Dagur - 07.06.1934, Side 1
DAGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. Júlí.
Áfgreiðsiani
er hjá JÖNI Þ. ÞÓR.
Norðurgötuö. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
XVII. ár.
Akureyri 7. júní tQ34.
L a n d s kj á I f t i n n.
Kippir halda stöðugt áfram.
Meiri skemmdir.
Síðan á mánudag, að skýrslan
um landskjálftann birtist í
»I>egi«, hafa kippir stöðugt hald-
ið áfram. Nokkrir þeirra hafa
gert vart við sig hér á Akureyri,
en í Svarfaðardal og í Hrísey
hafa þeir verið alltíðir, þótt eng-
inn þeirra hafi að styrkleika kom-
izt í námunda við fyrsta kippinn.
Þó hefir, í verstu kippunum,
kárnað allmikið um þær skemmd-
ir, er þegar voru orðnar og nýj-
ar jafnvel komið í Ijós, ekki sízt
á ýmsum bæjum í Svarfaðardal.
Eru nú, auk þess sem áður var
talið, fallin eða gjörskemmd hús
á Gmmd, Hvarfi og Ytra-Holti.
Þá hafa og á Litla-Árskógssandi
fallið einar þrjár gamlar torfbúð-
ir, er búið var í uppi, en veiðar-
færi geymd niðri og eru þar tald-
ai- vegalausar tvær fjölskyldur a.
m. k. Hefir það fólk flutt í þing-
húsið til bráðabirgða. Á Krossum
mun hafa falli.ð hlaða og e. t. v.
einhverjar skemmdir orðið á í-
'búðarhúsi.
Heldur virðast kippirnir hafa
farið rénandi síðasta sólarhring-
inn. Þó höfðu tveir komið á Dat-
vík í gærkvöldi, um kl. 9, með
fimm mínútna millibili. —
Orð er á því gerandi hve vel
fólk hefir borið sig þar ytra. Þó
er auðvitað enn kvíði í allmörg-
um, sérstaklega konum og börn-
um, og ef til vill eigi sízt í Hrís-
ey, sem eðlilegt er sökum stað-
hátta.
Sorglegur strákskapur.
Fjöldi fólks hefir þessa dagana
streymt frá Akureyri til Dalvík-
ur til þess að sjá verksummerki,
taka. myndir, o. s. frv. Er ekkert
athugavert við það í sjálfu sér.
En sorglegur ómenningarvottur
er það, að í þessar ferðir hafa
slæðzt nokkrir slæpingjar, sem
eigi eru háttvísari en svo, að þeir
hafa með margskonar ánagangi
og hégómaskrafi ýft tilfinningar
margra þorpsbúa, verið að flækj-
ast um tjaldstaðina, fara rfram á
kaffihitun og veitingar o. s. frv.,
að eigi sé á það minnzt, ef satt er,
að sumir hafi ekið bílum sínum
um á milli tjalda, er fólk var til
hvíldar gengið. Hefðu þeir þó
mátt reyna að gera sér í hugar-
lund hversu þægilegt sé fólki, er
slíkar skelfingar hafa dunið yfir,
að vakna við bílskruðninga, er í
fljótu bragði líkjast æði mikið
jarðskjálftadunum og titringi. —
Er þetta svipuð hugulsemi, eins
og ef menn gengju milli syrgj-
enda við jarðarför og spyrðu eft-
ir »landa« og öðrum veitingum,
eða hefðu þesskonar fyndni á
hraðbergi. Væri slíkum ruddum
sízt of refsað, þótt þorpsbúar, er
fyrir ágangi þeirra yrðu, birtu
nöfn þeirra opinberlega.
Annars hafa ýmsar tröllasögur
gengið undanfarna daga um land-
skjálftana og orsakir þeirra. Eru
margar þessar sögur settar í sam-
SAISKOTIN.
Konungshjónin ríða á vaðið með
höfðinglega gjöf.
Samskotanefndirnar syðra og
nyrðra eru nú teknar til starfa.
,H.afa konungshjón íslands og
Danmerkur þegar lagt rausnar-
legan skerf til samskotanna, kr.
5000.00.
í þessu sambandi skal bent á
áskorun þá frá samskotanefndun-
Bráðabirgðaskýli reist.
Viðreisnarnefnd tií
skipulagningar.
Viðreisnarnefnd sú, er ríkið
skipaði, til að meta skaða og
skipuleggja flutning fólks í bráða-
birgðaskýli, hefir undanfarna
daga verið að störfum í Svarfað-
ardal og Hrísey. Smiðir og verka-
menn eru komnir út eftir, til að
reisa skýlin. Mishermt var í síð-
asta blaði um skipun nefndarinn-
ar. Hana skipa Bernharð Stefáns-
son bankastjóri, Pétur Eggerz
(Pramh. á 4. síðu).
J 63. tbl.
band við rannsóknir er þeir Sig-
urður Þórarinsson eða Steinþór
Sigurðsson hefðu átt að gera á
landskjálftasvæðinu. Enn sem
komið er hafa þessar rannsóknir
gefið mjög lítinn árangur, en Sig-
urður Þórarinsson heldur stöðugt
rannsóknunum áfram og er æski-
legt að sem flestir verði til að
svara spurninum þeim, sem birt-
ar eru annarsstaðar í blaðinu svo
að sem gleggst vitneskja fáist um
orsakir og áhrif þessa náttúruvið-
burðar, sem hefur valdið svo
miklu tjóni. Er óhætt að fullyrða,
að allar sögusagnir um spádóma
þessara manna, eða annara, um
að meiri jarðskjálftar og jafn
harðir séu í vændum, hvort sem
er þar ytra, eða annarsstaðar, eru
eintómur heilaspuni og hafa við
engin orð þeirra að styðjast. Er
eðlilegur ótti fólks nægilegur, þótt
eigi sé hann aukinn með slíkum
hviksögum.
Nýja-Bíó
Laugardags- og sunnudagskvöld kl. 9,
Madame Butteríly.
Tal- og hljómmynd í 10 þáttum.
Aðalhlutverkin, leika:
Sylvia Sidncy
og €ary Grant.
Þetta er kvikmynd, sem segir
hina heimsfrægu ástarsögu sak-
lausu japönsku stúlkunnar Cho-
Cho San og ameríska sjóliðsfor-
ingjans Pinkerton. Er saga þessi
sönn í mörgum aðalatriðum.
Höfundurinn að þessari frægu
sögu heitir John L. Lang en
David Belasco samdi leikrit upp
úr henni og loks gerði ítalska
tónskáldið Puccini hina heims-
frægu óperu sína eftir sömu
sögu. Kvikmyndin er einkum
byggð á sjónleik Belasco en í
forleiknum og undir myndinni
heyrist margt af hinum unaðs-
legu tónum óperunnar.
Snilldatlega gerð mynd og framúr-
skarandi vel leikin.
Sunnudaginn kl. 5.
II $|
fllpýðusýning.
lotinai
Hiöursett verð.
um, er birtist á öðrum stað hér í
blaðinu. Eins og áður var getið
eru í samskotanefndinni hér
Steingrímur Jónsson bæjarfógeti,
Steinn Steinsen bæjarstjóri og
Vilhjálmur Þór kaupfélagsstjóri.
Þeim til aðstoðar verður sóknar-
presturinn, séra Friðrik Rafnar.
Auðvitað veita allir þessir menn
samskotum viðtöku. En Steinn
Steinsen bæjarstjóri annast gjald-
kerastörf fyrir samskotanefndina
hér á Akureyri og er því e. t. v.
brotaminnst að senda samskota-
féð beint til hans. Auk þess geta
menn sent framlög sín til »Dags«,
er mun koma þeim til nefndar-
innar.
JARÐARFÖR litla drengsins
okkar fer fram að Möðruvöll-
um næstk. sunnudag kl. 12 á
hádegi.
Björk í Sölvadal, 7. júní 1934.
Fríður fónsdóttir.
Kári Guðmundsson.
Hér með tilkynnist að konan
mín, Margrét Ágústa Guðvarðar-
dóttir, andaðist að heimili sínu,
Dunhaga í Hörgárdal, 2. þ. m.
Jarðarförin er ákveðin 12. þ.
m , og hefst með húskveðju á
heimilinu kl. 12 á hádegi.
Halldór Ágústsson.
Hérmeð tilkynnist, að konan mín elskulega Sigurborg Ólafs-
dóttir, andaðist kl. 6 í morgun. Jarðarförin verður síðar ákveðin.
Akureyri 7. júnf 1934.
Guðbrandur Samúelsson.