Dagur - 08.04.1937, Side 2
54
DAGUR
14. tbl.
Þingrof og nýjar
kosningar.
Nú er svo komið á Alþingi, að
talið er nokkrnveginn víst að Al-
þýðuflokkurinn slíti stjórnmála-
samvinnu við Framsóknarflokk-
inn, og liggur þá ekki annað fyrir
en þingrof og nýjar kosningar.
Upphaflega ætluðust þingmenn
Alþýðuflokksins til þess, að sam-
vinnuslitin byggðust á ágreiningi
flokkanna í Kveldúlfsmálinu, en
sá ágreiningur er einkum fólginn
í því, að þingmenn Alþýðuflokks-
ins vildu óðfúsir láta Alþingi fyr-
irskipa með lögum uppgjör Kveld-
úlfs nú þegar, þó að það kostaði
einnar milljónar gjöf til Thors-
bræðra, sem þeir hafa dregið út
úr rekstri fyrirtækisins. Á þetta
gátu þingmenn Framsóknarflokks-
ins með engu móti fallist á, af því
þeir töldu þá úrlausn málsins mik-
ið heppilegri, sem þeir hafa unnið
að og er í því fólgin að knýja for-
ráðamenn Kveldúlfs til þess að
láta af höndum sem veð fyrir
bankaskuldum sínum það fé, sem
þeir hafa dregið út úr rekstrinum.
Ella hefðu þeir getað braskað með
það að eigin vild.
Eftir að útvarpsumræður um
Kveldúlfsmálið fóru fram á dög-
unum, þar sem miklum hluta
þjóðarinnar gafst kostur á að
hlusta á sókn og vörn flokkanna í
þessu máli, munu þingmenn Al-
þýðuflokksins hafa áttað sig á því,
að almenningur í landinu myndi
ekki telja rök þeirra í Kveldúlfs-
málinu svo veigamikil, að þeirra
vegna væri hægt að réttlæta
stjórnarsamvinnuslit Alþ.flokks-
ins, þingrof og nýjar kosningar.
Það er og víst, að ekki aðeins
Framsóknarkjósendur, heldur líka
margir af hinum gætnari og skyn-
samari fylgismönnum íhalds og
jafnaðarmanna töldu rök og mál-
færslu fulltrúa Framsóknarflokks-
ins bera langt af frammistöðu
hinna í útvarpsumræðunum frá
Alþingi. Það var því ekki vænlegt
fyrir Alþýðufl.þingmenn að hafa
Kveldúlfsmálið eitt að grundvelli
fyrir samvinnuslitum, þess vegna
varð að finna ný ráð, þar sem
flokkurinn var farinn að van-
treysta afstöðu sinni í Kveldúlfs-
málinu. Og ráðið var að leita að
nýjum kosningabombum. Þær
birtast í frumvörpum, sem flokk-
urinn ber fram í sjávarútvegsmál-
um og myndu í framkvæmdinni
hafa í för með sér margra miljóna
útgjöld fyrir ríkissjóð. Smíðið á
þessum frumvörpum ber það með
sér, að þau eru búin til í þeim á-
kveðna tilgangi að finna upp á-
greiningsmál milli stjórnarflokk-
anna, sem ætlazt er til að geti
orðið grundvöllur undir þingrofi
og nýjum kosningum, til skemmt-
unar fyrir íhaldið og varalið þess,
sem nú er fullyrt að gangi til
kosninga undir einum hatti.
Búizt er við, að þessi bombu-
leikur Alþýðuflokksþingmanna
leiði til þingrofs seinni hluta þessa
mánaðar og fara þá kosningar
fram seinni hluta júnímánaðar
næstkomandi.
Framsóknarflokkurinn gengur ó-
skelfdur .til þeirra kosninga.
Á víðavangi.
Örvœnting „Verkamannsins.'1
Blað kommúnista hér í bæ er
alveg vonlaust um, að Kveldúlfur
sjái að sér, og telur engar líkur til
að hann breytist í engil. Það get-
ur svo sem vel verið að þetta
reynist svo, að forráðamenn fé-
lagsins séu orðnir svo forhertir í
syndinni, að þeir bæti ekki ráð
sitt, þó að Framsóknarflokkurinn
.„láti lögmál byrst lemja og
hræða,“ en „enginn örvænta
skyldi, þó iðrast hafi seint.“ Vm.
ætti því ekki í bili að sleppa allri
von um afturhvarf Kveldúlfs og
reyna að hugga sig við þessi orð
sálmaskáldsins. Það ætti ekki að
vera mjög erfitt fyrir jafn kristi-
lega sinnaða menn og kommún-
istar eru.
Kommúnistar halda því fram,
að í Rússlandi hafi englar breytzt
í slíka manndjöfla, að ekki hafi
verið um annað að gera en afmá
þá af jörðinni. En úr því þeir trúa
þessu, þá ættu þeir eins að geta
trúað því mótsetta: að syndaselir
geti breytzt í engla. Kommúnist-
ar ættu því að leggjast á sveif
með Framsóknarmönnum og
reyna að knýja Kveldúlf til að
bæta ráð sitt, svo að hann þurfi
ekki að deyja í syndinni.
Ekki veðhæfur.
í einni útvarpsræðu sinni um
Kveldúlfsmálið tók Eysteinn Jóns-
son fjármálaráðherra það fram,
að allar eignir Thorsaranna væru
nú veðsettar, nema þingmaður
Vestur-Húnv etninga, Hannes Jóns-
son frá Hvammstanga. Skýringin
á því, að þessi eign er óveðsett,
mun vera sú, að H. J. þyki ekki
veðhæfur.
Alþýðuflokksmenn í mótsögn við
sjálfa sig.
Framsóknarflokksmenn hafa
með áhrifum sínum knúið Kveld-
úlfsmenn til að veðsetja fyrir
skuldum sínum við bankana þær
eignir, sem þeir hafa dregið út úr
rekstri fyrirtækisins og sölsað
undir sjálfa sig. Þessar eignir
hafa verið metnar á um eina milj.
kr. Alþýðuflokksforingjamir hafa
á undanförnum tímum gert afar
mikið úr þessu ósæmilega athæfi
Thorsaranna, að draga út úr
rekstrinum stórfé til eigin afnota,
og óspart látið dynja á þeim
skammirnar út af þessu, og til
þess hefir verið full ástæða. En nú
er komið annað hljóð í strokk Al-
þýðuflokksins. Nú halda foringj-
ar flokksins því fram með miklum
gorgeir, að þessar eignir, sem
skapazt hafa á þenna hátt, séu
ógnar lítils virði, og gefa þar með
í skyn að stóryrði þeirra fyrr um
þetta efni hafi verið á litlum rök-
um byggð; það muni svo sem ekk-
ert um það, sem Kveldúlfsmenn
hafa dregið undir sig af því
rekstrarfé, er bankarnir létu þeim
í té!
Þannig eru þessir merin komnir
í algerða mótsögn við sjálfa sig,
en það finnst þeim tilvinnandi til
þess að geta gefið Thorsurum eina
milljón.
Þœgt verkfœri íhaldsins.
Thorsbræður þóttust ætla að
leysa skuldamál Kveldúlfs með
því að selja Landsbankanum jarð-
eignir Thors Jensen í Mosfells-
sveit með áhöldum og áhöfn fyrir
2 millj. og 50 þús. kr. Landsb.
fékk 2 menn til að meta eignir
þessar, þá Steingrím Steinþórsson
búnaðarmálastjóra og Pálma Ein-
arsson ráðunaut. Steingr. mat
eignirnar á 948 þús kr., en Pálmi
bændaflokksmaður mat þær á 1
millj. og 700 þús. kr., og vita allir,
sem til þekkja, að það mat er
fjarri öllu viti. Má af þessu marka,
að ekki mun standa á „Bænda-
flokknum" að gerast þægt verk-
færi íhaldsins í Kveldúlfsmálinu.
Havð gerir „Sjálfstæðið“ við
Jón Auðunn?
Á fundi miðstjórnar Framsókn-
arflokksins 30. f. m. var samþykkt
eftirfarandi tillaga:
„Þar sem einn af núverandi al-
þingismönnum hefir orðið sannur
að sök um landhelgisnjósnir og
játað brot sitt fyrir lögreglunni,
lýsir miðstjórn Framsóknarflokks-
ins því yfir, að hún telur að þess-
um alþingismanni, Jóni Auðunn
Jónssyni, beri af velsæmisástæð-
um að segja af sér þingmennsku
þegar í stað.“
Það má fullyrða, að réttarmeð-
vitund almennings er í samræmi
við þessa kröfu miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins.
En sér Sjálfstæðisflokkurinn
sóma sinn?
Iðnaður samíinnumanna
á Akureyri.
i.
Á síðustu árum hafa orðið all-
mikil straumhvörf um atvinnu-
háttu íslendinga. Erfiðleikar um
sölu framleiðslunnar á erlendum
markaði hafa þrengt mjög kosti
framleiðendanna, hvort sem þeir
hafa stundað sjávarútveg eða
landbúnað. Og vegna hinna miklu
viðskiptahafta síðari ára, hefir
þjóðin orðið að spara við sig kaup
á erlendum varningi, svo sem
imnt hefir verið. Einkum hefir
verið bannaður innflutningur
þeirra iðnaðarvara, sem lands-
menn geta sjálfir framleitt úr
innlendum eða erlendum efnum.
Þegar hinar stærri þjóðir víggirtu
sig viðskiptahömlum og tollmúr-
um, þá var hinum smærri þjóðum
nauðugur einn kostur að gera
slíkt hið sama, og þá okkur ís-
lendingum eins og öðrum. Hið sí-
vaxandi atvinnuleysi síðustu ára
ýtti og mjög undir það, að íslenzk-
ar hendur ynnu sem allra mest að
framleiðslu þeirra matvæla og
iðnaðarvarnings, sem þjóðin
þarfnast. Enda hefir sú raunin á
orðið, að iðnaður landsmanna fer
nú stöðugt vaxandi með hverju
ári sem líður. Það verður líka
ljósara með hverju ári, hver höf-
uðnauðsyn það er, að allir eigi
kost atvinnu, sem unnið geta.
Verður því að kosta kapps um að
auka atvinnu í landinu til veru-
legra muna frá því, sem nú er. Og
um það verður ekki deilt, að ís-
lendingar verða að búa sem mest
að sínu, að minnsta kosti meðan
það ástand ríkir um öll viðskiþti,
milli þjóða, sem nú á sér stað.
Samvinnufélög landsins eiga
verulegan þátt í sköpun hins ís-
lenzka iðnaðar. Ýms nýmæli um
Skóhlifar
nýkomnar
Kaupfélap Eyfirðinga.
Skódeild.
WMfl8S8BBlÍfiR8981ISSÍÍÍ9i