Dagur - 08.04.1937, Side 1
DAGUR
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
XX. árg.
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR, Norð-
urg'ötu 3. Talsími 112. Upp-
sög-n, bundin við áramót, sé
komin til afgreiðslumanns
fyrir 1. des.
Akureyri 8. apríl 1937.
•-• • • • |
l 14. tbl.
Konsert.
Hinn nýi blandaði kór Robert
Abrahams kvaddi sér hljóðs í
fyrsta sinn á sunnudaginn var, kl.
3, í Nýja Bíó.
Herra R. Abraham hefir æft kór
þenna af og til í vetur. í honum
eru 26 karlar og konur. Hefir
sumt af því fólki, sem þar er, tek-
ið allmikinn þátt í sönglífi bæjar-
ins, en sumt mun aftur á móti
vera nýgræðingar á þessu sviði.
Maður hlýtur að undrast þann
mikla árangur, sem orðið hefir af
starfi þessa gáfaða listamanns,
söngstjórans, á ekki lengri tíma
en hann hefir haft til æfinga. Fær
engum dulizt sá skapandi hæfi-
leiki, sem hér hefir verið að verki.
Söngstjómin var örugg og svo
hárnákvæm að til fyrirmyndar má
vera, enda var söngur kórsins frá-
bærlega fágaður og smekklegur.
Verkefni voru heldur ekki valin
af verri endanum, öll eftir hina
gömlu meistara: Gluck, Haydn,
Brahms og Bach. Má því segja,
að söngskráin væri ærið nýstár-
leg, eftir því sem maður á að
venjast hér.
Frú Jórunn Geirsson aðstoðaði
með undirleik á píanóið af mikilli
prýði.
Herra Abraham lék sjálfur eitt
af verkum Beethovens (Andante
með variationum) og hlaut þar
fyrir dynjandi lófaklapp.
Konsertinn var mjög vel sóttur,
þrátt fyrir sólskin og veðurblíðu,
sem freistaði til útiveru, og við-
tökur hlustenda voru óvenjulega
góðar og hlýjar og ljós vottur um
hrifningu þá, er söngur kórsins
vakti.
Má konsert þessi teljast stór-
merkur viðburður í músíklífi Ak-
ureyrar.
Bókarfregn.
HuldaTuNDIR STEINUM. Smá-
sögur. Akureyri 1936.— 117 bls.
Sðgusafn þetta er að sönnu prentað
sem handrit — aðeins 215 tölusett
eintök, — en þar sem einhver merk-
asta skáldkona fslands, og sú iang
mikilvirkasta, á í hiut, þykir mér hlýða,
að segja íslenzkum lesendum hériendis
frá útkomu safnsins.
Með fyrri ritum sínum, bæði fslll-
ðstum Og Iveim Sögum, hefir Hulda
sýnt, að hún kann að segja smásögur
lipurlega og á listrænan hátt, þó hvorki
séu ailar sögurnar i framannefndum
bókum jafn efnismiklar né jafn vel
gerðar frá listarinnar sjónarmiði.
í þessu nýja safni skáldkonunnar
eru 10 smásögur; nokkuð eru þær
mismunandi að aldri, ritaðar á árunum
1905 — 1931, en eigi minnist eg að
hafa séð neina þeirra á prenti fyrri.
Pær eru aliar vel sagðar og hugð
næmar, yfirlætislausar, en taka eigi að
síður athygli lesandans föstum tökum,
því að þær eru skýrar og sannar lífs-
myndir, þó hvorki séu þær stórfeidar
að efni til né sérstaklega tilþrifamiklar
að frásagnarhætti. Raunveruleiki þeirra
er engu minni fyrir það, þó Huldu
sé tamara að lýsa göfgi og góðvild
heldur en andstæðum þeirra í fari
manna; annað viðhorf frá hennar
hálfu væri hvort sem er gagnstætt
skapi hennar og lífsskoðun; hún trúir
á sigurmátt hins góða og hvikar ekki
frá þeirri sannfæring sinni, enda eru
einlægnin og innileikinn í umræddum
sðgum hennar einhver hugþekkustu
einkenni þeirra. Ekki svo að skilja, að
yfir þeim sé einn samfeldur sumar-
og sólskinsblær; skuggar og skin skift-
ast þar á, sorgir og gleði.
Eins og önnur rit Huldu, í bundnu
máli sem óbundnu, bera þessar sögur
hennar því ótvírætt vitni, að hún er
dóttir íslenzkrar sveitar, þjóðleg í anda
og þjóðrækin, glöggskygn og geymin
á ættarerfðir sínar og þær »fornu
dyggðir* íslenzkar, sem sumir vilja nú
selja vægu verði við erlendri mynt,
þó sú hin sama reynist næsta misjafn-
lega á markaðstorgi mannlífsins.
Efnið í öllum þessum nýkomnu
sögum skáldkonunnar er sótt í íslenzkt
sveitalíf að fornu og nýju; þær Iýsa
hversdagsviðburðum og alþýðufólki, en
löngum kjarnmiklum mönnum og kon-
um, sem eiga bæði skapfestu og
sálargöfgi, ábyrgðartilfinningu í ríkum
mæli, og verða djarflega og drengilega
við andvígum örlögum. Pannig skapi
famar, þó ekki séu þær steyptar í
sama mótinu, eru aðalpersónurnar —
söguhetjurnar, skyldi eg sagt hafa,
því að þær eiga það nafn skilið — í
»Arngerður«, »Guðbjartur gamli*,
»Ekki öðrum skyldara*, »LofturMark-
ússon« og »Humlafell« og þykir mér
hin síðastnefnda einhver bezta sagan í
bókinni. En hvert stefnt er í sögum
þessum kemur, að mér virðist ágætlega
fram í þessum orðum, sem skáldkonan
lætur sögumanninn segja um Loft og
ættmenni hans: »Systkinin frá Stað eru
greinar af göfugum stofni — eikur,
sem sprottið hafa í góðum jarðvegi.
Blóm ágætrar ættar, sem hefir stöðugt
verið að þroska sjálfa sig með heil-
brigðu og góðu líferni. Það er gott að
vera íslendingur meðan slíkar greinar
gróa á þjóðarmeiðinum. En þær eru
of fáar. Fauskar og kalviði tíðséðari.
— — Eg elska íslenzka ættgöfgi, ís-
lenzka menningu. Eg vil gjörast einn
þeirra hlekkja, er tengja saman fortíð
og nútíð ættjarðar minnar — hennar
sönnu fortíð og nútíð. Verja mína
eigin ætt og óðal og vera öðrum
fyrirmynd; þótt eg viti hvað örðugt
það er«.
Örlög Auðbjargar gömlu í sögunni
»Huggun« snerta lesandann djúpt.
Átthagatrygðinni, og þar með máttar-
valdi íslenzkrar náttúru yfir hugum
þeirra, sem gefa sig henni á hönd, er
eftirminnilega lýst í sögunni »í afdal«.
íslenzk þjóðtrú er uppistaðan í »Ljósið
í klettinum*, og »Röddin« er prýðis-
góð endursögn á gamalli þjóðsögu, og
hvað þróttmest að stíl allra sagnanna
í safninu.
Af framanskráðu er auðsætt, að hóf-
semi og smekkvísi einkenna enn sem
fyrri frásagnarhátt Huldu; þessar sögur
hennar eru stimplaðar ríkri fegurðarást
hennar, samúð hennar og kvenlegum
næmleik tilfinninganna; og málið er
mjúkt og ljóðrænt. Þær auka lesand-
anum trú á lífið og mennina, og má
þar minna á orð Guðbjarts gamla:
»En það er agnarögn af guðsbirtu í
hverjum manni, eins og þú veist,
Pórdís, — ef þeir ausa hana ekki f
kaf með moldinni*.
Richard Beck.
(Lögberg).
Kirkjan: Messað í Lögmannshlíð n. k.
sunnudag kl. 12 á hád.
Zíon. Næstkomandi sunnud. kl. 10%:
Sunnudagaskóli. öll börn velkomin. KI.
8%: Almenn samkoma. Allir velkomnir.
□ . Rún . 50374138 Frl..
BR.. R.'. M..
Konsert R. Abrahams verður endur-
tekinn í Nýja-Bíó kl. 9 í kvöld.
Rauðakross-deildin ú Akureyri heldur
aðalfund sinn í Skjaldborg næstkomandi
sunnudag kl. 4 e. h., svo sem auglýst er
á öðrum stað í blaðinu.
Kvenfélagið Hlíf heldur dansleik í
Skjaldborg næstk. sunnudagskvöld kl.
10 e. h.
Þingstúka Akurcyrar heldur aðalfund
sinn niiðvikudaginn 14. þ. m., á eftir
Isafoldarfundi (um kl. 10). Kosning
embættismanna, mælt með umboðsm.,
stigveiting og kosnir fulltrúar á um-
dæmisstúkuþing.
Ungmennastúkan Akurlilja nr. 2 held-
ur fund í Skjaldborg n. k. sunnudag kl.
8 e. h. stundvíslega. Áríðandi málefni.
Iðnskóla Akureyrar verður slitið laug-
ardaginn 17. þ. m. kl. 8% e. h. Teikn-
ingar nemenda verða til sýnis í skóla-
húsinu n. k. sunnudag kl. 2—6 síðdegis.
Aðgangur ókeypis.
NÝJA-BÍÓ
Föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld kl. 9:
Top Hat.
Mest umtalaða dansmynd
síðasta árs og ein með þeim
íburðarmestu, sera sýnd hefir
verið.
Aðalhlutverkin leika og dansa:
Fred Astaire og
Ginger Rogers.
Frægasta danspar i hvikmyndabeiminiim.
tvær góðar stofur með
sérinngangi í
Brekkugötu 11.
vantar i vist i
sumar hjá Jen-
sen Hamarst. 4.
Raddsetning af söngiögum.
Músikkennsla og kennsla í
þýzku og dönsku. Lágt verð.
Robert Abraham.
Nokkrar ær
og nokkur hæsni til sölu nú
þegar. Upplýsingar i Þing-
vallastræti 12.
TILBOÐ
óskast í flutuing á mjólk úr
Öngulsstaðahreppi, til Mjólk-
ursamlags K.E.A. Akureyri,
á timabilinu frá 1. maí 1937
til jafnlengdar næsta ár. —
Tilboðum sé skilað til und-
irritaðs fyrir 20. þessa mán.
Þórustöðum 7. apríl 1937.
Helgi Stefánsson.
Prédikuii í Aðventkirkjunni n. k.
stinnudag kl. 8.30 e. h. Allir velkotnnir.
Dánardægur. Um síðustu helgi andað-
ist að heimili sínu hér í oænum L. Funch
Rasmussen vélameistari, danskur að ætt,
en giftur íslenskri konu.
NÆTURVÖRÐUR er í Stjörmr Apó-
teki þessa viku. (Frá n. k. mánud. er
næturvörður í Akureyrar Apóteki.)