Dagur - 21.10.1937, Blaðsíða 3

Dagur - 21.10.1937, Blaðsíða 3
49. tbl. DAGUR 203 Landbúnaðamefnd: Bjarni Ás- geirsson, Steingrímur Steinþórs- son, Emil Jónsson, Jón Pálmason, Pétur Ottesen. Sjávarútvegsnefnd: Bergur Jóns- son, Gísli Guðmundsson, Finnur Jónsson, Sigurður Hlíðar, Sigurð- ur Kristjánsson. Iðnaðarnefnd: Bjarni Ásgeirsson, Pálmi Hannesson, Emil Jónsson, Sigurður Hlíðar, Sigurður Krist- jánsson. Menntamálan.: Bjarni Bjarna- son, Pálmi Hannesson, Ásgeir Ás- geirsson, Pétur Halldórsson, Þor- steinn Briem. Allsherjarnefnd: Bergur Jóns- son, Gísli Guðmundsson, Vil- mundur Jónsson, Garðar Þor- steinsson, Thor Thors. AKUREYRARBÆR. Dráltarvextir falla á síðari hluta útsvara í Akureyrarkaupstað, ef eigi er greitt fyrir 1. nóvember næstkomandi. Vextirnir eru 1 o/0 á mánuði og reiknast frá 1. sept. síðastl. Akureyri, 21. október 1937. BÆJARGJALDKERINN. sem geymd eru á frystihúsi okkar, fer fram aðeins á þriðjudögum frá kl. 10 f. h. til kl. 4 e. h. föstudögum á sama tíma laugardögum frá kl. 10 til kl. 12 f. h. og verða alls ekki afhent á öðrum tímum. Kaupfélag Eyfirðinga. Við setningu Laugalandsskóia 3. okt. 1937. Nú rís þú, sunna, rökkursölum frá og reifar bjarma Eyjafjarðardali. í dag er sungið, björt er meyja ! ; ■ brá, og brosin fylla skólans glæstu sali. Hér á að skapa menning, mál og starf og marka sporin fram til eigin dáða. Þið, æskumeyjar, grípið gefinn arf, sem göfgar, þroskar fram til heillaráða. Hér rætast vonir, — rík er lífsins hönd. Hér rís nú aftur skóli á fornum slóðum. Nú vermir hitinn kal og klakabönd. Við kveikjum ljós, það birtir — birtir óðum. E. Á. Kosningar í þingnefndir fóru fram 12. þ. m. Fóru þær á þessa leið: í sameinuðu þingi: Fjárveitinganefnd: Bj. Bjarna- son, Helgi Jónasson, Skúli Guð- mundsson, Þorbergur Þorleifsson, Héðinn Valdimarsson, Jakob Möl- ler, Jón Pálmason, Pétur Ottesen, Þorsteinn Þorsteinsson. Utanríkismálanefnd: Bergur Jónsson, Bjarni Ásgeirsson, Jónas Jónsson, Héðinn Valdimarsson, Garðar Þorsteinsson, Jóhann Jó- sefsson, Ólafur Thors. — Vara- menn: Gísli Guðmundsson, Páll Zophoníasson, Pálmi Hannesson, Ásgeir Ásgeirsson, Magnús Guð- mundsson, Magnús Jónsson, Thor Thors. í ejri deild: Fjárlaganefnd: Bernharð Stef- ánsson, Jón Baldvinsson, Magnús Jónsson. Samgöngumálanefnd: Páll Her- mannsson, Páll Zophoníasson, Magnús Guðmundsson. Landbúnaðarnefnd: Páll Zopho- níasson, Jón Baldvinson, Þorst. Þorsteinsson. Sjávarútvegsnefnd: Ingvar Pálmason, Sigurjón A. Ólafsson, Jóhann Jósefsson. Iðnaðarnefnd: Jónas Jónsson, Jón Baldvinsson, Bjarni Snæ- björnsson. Menntamálanefnd: Jónas Jóns- son, Sigurjón A. Ólafsson, Magn- ús Guðmundsson. í neðri deild: Fjárhagsnefnd: Skúli Guð- mundsson, Sveinbjörn Högnason, Ásgeir Ásgeirsson, Stefán Stefáns- son, Ólafur Thors. Samgöngumálanefnd: Sveinbjörn Högnason, Þorbergur Þorleifsson, Finnur Jónsson, Gísli Sveinsson, Eliríkur Einarsson, Goodtemplarareglan hefir fengið leyfi til merkjasölu næsta laugardag og sunnudag, og að þessu sinni fær hvert umdæmi að njóta ágóðans. Aldrei hefir ver- ið meiri þörf á miklu starfi bind- indissinnaðra manna en einmitt nú, því hin stórum aukna áfengis- neyzla ógnar framtíð þjóðarinnar. En þeir fáu menn sem fórna vilja tíma og kröftum til þess að reyna að hamla æskulýðnum frá að sökkva í áfengið, standa illa að vígi í þessari baráttu, og er fé- leysið þeim einkum fjötur um fót. Nú reynir á hvort bæjarbúar hér vilja rétta hönd þessu menningar- starfi, sem bindindismennirnir eru að reyna að vinna, en það gera þeir meðal annars með því, að kaupa merkin, og þeir mega vera vissir um það, að andvirðinu verð- ur varið í þjónustu æskunnar, sem á að erfa bæinn og landið. Kirkjari: Messað í Lögmannshlíð n.k. sunnud. kl. 12 á hád. (Saínaðarfundur). Zion: Sunnudaginn 24. okt., kl. 10,30 f h., Sunnudagaskóli. öll börn velkomin. Kl. 8,30 e. h., almenn samkoma, sr. Friðrik J. Rafnar talar. AUir velkimnir. Bruni. i gær brann íbúðarhúsið á Möðruvöllum í Hörgárdal til kaldra kola. Litlu eða engu innanhúss varð bjargað. Eldurinn kom upp á 12. tímanum og kl. 2 e. h. var húsið fallið. I húsinu bjuggu, ásamt fjölskyldum sínum, síra Sigurður Stefánsson og feðg- arnir Davið Eggertsson og Eggert Da- víðsson. Hús og innanstokksmunir var vá- tryggt. Um upptök eldsins er ekki kttnn- ugt. Barnasiúkan »Samúð« heldur fund n. k. sunnudag í Skjaldborg kl. 1% e. h. Rætt verður um vetrarstarfið. Áríðandi að félagar fjölmenni. Barnastúkan »Sakleysið« heldur fund i Skjaldborg n. k. sunnudag kl. 10 f. h. Vetrarstarfið undirbúið. Komið á fund- inn bæði eldri og yngri félagar. Karlakórinn »Þrynmr« frá Húsavík, söngstjóri síra Friðrik A. Friðriksson, söng í Nýja-Bíó sl. sunnudag við mikla aðsókn og góðar viðtökur. Guðsþjónustur í Grundaþingaprestak.: Kaupangi, sunnud. 31. okt. kl. 12 á hád. Munkaþverá, sunnud. 7. nóv, kl. 12 á hád Snjóbirtu- gleraugu. í miklu únali á Stjörnu Apóteki K. E. A. Dánardægur. Látin er á Egilsstöðum 1 Fljótsdalshéraði Ólöf Bjarnadóttir, ná- lc-ga 103 ára gömul og ef til vill elzta manneskja á Islandi. Nýlega er látinn á Siglufirði Sigurður Fanndal kaupmaður og fyrrv. bæjarfull- trúi. Væn kind. Nú í haust var slátrað hér á Akureyri roskinni á, er hafði verið tví- lembd síðastliðið vor og gengið með bæði lömbin í. sumar. Vóg kjötið af ánni 30 kílógr., mörinn 7 kg. og gæran 5 kg. NÆTURVÖRÐUR er 1 Stjömu Ap6- teki þessa viku. (Frá n. k. mánud. er næturvörður í Akureyrar Apóteki.) Naytgriparæktarf. Akureyrar heldur AÐALFUND í lessalnum í Verk- lýðshúsinu þ. 23. okt. n. k. (1. vetrardag), kl» 8.30 e. h. Dagskrá samkv. félagssam- þykt, ennfr. verður rætt nm mjólkurmálið. Mætið félagar! S t j ó r n i n. Cocomalt er hollur drykkur og ljúffengur. Fæst í bauk- um á kr. 1.35. Nýlenduvörudeild. Haustmót Skákfélags Akureyrar hefst í Skjaldborg annað kvöld kl. 8,30. Ritstjóri: Ingimar Eydal. Prentverk Odds Björnssonar,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.