Dagur - 10.09.1936, Side 4
156
DAGUR
37. tbl.
Ellilaun og ðrorkubætur.
Umsóknum um ellilaun og örorkubætur á þessu ári sé
skilað hingað á skrifstofuna fyrir iok þessa mánaðar.
Eyðublöð fyrir ellilaunaumsóknir fást á skrifstofunni.
Bæjarstjórinn á Akureyi, 7. Sept. 1936.
Steinn Steinsen.
Öngulsslaðahreppur.
1. Athugið að fyrrihluti útsvara féll í gjalddaga 15. júlí s.l. og síðari
hlutinn fellur 15. okt n.k. — Þetta má ekki gleymast.
2. Gamalmenni, sem ætla að sækja um »ellilaun«, verða að hafa
sent umsóknir sínar til hreppsnefndar íyrir lok þessa mánaðar.
Tilheyrandi eyðublöð fást hjá undirrituðum.
Ytri-Tjörnum 4. september 1936.
Kr. H. Benjamínsson.
Lo^tak.
Samkvæmt kröfu umboðsmanns Brunabótafélags íslands á Akureyri
og að undangengnum úrskurði, verða ógreidd iðgjöld til nefnds félags
á Akureyri tekin lögtaki að liðnum átta dögum frá birtingu þessarar aug-
lýsingar.
Bæjarfógetinn á Akureyri, 3. Sept. 1936
Sig. Eggerz.
Símaskráin 1937.
Leir, sem óska eftir að koma breytingum eða leið-
réttinguin í símaskrána, eru beðnir að tilkynna mér
það skriflega fyrir 12. þ. m.
Akureyri, 4. September 1936.
Gunnar Schram.
Það er alls eigi hlutverk þings
og stjórnar að grípa fram í fyrir
landsmönnum á sem flestum svið-
um. Segja þeim fyrir verkum um
hvaðeina og skammta þeim at-
hafnafrelsi úr hnefa af misjafn-
lega mikilli sanngirni og skiln-
ingi. — Börn landsins í „lýðfrjálsu
landi“ eiga að hafa sem fyllst at-
hafnafrelsi — engu síður en börn
skólanna — undir umsjá og eftir-
liti landsföðurlegrar alþjóðarum-
hyggju velviljaðra manna og
skilningsríkra með fullri þekk-
ingu á högum og starfi þjóðarinn-
ar.
Stjórn og þing á að stefna að
því marki hratt og hiklaust að
efla á allan hátt verklegan þroska
og menning landsmanna, svo að
hin miklu afköst íslenzks dugnað-
ar á sjó og landi komi að fullum
notum og beri sem fyllstan árang-
ur og verði þjóðinni allri til þeirr-
ar búsældar og blessunar sem
skilyrði standa til. Enda er þetta
eina bjargráðaleiðin þjóðinni til
viðreisnar og hag ríkisins í bráð
og lengd! —--------
(Meira).
Bystander.
KIRKJAN: Vegna fjarveru sóknar-
prestsins verður messufall n. k. sunnu-
dag, en síra Sig-urður Stefánsson á
Möðruvöllum gegnir að öðru leyti
prestsverkum í Akureyrarprestakalli
þar til síra Friðrik Rafnar er beim
kominn.
ÍW’ STÓR, SÓLRÍK STOFA ':^3S
til leigu, helzt fyrir einhleypa, þó
gæti komið til mála með litla fjöl-
skyldu og gæti þá eldhús fylgt.
— Norðurgata 37.
Fundur Ól. Th. að
Egilsstöðum á Völlum.
Fyrir skömmu boðaði Ólafur
Thors til stjórnmálaíundár að Eg-
ilsstöðum fyrir Héraðsbúa og
Austfirðinga. Neðan af fjörðunum
kom eitthvert slangur af kaup-
mönnum og nokkrar búðarlokur
þeirra með. Úr sveitinni mættu
sárafáir og voru fundarmenn alls
rúmlega 40. Þessi hraklega fund-
arsókn, fyrir jafn stórt svæði og
hér var um að ræða, er talandi
vottur um þá fyrirlitningu, er Ól.‘
Th. mætir hjá kjósendum, og er
það sízt að undra.
Ól. Th. lét Mbl. skýra frá því,
að 300 manns hefðu mætt á fund-
inum á Egilsstöðum. Fundardag-
inn komu um 200 gestir neðan af
fjörðum að Egilsstöðum, voru þeir
á skemmtiferð, keyptu þar kaffi,
en litu ekki við fundi Ólafs. Sagt
er að þeir Sveinn á Egilsstöðum
og Ólafur hafi komið sér saman
um að telja þenna gestafjölda til
fundarmanna, til þess að reyna að
breiða yfir hina bágu fundarsókn
út í frá.
V I L K A U P A :
G ó ð a r kýr.
VIL SELJA:
Góða töðu.
Jón Guðmann.
Allt með íMum skipum.
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
Prentsmiðja Odds Björnssonar.
45 FWl ÆL ij ¥1 »mjólkurpóstanna« við
A Xm 11 M- flutning mjólkur heim
til neytenda í Akureyrarbæ, er laust til umsóknar
frá 1. október n.k. — Umsóknum og tilboðum
í flutninginn sé skilað á skrifstofu okkar fyrir
kl. 18 þann 21. þessa mánaðar.
Akureyri 9. september 1936.
Mjölkursamlag K. E. A.
Nýkomið.
Silkisokkar.
Silkinærfafnaðir.
Sokkabandabelti
í fjölbreyttu úrvali
Kaupf. Eyfirðinga
Vefnaðarvörudeild.
Pað er aðeins eitt í-s-l-e-n-z-k-t
líftryggingarfélag
og það býður belri kjör en nokkuð annað
líltryggingaríélag starfandi hér á iandi.
Líftryggingardeild
Sjóvátrgggingarfélags íslands h. f.
Sögufélagsbækurnar 1936
eru komnar, og eru utanbæjarmenn
beðnir að vitja þeirra til Indriða
Helgasonar Ráðhústorg 1
(Elektro Co). — Sem fylgirit
með bókunum er í ár æfisaga Magn-
úsar Ketilssonar sýslumanns, eft>r I»orst.
Porsteinsson sýslumann Merk bók og
fróðleg.
Akureyri 10. september 1936.
Indriði Helgason.
Hú§eignin
í Hríseyjargötu 6 með geymslu-
skúr og velræktuðum mat-
jurtagarði og afgirtri lóð er til
sölu nú þegar með góðum
borgunarskilmálum.
Semja ber við undirritaðan
sem fyrst
Akureyri. 9. sept. 1936.
fónas A. fónasson.