Dagur - 12.09.1935, Síða 2
156
DAGUR
37. tbl.
Kennaramótið í Stokktiélmi.
Viðtal við Krislbförgu Jónatans-
dóttur kennslukonu.
Kristbjörg Jónatansdóttir
kennslukona við barnaskóla Akur-
eyrar er nýlega heim komin af
norræna kennaramótinu, sem
haldið var í Stokkhólmi dagana 6.
—9. ágúst sl.
Dagur sneri sér til Kristbjarg-
ar og bað hana að segja sér hið
helzta af förinni og kennaramót-
inu. Varð hún vel við þeirri mála-
leitun.
Hvernig gekk ferðin yfirleitt?
Ágætlega. Sólin hló við okkur
frá heiðum himni, vindarnir voru
í felum og Ægis dætur stigu létt-
fættan dans og hjöluðu við skip
okkar á leiðinni yfir hafið. Aðeins
einn dag hossuðu þær okkurfull
hátt, en þá vorum við orðin svo
vön leik þeirra, að við tókum
okkur það ekki nærri. Eg var
mjög heppin með ferðafélaga,
enda snúa menn sjaldan út á
sér ranghverfunni, þegar veðrið
leikur við mann, eins og það
gerði við okkur.
Hve margir tóku þáttí mótinu
og frá hvaða löndum?
Talið var að á mótinu hefðu
verið saman komnir milli 5 og
6 þúsund kennarar. Voru þeir
frá Norðurlöndunum 5 og auk
þess einhverjir fulltrúar frá
Eystrasaltslöndunum 3, Estlandi,
Lettlandi og Lithaugalandi. Auð-
vitað voru Sviarnir þarna lang
fjölmennastir.
Hvað voru margir íslenzkir
kennarar á mótinu?
Við islenzku kennararnir vor-
um vist eitthvað um 30.
Fenguð þið, islensku kennar-
arnir, dálítinn ferðastyrk frá
rikinu ?
Já. Síðasta Alþingi veitti kenn-
urum 5000 kr. ferðastyrk, sem
fræðslumálastjórnin skifti svo á
milli þeirra, er um það sóttu.
Flestir fengu 200 kr. styrk.
Viðtökurnar munu hafa verið
góðar, þvi Sviar' eru sagðir mjög
gestrisnir?
Já, viðtökurnar voru ágætar, en
það var nú ekki allt Sviunum að
þakka. Fræðslumálastjórnin okk-
ar hafði kosið 5 af íslenzku
kennurunum i einskonar forstöðu-
nefnd, eins og tíðkast á slikum
mótum, og tilkynnt móttökunefnd
Svianna, hve margir islenzkir
kennarar óskuðu eftir bústað í
borginni, á meðan á mótinu
stæði. Við, sem fórum yfir Dan-
mörku, fórum held eg öll sunnu-
daginn 4. ágúst yfir til Svíþjóðar
og var forstöðunefndinni kunn-
ugt um það. Og það var ekki
eingöngu tekið á móti okkur tveim
höndum heldur mörgum hönd-
um, þegar við komum á járn-
brautarstöðina um kvöldið. Þeg-
ar lokið var tollskoðun og öðrum
athugunum, sem nauðsynlegar
þykja á þeim stöðum, var okkur
ekið heim á »Pensionat Windsor«,
Skepparegatan 32, þar sem flestir
íslendingarnir bjuggu á meðan
þeir dvöldu i Stokkhólmi. Þarna
var eins og ofurlítil íslendinga
nýlenda þessa daga, þarna héldu
íslendingarnir einkafundi sína og
réðu ráðum sínum, þetta var á
ágætum stað í borginni, og þar
fór prýðilega um okkur, og svo
var það líka fremur ódýrt, og
ekki veitti nú af að halda í aur-
ana, því ekki hafði útflutnings-
og gjaldeyrisnefnd verið örlál á
erlenda gjaldeyrinn við okkur,
þegar við vorum að hefja förina.
Var ekki þröngt um húsnæði
fyrir allan þenna aðkomumanna-
fjölda?
Aldrei urðum við neitt vör við
þrengsli i borginni, hvorki úti
né inni, nema morguninn, sem
mótið var sett, og að kvöldi þess
sama dags, er Stokkhólmsbær
hafði móttökuhátíð fyrir kennar-
ana í »Stadshuset«, einhverju
fegursta samkomuhúsi á Norður-
löndum, og máske þó víðar sé
leitað. Þangað komst ekki nema
lítill hluti aðkomukennaranna,
enda ekki fleirum boðið. En ís-
lendingarnir voru allir í þvi boði.
(Það er ekki alltaf verst að vera
minstur).
Hvernig hófst mótið?
Mótið hófst þriðjud. 6. ágúst,
kl. 10 árdegis á hátíðlegri sam-
komu í Blasieholms kirkjunni. í
því húsi er talið að mæzt geti
flestir menn undir einu og sama
þaki í Stokkhólmsborg, og þó er
þar í mesta lagi hægt að troða
inn 4000 manns. Margir urðu
því frá að hverfa við dyrnar, og
þótti þeim, sem að likindum
lætur, súrt í broti að hafa kom-
ið svo langa vegu, en fá svo ekki
að sjá neitt af dýrðinni. Nokkur
bót var það í máli, að athöfn-
inni allri var útvarpað, og há-
tölurum mörgum fyrir komið í
húsi því, er skólasýningin var í.
Þangað fóru margir af þeim,
sem útilokaðir voru.
í kirkjunni hófst samkoman á
hljómleikum. Þá talaði fyrstur
formaður skólamótsnefndarinnar
sænsku B. J:son Bergqvist. Bauð
hann gestina velkomna með
ræðu. Þá voru hljómleikar aftur.
Að þvi búnu talaði kennslumála-
ráðherra Svia og svo hver af
öðrum, einn fulltrúi fyrir hvert
land, sem gesti átti á fundinum.
Á eflir hverri ræðu var jafnan
sunginn og leikinn þjóðsöngur
þess lands, er ræðumanninn útti.
Að endingu voru svo hljómleik-
ar. Öll athöfnin stóð yfir um 2
klukkustundir.
Hverjir töluðu af hendi íslend-
inga?
Af hendi fslendinga talaði þarna
Arngrímur Kristjánsson kennari
í Rvík, núverandi formaður S. 1. B.
Á lokahátíðinni talaði Guðjón
Guðjónsson, skólastjóri í Hafnar-
firði, og erindi á fundinum fluttu
þeir Guðjón Guðjónsson, er mælti
á sænska tungu og Sigurður
Einarsson, kennari við Kennara-
skóla Islands. Hann talaði á
dönsku.
Hvernig rómur var gerður að
máli íslendinganna ?
Ekki var eg annars vör en
gott þætti að heyra til íslending-
anna, enda fannst mér þeir koma
þarna fram sjálfum sér og okk-
ur öllum Islendingunum til sóma,
og eg held mér sé óhætt að full-
yrða, að sama hafi verið álit
hinna landa minna, sem þarna
voru.
Erindi Sigurðar Einarssonar
var útvarpað, en til þess var
jafnan valið eitt erindi á dag.
Mér er kunnugt um, að sama
dag og Sigurður flutti erindið,
var hann beðinn um það til birt-
ingar, og bendir það til, að eigi
hafi þótt alllítið til þess koma.
Erindið fjallaði um: »íslenzkt
uppeldi að fornu og nýju«. Guð-
jón Guðjónsson talaði aftur um
»íslenzka vinnuskólann*.
Hvað er að segja um fyrir-
komulagið?
Að lokinni setningu mótsins
hófust fyrirlestrar kl. 2 s.d. þenna
fyrsta dag, en hina 2 dagana
hófust þeir kl. 9 árdegis. Fyrir-
lestrarnir voru fluttir á 6, og
stundum 7 stöðum samtímis, um
ólik efni. Sumir fyrirlestrarnir
voru fluttir með það fyrir aug-
um, að umræður yrðu á eftir.
En jafnvel þó svo væri ekki ráð
fyrir gert, var leyfilegt að hafa
umræður, ef þess var óskað og
fundarstjóri áleit tíma til vera.
Alls voru haldnir um 60 fyrir-
lestrar.
í tilhögunarskrá mótsins var
skrá yfir öll erindin, og varð því
hver og einn að gera það upp
við sjálfan sig á hvað eða hvern
hann helzt vildi hlusta í hvert
sinn. Erindi áttu að jafnaði ekki
að vera lengur en hálfa stund,
jafnvel þó ekki væri ætlast til að
umræður færu fram á eftir.
(Framh.).
Láfin er að heimili sínu, Grundar-
argötu 4 hér í bæ, ekkjan Sigríður
Jónsdóttir, móðir þeirra Jóns og Bene-
dikts Steingrímssona, háöldruð kona.
Einnig er nýlega látinn Valdimar
Þorláksson frá Hvammi, aldraður maður.
Sildveíðin. Nýskeð var búið að
salta og sérverka alls í landinu 87490 tn.
af síld. Reknetaveiði heldur enn áfram.
Karfaveiðar. Togarinn Sindri er
fyrir nokkru byrjaður á karfaveiðum,
og er karfinn lagður upp á Sólbakka
vestra og bræddur þar, nema lifrin,
.sem verður flutt út frosin. Er það
stjórn í’íkisverksmiðjanna, sem gengst
fyrir þessari tilraun. Togarinn hafði
veitt vel síðast er fréttist, t. d. feng-
ið 48 tonn af karfa á 30 klst. vestur á
Halamiðum. Verð á karfa er hærra en
á siid. Tilraununum verður haldið á-
fram að minnsta kosti fyrst um sinn.
Síðari fregnir herma, að togararnir
Snorri goði og Gulltoppur séu auk
Sindra ráðnir af fiskimálanefnd til
karfaveiða fyrir Vestfjörðum, og hefir
veiði þeirra gengið ágætlega.
Talið er að góð karfamið séu einnig'
fyrir Norður- og Austurlandi.
Að lokum hafa enn tveir togarar
verið ráðnir til karfaveiða í viðbót, svo
nú stunda 5 togarar veiðina, sumir fyr-
ir Norðurlandi og leggja upp í ríkis-
verksmiðju á Siglufirði.
KIRKJAN: Messað í Lögmannshlíð
n. k. sunnudag' (15. þ. m.) kl. 12 á hád.
Karlakór Akureyrar: Fundur í kvöld
kl. 7% í Verklýðshúsinu. MÆTIÐ.
Kvæði um Akureyri hefir Sigfús Elí-
asson ort og gefið út á spjaldi. Kvæð-
ið er 30 vísur undir sama bragarhætti
og »Þú vorgyðjan svífur«.
Höfðingleg gjöf. Geysir í Haukadal
hefir verið á hvers manns vörum síð-
ustu vikurnai', eða frá því hann hóf
gos sín á nýjan leik, eftir nær 20 ára
hvíld. Jafnframt hafa heyrst haima-
tölur yfir því, að þessi frægi hver
skyldi vera í eign útlendinga.
Nú hefir verið úr þessu bætt. Sig-
urður Jónasson framkvæmdastjóri í
Reykjavík hefir gefið ríkinu Geysi og
hverasvæðið þar umhverfis, sem selt
hafði verið út úr landinu, eða andvirði
þess að upphæð 8000 kr. til greiðslu á
kaupverði hveranna, og hefir Sigurður
fyrir hönd eigenda gefið afsal fyrir
eigninni til ríkisstjórnar Islands.
Mun alþjóð þakka Sigurði Jónassyni
fyrir þessa höfðinglegu gjöf.
Guðsþjónustur í Grundarþingapresta■
Icalli: Möðruvöllum, sunnud. 22. sept.
kl. 12 á hád.; Hólum, sunnud. 29. sept.
kl. 12 á hád.; Saurbæ, sama dag, kl.
3 e. h.; Grund, sunnud. 6. okt., kl. 12
á hád.; Kaupangi, sunnud. 13. okt. kl.
12 á hád.; Munkaþverá, sama dag, kl.
3 e. h.
■nmnnimRHfKma
| Athugið!
Fnlin kosta nú aðeins kr.
■N — K ■ ' »■ , 50 kílójð
S! M ata re p I i fást fyrir
-....- i^m hálfvir ði.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Nýlenduvðrudeild.