Dagur - 31.08.1933, Side 4
142
DAGUR
35. tbl.
Júgursmyrsl
J
Ú
g
u
r
s
gera spenana mjáka,
ver júgur-sjúkdómum,
græðir júgur og spenasæri á stuttum tíma,
eru mjög ódýr í daglegri notkun,
eru gerð úr hreinustu og beztu efnum,
halda sér jafnt sumar og vetur,
ppj eru algerlega bragð- og litarlaus,
y hafa ekki í sér nein skaðleg efni,
eru íslenzk framleiðsla,
eru framleidd af efnagerðinni Sjöfn Ak.,
ættu allir kúaeigendur að nota.
Biðjið kaupfélag yðar eða kaupmann um
JÚGURSMYRSL frá
r
S
i
| EFWAGERÐIN
H\ S JÖFN \r
V agnar og
Vagnhjól
bezt — ódýrast.
Samband isl. samvinnufélaga.
LÍndbergh-hjÓnÍIl flugu fyrra miðvikudag
frá Eskifirði til Færeyja og þaðan til Eng-
lands. Haft er eftir Lindbergh að honum
lítist vel á norðurfiugleiðina.
Dánardægur. Hinn 23. þ. m. andaðist á
Steðja á Þelamörk Marinó Sigtryggsson
bóndi þar, ungur dugnaðarmaður.
Skemmtiför. Siðastl. sunnudag fór margt
af börnum héðan úr bænum í bilum til
berja vestur á Þelamöik á vegum skáta-
sveitarinnar »Fálkar«. Veittu þeir börnun-
um brauð og mjólk, en B. S. A. lánaði
bilana endurgjaldslaust. Veður var hið
bezta, og létu börnin ágætlega af ferð-
inni. —
Tvær kennarastöður víö bamaskóia Ak-
ureyrar hafa verið til umsóknar. Úmsókn-
arfrestur var útrunninn 25 þ. m. Alls
höfðu þá skólanefnd borizt 19 umsóknir.
Prír af fimm skólanefndarmönnum hafa
nú mælt með Marinó Stefánssyni f aðra
stöðuna, en tveir með Kristjáni Frlðriks-
syni. í hina itöðuna mæltu tveir með
Eiriki Sigurðssyni, tveir með Tryggva
Porsteinssyni og einn með Knúti Por-
steinssyni. Sker þá yfirstjórn fræðslumál-
anna úr,
Bæjarstjóm samþykkti á síðasta fundi
sfnum, samkvæmt tillögu veganefndar, að
hleðsluveggurinn austan Hafnarstrætis,
milli húsanna nr. 25 og 41 verði hlaðinn
vandlega upp á þessu haustl. Á grjót-
hleðslan að vera steinlimd og á þann
hátt gerð örugg fyrír sjávargangi, en nú
er garðurinn á þessum stað orðinn mjög
hrörlegur og getur legið undir eyðilegg-
ingu í miklu austanbrimi. Ennfremur
samþykkt að leggja holræst í Hafr.arstræti
á þvi svæði sem fyrirhleðslan verður
gerð.
Sundkennslu verður haldið áfram f
sundstæði bæjarins fyrst um sinn, þó að
hinn venjulegi sundkennslutími sé nú úti.
Er aðsókn mikil að sundinu, siðan heita
vatnið kom í pollinn.
Áttræður öldungur. jóhanu Rist svein-
bjarnarson fyrrum bóndi á Botni í Hrafna-
gilshreppi er áttræður í dag. Þrátt fyrir
aldurinn lifir hann énn við allgóða heilsu,
nema hvað sjónin er mjög biluð. Jóhann
er einn þeirra manna, sem jafnan hefir
notið fullra vinsælda allra, er honum
hafa kynnzt á hlnni löngu æfi hans, og
munu því hugheilar óskir um friðsamt og
ánægjulegt æfikvöld streyma frá vinum
og kunningjum til áttræða afmælisbarns-
ins. —
Hjónaband. Þann 17. þ. m. voru gefin
saman í hjónaband í Reykjavík ungtrú
Margrét Jónsdóttir Kristjánssonar kennara
og Jónas Lilliendahl símritari.
Náttúrufræðingarnir Pálmi Hannesson
rektor, Steindór Steindórsson kennaii
og Magnús Björnsson kand. phil. eru ný-
lega komnir úr rannsóknarférð austan af
öræfum. Einnig var Finnur Jónsson list-
málari í för með þeim. Hafði Pálmi með
höndum jarðfræðisrannsóknir, Steindór
rannsakaði gróðurinn og Magnús dýralífið.
Rannsökuðu þeir svæðið frá Jökulsá á
Fjöllum, austur að Jökulsá á Brú og suður
að Vatnajökli, Öræfaflokkur landmælinga-
manna var og að starfi á þessum sömu
slóðum á sama tíma.
Innbrot 00 jljólnnður. Á þriðjudagsnóttina
var brotist inn i sölubúð E, Mölleri hér í
bæ og látið greipar sópa um ýmsan sölu-
varning þar. Mestallt þýfið fannst daginn
eftir úti á Tanga, og tveir menn úr Reykja-
vík teknir fastir, sem talið er að hafi
framið verknaðinn, en hvorugur þeirra
mun þó hafa meðgengið þegar þetta er
ritað.
Blómadagar. l-linir árlegu blóma-
dagar Hjálpræðishersins verða í ár i. og
2. sept.
Styrkið starf >Hersins< hér í bænura með
því að kaupa blóm.
X
-----0
Ársrit Laugaskóla
7. ár.
A'þýðuskóli Pingeyinga að Laug-
um er efalaust einn besti aiþýdu-
skóli landsins. Ekki svo að skilja
að íslendingar eigi ekki aðra skóla
góða en alþýðuskólana, en þeir eru
flestir að ýmsu leyti ekki í samræmi
við hinn nýja tíma, þ. e. koma
stundum alveg ófyrirgefanlega f
bága við fjör þeirrar æsku, sem
temja á til drenglyndis við leit að
guði í sjálfri sér og náttúrunni.
Laugaskóli var stofnaður af rót-
tækum hugsjónamönnum, aðdáan-
lega skyggnum á þörf þjóðar sinn-
ar og — verðmæti alls hins mikla
lífs. Gæfa skólans hefir hingað til
líka verið mikil þó að brestir kunni
þar i að vera, eins og gengur. Al-
þýðan fann og skyldi aðdráttaraflið.
Og það er ólíkt meira virði, en að-
köst apakatta, sem i byrjun töfðu
á alian hátt fyrir stofnun skólans
og i þvi sambandi rægdu og svik-
ust um.
Pegar Nemendasamband Lauga-
skóla var stofnað, var ákveðið að
eitt af verkefnum þess skyldi vera
að gefa út »Ársrit<, fyrst og fremst
tii að halda uppi kynningu milli
félagsmanna, en er fram liðu stund-
ir, verða vopn til sóknar. Ársritið
hefir nú komið út i 7 ár og jafnan
verið hið vandaðasta og tvímæla-
laust meðal bezt skrifuðu rita á ís-
ienzku, jafnt um efni og málfar og
æskubragð allt. Pað er siðasti ár-
gangur ritsins sem mig langar til
aðskýia hér litið eitt frá, ef þaðsvo
mætti verða til þess að bjá fólki
utan Nemendasambandsins, og þá
sérstaklega kennurum og æskulýð,
vaknaði forvitni á að kaupa og
kynna sér Ársrit Laugaskóla.
Árgangurinu byrjar með ræðu
eftir skólaráðsformann Jón í Yzta-
felli. Pað er sönn nautn að lesa
hana, svo mikla list i framsetningu
og mátt í hugsun, sem þar er að
finna. Fyrir munn kynslóðarinnar,
sem er ung og starfandi i landinu,
segir höfundurinn meðal annars:
>Við tókum við landi, sem enginn
trúði á, landi þjóðar, sem var á
flótta til annarar heimsálfu. Við
eigum að skila landi, sem allir vifa
að hefir þúsund kosti, óþrjótandi
náttúruauðæfi og menningarskil-
yrði*. Petta hiutverk er afreksmönn-
um ætlað, mönnum, sem eiga
jprúttum alit að þakka, vöskum mðnn-
um og batnandi, drengjum góðum.
Pað eitt má finna að ræðnnni, að
hðfundurinn virðist þrátt fyrir allt
leggja ailtof mikið upp úr fþrótta-
kappi, sem setur met, og að vfsu er
gott, en þó ekki einhlýtt nema
mýkt, fegurð og ýtrasta drenglyndi
fylgi.
>Um dauðann*, heitir skýrlega
rituð grein eftir Bjðrn Sigfússon
frá Múla. Efnið er skemmtilega rakið
og gáfulega. En eitt líkar mér ekki.
Hðfundurinn talar um, að þegar
Adam hafi gripið Evu í faðm sinn,
til að finna lífsþrá sfna ósundraða,
þá hafi hann ekkért fundið nema
kitlandi nautn dauðans. Hvaðan
kemur manninum vald til að tala
svona um Adam? Hver hefir sannað
honum þessa nautn Adams? Nú
er það vitanlegt, að nautn dauðans
er hvergi að finna f ástum, nema
hjá þvi fólki, sem aldrei getur um
þær fjallað öðruvfsi en með flissi
og hvii og jafnvel grimmd. En að
svo hafi verið með Adam og Evu,
þegar i upphafi, álft eg róg. Þau
kunnu hvort með annað að fara.
(Framh.),
Siflurður Kristinn Harpann.
Agæt tegund
aíENSKU CEMENTI
nýkomin.
Kaupfélag Eyfjrðjnga
Byggingavörudeildin.
SKRIFSTOFA
FRAMSÓKNARFLOKKSINS
er á Laugfaveg: 10.
Sfmanúmer »Tímansc.
Reykjavík Mlöstjórnfn.
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
Prentsmiðja Odds Bjömssonar,