörn,
erum við í innsta eðli
öllusömun drottins bðrn. —
Valdimar Hólm Hallstað
Ekki á vetur setjandi.
»Vísir* stympast eins og höfuð-
sóttarkind gegn innflutningshöftun-
um. Segir, að þau »séu þjóðinni i
heild til tjóns og ófarnaðar*. Ekki
er sá á vetur setjandi, er sliku held-
ur fram. Peirri þjóð, sem aldrei
notaði innflutningshöft á erfióurn
tímum, væri keimlíkt farið og söng-
listamönnum, sem héldu æfingar
sínar fyrir óluktum dyrum, svo að
hrekkjalimir sæju leik á borði að
ganga inn og gera þeim súrt f
broti. S.
Námsterð fullnaðarprófsbarna hefst á
sunnudaginn. Skólastjóri biður þau börn
sem ætia að taka þátt í henni, að koma
til viðtals í barnaskólann kl, 8.30 í kvöld.
Hjónaband: Ungfrú Björt Einarsdóttir og
jón Eiríksson skipsstjórl i Lagarfoss.
Villa er í nlðurstöðutölu í 19. tölublaði
Dags, þar sem skýrt er frá innstæðum í
sjóðum K. E. A. og innieignum félags-
manna i reikningum. Niðurstöðutaian á
að hækka um 100 þús, kr.
Jólianna Jóhannsdóttir söngkona er
stödd hér í bænum um þessar mundir
og ætlar að halda söngskemmtun innan
ikamms.
Aluminíum hrífur
hrífuhausar
fást í flestum kaupfélögum
norðan- og austanlands.
— IÐJA — Akureyri.
Tilkynning.
Svarðarútmæling verður fram-
kvæmd af sömu mönnum og í fyrra
og verður hagað þannig:
Útmæling í Eyrarlandsgröfum á
Iaugardðgum kl, 6 — 8 eftir hádegi.
— Útmæling i Naustagröfum á mánu-
dögum kl. 7 — 8 eftir hádegi. — Út-
mælt í Kjarnagröfum á þriðjudðg-
um kl. 7 — 8 eftir hádegi. — Útmælt
í Bandagerðisgröfum á laugardög-
um kl. 6 — 8 eftir hádegi.
Eins og að undanförnu, verða
kýr ekki hafðar f pðssun á þessu
sumri, — En aftur bæjarbúum skylt
að hafa þær kýr í félagspössun, sem
ganga eiga í högum bæjarins. —
Peir kúaeigendur, sem brjóta á
móti þvf, verða að greiða aukahaga-
toll til bæjarins, sem svarar pöss-
unargjaldi. Kýr má ekki hafa ann-
arstaðar í bæjarlandinu en kúahög-
unum i fjallinu og Kjarnalandi.
Hestaeigendum er skylt að til-
kynna um þá hesta, sem þeir ætla
að hafa í högum bæjarins, og hve
langan tima. Sjáist hestar bæjarbúa
f högunum, sem ekki er beðið fyr-
ir, verður litið svo á, sem þeir eigi
að vera þar og krafið um hagatoll
fyrir þá. Ferðamannahestum má
ekki sleppa í bæjarlandið. Sauðfé
og geitum ber að halda til búfjár-
haga, og skorað er á garða og tún-
eigendur að girða lönd sín ijárheld-
ura girðingum eins og bera ger
eftir bæjarreglum.
Bæjarstjórlnn á Akureyri, 1. júní 1933,
Jón Sveinsson.
Nýlátín er Margrét Þórðardóttir hús-
freyja að Hlöðum í Olæsibæjarhreppi,
gömul kona.
innbrot var gert í Mjólkursamlagið i
fyrri nótt. Litlu var hægt að stela, en
munir skemmdir á skrifstofunni. Orunur
féll á starfsmann (>búrmann<) á skipinu
Lagarfoss, og bar hann ekki á móti því,
að hann væri valdur að verkinu, en þótt-
ist ekkert muna vegna ölvunar. Var hann
aettur i gæzluvarðhaid.
Akureyringarl
Krefjist af kaupmanni eða kaupféiagi yðar, að
skifta eingöngu við framleiðslufyrirtæki bæjarins.
KAUPIÐ AÐEINS
AKRA-Smjörlíki,
AKRA-jurtafeiti, Úi
AKRA-Smiörlíki blandað með Rjómabússmjiiri.
Munið — Akureyri fyrir Akureyringa.
Húsmædur!
■
ATHUGIÐ A Ð
ÞETTA
MEBKI
sé á öllum kaffipökkum, sem
— =þið kaupið= .=
Ekkert annað merki
tryggir ykkur nýbrennt og
■■ malaö kaffi
DEERING rakstrarvélar.
Mikilverðasta nýungin, á sviði heyvinnuvélanna,
sem hér hefir verið reynd á síðustu árum, eru
hinar nýju Deering rakstrarvélar með stífum
tindum. Þær eru nú notaðar á nokkrum tugum
heimila víðsvegar um land, og eiga tvímælalaust
skilið sömu útbreiðslu eins og sláttuvélarnar.
Samband ísl. samvinnufélaga.
Hænsnafóður.
»0 N Ý« ungafóður og »0 N Ý« eggfóður eru
einhverjar hinar allra beztu tegundir af hænsna-
fóðri sem fáanlegar eru. — »Q N Ý« er sett
saman eftir reynslu æfðustu hænsnaræktarmanna
í Danmörku. Reynið »GNÝ<(,
Samband íst. samvinnufélaga.
lónping ísiands verður háð í Reykjavík
um næstu mánaðamót og hefst 1. júlí.
Eiga sæti f þinginu allir iðnráðsfulltrúar
kaupstaðanna og stjórnir iðnaðarmannafé-
laganna. Par sem þjóðin er f miklum íðn-
aðar- og framleiðsluhug má búait við að
þingíð verði fjölmennt.
Ben Húr. Nýja -Bíó hefir sýnt þessa ágætu
hljðmmynd undanfarið við mikla aðsókn.
Myndin verður sýnd í kvöld kl. 9 og í
síðasta sinn sunnud. n. þ. m. kl. 5 e. h.
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
Prentsmiðja Odds Björnssonar.