Dagur - 19.07.1934, Page 1

Dagur - 19.07.1934, Page 1
DAGUR kemur út á þriðjudögum, fimmtudögum og laugar- iögum. Kostar kr. 9.00 árg. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- son f Kaupfél. Eyfirðinga. Gjalddagi fyrir 1. júlí. AfgreiðsSan •r hjá JÖNI Þ. ÞOR. Norðurgötu 3. Talsfmi 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. dea. Akureyri 19. júlí 1934. Hvenær opið er. Opinberar slolnanir, bankar o. s. frv. Pósthúsið virka daga kl. 10—6, helgi- daga kl. 10—11. Landssíminn milli Reykjavíkur, Akur- eyrar og Hafnarfjarðar opinn aila daga, allan sólarhringinn, einnig bæjarsímar þessara bæja. Skrifstofa bæjarfógeta kl. 10—12 og l —3 alla virka -daga, nema laugar- daga kl. 10—12. Skrifstofa héraðslæknis Brekkugötu 11, kl. 1—2 alla virka daga. Skrifstofa bæjarstjóra kl. 10—12 og 1%—5 alla virka daga. Skrifstofa bæjargjaldkera kl. 1—5 alla virka daga nema á mánud. kl. 1—7. Landsbankinn kl. 10Vs—12 og 1%—3, alla virka daga. Útvegsbankinn kl. 10%—12 og kl. 1— 2%, alla virka daga. Búnaðarbankinn kl. 2—4 frá 1/1Q—*/,,, 1—3 frá 1 / Q—XJ1Q alla virka daga. Allir bankar loka kl. 1 á laugardag. Sparisjóður Ák. kl. 3-4 alla virka daga. Afgreiðsla >Eimskips« Id. 9—12 og 1— 5 alla virka daga. Afgreiðsla 2.Sameinaða« kl. 9—12 og 1—7 alla virka daga. Afgreiðsla »Bergenske« kl. 9—12 og 1 —6 alla virka daga. Skrifstofur K. E. A. kl. 9—12 og 1—6 alla virka daga. Heimsóknartími sjúkrahúsa. Sjúkrahús Akureyrar kl. 3—4 alla virka daga og kl. 2—4 á helgidögum. Kristneshæli kl. 12%—2 virka daga, 3%—5 á helgidögum. Á þessum tím- um eru fastar bílferðir milli Akur- eyrar og Kristneshælis. Hjálp Rauða Krossins, Brekkugötu 11. Ókeypis. Fyrir mæður og börn: alla þriðjudaga kl. 2—3. Fyrir berkla- veika: alla föstudaga kl. 3—4. Viðtalstlmi Isskna. Valdemar Steffensen kl. 10—12 og 4— 6 virka daga og 10—12 helgidaga. Pétur Jónsson kl. 11—12 og 5—6 virka daga og kl. 1—2 helgidaga. Árni Guðmundsson, kl. 2—4 alla virka daga, l%-2% helgid. á 2. lofti K. E. A. Helgi Skúlason augnlæknir kl. 10—12 og 6—7 virka daga og kl. 1—2 helgi- daga á 2. lofti K. E. A. Friðjón Jensson tannlæknir kl. 10—12 1-3 og 4-6 virka daga,kl. 10-12 helgid. Engilbert Guðmundsson tannlæknir, kl. 10—11 og 5—6 virka daga á 2. lofti K. E. A. Nýja-Bíó föstudagskvöld kl. 9. Skip korna og fatra vikuna 19. til 26. júli: Koma: 20. Goðafoss frá Reykjavík, hraðferð. Selfoss að austan frá út- Stórkostlegt verkfall i Bandarikjunum. Frá Bandaríkjunum berast þær fregnir, að allsherjar samúðar- verkfall með hafnarverkamönn- um í San Fransisco sé í aðsigi. Verkfall hafnarverkamanna þar hefir staðið yfir frá því í apríl, og hefir annað slagið legið við, að íbúar borgarinnar liðu hungur vegna stöðvunar á aðflutningi matvæla, og er fólk þegar farið að viða að sér sem mestum mat- arforða, af ótta við bjargarskort. Einn af síðustu dögum fékkst ekki afhent kjöt handa dýragarði borgarinnar, en hann notar liðug 400 pund af kjöti á dag. Hótaði þá umsjónarmaður dýragarðsins að hleypa villidýrunum úr garð- inum, ef þeim væri ekki sam- stundis séð fyrir fæðu. Virðist sú hótun hafa hrifið. — Sam- kvæmt nýrri fréttum er allsherj- ar samúðarverkfall þegar skollið á í San Fransisco og ýmsum öðr- um borgum á vesturströndinni, og er ástandið talið svo alvarlegt að því er jafnvel líkt við hörmung- arnar í jarðskjálftunum miklu 1908. Jafnvel búizt við að borgin verði lýst í hernaðarástandi. Síðustu fregnir herma, að verkfallsnefndin í San Fransisco leggi til að hafnarverkamenn láti gerðardóm dæma um mál þeirra. Johnson hershöfðingi er kominn til borgarinnar og er að kynna sér ástandið. Þrjá menn vaniar. Þrjá menn úr þýzka háfjalla- leiðangrinum í Himalaya-fjöllum vantar. Voru þeir staddir á hættulegum stað í fjöllunum, er stórviðri brast á, og hefir ekkert til þeirra spurzt síðan. ÚTVARPIÐ. Fimmtudaginn 19. júlí: Kl. 1925 Dag- skrá næstu viku. Kl. 20 Hljómleikar. Kl. 20.30 Ferðasaga: Guðbrandur Jóns- son. Kl. 21 Fréttir. Kl. 21.30 Hljóm- leikar. Föstudaginn 20. júlí: Kl. 20. Hljóm- leikar. Kl. 20.30 Upplestur: Björn Guðfinnsson. Kl. 21 Fréttir. Kl. 20.30 Hljómleikar. löndum. 22. Esja að vestan. 25. Gull- foss frá Reykjavík, hraðferð. Fara: 22. Goðafoss til Reykjavíkur, hraðferð. Selfoss vestur á Húnaflóa. 23. Esja. austur um. Sænskur fimleikaílokkur heimsækir Island. Hann sýnir fimleika á iþrótta- vellinum hér i kvöld. Á mánudaginn kom hingað til’ Akureyrar sænskur fimleikaflokk- ur með »íslandinu« Stjórnandi hans er Jan O'ttosson frá Tárna í Svíþjóð. Hann hefir ferðast um Kaupmannahöfn og sýnt þar, og hér á landi sýndi hann á norður- leið á ísafirði við góða aðsókn. Hér á Akureyri sýndi flokkurinn fimleika á þriðjudagskvöld. Það sem mest vakti athygli í þessari sýningu var »tablau« er flokkur- inn sýndi. Eru það ýmsar mynd- ir, sem byggðar eru upp af mönn- um, og minnir helzt á »Cirkus«. Að sýningunni lokinni fór flokk- urinn til Lauga í Reykjadal um kvöldið, og ætlar austur í Mý- vatnssveit. í bakaleiðinni ráð- gerðu fimleikamennirnir að . sýna á Húsavík og ef til vill á Laugum. Flokkurinn sýnir aftur fimleika á íþróttavellinum hér í kvöld kl. 9. Fimleikamennimir hafa ráðgert að fara landveg aftur til Reykja- víkur. Stjórnandi flokksins hefir í hyggju að stofna sjálfur leikfim- isskóla í Svíþjóð í haust. Einn íslendingur, Jónas Jónsson frá Brekkukoti í Þingeyjarsýslu, er með í flokknum. Ssensku fimleilcamiennimir sýna fim- leika á íþróttavelli K. A. kl. 9 í kvöld. Aðgangur kostar 50 aura. Nýja-Bíó Föstudags-, laugardags- og sunnu- dagskvöld kl.9. Siúlkan Irá Montparnasse. Þýzk söngva- og talmynd í 9 þáttum. Aðalhlutverkin leika: Fritz Shulz og Eliiiii Bessel Myndin er tekin eftir gamanleik eftir LOUIS VERNEUIL. Hún er leikin af ágætum skopleikur- um, þar á meðal Ehmi Bessel, sem er ný þýzk »stjarna«. — .Skemmtileg músík, góður söngur, æska og fegurð einkenna mynd þessai Sunnudaginn kl. 5. Alpýðusýning. Niðorsett verð. Vertu kátur. Ramon|Novarro. í síðasta sinn. Pökkum auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og jarð- arför Arnþrúðar Guðnýjar Árna- dóttur frá Hróarsstöðum. Aðstandendur. Pað tilkynnist, að Helgi Jónsson, Kristnesi, andaðist 16. þ. m. Jarðarförin er ákveðin mánudag 23. júlí og hefst með húskveðju á heimilinu kl. 12 á hádegi. Aðstandendur. Jarðarför Matthildar Jchanns- dóttur frá Teigi, sem andaðist í Reykjavík 13. þ. m. fer fram frá kirkjunni hér, laugardaginn 21. þ. m., kl. 3 e. h. Aðstandendur. ÁVARP. Innilegt þakklœti votta eg öllum, sem með nœrveru sinni við jarðarför konunnar minnar ástkœru, Þórbjargar Friðriksdóttur, sýndu mér hluttekningu í sorg minni. — Sérstaklega þakka eg húsfrú Hansinu Steinþórsdóttur d Þverd, sem annaðist hana síðustu lífsstundirnar, sem dóttir móður sina. Bið eg Guð að veita þeim öllum huggun og styrk, þd er sorg og armœða lifsins heimsœkir. Þverá 15. júlí 1934. S t e f dn Bergsson.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.