Dagur - 15.03.1934, Blaðsíða 3
g 28. tbl.
DAGUR
7Q
máli var skýrt hér í blaðinu á
laugardaginn var, og er því sleppt
hér.
Hreinn Pálsson, deildarstjóri í
Hrísey, flutti eftirfarandi tillögu:
»Fundurinn samþykkir að
heimila stjórn K. E. A., að setja
á stofn verzlunarútibú í Hrísey,
þegar á þessu ári«.
Tillagan samþykkt.
í tilefni af erindi úr Hrafna-
gilsdeild kom fram svofelld til-
laga:
»Fundurinn felur framkvæmda-
stjóra K. E. A., að kaupa fyrir
félagið vél til að blanda saman
kjarnfóðri, sérstaklega handa
mjólkurpeningi, í samræmi við
niðurstöður hinnar væntanlegu
efnarannsóknastofu félagsins«.
Tillagan samþykkt.
Frá Skriðudeild var samþykkt í
einu hljóði eftirfarandi tillaga:
»Fundurinn samþykkir, að
leggja til, að verðlag á dilkakjöti
verði miðað við sama þyngdar-
grundvöll eins og að undanförnu,
að því viðbættu, að léttari kropp-
ar en 13Vá kg. geti náð í úrval
eftir mati matsmanna«.
Framkvæmdastjóri skýrði frá
því, að 15 meðlimir félagsins í
Grímsey hefðu stofnað með sér
sérstaka félagsdeild, samkvæmt
stofnfundargerð, sem hann jafn-
framt las upp, og að þeir óskuðu
eftir upptöku deildarinnar í fé-
lagið. — Var samþykkt upptaka
deildarinnar, er nefnist Gríms-
eyjardeild.
Svohljóðandi tillaga var sam-
þykkt í einu hljóði:
»Fundurinn lítur svo á, að
stefna beri að því, að félagsmenn
framleiði alla þá garðávexti, sem
hér geta þroskast og K. E. A.
þarf að hafa til sölu, en jafn-
framt séu gerðar ráðstafanir til
þess, að vörur þessar verði sam-
keppnishæfar, hvað gæði snertir.
Telur fundurinn brýna nauðsyn
til, að komið verði upp nægilegri
og öruggri geymslu á garðávöxt-
um í sambandi við kjötbúðina,
svo hægt verði að nota bezta
markað ársins félagsmönnum til
hagsbóta«.
Frá allmörgum deildum höfðu
fram komið endurteknar óskir um
að aðalfundur og stjórn beiti sér
áfram fyrir því, ao komið verði á
rekstri lyfjabúðar, og kom fram
svohljóðandi tillaga:
»Fundurinn telur mjög æski-
legt, að K. E. A. starfræki lyfja-
búð á Akureyri, og skorar á
stjórn félagsins, að gera allt, sem
verða má, til þess að svo megi
verða«.
Tillagan var samþykkt með 54
atkvæðum gegn 2.
önnur mál. Eiður Guðmunds-
son flutti eftirfarandi tillögu:
»Fundurinn skorar á stjórn K.
E- A., að fylgja þeirri meginreglu
við samningagerð út af kreppu-
lánum bænda, að stuðla að því,
eftir megni, að lánbeiðendur fái
eigi minni eftirgjöf á skuldum,
en stjórn Kreppulánasjóðs kann
að leggja til«.
Mál þetta var afgreitt með svo-
hljóðandi rökstuddri dagskrá:
»í því trausti, að stjórn K. E.
A. taki viðeigandi ákvarðanir í
skuldamálum félagsmanna í hvert
sinn, tekur fundurinn fyrir næsta
mál á dagskrá«.
Dagskráin var samþykkt með
52 atkv. gegn 7.
Þá skýrði framkvæmdastjóri,
eftir venju, nokkuð frá ástæðum
Sambands ísl. samvinnufélaga og
Klæðaverksmiðjunni Gefjun.
Verksmiðjan hafði á síðasta ári
reist allstóra byggingu fyrir kam-
garnsvinnslu og munu kamgarns-
vélar taka til starfa á næsta
sumri.
Þá var svohljóðandi till. sam-
þykkt í einu hljóði:
Aðalfundur telur heppilegt, að
K. E. A. láni félagsmönnum til-
búinn áburð, sáðvörur og girð-
ingarefni út á væntanlegan jarð-
ræktarstyi’k þeirra«.
Er eigi lágu önnur mál fyrir,
en lokamál dagskrár, kvaddi
skólastjóri Snorri Sigfússon sér
hljóðs og bar frarn svohljóðandi
yfirlýsingu:
»Jafnframt því, sem aðalfund-
ur K. E. A. 1934 vottar stjórn
félagsins og starfsfólki öllu alúð-
arþakkir fyrir mikið og gott starf
á liönu ári, vill fundurinn sér-
staklega votta framkvæmdastjóra
félagsins, Vilhjálmi Þór, virðingu
sína og traust og tjá honum hug-
heilar þakkir fyrir framúrskar-
andi ötula forystu og mikið og ó-
eigingjarnt starf í þarfir félags-
ins á sl. 10 árum, og óskar þess
jafnframt að félagið fái að njóta
ágætra starfskrafta hans sem
lengst«.
Var yfirlýsingu þessari tekið
með fögnuði og almennu lófataki
og risu allir fundarmenn úr sæt-
um sínum yfirlýsingunni til stað-
festingar.
Þá tók til máls formaður fé-
lagsins og flutti framkvæmda-
stjóra, fyrir hönd stjórnarinnar,
þakklæti fyrir glæsilegt og
drengilegt starf í félagsins þágu.
Gat hann þess í því sambandi, að
félagsstjórnin hefði ákveðið að
auðsýna framkvæmdastjóra sýni-
legan þakklætisvott og væri hún
öll örugg um, að eigi þyrfti að
leita álits fundarins um slíkt.
Var máli formanns tekið með
almennu lófataki.
Tók þá framkvæmdastjóri til
máls, og þakkaði sæmd þá og
virðingu, er fundurinn hefði sýnt
sér. Jafnframt bar hann fram
þakklæti sitt til starfsfólks og
stjórnar, en þó einkum til allra
félagsmanna fyrir ánægjulegt
samstarf um undanfarandi 10 ára
skeið og árnaði félaginu vaxtar
og viðgangs í framtíð.
Kosningar. Endurkosnir voru í
stjórn félagsins til næstu þriggja
ára:
Stefán Jónsson á Munkaþverá,
með 60 atkv. Benedikt Guðjóns-
son á Moldhaugum með 71 atkv.
í varastjórn var endurkosinn
Kristján Sigurðsson kennari, með
58 atkv.
Fyrsti endurskoðandi endur-
kosinn til næstu tveggja ára Ste-
fán Stefánsson á Varðgjá með 47
Undirróður.
Mönnum hefur gefizt kostur á
að lesa bókmenntir manna þeirra,
sem vilja nú stofna »Bændaflokk«
— Fyrst kom »stefnuskrá«, síðan
og jafnframt persónulegar árásir
á samvinnumenn, aðallega þó á
Jónas Jónsson. — Höfundarnir
hafa verið svo greinilega inn-
blásnir af andagift Morgublaðs-
ins, að íhaldsblöðin hafa að miklu
leyti getað borið ritsmíðar þessar
óbreyttar á borð fyrir sína lesend-
ur. — Getur hver, sem nennir að
lesa blöðin, sannfærzt um þessa
staðreynd. — Grein Tryggva Þór-
hallssonar, sem birtist í blaði
»Bændaflokksins«, »Framsókn«,
og hann nefndi »óheilindi«, hefur
þó alveg sérstaklega gert lukku
hjá kaupmönnum og spekúlöntum
og sýnist óþrjótandi vizkubrunn-
ur handa Morgunblaðinu.
En Framsóknar- og samvinnu-
menn hafa lesið bókmenntir þess-
ar með undrun. — Þeir hafa
spurt, yfir lestrinum, um verk-
efni og »hugsjónir« »Bænda-
flokks« þessa, lesið og aftur lesið
í »Framsókn«, lesið hvert orð og
komist að þeirri niðurstöðu, að
það aleinasta, sem fyrir mönnum
þessum vakir af því tægi — fyrir
utan bjánalegar tilraunir til þess,
að tileinka sér verk og hugsjónir
samvinnumanna — er vegavinnu-
kaupið — það mál hefur að vísu
verið sótt fast og skal eg ekki
'iasta það, því að það er þó mál-
efni. — Þrír aðalleiðtogarnir, Tr.
Þ., Svafar G. og Jón í Stóradal,
hafa allir skrifað um málið i
Framsókn, með þeim árangri, að
það er gjörtapað. — Engir að-
hyllast skoðanir þeirra á málinu,
atkv., og annar varaendurskoð-
andi, Þórarinn Eldjárn, einnig
endurkosinn með 66 atkv.
Þá voru kosnir til að mæta á
næsta aðalfundi Sambands ísl.
samvinnufélaga þessir fulltrúar:
Vilhjálmur Þór með 74 atkv.
Brynl. Tobiasson — 43 —
Helgi Eiríksson — 42 —
Bernh. Stefánsson — 38 —
Hólmg. Þorsteinsson — 33 —
Magnús Árnason — 27 —
Þórarinn Eldjárn — 26 —
Einar Árnason — 25 —.
Til vara:
Baldvin Jóhannsson,
Árni Jóhannsson,
Valdimar Pálsson,
Eiður Guðmundsson.
Að kvöldi fyrra fundardagsins
skemmti karlakórinn Geysir fund-
armönnum og allmörgum öðrum
félagsmönnum með söng. Að því
loknu var sýnd kvikmynd mönn-
um til skemmtunar.
Að öllu fór aðalfundurinn vel
fram.
Silfurbrúðkmp. Hinn 13. þ. m. áttu
hjónin Árni Jóhannsson, gjaldkeri, og
Nikolína Sölvadóttir 25 ára hjúskapar-
afmæli.
nema örfáir stórbændur, sem í
bili eru ruglaðir í ríminu og
standa í þeirri meiningu, að
hundrað eigi að líða fyrir einn.
»Bændaflokkurinn« verður því
fremur nestislítill í stjórnmála-
baráttunni, ef marka skal fyrstu
sporin. Flestir bændur eru á móti
og allir umbótamenn í landinu.
Hvar á flokkurinn þá að taka
næringu til þess að vera starfs-
hæfur? Hver er tilgangur hans
og blaðsins?
Á mannfundi, sem haldinn var
á Akureyri s. 1. vor, hóf einn
fundarmanna umræður um styrk
til samvinnublaðanna, frá Sam-
bandinu, og vildi að blaðið Fram-
sókn nyti styrks til jafns við
Tímann og Dag.
Allmiklar umræður urðu um
mál þetta, bæði um einstakar rit-
smíðar, birtar í blaðinu »Fram-
sókn«, og einnig um, af hvaða
toga blaðið væri spunnið.
Undir umræðum þessum sann-
aðist, að Jón í Stóradal kaus í-
haldsmanninn Pétur Magnússon í
stjórn Kreppulánasjóðs. Því nær
öllum fundarmönnum ógnuðu hin
ófyrirleitnu flokkssvik Jóns. —
Þá kvaddi sér hljóðs Svafar Guð-
mundsson frá Reykjavík, einn af
leiðtogum hins nýstofnaða
»Bændaflokks«, og gaf þær upp-
lýsingar, að Jón í Stóradal hafi
kosið Pétur Magnússon, af því,
að Jón hafi ekki náð kosningu í
stjórn Sambandsins 1932, þetta
sé hefnd, og bætti svo orðrétt
við: »því fólskuverk kemur fyrir
fólskuverk«.
Þessi síðasta setning og for-
saga hennar, varpar kannske
ljósi á hinar ógjörlu hugsjónir
hins nýstofnaða »Bændaflokks«.
íþróttafélagið Þór.
Á sunnudagskvöldið 11. þ. m.
hélt íþróttafélagið Þór kvöld-
skemmtun í samkomuhúsi bæjar-
ins.
Var meðal annars þar á
skennntiskrá hin þjóðlega íþrótt,
íslenzka glíman.
Þetta eina atriði á skemmti-
skránni kom mér til að dvelja
þar um kvöldið. Eg fagnaði yfir
því, að ennþá væru þó til hraust-
ir drengir, sem þyrðu að koma í
eina »bröndótta».
Glímumennirnir voru átta, allt
ungir menn, og því byrjendur í
íþróttinni. Voru þeir þessir: Karl
Aðalsteinsson, Guðmundur Árna-
son, Hafliði Guðmundsson, Ágúst
Halblaub, Jónas Hallgrímsson,
Þorvaldur Stefánss., Gísli Magn-
ússon og Jón Ingimarsson.
Veitt voru tvenn verðlaun,
verðlaun fyrir flesta vinninga og
fegurðarglímu-verðlaun. Hlaut
hvorutveggja verðlaunin Guð-
mundur Árnason, og hafði hann
6 vinninga. Jafnir voru þeir Á-
gúst og Jónas, með 5 vinninga
hvor. Það, sem einkenndi glímu
þessara ungu manna var, hvað
þeir glímdu yfirleitt drengilega,
aldrei brá fyrir minnstu tilraun
að níða'mótstöðumanninn niður,
Þ. J.