Dagur - 30.01.1936, Blaðsíða 4
20.
5 tbl.
Ársfundiir
Mjólknrsamlags K.E.A.
verður haldinn í samkomuhúsinu Skjaldborg á Akureyri, fimmtu-
daginn 6. febrúar n.k., og hefst kl. 13.
Dagskrá samkvæmt reglugerð Mjólkursamlagsins.
Akureyri, 29. janúar 1936.
Félagsstjórnin.
in Siltrastaðir
(Jr dagbók Skíðastada.
(Framh. af 1. síðu).
úr kristalskornum marmarahvítrar
mjallar og gullbrydduð sólarljósi.
Þau hafa klæðzt þessum sömu föt-
um í þúsundir ára, þegar veðurfar-
ið hefir verið líkt og nú. Klæða-
breyting tízkunnar nær ekki svona
hátt. — Manni iiggur við að vor-
kenna þeim, sem heima eru og ekki
eiga kost á að njóta þessarar feg-
urðar, en átelja hina sem geta farið
en gera það ekki.
En það er fleira að sækja til fjall-
anna en fegurðina eina. Hér er hið
ódýrasta og einfaldasta heilsuhæli,
sem hugsast getur, bæði fyrir lík-
ama mannsins og sálu. Heilsubrunn
væri ef til vill réttara að nefna það.
Mikið fé myndi sparast og margur
maðurinn verða eldri en ella, ef
þessa tækifæris væri leitað af al-
menningi iðuglega strax frá æsku-
skeiði. — Ykkur finnast þetta ef til
vill öfgar. Þið um það. Ég held að
það sé verst fyrir ykkur sjálf. Og
ekki veldur sá er varar. Og hugsun-
arháttur sá, sem skapaðist við þessi
skilyrði og lífsvenjúr mundi áreið-'
anlega verða annar, haldbetri og
hollari en sá, sem þróast í þrengsl-
um og hringiðu kaupstaðanna og
fánýtu félagslífi þar.
Nú sýður kaffið og við setjumst
að drykkju, göngumóð, glöð og
rjóð.
Híttumst heil að Skíðastöðum
næsta sunnudag.
26. jan. 1936.
Þ.
Samvinnan 7. hefti 1935. Efni: 600
fiúsund krónur, e. J. J., samvinnustarf-
ið innanlands, e. Ragnar ólafsson, Sam-
vinnumenn, e. ritstj., Á vegamótum,
saga, e. Per Hallström, Sláturfélag
Suðurlands, e. Guðl. Rósinkranz, Jól 1
— Börnin; H. S. B. (stærsta samvinnu-
byggingafélag í Evrópu), e. axb, Karl
Edvard, e. Hasse L., Gamalt stef. Auk
þess fjöldi mynda.
Lögrétta, 2. h. 1935, hefst á greina-
flokki eftir Vilhj. Þ. Gíslason undir
heildarfyrirsögninni Um víða veröld.
Næst kemur Frá aldarafmxli Matthlas-
a/r Jochumssonar. Þá Frá Litla-Fjalli,
sögukaflar og náttúrulýsingar frá
Svisslandi, eftir Þorstein Jósefsson.
Næst er framhald á Sigurðar kviðu
Fáfnisbana, eftir Sigurjón Friðjónsson.
Þá kemur framhald af skáldsögunni
Gríma, eftir Theódór Friðriksson, þá
Raforkumál fslendinga, eftir Martein
Bjarnason, og enn eru í ritinu ljóð, eft-
ir Guðmund Friðjónsson og Þorstein
Gíslason.
í Skagafirði fæst til kaups og á-
búðar i næstu fardögum. Semja
ber við undirritaðan eiganda
jarðarinnar fyrir 15. marz n.k.
Jóhannes Steingrims.
Til solu
er nýbýlið MÓBERG við Kljá-
strönd. Býlinu fylgir auk í-
búðarbúss, fjós, hlaða^ áburð-
arhús, 3 dagsláttur afgirt tún,
sem gefur af sér 30 — 40 hesta
af töðu árlega.
Móbergi 14. jan. 1936.
Itfiirn Björnsson.
Xóbaksdósir fundnar. Merktar.
Upplýsingar gefur.
Sigríðnr Baldvinsdóftir,
ÍBÚÐIR til Ieigu.
Jón Guðmann.
Hænsnafóður. Hveiti.
Maísmjöh Haframjöl.
Rúgmjöl. Hrlsgrjón.
Fyrirliggjandi. JÓN GUÐMANN.
Hinu margmntalaða kapptefli milli
dr. Aljechin og dr. Euwe lauk í desem-
ber, og tapaði Aljechin heimsmeistara-
tigninni. Af 30 töflum umsömdum, vann
dr. Euwe 9, dr. Aljechin 8, en 13 urðu
jafntefli. Hinn nýi heimsmeistari er
hollenzkur.
Hjálprxðishreinn. Sunnudag kl. 10 V2
Bæn. Kl. 2 Sunnudagaskóli. Kl. 8%
Umræðuefni: Hverjir eru hinir innsigl-
uðu á Glerhafinu? »Pianovígsla«. Allir
velkomnir.
Iðunn er nýlega út komin. Efni: Dr.
Paul de Kruif: Dauðinn í mjólk. Þýtt
hefir Vilmundur Jónsson landlæknir. —
Þorbergur Þórðarson: Með strandmenn
Ernest Hemingway:
(saga). H. K. Laxness
Jón Þórðarson frá Borgar-
holti: Kvöldvísa. — Guðm. Daníelsson
frá Guttormshaga: Eg vaki í nótt
(kvæði). Sami: Vetur (kvæði). Benja-
niín Kristjánsson: Kommúnismi og
kristindómur. — Bækur, eftir Stefán
Einarsson og Á. H.
Eimreiðin, síðasta hefti síðasta árs,
flytur aldarminning Matthíasar Joch-
umssonar, eftir Guðmund Finnbogason,
kvæði um ölínu skáldkonu, eftir Guð-
mund Fi-iðjónsson, smásögu,. eftir Jakob
Thorarensen, hvítabjarnaveiðar í Þing-
eyjarsýslum, eftir Jóhannes Friðlaugs-
son, sögu, eftir Selmu Lagerlöf, hálfr-
ar aldar minning st. Eining (með 40
myndum), eftir Freymóð Jóhannsson,
Máttarvöldin, eftir A. Cannon, kvæði,
eftir örn Amarson, ritsjá 0. fl,
Svíþjóð, e. Guðl. Rósinkranz, Jól í Eng- til Reykjavíkur.
landi, e. Svölu, Heimilið — Kvenfólkið Ljós heimsins
þýddi.
Þeir sem
ætla að fá útlendan áburð
hjá okkur á þessu ári skili
pöntunum hingað á skrifstofuna fyrir febr.lok n.k.
Kaunfélag Eyfívðinga.
JARÐEPLI
Félagsmenn sem ætla að selja jarðepli,
ættu að láta okkur vita nú þegar, hve
mikið þeir hafa af söluhæfum jarðeplum.
Peir sem geta, ættu að senda þau nú
strax. Verðið hátt sem stendur.
Kjötbúð K.E.A.
Vmnumiðlunarskrifstofa
Akureyrar
tekur til starfa 1. febrúar n.k. í Lundargötu 5 hér í bæ. Hin
árlega atvinnuleysisskráning fer fram 1., 3., 4. og 5. febr. n.k.
kl. 9 til 12 f. h. og 2 til 7 e. h. Karlar og konur norðan
Kaupvangsstrætis mæti til skráningar 1. og 3., en innan Kaup-
vangsstrætis 4. og 5. febrúar. Vinnumiðlunarskrifstofan verður
því næst opin fyrst um sinn alla virka daga, verkafólki og at-
vinnurekendum til aðstoðar, kl. 4 til 7 síðdegis. Sími 110.
Akureyri 27. janúar 1936.
Stjóm Vinnmniðlunarskrifstofunnar.
TiUminn áburður.
Verð á þeim tegundum af tilbúnum áburði, er verða
til sölu á komandi vori, er áætlað þannié, miðað við
100 kiló:
Kalksaltpétur 17- ■18 krónur.
Kalkammonsaltpétur 19- ■20 -
Kalk-Nitrophoska 26- ■27 -
Garða-Nitrophoska um 30 -
Superfosfat — 8 -
Kalí 40 prc. 12- -13 -
Tröllamjöl 17- -18 -
Menn eru beðnír að athuga, að Kalk-Nitrophoska er
ný tegund af Nitrophoska, er kemur í stað þess, sem
áður hefir verið mest notaður. Þessi nýja tegund er
nokkuð efnasnauðari og þarf þvi að nota um 15 prc.
meira af Kalk-Nitrophoska, en af hinum.
r
Aríðandi er, að allar pantanir séu sendar sem fyrst,
og í allra síðasta lagi fyrir 15. Mars.
Áburðarsala ríkisins.
Ritstjóri: Ingnnar Eydal. Prentsmiðja Odds Björnssonar,