Dagur - 19.04.1934, Blaðsíða 1
DAGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Arni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÖNI Þ. ÞÓR.
Norðurgötu3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé lcomin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
XVII. ár.
Akureyri 19. apríl 1934.
Innlendar fréttir.
Dr. Niels Nielsen kom til
Reykjavíkur á sunnudagskvöldið.
Hafði hann símað Pálma rektor
Hannessyni, eins og »Dagur« hef-
ir áður skýrt frá, og æskt þess
að annaðhvort hann eða Steinþór
Sigurðsson stjörnufræðingur færu
með sjer á eldstöðvarnar. Kvað
hann sjer það hin mestu von-
brigði, er hann frétti að hvorug-
ur þeirra gæti slegizt í förina.
Með sér hefir hann útbúnað til
jökulgöngu, þar á meðal sleða af
þeirri gerð, er Friðþjófi Nansen
reyndust bezt farartæki.
Dr. Nielsen áleit sjálfsagt að
íslendingar sjálfir tækju þátt í
gosrannsóknunum. Væri þetta i
fyrsta sinn, er færi gæfist á að
rannsaka eldgos í jöklum.
Dr. Nielsen hefir þrisvar áður
ferðazt hér á landi. Fyrst 1928,
til þess að rannsaka rauðablást-
ursmenjar, 1924 og 1927 til rann-
sókna á öræfasvæðunum kring
um Hofs- og Langjökul og suð-
vestur af Vatnajökli. Lýsir Pálmi
rektor honum svo, að hann sé
frábær atorkumaður, enda liggi
mikið eftir hann, þótt enn sé
hann ungur maður. Hafi hann
ferðazt um flesta markverðustu
staði í Evrópu, en hvergi þyki
honum fegurra en hér á íslandi,
sérstaklega á hálendinu. ’— Dr.
Nielsen er ritari Landfræðifélags-
ins danska.
Hallgrímur Aðalbjörnsson bíl-
stjóri, sá er ók á Jónatan Þor-
steinsson, svo að hann beið bana
af, 1. nóvember í haust, hefir í
hæstarétti fengið sama dóm og í
undirrétti að heita má, 30 daga
einfalt fangelsi og ökuleyfissvipt-
ingu í sex mánuði. Þótti sannast,
að enda þótt Jónatan heitinn
hefði farið ógætilega fyrir bílinn,
þá hefði og Hallgrímur ekið ó-
leyfilega hratt í myrkri. (ÚF).
Erlendar fréttir.
Allmiklar óeirðir hafa orðið á
nokkrum stöðum í Danmörku í til-
efni af verkfallinu, er getið var
um í síðasta blaði. En annars
felldu félög hafnarverkamanna í
Kaupmannahöfn og Árósum með
miklum meirihluta tillögu um
samúðarverkfall með sjómönnum.
í Esbjærg, aðalhafnarbæ Vest-
ur-Jótlands, kvað einna mest að
óeirðunum. Sterkur lögregluvörð-
ur var settur þar í Havnegade.
Snemma á mánudagsmorgun
safnaðist þar að mikill mann-
fjöldi, er gerði sig líklegan til
þess að rjúfa lögregluvörðinn.
Sló þá og líka í bardaga og var
kastað steinum á lögregluna, en
þó rak hún skjótt árásarlið verk-
fallsmanna af höndum sér. Brátt
safnaðist þó mannfjöldinn aftur
saman og sló enn í bardaga og
höfðu þá verkfallsmenn sumir
prik í höndum. En er lögreglan
réðist fram gegn þeim, flýðu þeir
brátt sem fætur toguðu og urðu
nokkrir slegnir í rot í þeim hreð-
um. f Árósum og Álaborg var
unnið við höfnina á mánudaginn
undir eftirliti lögreglunnar. — f
Kaupmannahöfn var að mestu
kyrrt. Þó voru þar 24 menn
dregnir fyrir rétt, sakaðir um
verkfallsæsingu og sektaðir um
50 krónur hver.
Vatnajökulsgosið er í erlendum
blöðum, ekki sízt dönskum, gert
að miklu umtalsefni. Eru þar
stórfenglegar fyrirsagnir, er sýna
augljóslegaað jökulgos þykir stór-
viðburður, bæði sem nýjung og
frá vísindalegu sjónarmiði. (ÚF).
14. konan.
Hinn aldraði, tyrkneski heið-
ursmaður, Zaro Aga, sem nú er
3 59 ára, og almennt er talinn
elztur allra núlifandi manna, er
nú á biðilsbuxunum í 14. sinni á
æfinni. Sú tilvonandi er fertug
blómarós. En af því að gamli
maðurinn þykist ekki hafa nægar
tekjur til þess að framfleyta
nýrri fjölskyldu, þá hefir hann
sent bæjarstjórninni í Istanbul
(Konstantínopel) beiðni um að
tvöfalda ellistyrk sinn. Annars er
sá aldraði við beztu heilsu og
hinn sprækasti.
Zion. Samkomur sumardaginn fyrsta:
Kl. 10 f. h. Sunnudagaskólinn. öll börn
velkomin. — Kl. 8% Almenn samkoma.
Sumri fagnað. Allir velkomnir.
Skipaferðir. Nova kom í gær að aust-
an á leið til Reykjavíkur. Með henni
fór héðan Einar Bjamason, cand. jur.,
til Reykjavíkur. — Goðafoss á að koma
á morgun i hraðferð frá Reykjavík og
til bakft ftftur,
„DAG UR“
óskar öllum lesendum
sínum gleðilegs sumars!
Qiedilzcfrk !
Vorið er á norðurleið. Að sunn-
an berast kveðjur með hlýjum
blæ, sem er langt að kominn utan
úr sumri þrungnum himingeimn-
um. Veturinn hopar af hólmi. —
Dagarnir verða sífellt lengri,
hlýrri, heiðari og bjartari, því
að sólin hefir hækkað gönguna
yfir norðurpól.Hún brosir og hell-
ir geislaflóðinu yfir landið. —
Kuldaleg, snævi serkjuð háfjöllin
ljóma hýrlega í heitu skininu, dal-
irnir verða hlýlegri, og niðir
straumanna fjörgast. Inn í mann-
heim flytja geislarnir straum af
nýjum þrám og vonum, og gefa
æskuþrótti og lífsfjöri byr undir
vængi.
Draumar og ástir skammdegis-
ins veita mannkyni aðeins hálfa
gleði. Þau eru varnarráðstafanir
gegn fargi kulda og myrkurs. —
Þráin er sjálfri sér lík. Hverjum
kossi elskanda og hverri von
draumamannsins fylgir sterk
löngun til enn dásamlegra og
fyllra lífs, í frjálsara og bjartara
ríki, þar sem óhemjuþrunginn
máttur tilverunnar fái hlaðist að
þeim, með þrungnum krafti sæl-
ustu nautnar. Og þegar heiðir
vordagarnir svífa hver af öðrum
yfir tímans svið, brýzt þráin
fram í óstöðvandi fögnuði yfir
komu sumarsins.
Nýja-Bíó
Föstudags, laugardags og
sunnudagskvöld kl. 9
Kvenholli Kalli
Tal og hljómmynd í 10 þáttum.
Aðalhlutverkin leika:
Charlie Ruggles og
Sue Conroy.
Þetta er óvenjulega hlægileg og
viðburðarrík gamanmynd. Char-
lie Ruggles er einn af bestu gaman-
leikurum í U. S. A. Hér lendir
hann í einni flækju af hlægilegum
æfintýrum, flestum út af kvenfólki.
Sunnudaginn kl. 5
Alþýðusýning.
Sumar á norðurslóðir! Hvílík
tilhlökkun! Það er sem ilmur af
ungu gróandi grasi angi í loftinu
og tónar sumarsins hljómi í blæri-
um. Minningar vakna, um kyrra,
yndislega hásumarsmorgna og
sólríka daga eða síðkvöld, þegar:
— aftansólar eyðist glóð, unir
blær við hlíð og grundir; kvikar
elfur kveða ljóð, kátir lækir taka
undir. Og hver minning um sól-
skinsstund eykur þrána eftir nýju
sumri. Því verður fyrsti sumar-
dagur sem kastljós að brennidepli
löngunar mannlegrar sálar, sem
óskar að finna sig umvafða ynd-
isleik, ástúð og hlýju. Og geislinn
frá þeim brennidepli verður ósk
öðrum til handa, óskin um að þeir
megi einnig finna drauma rætast,
óskin um — gleöilegt samar.
S. Kr. H.
ELDGOSIÐ.
Vikuna sem leið gengu þeir
Guðmundur Einarsson frá Mið-
dal og Jóhannes Áskelsson á
Vatnajökul, við sjötta mann.
Ferðastyrk fengu þeir frá hinu
opinbera. — Miðvikudaginn 11.
apríl sást enn gosmökkur til jök-
ulsins. — Á sjálfan jökulinn lögðu
þeir félagar á fimmtudaginn 12.
apríl. Höfðu þeir með sér skíða-
sleða og 6—8 daga fæði. Færi
var slæmt. Föstudaginn 13. apríl
var bjart, að morgni, en blika í
austri. Færið verra. Kl. 14 þann
dag komu þeir að eldstöðvunum í
austanstormi. Höfuðstórir vikur-
molar og hraunmolar á stærð við
hænuegg lágu á jöklinum og
var vikurlagið um l/2 meter á
þykkt. Síðari hluta dagsins óx
veðrið í öskubyl og var óstætt um
nóttina. Tjald þeirra félaga fór
því nær í kaf. Mjög slæmt færi
fengu þeir í bakaleiðinni. Komust
þeir á sunnudag til aðaltjald-
stöðva í byggðum (Fljótshverfi?)
Annars koma engar greinilegar
skýrslur frá þeim félögum fyrr
en þeir koma til Reykjavíkur.
Til Reykjavíkur hafði frétzt,
að hlaup væri í Jökulsá á Fjöllum.
Símaði útvarpið norður og fékk
það svar að einungis lítill vöxtur
væri í ánni. En óvenjulegt er það
á þessum tíma og sennilega í
sambandi við gosið,