Dagur - 17.05.1934, Page 1

Dagur - 17.05.1934, Page 1
kemur út á þriðjudögum, fimmtudögum og laugar- iögum. Kostar kr. 9.00 árg. Gjaldkeri: Arni Jóhanns- son f Kaupfél. Eyfirðinga. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Áígreiðsian er hjá JÓNI Þ. ÞOR. NorðurgötuS. Talsfmi 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir l.des. X VII, ár. * Akureyri 17. maí 1934. J 54. tbl. Hvenær opið cr. Opinberar stolnanir, baokar o. s. Irv< Pósthúsið virka daga kl. 10—6, helgi- daga kl. 10—11. Landssíminn milli Reykjavíkur, Akur- eyrar og Hafnarfjarðar opinn alla daga, allan sólarhringinn, einnig bæjarsímar þessara bæja. Bókasafnið : kl. 4—7 alla virka daga, nema á mánudag. Útlán miðv.- og laugardaga. Skrifstofa bæjarfógeta kl. 10—12 og 1 —5 alla virka daga. Skrifstofa bæjarstjóra kl. 10—12 og 1%—5 alla virka daga. Skrifstofa bæjargjaldkera kl. 1—5 alla virka daga nema á mánud. kl. 1—7. Landsbankinn kl. 10%—12 og 1%—3, alla virka daga. Útvegsbankinn kl. 10%—12 og kl. 1— 2%, alla virka daga. Búnaðarbankinn kl. 2—i frá 1 /10—1 /^ 1—3 frá x/6—J/10 alla virka daga. Sparisjóður Ak. kl. 3-4 alla virka daga. Afgreiðsla »Eimskips« kl. 9—12 og 1— 5 alla virka daga. Afgreiðsla »Sameinaða« kl. 9—12 og 1—7 alla virka daga. Afgreiðsla »Bergenske« kl. 9—12 og 1 —6 alla virka daga. Skrifstofur K. E. A. kl. 9—12 og 1—6 alla virka daga. Heimsókna/rtvmi sjúkrahúsa. Sjúkrahús Akureyrar kl. 3—i alla virka daga og kl. 2—4 á helgidögum. Kristneshæli kl. 12%—2 virka daga, 3%—5 á helgidögum. A þessum tím- um eru fastar bflferðir milli Akur- eyrar og Kristneshælis. Viðtals- og lækningastofa Rauðakross- ins Brekkugötu 11, kl. 1—2 virka daga. Ókeypis. Viðtalstími lækna. 3 Steingrimur Matthíasson kl. 1—2, . (Brekkugötu 11). Valdemar Steffensen kl. 10—12 og 4— 6 virka daga og 10—12 helgidaga. Pétur Jónsson kl. 11—12 og 6—6 virka daga og kl. 1—2 helgidaga. Arni Guðmundsson, kl. 2—i alla virka daga, l%-2% helgid. á 2. lofti K. E. A. Helgi Skúlason augnlæknir kl. 10—12 og 6—7 virka daga og kl. 1—2 helgi- daga á 2. lofti K. E. A. Friðjón Jensson tannlæknir kl. 10—12 1-3 og 4-6 virka daga, kl. 10-12 helgid. Engilbert Guðmundsson tannlæknir, kl. 10—11 og 6—6 virka daga á 2. lofti K. E. A. Nýja-Bíó föstudagskvöld kl. 9. Póstar lcoma og fara vikuna 17/s—24/s: Koma: 18. Súðin að vestan. 21. ísi, frá Innlendar Borðepdeiluimi lokið. Eftir bardagann á Siglu- firði ganga verkamenn á Borðeyri að þeim boðum kaupfélagsstjórans, er þeir höfðu nýlega hafnað. — Samkvæmt útvarpsfregn á þriðjudagskvöld er lokið vinnu- deilunni á Borðeyri. Var gerður um það samningur á Siglufirði á þriðjudaginn, og sömdu þeir Þor- móður Eyjólfsson, fyrir hönd Verzlunarfélags Hrútfirðinga og Þóroddur Guðmundsson fyrir hönd V. S. N. og verklýðsfélags- ins á Borðeyri. En meginatriði samningsins eru þessi: ' 1. Verzlunarfélag Hrútfirðinga greiðir taxtakaup verklýðsfé- lagsins við skipavinnu. 2. Verklýðsfélagsmenn sitji fyr- ir 7/10 hlutum skipavinnunnar, en þurfa þá heldur eigi að ábyrgj- ast nægilegt vinnuafl til af- greiðslu skipanna. Verzlunarfélag Hrútfirðinga annast um 3/10 hl. vinnu við afgreiðsluna. 3. Málshöfðanir allar og skaða- bótakröfur allar falli niður. 4. öll skip Eimskipafélagsins eru leyst úr banni jafnharðan og samningarnir eru undirskrifaðir. Þessi samningur skal standa til 5. maí 1935. * * * Þá er, sem betur fer, útkljáð þessi deila, og virðist sem fyrr hefði mátt vera, þar sem verk- lýðsfélagið hefir nú, eftir ósigra verkamannanna hér og á Siglu- firði, gengið að öðrum kostinum, er Kristmundur Jónsson, kaupfé- lagsstjóri á Borðeyri bauð verk- lýðsfélaginu þar, en það hafnaði. En kostirnir voru þessir: 1. Verk- lýðsfélagsmenn á Borðeyri sitji fyrir allri vinnu við afgreiðslu skipa, en ábyrgist aftur á móti nægilegt vinnuafl til afgreiðsl- unnar. 2. Verklýðsfélagið sitji fyrir 7/10 hlutum vinnu við af- greiðsluna, án allrar skuldbind- ingar á móti, en Verzlunarfélag Rvík. 22. Nova að austán frá Noreg-i. Landpóstur frá Einarsstöðum. Fara: 19. Súðin austur um. Landpóst- ur til Einarsstaða. ísland til Rvíkur. 22. Nova vestur um til Reykjavikúr. 23. Drangey til Sauðárkróks, fréttir. Hrútfirðinga annist 3/10 hluta afgreiðslunnar. Eins og menn sjá, er það þessi síðari kosturinn, sem VSN hefir nú gengið að fyrir hönd Verklýðs- félagsins á Borðeyri. Liggur í augum uppi, að það er fullkomin játning um ósigur, eftir ófriðinn hér og á Siglufirði, enda kom á báðum stöðum rækilega í ljós magnleysi VSN til þess að knýja fram verkbannið, þrátt fyrir öll sigurópin í dálkum »Verkamanns- ins«. Verkamannafélag Siglu* fjarðar rekið úr Al- þýðusambandinu. Að því er útvarpsfregn hermir á þriðjudagskvöldið, samþykktí stjórn Alþýðusambandsins á mánudagskvöldið var, að reka Verkamanriafélag Siglufjarðar úr Alþýðusambandinu, sökum þess að það hafi í hinni nýafstöðnu vinnudeilu starfað í samráði við VSN og eftir boðum þess og með því brotið lög Alþýðusambands- ins. Kalt vor. Síðustu vikuna hefir tíö verið óvenjulega stirð um land allt, bor- ið saman við undanfarin ár. Hér á Akureyri, og norðanlands og austan, hefir snjóað undanfarna daga, jafnvel á láglendi, og í gær- kvöldi var alhvítt hér í Eyjafirði alveg ofan í sjó. Er þetta ískyggi- legt um sauðburðinn, ef eigi breytir skjótt til betra. Frá ólafsvík er símað að tíð sé þar mjög köld og heyleysi að verða almennt. Og að sunnan hef- ir verið falazt eftir heyi héðan, hvort sem það á allt að fara á Snæfellsnes, eða jafnvel víðar. Guðmundur Tómasson, héraðs- læknir á Siglufirði sagði af sér í vetur og hefir Bragi ólafsson læknir fengið embættið. Kom hann norður með »Dettifossi« á fostudaginn var. Framboð. Um þessi framboð hefir síðast lieyrzt: Á Akuréyri verður í kjöri sen\ frambjóðandi Framsóknarflokks- ins Árni Jóhannsson, gjaldkeri. Af hálfu Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði Þorleifur Jónsson, ritstjóri; í Barðastrandarsýslu Jónas Magnússon, kennari; í Norður-Múlasýslu Árni Jónsson frá Múla og Árni Vilhjálmsson iæknir á Vopnafirði; á Seyðisfirði Lárus Jóhannesson hrm.; í Suð- ur-Múlasýslu Árni Pálsson pró- fessor og Magnús Gíslason sýslu- maður; í Norður-Isafjarðarsýslu Jón Auðunn Jónsson bæjarstjóri á ísafirði. Af hálfu kommúnista í Norður- Þingeyjarsýslu Áki Jakobsson; á Seyðisfirði Jón Rafnsson. ÚTVARPIÐ. Fimmtudaginn 17. maí: Kl. 19.20 Lesin dagskrá næstu viku. Kl. 20.30 Jón Norland læknir: Frá Noregi. Erindi. Föstudaginn 18. maí: KI. 19.25 Þor- valdur Árnason. Erindi. Kl. 20.30 Jón Norland læknir. Erindi. Kl. 21 Syrpa Norðurlandasöngva. Kl. 21.30 Þ. Þ. Þ. skáld les upp. Fjær og nær. Silfurbrúðlcaup áttu í fyrradag þau hjónin Pétur Jónasson á Hjalteyri og frá Valrós Baldvinsdóttir. Var þar margt manna samankomið og fóru marg'ir héðan af Akureyri til þess að tjá þeim árnaðaróskir sínar. Manndi&t. Ekkjan Elísabet Sigurðar- dóttir, Strandgötu 19B, lézt 8. þ. m. Bjó hún síðustu árin hjá tveim dætr- um sínum, Steinunni og Sigurlínu Fló- ventsdætrum. — Árni Runólfsson, bóndi á Atlastöðum í Svarfaðardal, háaldrað- ur maður, lézt að heimili sínu nýlega. Hann var greindarmaður og merkis- bóndi. Jarðarförin fer fram í dag. fínrnaskálanum vax sagt upp 12. þ. m. Skólastjóri skýrði í ýtarlegri ræðu frá starfinu síðastl. vetur. Fullnaðai'- prófi luku að þessu sinni 63 börn. Á- kveðið er að héðan verði sent allstórt sýnishorn af vinnu skólabamanna, svo sem smíðum, saumum, prjóni, vinnu- bókum, kortagerð o. fl., á landsýningu barnaskólanna, sem haldin verður í Reykjavík í næsta mánuði. Hjálpræðisherinn. — Samkomur á Hvítasunnudag: Helgunarsamkoma kl. 11 f. h. Sunnudagssamkóma kl. 2 e. h. Hjálpræðissamkoma kl. 8/2 e. h.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.