Dagur - 19.07.1934, Qupperneq 1
DAGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son f Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
AfgreiðsSan
•r hjá JÖNI Þ. ÞOR.
Norðurgötu 3. Talsfmi 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. dea.
Akureyri 19. júlí 1934.
Hvenær opið er.
Opinberar slolnanir, bankar o. s. frv.
Pósthúsið virka daga kl. 10—6, helgi-
daga kl. 10—11.
Landssíminn milli Reykjavíkur, Akur-
eyrar og Hafnarfjarðar opinn aila
daga, allan sólarhringinn, einnig
bæjarsímar þessara bæja.
Skrifstofa bæjarfógeta kl. 10—12 og l
—3 alla virka -daga, nema laugar-
daga kl. 10—12.
Skrifstofa héraðslæknis Brekkugötu 11,
kl. 1—2 alla virka daga.
Skrifstofa bæjarstjóra kl. 10—12 og
1%—5 alla virka daga.
Skrifstofa bæjargjaldkera kl. 1—5 alla
virka daga nema á mánud. kl. 1—7.
Landsbankinn kl. 10Vs—12 og 1%—3,
alla virka daga.
Útvegsbankinn kl. 10%—12 og kl. 1—
2%, alla virka daga.
Búnaðarbankinn kl. 2—4 frá 1/1Q—*/,,,
1—3 frá 1 / Q—XJ1Q alla virka daga.
Allir bankar loka kl. 1 á laugardag.
Sparisjóður Ák. kl. 3-4 alla virka daga.
Afgreiðsla >Eimskips« Id. 9—12 og 1—
5 alla virka daga.
Afgreiðsla 2.Sameinaða« kl. 9—12 og
1—7 alla virka daga.
Afgreiðsla »Bergenske« kl. 9—12 og 1
—6 alla virka daga.
Skrifstofur K. E. A. kl. 9—12 og 1—6
alla virka daga.
Heimsóknartími sjúkrahúsa.
Sjúkrahús Akureyrar kl. 3—4 alla
virka daga og kl. 2—4 á helgidögum.
Kristneshæli kl. 12%—2 virka daga,
3%—5 á helgidögum. Á þessum tím-
um eru fastar bílferðir milli Akur-
eyrar og Kristneshælis.
Hjálp Rauða Krossins, Brekkugötu 11.
Ókeypis. Fyrir mæður og börn: alla
þriðjudaga kl. 2—3. Fyrir berkla-
veika: alla föstudaga kl. 3—4.
Viðtalstlmi Isskna.
Valdemar Steffensen kl. 10—12 og 4—
6 virka daga og 10—12 helgidaga.
Pétur Jónsson kl. 11—12 og 5—6 virka
daga og kl. 1—2 helgidaga.
Árni Guðmundsson, kl. 2—4 alla virka
daga, l%-2% helgid. á 2. lofti K. E. A.
Helgi Skúlason augnlæknir kl. 10—12
og 6—7 virka daga og kl. 1—2 helgi-
daga á 2. lofti K. E. A.
Friðjón Jensson tannlæknir kl. 10—12
1-3 og 4-6 virka daga,kl. 10-12 helgid.
Engilbert Guðmundsson tannlæknir, kl.
10—11 og 5—6 virka daga á 2. lofti
K. E. A.
Nýja-Bíó föstudagskvöld kl. 9.
Skip korna og fatra vikuna 19. til 26.
júli:
Koma: 20. Goðafoss frá Reykjavík,
hraðferð. Selfoss að austan frá út-
Stórkostlegt verkfall
i Bandarikjunum.
Frá Bandaríkjunum berast þær
fregnir, að allsherjar samúðar-
verkfall með hafnarverkamönn-
um í San Fransisco sé í aðsigi.
Verkfall hafnarverkamanna þar
hefir staðið yfir frá því í apríl,
og hefir annað slagið legið við,
að íbúar borgarinnar liðu hungur
vegna stöðvunar á aðflutningi
matvæla, og er fólk þegar farið
að viða að sér sem mestum mat-
arforða, af ótta við bjargarskort.
Einn af síðustu dögum fékkst
ekki afhent kjöt handa dýragarði
borgarinnar, en hann notar liðug
400 pund af kjöti á dag. Hótaði
þá umsjónarmaður dýragarðsins
að hleypa villidýrunum úr garð-
inum, ef þeim væri ekki sam-
stundis séð fyrir fæðu. Virðist
sú hótun hafa hrifið. — Sam-
kvæmt nýrri fréttum er allsherj-
ar samúðarverkfall þegar skollið
á í San Fransisco og ýmsum öðr-
um borgum á vesturströndinni, og
er ástandið talið svo alvarlegt að
því er jafnvel líkt við hörmung-
arnar í jarðskjálftunum miklu
1908. Jafnvel búizt við að borgin
verði lýst í hernaðarástandi.
Síðustu fregnir herma, að
verkfallsnefndin í San Fransisco
leggi til að hafnarverkamenn láti
gerðardóm dæma um mál þeirra.
Johnson hershöfðingi er kominn
til borgarinnar og er að kynna
sér ástandið.
Þrjá menn vaniar.
Þrjá menn úr þýzka háfjalla-
leiðangrinum í Himalaya-fjöllum
vantar. Voru þeir staddir á
hættulegum stað í fjöllunum, er
stórviðri brast á, og hefir ekkert
til þeirra spurzt síðan.
ÚTVARPIÐ.
Fimmtudaginn 19. júlí: Kl. 1925 Dag-
skrá næstu viku. Kl. 20 Hljómleikar.
Kl. 20.30 Ferðasaga: Guðbrandur Jóns-
son. Kl. 21 Fréttir. Kl. 21.30 Hljóm-
leikar.
Föstudaginn 20. júlí: Kl. 20. Hljóm-
leikar. Kl. 20.30 Upplestur: Björn
Guðfinnsson. Kl. 21 Fréttir. Kl. 20.30
Hljómleikar.
löndum. 22. Esja að vestan. 25. Gull-
foss frá Reykjavík, hraðferð.
Fara: 22. Goðafoss til Reykjavíkur,
hraðferð. Selfoss vestur á Húnaflóa.
23. Esja. austur um.
Sænskur fimleikaílokkur
heimsækir Island.
Hann sýnir fimleika á iþrótta-
vellinum hér i kvöld.
Á mánudaginn kom hingað til’
Akureyrar sænskur fimleikaflokk-
ur með »íslandinu« Stjórnandi
hans er Jan O'ttosson frá Tárna
í Svíþjóð. Hann hefir ferðast um
Kaupmannahöfn og sýnt þar, og
hér á landi sýndi hann á norður-
leið á ísafirði við góða aðsókn.
Hér á Akureyri sýndi flokkurinn
fimleika á þriðjudagskvöld. Það
sem mest vakti athygli í þessari
sýningu var »tablau« er flokkur-
inn sýndi. Eru það ýmsar mynd-
ir, sem byggðar eru upp af mönn-
um, og minnir helzt á »Cirkus«.
Að sýningunni lokinni fór flokk-
urinn til Lauga í Reykjadal um
kvöldið, og ætlar austur í Mý-
vatnssveit. í bakaleiðinni ráð-
gerðu fimleikamennirnir að . sýna
á Húsavík og ef til vill á Laugum.
Flokkurinn sýnir aftur fimleika á
íþróttavellinum hér í kvöld kl. 9.
Fimleikamennimir hafa ráðgert
að fara landveg aftur til Reykja-
víkur.
Stjórnandi flokksins hefir í
hyggju að stofna sjálfur leikfim-
isskóla í Svíþjóð í haust. Einn
íslendingur, Jónas Jónsson frá
Brekkukoti í Þingeyjarsýslu, er
með í flokknum.
Ssensku fimleilcamiennimir sýna fim-
leika á íþróttavelli K. A. kl. 9 í kvöld.
Aðgangur kostar 50 aura.
Nýja-Bíó
Föstudags-, laugardags- og sunnu-
dagskvöld kl.9.
Siúlkan
Irá Montparnasse.
Þýzk söngva- og talmynd
í 9 þáttum.
Aðalhlutverkin leika:
Fritz Shulz og
Eliiiii Bessel
Myndin er tekin eftir gamanleik
eftir LOUIS VERNEUIL. Hún
er leikin af ágætum skopleikur-
um, þar á meðal Ehmi Bessel,
sem er ný þýzk »stjarna«. —
.Skemmtileg músík, góður söngur,
æska og fegurð einkenna mynd
þessai
Sunnudaginn kl. 5. Alpýðusýning.
Niðorsett verð.
Vertu kátur.
Ramon|Novarro.
í síðasta sinn.
Pökkum auðsýnda samúð og
hluttekningu við andlát og jarð-
arför Arnþrúðar Guðnýjar Árna-
dóttur frá Hróarsstöðum.
Aðstandendur.
Pað tilkynnist, að Helgi
Jónsson, Kristnesi, andaðist 16.
þ. m. Jarðarförin er ákveðin
mánudag 23. júlí og hefst með
húskveðju á heimilinu kl. 12 á
hádegi.
Aðstandendur.
Jarðarför Matthildar Jchanns-
dóttur frá Teigi, sem andaðist
í Reykjavík 13. þ. m. fer fram
frá kirkjunni hér, laugardaginn
21. þ. m., kl. 3 e. h.
Aðstandendur.
ÁVARP.
Innilegt þakklœti votta eg öllum, sem með nœrveru sinni við
jarðarför konunnar minnar ástkœru, Þórbjargar Friðriksdóttur,
sýndu mér hluttekningu í sorg minni. — Sérstaklega þakka eg
húsfrú Hansinu Steinþórsdóttur d Þverd, sem annaðist hana
síðustu lífsstundirnar, sem dóttir móður sina.
Bið eg Guð að veita þeim öllum huggun og styrk, þd er
sorg og armœða lifsins heimsœkir.
Þverá 15. júlí 1934.
S t e f dn Bergsson.