Dagur - 25.06.1936, Page 5
26. tbl.
DAGUE
111
á réttum tíma. Þá færist sýkin f
kirkjuna, með þeim andlega og
siðferðilega húsgangsbrag, sem
áður er lýst. Par mun líka veitt
viðnám. Menningarstarf kirkjunn-
ar mun lifa af óróa fáfróðra æs-
ingamanna, sem bér hefir verið
lýst. Að lokum berst leikurinn í
vegavinnuna. Núverandi ríkis-
stjórn hefir gert hlut vegavinnu-
manna betri og meiri en nokkru
sinni fyrr og hlotið fyrir það á-
mæli misviturra manna. En
jafníramt því hefir hún gert ó-
venjulega mikið til að hver sveit
geti búið að sínu, og fengið
tekjuuppbót handa sem fleslum
heimilum, af þessu starfi.
Eg minnist með ánægju niður-
stöðunnar af miklu vorstarfi í ein-
um hreppi hér nyrðra. Par störf-
uðu í vor nálega 100 menn í
hálfan mánuð að vegagerð, frá
öllum heimilum í sveitinni. Þar
studdi hver höndin og hvert
heimilið annað. Þar var enginn
smásálariegur kritur milli heim-
ila og frænda látinn verða til-
efni í fregnmiða fyrir kommún-
ista í kaupstöðunum eða verk-
efni fyrir ihaldsburgeisa í Rvík,
að skapa vanmátt íhaldsráðs-
mennskunnar í gömlum sam-
vinnuhéruðum.
Eg er staddur á Akureyri og
hefi verið einn af þeim mörgu
aðkomumönnum, sem dást að
hinu frjóva, kyrláta og stórfellda
umbótastarfi samvinnumanna í
Eyjafirði. Mér kemur þá í hug
að erlendir menn, sem verið
hafa á villigötum byltingamál-
anna, hafa farið á sömu brautir
og Eyfirðingar. Eg veit að svo
muni fara víðar hér á landi.
Samvinnan þykir notadrýgri
en byltingaskvaldrið. J. J.
Afmœlishátið K.EA.
(Framh. af 1. slöu).
kaupfélaginu þennan dag og auk
þess gjafir. Klæðaverksmiðjan
Gefjun gaf því stóran íslenzkan
fána, unninn úr íslenzkum efnum.
Starfsmenn K. E. A. gáfu því mál-
verk af Hallgrími Kristinssyni.
Formaður félagsins tilkynnti
starfsfólki félagsins, að stjórn
þess hefði ákveðið, að fastir
starfsmenn þess fengju að þessu
sinni tvöfallt sumarfrí við það, er
áður hefði verið, eða 2 vikur. Enn-
fremur hefði stjórnin ákveðið að
gefa starfsmannafélaginu 5000 kr.,
er það mætti verja að eigin vild.
Aiik Geysis söng karlakór
starfsmannafélags K. E. A. undir
stjórn Sveins Bjarman og lúðra-
sveitin og hljómsveit undir stjórn
Kails O. Runólfssonar skemmtu
einnig.
Ekki fór það dult, að þessi dag-
ur var eyfirzkum samvinnumönn-
um sönn hátíðisstund, og munu
enduiminningar hans lengi hald-
ast í hugum þeirra. Hið eina, sem
á skyggði gleðina, var allhvass
sunnan stormur, er á daginn leið;
olli hann nokkrum óþægindum.
Fulltrúar á aðalfundi Sambands
ísl. samvinnufélaga voru gestir K.
E. A. þenna dag, og tóku þeir ó-
sleitilegan þátt í afmælisfagnaðin-
um.
K VÆÐI
flutt á fimmtíu ára afmœli
Kaupfélags Eyfirðinga.
Hve hamingja Þórunnar og Helga var stór
ei hófu þau upp landnámsmerkið sterka.
Til sœfara og harðrœða var heitið á Þór,
en Hvíta-Krist til mildinnar verka.
Afreksfólk nam og hyggði Eyjafjarðardal,
þar aldraðar hetjur ríki vörðu.
Og sögurnar kynna okkur kvenskörunga val,
sem kirkju og óðal stórfrceg löngum gjörðu.
Hallæri og þrengingar herjuðu land,
en liöfðingslund og mildi týndust eigi.
Þœi rœtur lifðu í foldu, sem frostið vann ei grand.
og fagran ávöxt báru á nýjum degi.
í dag kveikja Eyfirðingar landnámsmönnum Ijós,
þeir líta úr sínum fortiðar heimi,
livar bjartir vitar loga frá efsta hnjúk að ós,
og andar þeirra glaðir munu á sveimi.
Þeir blessa vaska syni, þeir blessa hvillatíð,
er bœndur lyfta stóru Grettistaki,
og samtakanna dís vinnur stríð eftir stríð
með strauma, él og vegleysur að baki.
Þeir gáfu dœmi um afrek, þeir gleðjast við þann eld,
er gefur heimi landnám nýtt til kynna.
Á niðja störf þeir breiða sinn blessunarfeld
og biðja að heillir aldrei megi linna.
Svo hefjum allir full þeirra, er fagna sigri í dag.
í friði stœrstu afrek lífið vinnur.
Þeir bera fegurst Ijósin, sem bæta þjóðarhag,
og bezta þræði iðjuhöndin spinnur.
H u I d a.
Konan mín, Sigriður Jónsdótt-
ir, andaðist 22. þ. m.
Jarðarförin er ákveðin að
Hólum fimtud. 2. júlí n.k. og
hefst með húskveðju að heimili
okkar kl. 11 f. h. sama dag.
Halldórsstöðum í Eyjafirði 24. júní 1936.
Sigtr. Guðlaug'sson.
og fylgdarlið þeirra stigu á land í
Reykjavík um hádegi 18. þ. m.
Tók mannfjöldi mikill á móti
þeim, en forsætisráðherra og borg-
arstjóri buðu þau velkomin.
Næsta dag fóru konungshjónin
°g fylgdarlið þeirra austur að
Geysi og Gullfoss. í þeirri för
lagði konungur hornstein orku-
versins að Ljósafossi.
1 dag koma konungshjónin
að forfallalausu hingað til Akur-
eyrar og er för þeirra heitið aust-
ur í Mývatnssveit, ef veður leyfir.
Samband norblenzhra karlalcóra
hafði tvo samsöngva í Nýja Bíó síðast-
liðið laugardagskvöld. Þátttakendur
voru: Karlakórinn Geysir, Akureyri,
söngstjóri Ingimundur Arnason; karla-
kórinn Þrymur, Húsavík, söngstjóri sr.
Friðrik A. Friðriksson; Karlakór Mý-
vatnssveitar, söngstjóri Jónas Helga-
son; Karlakór Reykdæla, söngstjóri
Páll H. Jónsson; Karlakór Akureyrar,
söngstjóri Áskell Snorrason. Var kór-
unum og söng þeirra tekið með miklum
fögnuði. Nánari frásögn af söngnum
kemur væntanlega í næsta blaði.
Sýning á handiðju bamaskólanna í
Eyjafirði, Siglufirði og Akureyri verð-
ur opnuð í barnaskólanum hér á laug-
ardaginn og verður opin í tvo daga.
Vegna fjarveru Ólafs Magnússonan■
sundkennaira, fellur sundkennsla niður
í sundlaug Akureyrar frá 24. júní til
7. júlí Hinsvegar er laugin opin eins
og venjulega til sundiðkana. Laugar-
vörður er Magnús ólafsson.
Fulltrúaþing Sambands íslenzkra
barnakennara hefst hér 1. júlí.
SKÝRSLA um Gagnfræðaskólann
í Flensborg fyrir skólaárið 1934—
1935 er fyrir nokkru komin út. Alls
sátu skólann þenna vetur 70 nem-
endur. Af þeim voru 32 í fyrsta
bekk, 17 í öðrum bekk og 21 í 3.
bekk.
Námsskeiö fyrir barnakennara hófst
hér í barnaskólanum s. 1. þriðjudag og
stendur yfir um 10 daga. Sækja það
yfir 30 kennarar víðsvegar að.
fl laugardapii kl. 6
syngja karlakórinn Geysir og
Kantötukór Akureyrar í Nýja
Bíó.
Konungshjónin og fylgdarlið
þeirra verða viðstödd.
Aðgöngumiðar verða seldir
almenningi á laugardaginn kl.
1—6 í rakarastofu Sigtr. Júlíus-
sonar, við mjög vægu verði.
Vegna þess hve húsrúm er
takmarkað, er vissara að tryggja
sér sæti í tíma.
Fjármark mlll er:
SýM hægra, sýlt vlnatra,
Gísli Árnason
Hlöðum.
Leiðarþing-
verða haldin eins og hér segir:
Þinghúsi Skriðuhrepps mánud. 29. júní kl 2 síðd.
—Arnarneshr. mánud. 29. júní kl. 2 síðd.
Dalvík og Hrísey laugard. 4. júlí kl. 8 síðd.
Ólafsfirði sunnud. 5. júlí kl. 2 síðd.
Litlaárskógssandi sunnud. 5. júlí kl. 2 síðd.
P. t. Akureyri 23. iúní 1936.
BERNH. STEFÁNSSON.
EINAR ÁRNASON.