Dagur - 03.03.1938, Page 3
12. ti»l.
DAQUR
47
Nn er hver siðastur
að afla sér númera í happdrættinu. ‘/2- og !/1-
miðar á þrotum en nokkuð eftir af */4-miðum.
Frátekinna miða verður að
vilfa fyrir 7. þ. m.
Sel iniða til kl. IO þ<11111 9. marz.
Ekki ltreppir sá er engu keetfir!
Bðkaverzlun Þ. Thorlacius
vinnur mest og bezt fyrir fólkið.
En það tekst ekki, karl mimi!
£ amvinnuf élögin hafa varizt
spjótalögum haturs og öfundar í
hálfa öld og eru lítt sár. Þau
munu ekki falla fyrir árás eins og
þessari, jafnvel þó að svo sé látið
líta út, sem spjótinu sé kastað úr
þeirra eigin herbúðum.
Ungur samvinnumaður.
Dylgjum
finns Jnnssonar íinekkt.
Eftir ósk Þormóðs Eyjólfssonar,
hefir dómsmálaráðuneytið látið
fara fram rannsókn á öllum við-
skiftum hans, sem umboðsmanns
Sjóvátryggingafélags íslands,. við
Síldarverksmiðjur ríkins, þann
tíma, sem Þormóður einnig sat í
stjórn þeirra. Hafði Þormóður
krafist rannsóknar þessarar út af
dylgjum, sem fram komu í blaða-
skrifum Finns Jónssonar um það
bil, sem síðasta þingi lauk. En um-
mæli Finns urðu helzt skilin svo,
að í þeim feldist aðdróttun um
fjárdrátt af hendi Þormóðs Eyj-
ólfssonar í sambandi við þessi
viðskifti.
Rannsókn þessa framkvæmdi
Ragnar Jónsson, lögfræðingur,
samkvæmt skipim dómsmálaráðu-
neytisins, og er rannsókninni nú
lokið. Ályktunarorð rannsóknar-
dómarans eru þessi:
„Þá hefi eg farið yfir bækur
verksmiðjanna árin 1930—1936 og
gert skýrslur um allar tryggingar
þeirra hjá Sjóvátryggingafélaginu.
Þær skýrslur hefi eg síðan, tölu
fyrir tölu, borið saman við skila-
grein Þormóðs Eyjólfssonar til fé-
lagsins svo og nótur yfir trygging-
arnar í vörzlum þess og ennfrem-
ur farið yfir viðskiptareikning
hans við það. Hefir við þá athug-
un ekki fundizt að Þormóður Eyj-
ólfsson hafi á nokkurn hátt dreg-
ið sér fé af viðskiptum verksmiðj-
anna við félagið, né heldur þegið
nokkra þóknun þeirra vegna eða
annars frá félaginu, eða haft af
þessum viðskiptum aðrar tekjur
en umboðslaun sín, sem eru hin
sömu og aðrir umboðsmenn fé-
lagsins hafa.“
Endirinn á þessu árásarmáli er
því sá, að vegur Þormóðs Eyjólfs-
sonar hefir í engu minnkað, held-
ur miklu fremur vaxið vegna
drengilegrar framkomu hans í
málinu. En vegur Finns Jónssonar
hefir ekki vaxið að sama skapi.
Iþróttakvikmynd var sýnd í Nýja-Bíó
síðastl. mánudagskvöld að tilhlutun sund-
félagsins »Qrettis« hér í bæ. Margskonar
innlendar íþróttaniyndir voru sýndar,
svo sem sund, hlaup, stökk, glímur,
hnefaleikur, knattspyrna 0. s. frv. Hús-
fyllir var og góður rómur gerður að
sýningunni.
Leikurinn »Upp til selja« verður sýnd-
ur á Munkaþverá næstk. sunnudag og
hefst kl. 8% síðdegis.
Hjónaband; Ungfrú Þorgerður Ste-
fánsdóttir Kristnesi og Sigurður Jónssoon
barnakennari frá Brún,
Hvað er ai oerast
í RússWi?
Samkvæmt frétt er íslenzka rík-
isútvarpið flutti nú í vikunni, eru
hafin ennþá stórkostleg málaferli
í Rússlandi gegn ýmsum af helztu
trúnaðar- og embættismönnum
Stalins. Eru þeir sakaðir um morð,
njósnir, sviksamlega starfsemi,
samsæristilraun til þess að myrða
einvaldann Stalin o. fl. o. fl. Með-
al þeirra, sem handteknir eru, eru
fyrrverandi yfirmaður OGPU,
rússnesku leynilögreglunnar, fyrr-
verandi ritstjóri Sovét-blaðsins
Isvestia, fyrrverandi sendiherra
Rússa í París, o. m. fl. kunnir
menn.
Fréttaritari Reuters telur víst,
að allir þeir sakbornu verði
dæmdir til lífláts. Einu fregnirnar,
sem vesturlandabúum berast úr
þessari Paradís kommúnismans,
eru þær, að höfuðin fjúki af búk-
unum þar eystra, jafnótt og lauf-
blöðin af trjánum í haustveðrum
annarstaðar.
Flestum mönnum mun finnast
það undarlegt þjóðskipulag, þar
sem flestir trúnaðarmenn ríkisins
eru sakaðir um svo alvarlegar yf-
irsjónir, að þeir verða að láta lífið
fyrir.
K 0 s n i n 0 a f r é 11 i r.
Úrslitin í hinum mjög „spenn-
andi“ kosningum í Rússlandi eru
nú kunn og hafa orðið þessi:
Stalinistar 52%, Stalinflokkur-
inn 20%, Stalinvinir 20%, Stal-
inovar8%.
Þannig lyktaði þeirri „einu
sönnu og réttu lýðræðiskosningu,
sem fram hefir farið.“
Þess má geta, að aðeins einn
frambjóðandi var í kjöri í hverju
kjördæmi, og þeir, sem ekki kusu
hann, áttu á hættu að verða skotn-
ir eða hengdir.
Hinn 30. jan. s. 1. andaðist að
heimili sínu, Núpufelli í Eyjafirði,
Kristjana Guðrún Einarsdóttir,
ekkja eftir Þorstein Pálsson, fyrr-
um bónda í Ytra-Dalsgerði í Eyja-
firði, tæplega 82 ára gömul. Eftir-
lifandi börn þeirra hjóna eru:
Hólmgeir bóndi á Hrafnagili og
Auður, húsfreyja í Núpufelli, gift
Pálma Þórðarsyni, bónda þar.
Fyrir rúmum 50 árum sá ég frú
Kristjönu Einarsdóttur í fyrsta
sinn. Er mér enn í fersku minni
hve glæsileg kona hún var og
háttprúð í allri framkomu, hún
hafði eitthvað elskulegt og aðlað-
andi við sig, sem vakti traust og
virðingu manns. Var það reynsla
þeirra, sem kynntust henni, að
henni var óhætt að treysta* var
hún hollráð og einlæg svo að af
bar.
Þó að frú Kristjana starfaði
mest innan heimilis-vébandanna
og léti lítið á sér bera út á við,
átti hún samt mikinn áhuga fyr-
ir ýmsum mannúðar- og menning-
armálum, og var alla æfi vina
æskunnar og vorsins í þjóðlífinu.
Þegar fjársöfnun var hafin til
byggingar heilsuhælis fyrir Norð-
urland og geislastofu fyrir Akur-
eyrarspítala, lagði hún ríflegan
skerf til þess hvorutveggja með
fjárframlagi og hvatningum. „Við
getum svo mikið, ef við vinnum
saman og viljinn er nógu góður
og sterkur", sagði hún. Einnig var
hún fyrsta konan, sem gaf fé til
kvennaskólans á Laugalandi.
Þannig var hún æfinlega reiðubú-
in að hjálpa til þess að bera góð
málefni fram til sigurs með víð-
sýni, dáð og drengskap:
„í sálarþroska svanna
býr sigur kynslóðanna“.---------
Hún átti yfir að ráða óvenju
mikilli andlegri orku, sem varð-
veitti æskuna í sál hennar og
gerði henni mögulegt að vinna
þau störf á efri árum, sem mörg-
um reynast full erfið á mann-
dómsárunum.
í langvinnum og margendur-
teknum veikindum elskaðrar dótt-
ur hennar, tók hún böm hennar
og stórt heimili á arma sína og
vakti yfir velferð þess eins og góð,
elskuleg móðir bezt getur gert;
undraðist eg styrk hennar, sem
orðin var þreytt að bera hinar
margvíslegu byrðar lífsins. Eitt
siim, þegar við vorum að tala um
þetta, spurði eg hana hvernig
stæði á því, að hún gæti borið
veikindi og ástvinamissi með
þessu dæmafáa þreki og stillingu.
Eftir ofurlitla umhugsun sagði
hún: „Á erfiðustu stundum æfi
minnar hefir mér æfinlega komið
hjálp frá æðri stöðum, einhver
undursamlegur kraftur streymir
þá um sál mína og gefur mér
styrk til þess að gera skyldu
mína“.
Síðast fann eg þessa látnu vinu
mína fyrir fáum vikum. Barst tal
okkar að ástvinum hennar og lið-
inni æfi. Hún var eins og glatt og
þakklátt barn, skoðaði þessa til-
veru sem dásamlega guðsgjöf og
endaði með því að segja: „Eg skil
ekkert í því, hvað eg á mikið
betra en flestir aðrir, eg er borin
á elskuríkum höndum barna og
tengdabarna og allt er gert, sem
hægt er, til þess að mér líði sem
bezt. Eg vildi óska, að sem flestir
ættu þeirri hamingju að fagna“.
Frú Kristjana var glaðleg og
stillt í daglegri umgengni, hvort
sern húp bar sorg eða gleði í
Það tilkynnist að Halldór
Ágústsson frá Dunhaga andaðist
í Kristneshæli 28. febr. síðastlið-
inn. Jarðarförin er ákveðin mið-
vikudaginn 9. marz næstk. að
Möðruvöllum í Hörgárdal og
hefst í kirkjunni kl. 1 e. h.
Aðstandendur.
hjarta, og bjartur og göfugur geð-
blær hennar gerði andrúmsloftið
hlýtt og hreint í kringum hana.
Hún var góð húsmóðir, ástrík eig-
inkona og elskuleg móðir. Það var
sagt við Rembrant, málarann
mikla, að hann ætti sólskin í sál-
inni.
Frú Kristjana átti áreiðanlega
sólskin í sál sinni og örugga trú á
sigur þess góða í tilverunni. Hún
var alla æfina að flytja einhverja,
sem í skugganum og kuldanum
voru, „til blómanna í birtuna og
ylinn“. Einmitt af því, að hún átti
sólskin í sál sinni, málaði hún
bjartar og litfagrar myndir með
æfistarfi sínu, myndir, sem ekki
mást úr huga þeirra, sem bezt
þekktu hana.
„Hinn góði, vitri og göfugi kýs
að gera jörðina að Paradís."
Og nú er hún horfin inn á ó-
kunna landið, en samt ber hún
okkur til blómanna. Um helgan
blómareit minninganna reikum
við, minninganna um hana, þessa
göfugu hetju, sem falið var það
veglega en vandasama hlutverk
að vaka yfir vöggum tveggja kyn-
slóða, og bera þær á örmum sér
yfir marga ‘ erfiðleika og hættur
þessa jarðlffs. Á leið minninganna
um æfistarf hennar berumst við
inn í birtuna og ylinn og trúum
því, að hún lifi „í englaröðum
glaðværðar og góðs.“
Vinkona.
Steinn Steinsen bæjarstjóri fór með
I'ettifossi nú i vikunni áleiðis til útlanda.
I*er hann utan i þarfir bæjarins og þá
serstaklega rafveitumálsins.
Basar heldur kvennadeild Verklýðsfé-
lags Akureyrar í »Zíon«, föstudaginn 4.
þ. m. kl. 3 e. h. Þar verða á boðstólum
margir ágætir munir við lágu verði.
Einnig kaffi með pönnukökum. — Bæjar-
búar! Fjölmennið í »Zíon« á föstudaginn
og styðjið gott málefni. Ágóðinn rennur
allur til björgunarskútu Norðurlands.
Bragi Steingrímsson dýralæknir gegnlr
embætti Sigurðar Hlíðar, meðan hann
sifur á þingi. Kom Bragi með »Drottn-
ingunni« síðast.