Dagur - 03.03.1938, Blaðsíða 1
DAOUR
lcemur út & hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 ftrg.
Gjaldkeri: Ámi Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júli.
• • • • • •
XXI. árg. j
Afgreiðslan
er hjft JöNl Þ. ÞÓK, Norð-
urgötu 8. Talsími 112. Upp-
sögn, bundin við áramðt, sé
komin til afgreiðslumanns
fyrir 1. des.
-» *• • *•••
Akureyri 3. marz21938.
} 12. tbl*
Að Úfgarði.
í morgun átti eg eina endur-
minningu úr Glerárdal. Nú á eg
tvœr, því í dag eignaðist eg aðra,
sem verður mér lengi hugstæð.
Eldri minningin er nokkuð gömul.
Hún er tengd vegvillu og sveipuð
dimmviðri. Eg átti ókunnugur
leið að bænum Glerá, en misskildi
leiðsögn og missti bæjarins. Hélt
ég því fram Glerárdal í þoku og
hríðarveðri, unz ég rakst á beit-
arhús eftir lengri göngu, en við
mátti búast. Þótti mér þá fyrir
von komið, að ég fyndi bæinn á
þeirri leið og sneri við. Tókst mér
að finna bæinn eftir villu þessa.
Þessi enduxminning vaktist upp
í dag, ekki af því að hún sé frá-
sagnarverð út af fyrir sig, heldur
vegna þess að í sambandi við
komu mína að Útgarði, skólaseli
menntaskólanemenda á Akureyri,
verður hún einskonar leiðar-
mark á æfinni ög krefst viðdval-
ar til yfirlits um farin ár og sam-
tíðar viðburði-
Koma mín í Glerárdal í dag er
með næsta ólíkum hætti. Ég ek
með skólameistara ruddan veg um
gildrög og hæðir. Áhugamenn í
hinni ungu sveit landsmanna, sem
sækja Menntaskólann, hafa rutt
veginn. Á gömlum selrústum
norðvestanmegin í dalnum er ris-
ið hús af grunni, tvísettar burstir,
og vita stafnþil móti hœstum sól-
argangi. Veggir eru klömbru-
hlaðnir úr íslenzkum jarðvegi,
traustir og snyrtilegir. Umhverfis
húsið er vallgróin flöt, traustlega
umgirt.
í dyrum mætir okkur dr,
Trausti Einarsson, sem hefir 6.
bekk í seli þessa dagana, við
kennslu í landmælingum og ann-
arri stærðfræði. Skólameistari
hefir með sér íslenzku stílana og
heldur kennslustundn með nem-
endunum daginn eftir-
Þegar að dyrum kemur, kveður
við úr húsinu þróttmikill söngur
piltanna, samstiltar raddir,
mikið samæfðar, — skólasöngvar
nútímans, máske ekki fyrirtaks-
skáldskapur, en vel fallinn til þess
að veita útrás glaðværð og þrótti.
Úr forstofu er gengið í eldhús og
matskála. Þar starfa námsmeyjar
6. bekkjar að matseld. Úr mat-
skála er gengð í stofuna, sem er
hálft húsið niðri, og upp á svefn-
loftin. í stofunni fer fram kennsla,
þegar dvalið er til námsiðkana, en
gleðimót þegar um hressingar-
dvöl eina er að í frístund-
um er þar glatt á hjalla. Nemend-
urnir eru mannvænlegir, frjáis-
mannlegir, hlaðnir lífsþrótti, úti-
teknir í fjallalofti og þorrasól-
skini Norðurlands. Frá Útgarði
eru þreyttar skíðagöngur og skíða-
hlaup. Trausti kennari lætur nem-
endur sína mæla skíðalandið og
kortleggja hæðalínur og verða þá
snjóalög auðveldlegar ráðin af
veðuráttu og landslagi.
Á svefnloftum er slegið upp
gólfrekkjum og geta sofið um
fimmtíu manns á Útgarði, þegar
flest er. Nemendur höfðu nýlega
sótt 600 kr. í leikför til Siglu-
fjarðar og varið til sængurbún-
aðar.
Fyrir þremur árum síðan skaut
Sigurður Guðmundsson skóla-
meistari fram í blaði skólans hug-
myndinni um þetta skólalandnám
og hefir því síðan miðað áleiðis
með samtökum, þegnskaparvinnu
og fjárframlögum kennara og
nemenda. Slík átök eru gerð ein-
ungis þar sem framhugur og hug-
sjónir eru að verki. Undir borðum
við kaffidrykkju á Útgarði eru
rædd framtíðarverkefnin í þessu
aukna landnámi og stórar hug-
sjónir marka leiðina fram á við til
meiri afreka. Sigurður Guðmunds-
son er mikill skólamaður. Skól-
arnir eru í vitund hans og fram-
tíðardraumum ekki einungis upp-
fræðslustofnanir, heldur og upp-
eldisstofnanir og það fyrst og
fremst. Ætlunarverk þeirra á að
verða það, að veita æskumönnum,
auk námsvinnunnar, félagsþroska
og verluegt rsám á stóru sk úabúi,
þai sem hönd þjónar hugsjón og
stritið gæðist viti. Starf skólann i
á að verða leit að mannrænu og
göfugu skapfari æskumanna og
veita hvorutveggja í farveg þjóð-
nýtra starfa við útsýn hollia
mennta.
Eg er þakklátur fyrir boðið inn
í þessa höll æskunnar í landinu og
til þess útsýnis, sem henni heiir
verið kosið. Yfir Glerárdal er fag-
ur svipur og harla ólíkur þoku-
myrkrinu í minni fyrri för í dal-
inn. Hlákuþeyrinn blæs af Súlum
ofan og fellin ypta öxlum upp úr
fönnunum. Dalurinn er skreytt-
ur blettaskini mildrar Góusólar,
og hnígur af háfjöllum höfgur
blámi undir norðlenzku skýjafari.
Síðan eg villtist á Glerárdal, er
liðin stutt stund í þjóðaræfinni, þó
hafa síðan orðið mikil umhvörf
um þjóðmenningu okkar og þjóð-
arhag. Heimsóknin í Glerárdal í
dag er mér táknrænn vottur um
þversu miðar, þrátt fyrir örðug-
leika. Vegur þjóðarinnar horfir
fram á leið, út úr þoku og auðn
fyrri alda inn í bjart sólskin í opn-
um dal, þar sem hin djarfhuga
æska nemur land að nýju.
í stórfögru kvæði, „Að leikslok-
um“, segir St. G. St.:
»Hlægir þig að hér var steinum þungum
hnykkt úr leið, ef aðstoð þína brast.
Vissa ljós að leika á yngri tungum
lljóðin, sem þú aldrei kveðið gazt.
Þrár og óskir þroskast, vaxa, fyllast,
þína hönd, sem aldrei fær þú léð.
Og enn segir hann:
»Yður hjá, sem hugsuðum oss saman,
Hjartað skilur gesturinn, sem fer,
Varmt og heilt. — Að hverri stund var
gaman.
Hönd hans óveil, — sé hún kulda-ber —
Rétt er þeim, sem lánast á að erfa
Æsku vorrar stærri þrár og dug.
Með hugsun þessa kvæðis vildi
eg kveðja þig, norðlenzk skóla-
æska, og árna þér gengis. Og eg
vildi mega vona, að íslendingar,
einnig þeir, sem komnir eru af
léttasta skeiði, bæru jafnan slíkan
hug til æskumanna. Meðan eg
veit að hugsjónamenn, hjartaheit-
ir, með eld viljans í augum og
þrótt til drengilegra átaka, vaxa
upp í landinu, verð eg aldrei gam-
all.
25. febrúar 1938.
Jónas Þorbergsson.
í M hjá KQL
Síðastl. föstudag bauð K. E. A.
nemendum kvennaskólans á
Laugalandi, forstöðukonunni og
kennurum að skoða verksmiðjur
og iðnað félagsins og Sambands
ísl. samvinnufélaga. Var boðsfólk-
ið sótt á bílum og flutt til bæjar-
ins. Var þVí tilreiddur miðdags-
verður í húsakynnum félagsins og
framkvæmdastjóri veitti því kaffi
á heimili sínu. Um kvöldið var
skólanum boðið til kvikmyndasýn-
ingar í Nýja-Bíó. Þótti' skólanum
dagurinn hirm ánægjulegasti og
hefir hann beðið blaðið að flytja
framkvæmdastjórn K. E. A. og þó
einkum framkvæmdastjóranum
sjálfum hugheilar þakkir fyrir
þetta rausnarlega og ánægjulega
boð.
NÝJABfÓ
1
fimmtudaginn 3. þ.m. kl. 9
Niðursett verð.
Sýnd í síðasta sinn.
Brauðserðar KEH.
Vinsældir Brauðgerðar K. E. A.
fara stöðugt vaxandi. Bezta sönn-
un þess er hin mikla framleiðslu-
aukning hennar síðustu missirin.
Á bolludagiim árið 1935 voru
bakaðar 12000 bollur, árið 1936
15000, árið 1937 20.600 og nú síð-
astliðinn bolludag 23,480 bollur.
í sambandi við bolludaginn í ár
hafði brauðgerðin getraun fyrir
almenning, þannig að hver sá er
keypti 5 bollur fékk miða, er hann
ritaði á hversu margar bollur
hann áliti að brauðgerðin mundi
hafa framleitt þennan dag, og var
heitið 3 verðlaunum fyrir réttustu
tilgátuna. I. verðlaun, eina 12
króna tertu, hreppti III. bekkur
B, Menntaskólans hér, fyrir til-
gátuna 23,479 bollur.. II. verðlaun
fékk hr. Helgi Bernharðsson Ak-
ureyri, en tilgáta hans var 23,486
bollur og III. verðlaun hlaut hr.
Kristófer Vilhjálmsson Akureyri,
og var hans tilgáta 23,487 bollur.
I.« O F = 11034» = III.
KIRKJAN: Messað í Lögmannshlíð n.
k. sunnudag kl. 12 á hádegi.
Guðsþjónustur í Grundarþingapres'a-
kali': Grund, sunnudaginn 13. márz ki.
12 á hádegi. Kaupangi, sunnudaginn 29.
marz kl. 12 á hádegi. Afunkaþverá,
sunnudaginn 27. marz kl. 12 á hádegi.
Kantötukór Akureyrar efnir til hljóm-
leika næstk. sunnudag kl. 3 e.h. í Nýja
Bíó. Verða að þessu sinni flutt tónverk
eftir Lindblad, Kreuzer, Abt, Palm, An-
jou, Mendelsohn, Borg, Möhring, Sigurð
Þórðarson og Björgvin Guðmundsson.
Einsöngvarar verða frúrnar Eva Kröyer
og Helga Jónsdóttir, sem einnig syngja
þrjá tvíeöngva, og Hermann Stefánsson,