Dagur - 03.02.1938, Blaðsíða 2
30
D A G U R
8. tbl.
Kemur þarna í ljós afleiðing
verka Héðins Valdimarssonar.
Hafnarfjörður:
Þar hlaut samfylkingarlisti Al-
þýðufl. og Kommúnista 983 atkv.
og fékk 5 fulltrúa.
Listi Sjálfstæðisíl. fékk 969 atkv.
og fékk 4 fulltrúa.
SeySisfjörður:
Þar hlaut listi Alþýðufl. 175 at-
kv. og 3 fulltrúa.
Listi Framsóknarfl. 71 atkv. og
1 fulltrúa.
Listi Sjálfstæðisfl. 180 atkv. og
4 íulltrúa.
Listi Kommúnista 62 atkv. og 1
fulltrúa.
N eskaupstaöur:
Framsóknarflokkurinn fékk 84
atkv. og 1 fulltrúa.
Sjálfstæðisflokkslistinn 141 at-
kv. og 2 fulltrúa.
Listi samfylkingar Alþýðufl. og
kommúnista 331 atkv. og 6 fulltr.
Siglufjörður:
Samfylkingarlisti Alþýðufl. og
kommúnista 672 atkv. og 5 fulltr.
Framsóknarlistinn 253 akv. og 1
fulltrúa.
Sjálfstæðislistinn 386 akv. og 3
fulltrúa.
ísafjörður:
Samfylkingarlisti Alþýðufl. og
kommúnista 727 atkv. og 5 fulltr.
Sjálfstæðislistinn 570 atkv. og 4
fulltrúa.
V estmannaeyjakaupstaður:
Samfylkingarlisti Alþýðufl. og
kommúnista fékk 655 atkv. og 3
íulltrúa.
Listi Framsóknarfl. fékk 195 at-
kv. og 1 fulltrúa.
Listi Sfjálfstæðisfl. 866 atkv. og
5 fulltrúa.
Listi Þjóðernissinna 62 atkv. og
engan fulltrúa.
KARLAKÓRINN »GEYSIR« söng síð-
astliðið mánudagskvöld, undir stjórn
Ingimundar Arnasonar, í Nýja Bíó. Að-
sókn var svo mikil að fjöldi varð frá að
hverfa. Söngskráin var fyrirferðarmikil
og hafði kórinn til meðferðar ýms mikil-
fengleg lög frá liðnu 15 ára starfi.
Söngnum var tekið forkunnar vel og
varð flokkurinn að endurtaka 9 lög af
14, sem á söngskrá voru. Flygii-undirleik
leysti frú Jórunn Geirsson unaðslega af
hendi, en einsöngva sungu þeir Gunnar
Magnússon í »Um sumardag«, Hermann
Stefánsson í »Landkjending« og Sigurð-
ur O. Björnsson í »Sof í ró« og urðu
þeir allir að endurtaka einsöngva sína.
Geysir endurtekur sönginn í kvöld á
sama stað og áður, og munu bæjarbúar
enn fylla húsið.
Nánar verður skýrt frá söng þessa
víðkunna og vinsæla kariakórs í næsta
blaði, af söngfróðum manni.
Sjánleikurinn »Yfirdómarinn« verðitr
leikinn í Samkomuhúsi Svalbarðsstrand-
ar n. k. laugardags- og sunnudagskvöld
ki. 9 e. h.
Zion. Næstkomandi sunnudag, kl. 10,30
f. h., sunnudagaskóli, öll börn velkomin.
Kl. 8,30 e. h., almenn samkoma. Allir
velkomnir
Þar sem kommúnistar í b ú ð.
2 — 3 herbergi og eldhús,
með nútímaþægmdum, ósk-
ast til leigu 14. mai n. k.
Upplýsingar gefur
Á Eskifirði liai'a kommúnistar drcplð allt
framfak og alla löngun til að bjarga sér.
Stefán lrau§tasdn,
prenlari.
Síðasta afrek þeirra þar er, að fólkið er hætt
að hugsa, hætt að skipta sér af því hverjir
stjórna málefnum bæjarfélagsins.
Um land allt veita menn nú
kosningaúrslitunum mikla athygli.
í bæjum og þorpum víðasthvar
hefir verið háð hörð barátta milli
flokkanna. Fólkið, sem flest hefir
lifandi áhuga á málefnum sinna
bæjarfélaga, hefir álitið það
skyldu sína að fjölmenna á kjör-
stað og veita þeim flokknum
stuðning, er það hefir álitið hæf-
astan til þess að auka hróður og
velmegun síns byggðarlags. Hinn
mikli áhugi og hin mikla kjörsókn
er tákn þess, að lýðræðið sé ráð-
andi á landi hér þrátt fyrir harð-
vítuga flokkapólitík og baráttu um
einstaka menn. Fólkið, sem er að
reyna að bjarga sér, lætur sig
miklu skipta hverjir halda um
stjórnartaumana í hverjum bæ
eða þorpi. Meðan slíkur áhugi er
vakandi, þá er vissa fyrir því að
við séum á réttri leið, og mikil
von til þess að hæfustu mennirnir
veljist í ábyrgðarstöðurnar.
Það er aðeins einn staður á landi
hér, þar sem auðsætt virðist, að
allur áhugi og öll hugsun fólksins
er að drafna niður í sömu gröfina
og tekin var öllu framtaki á þeim
stað fyrir nokkrum árum síðan.
Það er bærinn, þar sem fjöldi
bæjarbúa hefir viðurværi sitt af
styrk úr bæjarsjóði, og það er
bærinn sem haldið er uppi með
beinum styrk úr ríkissjóði. Það
er Eskifjörður — Sovét-Eskifjörð-
ur. Þessi staður er sá eini, þar
sem kommúnistar um undanfarin
ár hafa haft tækifæri til þess að
„prófa“ raunhæfni þessarar
stefnu, sem þeir með styrk er-
lendra valdhafa boða vinnandi
fólki um borg og byggð. Það er á-
áreiðanlega eini staðurinn á landi
hér, þar sem efnahag fólksins er
svo komið, að þótt leitað væri
með logandi Ijósi, þá fyndust ekki
20 aurar til þess að kaupa frí-
merki á bréf, og er þetta sam-
kvæmt upplýsingum Einars 01-
geirssonar sjálfs, og ætti því sízt
að efa. Þetta ófremdarástand er
árangurirm af stjórn ije.rra manna,
sem ekkert gera annað en heimta
af öðrum, og nú er svo komið, að
allir bæjarbúar heimta af ríkinu
að það sjái þeim farborða, og svo
spillandi og eyðileggjandi hefir
kommúnisminn verið fyrir þetta
fólk, að nú er það hætt að hafa á-
huga á kosningum. Þeim er sama
hverjir fara með stjórnartauma
bæjarfélagsins. Kjörsóknin í þess-
ari paradís kommúnismans var
25% — tuttugu og fimm prósent!!
Þetta eru áhrif kommúnismans á
fólkið, Fyrst lognast allt framtak
útaf og menn hætta að nenna að
bjarga sér. Síðan kernur sinnu-
leysið og afskiptaleysið. Menn
hætta að hafa áhuga á nokkru
eíni, hætta að hugsa. Fordæmið á
Eskifirði ætti að sýna mönnum
það einna ljósast, hve hættuleg
eitrun kommúnismans er. Komm-
únisminn er sníkjudýr á þjóðar-
líkamanum, sem þarf að þurrka
út. Hann drepur niður alla vel-
megun og alla löngun til þess að
bjarga sér. Hann heftir allt hugs-
analíf fólksins og gerir það að síð-
ustu sinnulaust og ósjálfbjarga.
Það er gleðiefni öllum þeim er
unna Akureyri, að bæjarbúar hafa
hér sýnt þessum eitursveppi,
kommúnismanum, það, að Eski-
fjörður er ekki þeirra draumaland.
Fylgi þessa flokks minnkaði veru-
lega við þessar kosningar. En bet-
ur má ef duga skal. Sagan um
kommúnismann á Akureyri þarf
sem fyrst að verða aðeins liðin
saga.
Stefnan, sem tekin var á sunnu-
daginn var, er sú rétta. Það er
nauðsyn bæjarfélaginu að sam-
vinnan megi blómgast og velmeg-
unin aukast og það gerir hún því
meir, sem kommúnismanum
hnignar.
Kosningastaka.
(Kveðin kvöldið fyrir kosning-
arnar, eftir lestur ,,ísl.“).
Hlýðum bróður Brynleifi,
burt með alla falsvon.
Strikum út í eindrægni.
Inn með Jakob Karlsson.
Næturvörður er í Stjörnu Apóteki
þessa viku. (Frá n.k. mánudegi er næt-
urvörður í Akureyrar Apóteki).
Bækur.
Hulda: Dalafólk 1, Reykjavík
1936.
Hver sá, sem ann fegurð í lífi
og list, heilbrigði og hreinleika í
hugsun, mun una vel andlegu
samvistunum við Huldu skáld-
konu. Hún hefir reynst svo trú
hinu innsta og bezta í sjálfri sér,
að snillc^ar-lýsing Einars skálds
Benediktssonar á henni, þó orkt
væri fyrir eitthvað aldarfjórðungi
síðan, á jafnvel við skáldkonuna
nú sem þá:
»Dalasvanninn með sjálfunna menning,
sólguðnum drekkur þú bragarskál,
með átrúnað fastan í ungri sál
á afls og kærleiks og fegurðar þrenning«.
í þessari nýju bók sinni, sem
ekki er neitt smáræði, því að hún
er nærri 400 bls. að stærð, fær-
ist ættborin dóttir dalanna það
umfangsmikla bókmenntastarf í
fang, að lýsa dalafólkinu, íslenzku
sveitalífi og menningu frá því á
seinni hluta 19. aldar og fram á
vora daga. Enda er þetta lang-
stærsta bók skáldkonurmar, og
jafnframt kemur hún hér til dyr-
anna í nýjum búningi hvað bók-
menntaform snertir, því að þetta
er fyrsta löng skáldsaga hennar.
Dregur það athyglina að því, hve
fjölþætt rithöfundarstarfsemi
Huldu er orðin, þar sem hún heíir
áður látið prenta ljóðasöfn, smá-
sagnasöfn, þætti og æfintýri eftir
sig, eða ellefu rit' alls. Og þetta
er ennfremur til marks um það,
hversu mikilvirk hún er, að um-
rædd skáldsaga er önnur bók
hennar á sama árinu, því að safn
af smásögum eftir hana, UncLir
steinum, kom út í fyrra vor.
Dalafólk, er, um annað fram,
L/'ósmyndastofan
1 Oránufélagsgðtu 21
er opin frá kl. 10—6.
HVERGI ÓDÝRAR.
GuÖr. Funch-Rasmussen.
gWWIHWIHWfWWWH
Kvenkáputau og
k j ó 1 a t a o.
Mikið úrval.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Vefnaðarvörudeild