Dagur - 19.10.1933, Page 5

Dagur - 19.10.1933, Page 5
42. tbl. D A G U R 171 Hugvekja um bannmálið og at- kvæðagreiðsluna á morgun. Það er augljós og alviðurkerindur sannleikur, að allur framavegur er brattur og erfiður. Hver einstaklingur veit og skilur, að það, að verða að manni, sem kallað er, kostar fyrirhöfn og áreynslu. Pað fæðist enginn með formennskunni, og það verður -enginn »óbarinn biskup«. Sá, sem ætiar sér að verða að manni, þarf því og v e r ð u r að leita á brekkuna. Um annað er ekki að gera. Og einkum á þetta við um óll siðleg mál. Að vinna bug á erfiðleikunum er engum aukvisum hent. Þeim er því oft ljúfara að leita undan brekkunni, en sækja á brattann. íslenzka þjóðin, sá stóri einstaklingur, þó smár sé að vísu, borinn saman við stórþjóðir, ætti að hafa og h e f i r í raun og veru, sogið í bein og merg þennan sannleika í þúsund ár. F*að er vitað, að lífsbaráttan hér er harðari en víðast annarsstaðar, að landið okkar, þótt gott sé og blessað, verður að heimta þrek og þor þeirra er það á að fæða og klæða. Og þjóðin myndi aldrei hafa átt eða getað átt tilverurétt hér, sem sér- stök þjóð, hefði hún ekki frá upphafi eins og sogið í sig merg og mátt frosts og funa. — Hitt er vitanlegt öllum, að örðugleikar og óblíð kjör hafa stundum verið þess albúin að beygja hana í duftið, en aldrei tekizt það, þó stundum hafi nærri legið. Og e. t. v. hefir þó ekkert leikið hana ver, þegar dýpst er skoðað, en Bakkus, en vínnautnin, með öllum hennar ömur- legu afleiðingum. F*að var þess vegna eðlilegt, að þegar heitar sjálfstæðistilfinníngar fóru um þjóðina, eftir að hún fór að rétta við úr hinni sárustu niðurlægingu og fór að finna til réttar síns, að þegar hún rannsakaði og sá hvernig erlent vald hafði mergsogið hana öldum saman, að hún þá kæmi einnig auga á Bakkus og þær dýru fórnir, er hún hafði honum fært.— F*jóðin opnaraugun og sér hvernig komið er, og hún áset- ur sér að leita á brekkuna, ásetur sér að sækja í sig veðrið og magna mátt sinn til mennilegra dáða, og þá fyrst og fremst með því, að vísa eiturveig- um Bakkusar úr landi. Par voru vöku- menn þjóðarinnar að verki. Pað voru bjartsýnir menningarvinir, er héldu á þeim hugsjónakyndli og eggjuðu til sóknar á brattann, og af því blysi er þá var brugðið á Ioft, af fámennri, afskekktri þjóð, lýsti víða og varð hvar- vetna til þess, að vekja eftirtekt á þjóðinni og aðdáun. — En svo koma hin illu öfl til sögunnar, öflin sem ávalt reyna að draga menn og mál í duftið. Svo koma hrakspárnar, sem eru náhrafnar hverrar nýungar, og vilja eins og sjúga úr þeim blóð og merg. Og þessar hrakspár, sem nú eru kall- aðar sannspár, og birtst hafa í vofu og náhrafna líki alla tíð síðan, þær hafa lagt til morðkutana og snörurnar og allt hið illa og ömurlega, sem þessi göfuga menningarhugsjón hefir átt við að stríða. Og nú eru kutarnir orðnir að skálmum, sem ganga eiga af henni dauðri. — Og mennirnir, sem einna lengst hafa gengið, og ganga nú fram með þessi bitru vopn á lofti, eru sumir þeir synir þjóðarinnar (ekki dætur), sem hún hefir glapist á að trúa bezt og hefði mátt mest af vænta. F’að eru sumir þeirra manna, sem trúað hefir verið fyrir miklu, trúað fyrir því að vera verðir Iaga og réttar í landinu, trúað fyrir heilbrigðismálum þjóðar- innar, trúað fyrir vegsögu starfi, og það eru þeir menn, sem þjóðin hefir glapist á að trúa fyrir löggjafarstarfinu. Svo illa er nú högum þessarar marg- hröktu, fámennu þjóðar komið. Og svo segja þessir menn, að nú séu þeir að myrða þessa göfugu hugsjón til þess, að gera þjóðinni gagn. Og þeir heimta Iiðstyrk til þess að svo megi verða, heimta aukið frelsi Bakkusi til handa, en það er það sama og fjölga hrös- unarhellum og mannameinum. F’eir slá á þá strengi er lakast óma í hvers manns brjósti Þeir hrópa hástöfum á frelsi og sjáltstæði, þó þeir séu með þessu að vega að siðlegu sjálfstæði þeirrar kynslóðar, sem við erum að reyna að ala upp til drengskapar og dáða. F*eir benda á feirurnar og sprung- urnar og vandræðin, sem þeir hafa sjálfir skapað, þeir benda á hin flak- andi sár, sem morðkutar þeirra hafa skilið eftir og segja svo: F’arna sjáið þið hvernig komið er með þessa menn- ingarhugsjón ykkar, og nú skuluð þið hjálpa okkur til að ganga af henni dauðri. En góðir menn og konur! Hlustið ekki á þessa menn. Hvessið sjónir ykkar og skilning á málinu, með því að gera ykkur í hugarlund, hvernig fara muni ef olnbogarými Bukkusar eykst frá því sem nú er. Er ekki frek- ari þörf á að minnka það en auka? Hugsið um það, þið foreldrar, sem eruð að ala þá upp, sem byggja eiga landið og gæta menningar þess og sóma, þið sem leggið það bezta og dýrmætasta úr ykkar eigin sál í þeirra sál, hugsið um það hve örðugt ykkur verður uppeldisstarfið, og þarf þó ekki á að bæta, ef sterku-vínin eru allstaðar við hendina; hugsið um þá tálsnöru sem með því verður á vegi barnanna ykkar lögð. Látið ekki blekkjast af fag- urgala og glæstum Ioforðum. F*eir sem nú heimta aðstoð ykkar til þess að koma sterku-drykkjunum inn í landið, hafa, í þessu máli, ekkert betra að bjóða en brennivínið. Sjálf eigið þið að leggja til fé og fjör. Segið, í ham- ingjunar bænum, stórt N EI við þessu öllu saman. Komið á kjörstaðinn á morgun og hjálpið til að bjarga göfugri menningarhugsjón frá glötun. Leggið hönd að því, að þjóðin haldi áfram að klífa brattann. Sláið hring um kjarna málsins og varðveitið hann frá eyðileggingu. Og gerið meira. Hjálpið til að græða þau sár, sem morðkutarnir hafa valdið, og hjálpið til að gera þá óskaðlega. Ungu menn og konur! Á morgun fáið þ';ð mörg í fyrsta sinni, að taka opinbera afstöðu til menningarmáls með atkvæðagreiðslu ykkar. Pað er ykkar þegnskapar- og menningarvígsla. Á ykkur veltur mikið um örlög þjóðar- innar í þessu máli. Sjálfsagt langar ykkur öll til að verða sjálfum ykkur og þjóðinni til gagns og sóma. En haldið þið að ekki verði erfiðara að ná því marki, ef tálsnörunum og hrösunar- hellunum verður fjölgað? Er ekki nóg af þeim fyrir? Væri ekki sjálfsagt að fækka þeim heldur? Teljið upp í huga ykkar alla þá félaga ykkar, sem vínið hefir skemmt eða er að eyðileggja. Verður þeim bjargað með meira víni ? — Dettur ykkur í hug, að ekki verði margfalt erfiðari sóknin til manndóms og menningar, ef Bakkus er með í förinni? Finnst ykkur að ekki þurfi að brjóta á bak aftur heilbrigða skynsemi til þess, að geta í alvöru haldið því fram og trúað því, að því víðar sem vara er höfð á boðstólum og hægara í hana að ná, því minna sé hún keypt og notuð! — F*ið munuð innst í sál ykkar eiga þá sannfæringu, að Bakkus sé enginn hollvinur, sem að þurfi að hlynna. Pví þá að gera honum léttara fyrir að ná til ykkar? Er nokkurt vit í því? Hvað ætlið þið þá að gera? Ætlið þið ekki að hefja gönguna til þess að þjóðin megi halda á brekkuna ? Eða ætlið þið að marka fyrstu sporin á undanhaldinu ? — Nei og aftur nei. Nú fylkið þið liði gegn öllum eitur- öflum. F’ið komið sterk og vígreif, bjartsýn og glöð á kjörstaðinn og neitið undanhaldinu, albúin að klífa brattann. — En þú, sem ert staðráð- inn í því að hjálpa til að leiða Bakk- usar-óminniselfi inn í landið þitt, gættu þess, að » — einnmitt þú finnur við elfi þá að úrkynjan þjóðanna rót, — þar byrjar hún lognhyljum lymskum hji, og lamar smámsaman vilja og þrá sem dropinn, er hægfara holar grjót. — Á bökkunum gína við glæpabælin og gálgarnir, fangelsin, vitfirringshælin. Að UPPtÖkUm* stífla skal elfi þá, við árblik af kærieikans Ijósi. Og g°tt verður komandi öldunum á er allt þetta heimsböl er liðið hjá, — og mannúðin gróðafikn gengur frá með göfugu sigurhrósi*. ('Q_ q j_ Snorri Sigfússon. ------0———— Samgöngutœkin og dfengið. Alþingi hefir gefið út lög, sem banna bifreiðarstjórum að neyta áfengis, þegar þeir aka bifreið. Ugglaust eru pessí bannlöfl töluvert brotin, en engum dett- ur í hug að stinga upp á því að af- nema þessi lög, til þess að koma í veg fyrir drykkjuskap bifreiðastjóranna. Enginn vill vera í bifreið með ölvuð- um ökumanni. Enginn vill vera í flug- vél með drukknum stýrimanni. Enginn vili vera á skipi með sídrukknum stýrimönnum og skipstjóra. Allir heimta, að þeir, sem sinna mestu trúnaðarstörfunum við samgöng- urnar, neyti ekki áfengis. Enginn faðir og engin móðir vilja, að börnin þeirra verði drykkjumenn og konur. En ýmsir vilja hafa áfengi víða til sölu í landinu? Og þó veit allt fulltíða og fullvita fólk, að meðan áfengi fæst til drykkjar í landinu, leiðir af því margskonar böl, að það verður snara um háls mörgum æskumönnum og konum. Ofdrykkjan fylgir áfengisverzluninni. Ef þú segir já á morgun, þá ertu f blindni að stofna til slysa í þjóðfélag- inu, margskonar mæðu og báginda. Skildu köllun þína og segðu N E I. ) Island bannland. íslendingar urðu fyrstir allra þjóða til að banna innflutning áfengra drykkja til landsins. F*egar Friðrik konungur VIÍI. skrif- aði undir lögin, sagðist hann óska þess, að hann mætti gefa út sams- konar lög fyrir Danmörku. Margir * Leturbr. hér. Öllum þeim, sem á einn eða annan hátt auðsýndu okkur sam- hug og hjálp við hið sviplega fráfall og jarðarför okkar kæru systur og dóttur, Dómhildar litlu, vottum við okkar innileg- asta þakklæti. Akureyri 18. október 1933. þóra Ármannsdóttir. Ingólfur Ármannsson. Ármann Tómasson. aðrir góðir menn víða um lönd fögn- uðu hugrekki og mætti litiu þjóðar- innar, að hún skyldi varpa af sér ánauðaroki Bakkusar. En sumir menn voru í illu skapi, bæði hér heima og erlend s. Framleið- endur áfengis og seljendur litu óhýru auga á bannhreyfinguna á íslandi. En fleiri komu á eftir, fetuðu í fótspor íslendinga. Áfengisauðvaldið gretti sig. F*ví leizt ekki á, ef þessu færi lengi og víða fram. F’að neytti allra bragða, til þess að eyðileggja bannlög, hvar sem þau voru sett. F’ví hefir nú tekist að fá afnumin bannlögin í Finnlandi og í Noregi. F>ví er óspart haldið að okkur, að við eigum að fylgjast með þessum ríkjum og afnema okkarbann- lög. Og þó erum við bindissamasta þjóðin í Evrópu. Einmitt þess vegna ber okkur að halda fast í það, sem eftir er af bannlögunum, því að það eru þau, sem hafa hjálpað okkurtilað ná þeim heiðurssessi, að drekka minnst allra þjóða af áfengi, — Við eigum að hafa metnað til þess að tryggja hér hið fyrsta alflefl álenflÍSÖann, þora að standa einir af Evrópuríkjum sem bann- ríki. Lega landsins hjálpar okkur til þess. Áfengisauðmagn er hverfandi hér á landi móts við það, sem er annar- staðar. Við stöndum öðrum ríkjum betur að vígi, einnig í því efni, til að halda uppi banni. Þorsteinn M. Jónsson hverfur úr kennarastöðu. Sú breyting er nú orðin á kenn- araliði barnaskólans á Akureyri, að Porsteinn M. Jónsson hefir sagt stöðu sinni við skólann lausri á þessu hausti og hverfur nú fullkom- lega frá kennarastörfum. Orsökin til þessarar ráðbreytni Þorsteins er af- leiðing af heilsubresti. Fyrir fáum árum fékk hann illkynjaða hálsveiki, sem að vísu tókst að fækna að öðru en þvf, að rödd hans lamaðist svo mjög, að hann getur ekki sinnt kenn- arastörfum. Porsteinn hefir jafnan verið talinn einn hinn nýtasti og mikilhæfasti raaður f kennarastétt landsins, og stéttinni reyndist hann haukur í horni, er hann átti sæti á löggjafarþingi þjóðarinnar. Pykir þvi hlýða að fara um þetta tvfþætta starf hans fáum orðum á þessum timamótum f lifi hans. Þorsteinn utskrifaðiat úr gagn- fræðaskólanum á Akureyri vorið 1905, tæplega tvitugur að aldri (f. 20, ágúst 1885), og úr kennaraskól*

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.