Dagur - 10.09.1936, Blaðsíða 1
0
DAOUR
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir l. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR, Norð-
urgötu 3. Talsími 112. Upp-
sögn, bundin við áramót, sé
komin til afgreiðslumanns
fyrir 1. des.
XIX. ár.
Akureyri 10. september 1936.
37. tbl.
Frá Spáni.
í sambandi við borgarastyrjöld-
ina á Spáni hefir að undanförnu
mest verið rætt um borg eina, er
Irun nefnist og er norður undir
hafi austur við landamæri Frakk-
lands. Hefir uppreisnarherinn sótt
ákaft að borg þessari og telur það
hafa mikla hernaðarlega þýðingu
að vinna hana vegna samgangna
við Frakkland. Stjórnarherinn í
borginni varðist af mikilli hreysti,
götuvígi voru sett um alla borg-
ina, sandpokum var komið fyrir í
öllum gluggum, sem vissu út að
götunum og skotmenn þar við.
Sprengjur voru lagðar í flest hús,
til þess að sprengja borgina í loft
upp, ef uppreisnarhernum veitti
betur. Síðan hófst árásin á borg-
ina og var barizt af hinni mestu
grimmd. Er talið að þarna hafi
orðið hið ægilegasta blóðbað borg-
arastyrjaldarinnar. Þrátt fyrir út-
búnað stjórnarhersins, var vörn
hans hrundið bæði með stórskot-
um og árásum fótgönguliðs með
vélbyssum. Endaði þessi ljóti leik-
ur þannig, að uppreisnarmenn
báru fullan sigur úr býtum í
vopnaviðskiptunum. Þegar bar-
daganum lauk, var borgin öll í
brennandi rústum. Þeir af borg-
arbúum, sem féllu í hendur upp-
reisnarhernum, voru allir brytj-
aðir niður, en þúsundir borgar-
búa flýðu í dauðans ofboði yfir
landamærin til Frakklands. Upp-
reisnarmenn ráku flóttann með
skothríð og drápu alla, er þeir
náðu til, jafnt konur og börn sem
aðra.
Eigi alllangt frá Irun er önnur
borg, er nefnist San Sebastian.
Eftir að uppreisnarmenn höfðu
unnið Irun, sneru þeir á leið
þangað. Síðustu fréttir herma, að
uppreisnarherinn hafi verið í
þann veginn að ráðast á San Se-
bastian af jafnmikilli grimmd og
á Irun og búizt við, að hún sæti
sömu örlögum.'
Stjórnarskipti urðu á Spáni fyr-
ir fáum dögum. í hinni nýju
stjórn er sambland af sósíalistum,
frjálslyndum mönnum og komm-
únistum. Hin nýja stjórn er talin
að vera meira í samræmi við
stefnu lýðveldissinna á Spáni en
su fráfarandi og gert ráð fyrir, að
hún geri ákveðnari ráðstafanir
gegn uppreitarmönnum en hin
fyrri.
Stjórnin telur sig hafa unnið
ýmsa sigra hér og þar á Spáni og
heldur því fram, að fall Irun sé
enginn úrslitasigur fyrir uppreisn-
armenn.
Karfaveiðarnar.
Langt er síðan sjómenn vissu,
að mikill karfi var fyrir Vestfjörð-
um, á svonefndum Halamiðum.
Hafði mikið af þessum fiski kom-
ið í veiðarfæri, en honum jafn-
harðan fleygt í sjóinn sem óhæf-
um. Var það á þeim tímum, þegar
hinir „ráðslyngu" útgerðarmenn
stjórnuðu fiskiveiðunum. Nú vita
menn, að með þessu háttalagi var
milljónavirði fleygt í sjóinn. En
eftir að „rauðu flokkarnir“, sem
Mbl. kallar, tóku við völdunum,
komust þeir að raun um að hjer
var um nytjafisk að ræða, og var
þá farið að leggja stund á karfa-
veiðar á fyrrnefndu svæði og hef-
ir þetta aukið útflutningsverð-
mætið eigi lítið og skapað aukna
atvinnu í landinu. Blöð íhaldsins
gerðu mikið gys að þessari ný-
breytni í atvinnuháttum í fyrstu,
töldu það vel við eigandi, að
„rauðliðar“ færu svo fávíslega að
ráði sínu, að gangast fyrir veiðum
„rauða fiskisins“. Nú segja sömu
blöð tíðum fréttir af þessari veiði
með miklum alvöru- og spekings-
svip, eins og þau hafi alltaf verið
þessari atvinnunýjung fast fylgj-
andi, og ef að vanda lætur, munu
þau innan skamms eigna sínum
flokksmönnum heiðurinn af henni.
Nú um þessar mundir fer helm-
ingurinn af togaraflotanum á
. karfaveiðar, eftir að síldveiðum
er hætt, í stað þess að áður voru
skipin bundin við hafnargarðinn
og höfðust ekki að.
Á þessu sumri hafa einnig ný
karfamið fundizt fyrir Austfjörð-
um og eru hafnar reynsluveiðar
þar fyrir skömmu. Togarinn Brim-
ir hóf þessar veiðar um síðustu
mánaðamót og sýnast þær ætla
að bera góðan árangur. Kom tog-
arinn inn til Norðfjarðar 4. þ. m.
með 170 tonn af karfa, sem hann
hafði fengið á hinum nýju karfa-
miðum, og er það talin mjög
sæmileg veiði miðað við þann
tíma, sem skipið var á veiðum.
Karfamið þessi eru talin á nokk-
uð takmörkuðu svæði, en þó nóg
til þess að 3—4 togarar geti stund-
að þar karfaveiðar. Muiju því
verða gerðar ráðstafanir til að
fá togara til að stunda veið-
arnar fyrir verksmiðjurnar á
Seyðisfirði og Norðfirði.
Er vonazt eftir, að með þessu
opnist nýir atvinnumöguleikar
fyrir Austfirði.
nýja-bíó mm
F'immtudaginn 10 þ. m. kl. 9:
Svarti
engillinn.
Aðalhlutverkin leika:
Fridric March,
Merle Oberon
Og
Herbert Marshall.
fK^»C5»0»C5®C5®C>® <3 ®C2@0>SKD®0>©0@0>©
Par sem eg get ekki þakkað hverjum einstökum
fyrir þá miklu hugulsemi, sem mér var sýnd á fimm- §>)
tugsafmœli mtnu, færi eg þeim hér með öllum í einu vj
innilegustu þakkir mínar. — Eg þakka stjórn, fram- Q
kvœmdasijóra og starfsmannafélagi K. E A. ásamt f\
öllum öðrum, sem hafa gert mér dag þenna ógleymanlegan
O tto E. N ie Is e n.
©OíiOÍOtiOii O (#0©C>fiC>®OfXZ>§)0>é
Eyjafjörðu r.
Eyjafjörður, alla tíð
una’ eg vil í skauti þínu.
Bœir, tún og blómahlíð
blessun hljóti ár og síð
Sólarbjarta sveitin fríð
seiöir Ijóð frá hjarta mínu.
Eyjafjörður, alla tíð
una’ eg vil í skauti þínu.
Sveitin mín, ég syng um þig
söngva eins og góða móður.
Þú hefir fœtt og fóstrað mig,
fært mig hœrra á andans stig.
Hugsar hver um sjá.lfan sig
og sinna nœstu dyggð og hróður.
Sveitin mín, ég syng um þig,
söngva eins og góða móður.
í faðmi þínum finn ég skjól
fyrir hverjum nöprum vindi.
Hugsjónir, sem æskan ól
eiga hjá þér staðfast ból.
Tímans hreina sögusól
sínar tryggðir við þig bindi.
í faðmi þínum finn ég skjól
fyrir hverjum nöprum vindi.
Frá því að hinn fyrsti knör
fann sér leið að hjarta þínu,
og þú honum veittir vör,
vítt þín hljóma sœldarkjör.
Þúsundir nú flýta för,
í faðm þinn leita að gulli sínu.
Frá því að hinn fyrsti knör
fann sér leið að hjarta þínu.
Eyjafjörður, sólskinssveit,
sumar er í byggðum þínum.
Frá því að eg fyrst þig leit,
festi ég þér mín tryggðaheit,
og í þínum rósareit
rækt ég veiti blómum minum.
Eyjafjörður, sólskinssveit,
sumar er í byggðum þínum.
Valgarður Pétursson,
frá Þrastarhóli.
Undirritaður
mælist vinsamlegast til, að meðlimir
Fasteignafélagsins og aðrir húsráðend-
ur í bænum, er hafa fjöiskylduíbúðir
til leigu, lofi mér að vita um þær,
elnkum áður en þeir leigja þær
utanbæjarmönnum. Alltaf heima kl. 4,30
— 5,30 sfðdegis. — Sími 26.
Sveinn Bfarnason.