Dagur - 27.08.1936, Síða 2
146
DAGUR
35. tbl.
Aukaíundur
sýslunefndac Eyja-
fjarðarsýslu mvi
Laugalandsskólamálið
Hinn 21. þ. m. var aukafundur
sýslun. Eyjafjarðarsýslu settur í
bæjarstjórnarsalnum í Samkomu-
húsinu á Akureyri.
Allir sýslunefndarmennirnir voru
mættir.
Tók þá fundurinn til meðferðar
kvennaskólamálið.
Lagði oddviti sýslun., Sig. Egg-
erz,framog las upp ýms skjöl við-
víkjandi málinu, þar á meðal
kæru frá Héraðssambandi ey-
firzkra kvenna út af kosningu for-
stöðukonunnar og úrskurð stjórn-
arráðsins í því máli.
Oddviti skýrði í langri ræðu frá
því hvar kvennaskólamálinu væri
nú komið.
Síðar á fundinum bar oddviti
fram tillögu um kosningu 3ja
manna nefndar, til þess að athuga
málið eins og það horfði nú við og
semja frv. að reglugerð fyrir skól-
ann.
Kosnir voru í nefndina:
Þórarinn Eldjárn með 9 atkv.
Páll Bergsson — 7 —
Davíð Jónsson — 5 —
Næsta dag lagði nefnd þessi
fram frumv. það til reglugerðar,
sem henni hafði verið falið að
semja.
Frumvarpið var á þessa leið:
REGLUGERÐ
jyrir Húsmæðraskólann á Lauga-
landi í Eyjajirði.
1. gr. Skólinn heitir Húsmæðra-
skólinn á Laugalandi.
2. gr. Tilgangur skólans er að
styðja uppeldi ungra kvenna til
þess að verða góðar húsmæður og
veita þeim hagkvæma kunnáttu,
sérstaklega í heimilisstörfum.
3. gr. Námsgreinar skólans
skulu vera:
íslenzka, reikningur, heilsu-
fræði, matarefnafræði, matreiðsla
allskonar, ræsting, þvottur, snyrt-
ing og hirðing húsa, saumur, vefn-
aður, prjón, hannyrðir o. fl., eftir
ákvæðum skólanefndar.
4. gr. Skólinn starfar fyrst um
sinn sem eins árs skóli frá 1. okt.
til aprílloka ár hvert. Námsskeið í
sérstökum greinum má skólinn
halda með samþykki skólanefnd-
ar. Heimilt er og forstöðukonu,
með samþykki skólanefndar, að
breyta til um lengd og fyrirkomu-
lag námstíma.
5. gr. Próf skal halda að afloknu
námi í bóklegum fræðum og svo
verklegum, eftir því sem við verð-
ur komið. Námsmeyjar fá að af-
loknu prófi skírteini og umsögn
forstöðukonu um árangur verk-
legrar kunnáttu.
Kennslumálaráðuneytið skipar 2
prófdómendur.
6. gr. Yfirstjórn skólans (skóla-
nefnd) er skipuð 3 mönnum. Einn
skal tilnefndur af stjórnarráði,
annar af sýsluneínd Eyjafjarðar-
sýslu og þriðji af Héraðssambandi
eyfirzkra kvenna. Stjórnin endur-
nýjast á hverjum 6 árum þannig,
að einn maður gengur úr annað-
hvert ár, í fyrsta skipti eftir hlut-
kesti.
7. gr. Formaður skólanefndar er
tilnefndur af stjórnarráði. Að
öðru leyti skiptir skólanefnd með
sér verkum og ber ábyrgð á
rekstri skólans. Fundargerðir og
aðrar ákvarðanir skólahaldinu
viðvíkjandi færir hún í sérstaka
gerðabók.
8. gr. Skólanefnd ræður for-
stöðukonu til þriggja ára í senn.
Staða hennar er þó uppsegjanleg
frá beggja hálfu með 6 mán. fyr-
irvara. Skólanefnd ræður kennara
í samráði við forstöðukonu. For-
stöðukona skal, ef unnt er, hafa
próf í hússtjórnarfræðum.
9. gr. Skilyrði til skólavistar
eru:
1. 18 ára aldurstakmark.
2. Siðferðis- og læknisvottorð.
3. Ábyrgð fjárhaldsmanns.
4. Að umsækjandi hafi lokið
fullnaðarprófi samkv. lögum
um fræðslu. barna.
Aldurstakmark má færa til með
samþ. skólanefndar, ef sérstakar
ástæður eru fyrir hendi.
10. gr. Námsmeyjar úr Eyja-
fjarðarsýslu og af Siglufirði skulu
að jafnaði ganga fyrir öðrum til
skólavistar.
11. gr. Skólagjald greiði hver
nemandi, er nemi minnst kr. 50.00
á ári.
Atkvæðagreiðsla um frumvarp-
ið fór þannig:
1. og 2. gr. samþ. óbreyttar.
Við 3. grein kom fram breyting-
artillaga frá sýslunefndarmanni
Öngulsstaðahrepps, að aftan við
orðið „hannyrðir11 komi „leikfimi“,
og var breytingartillagan samþ.
4. og 5. gr. samþ. óbreyttar.
Við 6. gr. kom oddviti með svo-
fellda breytingartillögu:
„Yfirstjórn skólans er skipuð 5
mönnum, sem sýslunefndin kýs
og skulu aldrei eiga sæti í henni
færri en 2 konur. Stjórnin endur-
nýjast á 6 árum þannig, að einn
maður gengur út annað hvort ár,
í fyrstu tvö skipti eftir hlutkesti.“
Viðhaft var nafnakall um þessa
tillögu og sögðu já:
Stefán Stefánsson.
Benedikt Guðjónsson.
Eiður Guðmundsson.
Guðmundur Magnússon.
Sig. Eggerz.
Nei sögðu:
Kristján Eggertsson.
Davíð Jónsson.
Elías Tómasson.
Páll Bergsson.
Árni Jónsson.
Kristján Eldjárn.
Valdimar Pálsson.
Þórarinn Eldjárn.
Tillagan því fallin.
Þá kom fram breytingartillaga
við sömu grein frá sýslunefndar-
manni Arnarnesshrepps svohljóð-
andi:
„Yfirstjórn skólans sé skipuð 5
mönnum, 3 séu tilnefndir af sýslu-
nefnd og 2 af stjórnarráði íslands.
Séu a. m. k. 2 konur í nefndinni o.
s. írv.“
Tillagan felld með 8 : 5 atkv.
6. gr. frumv. þvínæst samþ. ó-
breytt að viðhöfðu nafnakalli og
sögðu já:
Kristján Eggertsson.
Davíð Jónsson.
Elías Tómasson.
Páll Bergsson.
Árni Jónsson.
Kristján Eldjárn.
Valdimar Pálsson.
Þórarinn Eldjárn.
Nei:
Stefán Stefánsson.
Benedikt Guðjónsson.
Eiður Guðmundsson.
Guðmundur Magnússon.
Sig. Eggerz.
7. gr. samþ. óbreytt.
8. gr. samþykkt óbreytt að öðru
leyti en því, að niður fellur síð-
asta málsgreinin: „Forstöðukona
skal ef unnt er hafa próf í hús-
stj órnarfræðum.“
9. —11. gr. samþ. óbreyttar.
Reglugerðin þannig breytt sam-
þykkt með 8 gegn 5 atkvæðum.
Þá bar sýsluneíndarm. Skriðu-
hrepps, Eiður Guðmundsson, fram
svohljóðandi tillögu:’
„Sýslunefndin lýsir yfir því, að
hún leggur áherzlu á, að hin
væntanlega skólanefnd haldi fast
við kosningu frú Ingibjargar Stef-
ánsdóttur á Völlum sem forstöðu-
konu skólans."
Tillagan var samþ. með 8 atkv.;
mótatkvæði engin.
Sýsluneíndarmaður Saurbæjar-
hrepps, Valdimar Pálsson, óskaði
bókað, að hann teldi óviðeigandi,
að sýslunefndarmenn gæfu per-
sónulegar yfirlýsingar um val' á
forstöðukonu, þar sem það er lagt
á vald skólanefndar, og greiði því
ekki atkvæði.
Oddviti og sýslunefndarmaður
Glæsibæjarhrepps óskuðu þess að
verða leystir frá nefndarstörfum
kvennaskólanefndar Laugalands-
skólans. Veitti sýslunefndin sam-
þykki til þessa og ákvað, að í
nefndinni skyldu vera 5 menn
íramvegis.
Oddviti skýrði frá fjárhag hins
væntanlega húsmæðraskóla og í
sambandi við það samþ. sýslu-
nefndin að fela oddvita að taka
lán, allt að 12 þús. kr., með ábyrgð
sýslunefndar, ef á þarf að halda.
Merkiieo nýjung.
(Eftirfarandi er útdráttur úr
enskri blaðagrein, sem birtist
í Lundúnablaðinu »Sunday
I)ispatch« 1G. ágúst 1936).
Eftir margra ára rannsóknir og
tilraunir í rannsóknarstofum Mar-
coni-félagsins í Chelmsford, hefir
tekizt að fullkomna starfsáhöld til
notkunar fyrir lækna, sem í fram-
tíðinni gerbreyta aðstöðu hand-
lækna — surgeons — og tann-
lækna, og eru tæki þessi byggð á
nýjustu þekkingu vísindamanna á
lágbylgjum.
Tvö af þekktustu radioáhalda-
framleiðslufélögum Englands hafa
myndað félag, sem nefnist Mar-
coni. Ecko Ltd., en forseti þessa
íélags er Lord Inverforth. Til-
gangur félagsins er að notfæra
þessa vísindalegu nýjung á hinn
fullkomnasta hátt. Mörg sjúkra-
hús eru þegar búin að fá sér þessi
nýju tæki, en ekki er enn farið
að nota þau, og til fullra nota
koma þau ekki fyrr en læknar
hafa íengið séræfingu í starf-
rækslu þeirra. Áhöldin hafa svip-
■wwmnHwwwa
K NÝTT! NÝTT! 3
" Pvottaduftið ,PERLfl‘
ættu allir að nota.
Pakkinn adeins 55 aura. Fæst í
Kaupfélagí Eyfirðinga.
Nýlenduvörudeild.
9*.
Z