Dagur - 11.06.1936, Síða 4
100
DAGUR
24. tbl.
Skák
3. tafl.
WIENARLEIKUR.
Teflt í Budœpest 1933.
Hvítt: Boros. Svart: Liilienthal.
I.e4, e5. 2. Rc3, Rf6. 3. f4, d5.
4. fxe5, Rxe4. 5. Df3 (betra er að
leika Rf3), Rc6. 6. Rxe4? (réttara
Bb5), Rd4! 7. Df4 (betra var Ddl)
d5xe4. 8. Bc4 (máthótun), Bc8—
f5!!
9. c3, g5! 10. Bxf7 (örþrifaráð),
Kxf7. 11. Df2, e3!! 12. Dfl (hvítur
má ekki leika dxe vegna Rc2f.
13. Ke2, Dd3f o. s. frv), e3xd2f.
13. Kdl (ef K eða B drepur d2, þá
vinnur Rc2) d2xclDf og hvítur
gafst upp. Lillienthal er frægast-
ur ungverskra skákmanna. Boros
er einnig þekktur meistari.
Knattspymufélag Vestmannaeyja kom
hingað til Akureyrar í gærkvöldi í bíl-
um frá Reykjavík. Ætlun þeirra er að
keppa við félögin hér í knattspyrnu og
fer fyrsti kappleikurinn fram annað
kvöld kl. 8. Eflaust verður þetta spenn-
andi leikur því báðir hafa hug á að
vinna. Ætti því enginn að láta þetta
tækifæri ónotað að horfa á Knatt-
spyrnufélag Vestmanneyinga-.
Héraösskólakermarafundurr var hald-
inn að Reykjum í Hrútafirði dagana
6.—8. þ. m. Mættu þar 12 kennarar frá
ellum héraðsskólunum og Eiðaskóla og
auk þeirra fræðslumálastjóri. Konráð
Erlendsson kennari á Laugum, sem er
heimildarmaður blaðsins að þessari
frétt og var einn af fundarmönnum,
orðaði þetta svo, að saman hefðu verið
komnir 12 postular auk meistarans eins
og í Jerúsalem forðum.
Að loknum fundi var farin skemmti-
för upp í Vatnsdal.
Lórelei nefnist nýr kvæðaflokkur, er
kveðið hefir Björn Haraldsson, og ný-
lega er kominn á bókamarkaðinn. Er
flokkur þessi orktur út af þýzku þjóð-
sögninni um hafmeyna Lórelei, sem
Heine hefir gert ódauðlega með ljóði
sínu: »Eg veit ekki af hvers konar
völdum«.
1 formála fyrir kvæðaflokknum segir
höf.: »1 eftirfarandi kvæðaflokki er
gerð tilraun til að varpa öðru ljósi en
þjóðsagan gerir yfir harmsögu Lórelei,
sem höfundur álítur verið hafa
mennska alþýðustúlku«.
Þessi nýi Ijóðaflokkur um Lórelei og
harmsögu hennar er dável kveðinn, en
líklega er það vanþakklátt verk að um-
steypa gömlu þjóðsögninni um haf-
meyna, sem öldum saman hefir sungið
Skemmtiför.
Fyrsta skemmtiför Akureyrardeild-
ar Ferðafélags Islands var farin á
annan í hvítasunnu. Ekið var fram
að Leyningshólum, síðan gengið um
hólana og skoðaðar fornar skógar-
leifar, en að því loknu var gengið
upp í Villingadal. Er þá komið að
kalla má í nýjan heim, því dalur
þessi er víðari og fegurri en margir
aðrir smádalir. Á rennur eftir daln-
um, og mun austari helmingur hans
í daglegu tali nefndur Torfufells-
dalur, en sá vestari Villingadalur.
Nokkuð fram á dalnum austan
megin ár eru fornir grjóthólar, sem
nefndir eru Draughólar; eiga Ey-
firðingar og Skagfiröingar að hafa
barizt þar á dalnum fyrr á tímum
og hafa munnmæli látið svo heita,
að Skagfirðingarnir hafi allir verið
drepnir og séu hólarnir dysjar
þeirra; er sú saga sögð í þjóðsögum
Odds Björnssonar. En svo að horf-
ið sé frá fortíðinni og munnmælum
hennar, þá er það að segja af ferða-
mönnunum, að þeir skemmtu sér
við veðurblíðu og náttúrufegurð á
dalnum. Nokkrir þeirra, sem léttast-
ir voru á fæti, gengu upp á Torfu-
fell, en það er hátt fjall austanmeg-
in dalsins. Voru þeir nokkra klukku-
tíma í þeirri för, en hún gekk þeim
að óskum; höfðu þeir skyggni gott
af fjallinu og blöstu þeim við aug-
um jöklarnir í suðri. Snjór lá á
fjallinu, en gangfæri þó ágætt. Þeg-
ar haldið var heim á leið úr daln-
um, var gengið niður með ánni, en
hún fellur í svipmiklu gljúfragili
fram úr dalsmynninu. Ofarlega í
því er hlein eða berggangur, sem
tengir saman gljúfurbarmana, en þó
verður ekki komizt niður á hlein
þessa, því að hún liggur all-langt
niðri í gljúfrunum. Staður þessi er
nefndur Steinbogi, og ættu þeir,
sem á þessar slóðir koma, að leggja
leið sína þar um. Þegar niður úr
hólunum kemur, verður fyrir manni
dálítil tjörn, liggur hún rétt við
veginn í suðausturhorni Leynings-
hóla; er þar einkennilega snoturt og
hlýlegt landslag, og þar er hið
forna völvuleiði og brotinn rúna-
steinn hjá.
F. H. B.
UNDIRSKRIFAÐUR óskar að
eignast eitt eintak af fyrsta hefti
Fylkis, útgefið árið 1916, hér á
Akureyri.
Ritað hefir hinn 11. júnf, 1936,
Frlmann B. Arngrímsson.
með töframætti »sitt villta sorgarlag« á
Rínarldettinum.
Kennaranámsskeið verður haldið hér
á Akureyri dagana frá 23.—30. júní n.
k. Að því loknu byrjar kennaraþingið
og stendur yfir til 7. júlí. Bæði þessi
mót verða. haldin í barnaskólanum. í
sambandi við þau verður haldið mat-
reiðslunámskeið fyrir ungar stúlkur. 10
stúlkur geta komizt á námsskeiðið. —
Þyrftu þær að gefa sig fram sem fyrst
við Ingibjörgu Eiríksdóttur matreiðslu-
kennslukonu. Námsgjald mun verða
mjög vægt.
Framhalds-aðalfundur
Kanpfélags Eyfirðinga
verður haldinn að Hrafnagili föstudaginn 19.
júní n. k. og hefst kl. 10 f. h.
Stfórnio.
Utibúi
#
Búnaðarbankans á Akureyri
verður lokað á föstudaginn 19. þ. m.
Akureyri, 10. júní 1936.
Bernharð Stefánsson.
Sjafnar uörur
segja öllum óhreinind-
um stríð á hendur.
Sápuverksmiðjan ,8jofn‘
Akureyri.
Bollann minn höndum tek ég
tveim,
tunguna gómsætt kaffiö vætir.
Einn sopinn 'oýður öðrum heim,
ef t því er Freyju kaffibætir.
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
Prentsmiðja Odds Björnssonar.