Dagur - 15.11.1934, Side 1
DAGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
dögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓB.
Norðurgötuö. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
XVII. ár. j
•--# -•-•-# #-•-# •-#-#-#-•-•-#-•-# #-#-
Akurcyri 15. nóvember 1934.
132. tbl,
•-#-•• ••-#-#-•#-#-#-•-<
Einkasölumálin.
Framðakssemi, kurteisi og
§ann$ögli „íslendings“.
Hnífseggjar einkasölukerfisins
eru um þessar mundir nærgöng-
ular hjartarótum íhaldsmanna,
enda trufla nú daglega ljósvak-
ann kveinstafir þeirra sunnan-
lands. Iiveinstöfunum er svo end-
urvarpað af »íslendingi«, og óm-
urinn er enn dapurlegri, svipað
eins og þegar um »2. flokks«
bergmál er að ræða.
Eitt slíkt endurvarp birtist í
blaðiltu 9. þ. m. En innan um
sunnlenzka endurvarpið um Sam-
band íslenzkra samvinnufélaga o.
s. frv., var dreift frásögnum um
mótmæli héðan frá Akureyri,
mótmæli gegn einkasölum, stjórn-
arstefnu o. s. frv.
Sumt þessara frásagna virtist
»Degi« þannig, að ef til vill
þyrfti frekari skýringa við, sér-
staklega um það er lýtur að stutt-
orðri frásögn um meðferð þess-
ara mála á fundi í Iðnaðarmanna-
félagi Akureyrar, 1. þ. m.
Eftir að hafa prentað ályktun,
samþykkta af Verzlunarmanna-
félaginu á Akureyri 29. f. m.
skýrir »íslendingur« svo frá:
»Þá hefir Iðnaðarmannafélag
Akureyrar gert svolátandi sam-
þykkt og sent Alþingi:
»Iðnaðarmannafélag Akureyrar mót-
mælir einkasölufrumvörpum þeim, sem
komin eru fram á Alþingi á bifreiðum,
mótorvélum, rafmagnsvélum og raf-
magnsáhöldum og öðrum iðnaðarvörum
eða efni til iðnaðar«.
Ennfremur:
»Iðnaðarmannafélag Akureyrar fer
þess á leit við hið háa Alþingi, sem nú
situr, að það hlutist til um að iðnað-
armenn fái hindrunarlaust erlendan
gjaldeyri til greiðslu á hráefnum til
framleiðslu sinnar«.
Er síðari tillagan komin fram
vegna þess að iðnaðarmönnum
hér hefir hvað eftir annað verið
neitað um erlendan gjaldeyri fyr-
ir nauðsynjar til iðnreksturs
þeirra«.
í því skyni að fá skilmerkilegri
frásögn um fundinn í Iðnaðar-
mannafélaginu, sneri »Dagur« sér
í fyrradag til formanns félags-
ins, Sveinbjarnar Jónssonar
byggingameistara, með þessár
spurningar, er hann svaraði góð-
fúslega:
— Var sú tillagan, er »fslend-
ingur« lætur sitja í fyrirrúmi.
helzta tillagan, er lá fyrir fund-
inum?
»Blaðið gerir að aukatillögu að-
altillögu fundarins, þar sem kurt-
eislega er farið fram á það við
Alþingi, að það hlutist til um
hindrunarlaust gj aldeyrisleyí i
fyrir efnivörur til iðnaðar, en
gerir að aðalsamþykkt mótmæli
einkasölufrumvarpa, sem þá sið-
ast var samþykkt, — og alveg af
sérstökmn ástæðum«.
— Var þá ekki tilætlun félags-
ins að taka pólitíska afstöðu til
þessara mála?
»Iðnaðarmannafélagið hefir það
fyrirreglu að leiða hjá sér stjórn-
mál. E'n mál þetta var tekið til
umræðu vegna erindis frá Verzl-
unarmannafélaginu á Akureyri.
Sá félagsstjórnin sér ekki fært að
synja um þá beiðni, ef félags-
menn vildu ræða málið, þótt
henni á hinn bóginn væri það
ljóst, að málið var í hæsta máta
stjórnmálalegs eðlis«.
— Var þá tillaga sú, er »ís-
lendingur« tilgreinir fyrsta, ekki
í upphafi lögð fyrir fundinn?
»Nei. í byrjun umræðnanna
bar einn fundarmanna fram al-
veg samskonar ályktun og þá,
sem Verzlunarmannafélagið á
Akureyri hafði samþykkt og ósk-
að eftir að samþykkt yrði af Iðn-
aðarmannafélaginu. Þessi álykt-
un hljóðaði þannig:
I. »Iðnaðarmannafélagið á Ak-
ureyri mótmælir eindregið þeirri
stefnu núverandi ríkisstjórnar,
sem kemur fram í einkasölufrum-
vörpum þeim, sem nú hafa af
stjórninni* verið lögð fyrir Al-
þingi og miða að því að bregða
fæti fyrir sjálfstæðan atvinnu-
rekstur landsmanna á sviði iðn-
aðar, verzlunar og viðskipta og
fá hann í hendur sérstökum ríkis-
stofnunum eða fela hann einstök-
um sérréttindafyrirtækjum. Fé-
lagið lýsir sig einnig í fvllri and-
stöóu við allar þær ráðstafanir
löggjafans, sem ganga í þá átt, að
gera ríkissjóð ábyrgan fyrir þeim
atvinnurekstri, sem hingað til
hefir verið í höndum einstaklinga
og telur félagið þá stefnu háska-
lega fyrir fjárhagslegt sjálfstæði
landsins og allt framtak í land-
* Þetta hafði »ísl.« fellt úr till. eins
og hún var fyrst.
inu, enda þjóðarbúskapnum sízt
til bóta. Félagið krefst þess, að
tilveruréttur islenzlcrar iðnstéttar
og annarra sjálfstæðra atvinnu-
rekenda, sé viðurkenndur af þingi
og stjórn. Fyrir því skorar félag-
ið eindregið á Alþingi, að fella
einkasölufrumvörp þau, sem nú
liggja fyrir þinginu, í trausti
þess, að atvinnwrekendur sjálfir
séu færir um að ráða fram úr
þeim vandamálmn, er núverandi
viðskiptaástand leggur ~ þeim á
herðar«.
— Hvernig reiddi þessari á-
lvktun af, sem »íslendingur« var-
ast að geta um að hafi gefið til-
efni til fundarins? —
»Annar fundarmaður flutti þá
rökstudda dagskrá, þess efnis, að
taka fyrir næsta mál, þar sem
þetta væri hápólitískt, en eftir
eindreginni ósk tillögumanns var
þó haldið áfram umræðunum. Mér,
sem formanni félagsins fannst
skylt að skýra innihald ályktun-
arinnar og orðalag fyrir fundar-
mönnum. Margir fundannenn
mæltu eindregið á móti tillögunni,
en nokkrir studdu tillögumann og
stóðu fjörugar umræður i nær 3
stundir. Andstæðingar ályktunar-
innar bentu meðal annars á það,
að mótmæli Iðnaðarmannafélags-
ins mundu vera algerlega þýðing-
arlaus í þessu efni og það játuðu
sumir meðhaldsmenn hennar líka.
En þar sem þeim virtist vera
mikið áhugamál að fá einhver
mótmæli gegn einkasölum sam-
þykkt, en andstæðingar tillögunn-
ar litu hinsvegar svo á, að svo
gæti á staðið, að einkasala á ein-
hverri framleiðslu væri ekki skil-
yrðislaust til bóta, þá buðust
andstöðumennimir til þess að
vera með að samþykkja and-
roæli gegn einkasölu á innlagn-
ingaefni til raflagna, ef sú til-
laga kæmi fram á fundinum,
með þvi að verzlun með þá vöru
virtist vera í góðu lagi í landinu.
Tók þá tillögumaður ályktun sína
til baka, og bar fram mótmæli
þau,_ sem »ísl.« birti, og þá var
rökstudda dagskráin einnig tekin
til baka. — En í tilefni af upp-
lýsingum, sem komið höfðu fram
undir umræðunum, um það, að
iðnaðarmenn hér hefðu stundum
Nýja-Bíó 2S
Föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld kl. 9.
JARÐ-
GÖNGIN
Dýzk tal- oo hljómmynd 18 páttum.
Aðalhlutverkin Ieika :
Paul llarlinaiin og
Olly v. Flint.
Mynd þessi er tekin eftir hinni
frægu sögu Bernhards Keller-
manns sem kölluð er »Tunnelen*
á dönsku, F>að er framtíðarsaga,
sem segir frá því er verkfræð-
ingur einn ræðst í að grafa jarð-
göng undir þvert Atlantshaf. —
Ætla mætti að tekniskir erfiðleik-
ar væru miklir við svona mynda-
töku, sem sýnir öll þau furðu-
verk, sem mannsandinn getur
hugsað sér, en blaðaummæli, sem
fylgja myndinni, telja hana stór-
kostlegt tekniskt listaverk.
Myndin er ákaflega spennandi og
prýðilega leikin,
átt erfitt með að fá erlendan
gjaldeyri til greiðslu á efnivör-
um til iðnaðar kom fyrr á fund-
inum fram beiðni sú, sem birt er
í »ísl.« og samþykkt var í einu
hljóði. Aftur var felldur svo-
hljóðandi viðauki:
»... og ennfremur verði ekki
settcvr á stofn þær einkasölur,
sem rýra atliafnafrelsi iðnaðar-
stéttarinnar í landinm.
— Fer nú ekki að koma að
samþykktinni, sem »ísl.« prent-
aði fyrst?
»Jú, að síðustu voru svo bor-
in upp mótmæli þau, er tillögu-
maður bar fram í stað ályktun-
arinnar. Stóðu andstæðingar
málsins við orð sín og greiddu
henni atkvæði, þótt hún væri
mjög mikið víðtækari en ætlast
var til í fyrstu, enda var nú farið
að líða á nótt og menn farnir að
þreytast á umræðum. Og nú af-
greiðir félagsstjórnin þessar sam-
(Frh. á 4. síðu).
Innilegar þakkir til allra þeirra nær og fjær, er heiðruðu minn-
ingu frú Bjargar Björnsdóttur á Sigurhæðum, í veikindum
hennar og við jarðarförina.
Vandamenn.
c/>
s*