Dagur - 02.02.1939, Qupperneq 1
DAGUR
kemur úí á liverjum
fimmtudegi. Kostar
kr. 6.00 áig. Gjaldk.
Arni Jóhannsson 1
Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjaldd. fyrir 1. júli.
XXII
■ árg. {
Akureyri 2. febrúar 1939.
Benedikt Jón$§on
£rá A&aðnsBSBt
andaðist á Húsavík í gærkvöld, 93 ára gamall.
f*essa þjóðkunna, stórmerka manns verður nánar getið síðar.
Sjúrahúsbyggingin.
AFGREIÐSLAN
er hjá Jóni Þ. Þór,
Norðurgötu 3. Tal-
sími 112. Uppsögn,
bundin við áramót, sé
komin til afgreiðslu-
manns fvrir 1. des.
Á síðastl. hausti var byrjað á
byggingu hins nýja sjúkrahúss hér
á Akureyri; er nú þegar nokkur
hluti þess kominn undir þak. Það,
sem tekið var fyrir í haust, er að-
eins partur af hinni fyrirhuguðu
aðalbyggingu, og verður í þessum
hluta hússins Röntgendeild, skurð-
arstofudeild, ljósastofa, berkla-
varnastöð o. fl.; er þetta dýrasti
hluti hússins eftir staérð, vegna
hinna dýru áhalda, sem öll verða
fengin ný og fullkomin. Má gera
ráð fyrir að þessi hluti kosti ná-
lægt 150 þús. kr.
Öllum er það ljóst, hversu mikið
nauðsynjamál það er fyrir bæinn
og nærliggjandi sýslur, að hér
komi upp fyrsta flokks sjúkrahús.
Gera má ráð fyrir að slík stofnun
kosti um hálfa milljón króna. Er
því mikil nauðsyn á að allur al-
menningur taki þátt í fjársöfnun
til framkvæmda þessu máli.
Það var að þakka fámennu fé-
lagi hér í bæ, að hægt var að
hefja sjúkrahúsbygginguna í
haust. Það var kvenfélagið „Fram-
tíðin“, sem þar reyndist hjálpar-
hellan. Félagið lánaði til bygging-
arinnar 40 þús. kr. og gaf til á-
haldakaupa 5 þús. kr. Má af þessu
marka, hve létt mundi veitast að
þoka þessu máli til úrslita, ef all-
ir fyndu sér skylt að rétta því
slíka hjálparhönd sem félag þetta.
Hin fjárhagslega hlið málsins
stendur þannig:
„Framtíðin“ hefir lagt fram 45
þús. kr. eins og áður segir.
Gjöf K. E. A. 20 þús. kr.
Akureyrarbær 20 þús kr.
Sjúkrahúsið sjálft 50 þús. kr„
þar í innifalinn útgröftur á lóð og
húseign L. Rist.
Samtals gerir þetta 135 þús. kr.
Síðan má vænta þess að ríkis-
sjóður greiði V& af byggingar-
kostnaðinum, þegar húsið er kom-
ið upp.
Af þessu má sjá, að framkvæmd
þessa máls er enn aðeins á byrj-
unarstigi, en þess er að vænta, að
Akureyringar og Eyfirðingar
leg^ist á eitt um að reyna að leiða
það til lykta á næstu þremur ár-
um.
Ógn áfengis-
neyzlunnar
og hið ómótmælanlega.
í gær, 1. febr., var mikið ritað
og rætt um áfengisbölið, sem fer
sívaxandi með þjóð vorri. Tölurn-
ar ógna og skelfa. Siðleysið
magnast. Varla er unnt orðið að
halda svo nokkra samkomu, að
ölvun valdi ekki mannskemmandi
vandræðum. Sala áfengis á Akur-
eyri vex enn um 33 þúsund krón-
ur. Dýpra og dýpra. Og Brekkan
stórtemplar upplýsir í útvarps-
ræðu, að á s.l. ári hafi sala hinna
sterkustu vína aukist. — Það er
leið drykkjumannsins, frá léttara
víni til hins sterkara. Þannig horf-
ir nú í þessum efnum. Samt sofa
menn á dúnsvæflum vanans og
tízkunnar og láta sem ekkert sé.
Og þó hljóta allir að sjá hvert
stefnir. En menn segja: „Ekki för-
um við að leggja á okkur höft
bindindisseminnar; við viljum
gleðja okkur við vínið, en okkur
dettur vitanlega ekki til hugar að
ganga of langt, við ætlum ekki að
verða ofdrykkjumenn“. Og svo
neyta menn vínsins í „sakleysi“
hófdrykkjunnar. Markið verður
óljósara og óljósara, uns svónefnd
hófdrykkja verður, e. t. v. áður en
varir, orðin að ofdrykkju. En það
ómótmœlanlega er þetta, segir er-
lent tímarit: „Það er ómótmælan-
legt, að drekki eg aldrei áfenga
drykki, verð eg aldrei drykkju-
maður.
Það er ómótmælanlegt, að ef eg
drekk áfenga drykki, getur svo
farið, að mér fari að þykja þeir
góðir, og að lokum get eg þá orðið
drykkjumaður.
Það er ómótmælanlegt, að hóf-
drykkjan er uppspretta ofdrykkj-
unnar, skólinn, sem allir of-
drykkjumenn hafa lært í.
Það er ómótmælanlegt, að allir
ofdrykkjumenn hafa einhverntíma
verið hófdrykkjumenn, og að þeir
hafa aðeins smátt og smátt orðið
að ofdrykkjumönnum.
Það er ómótmælanlegt, að ef
ekki væri til nein hófdrykkja, þá
væri heldur ekki til ofdrykkja.
Það er ómótmælanlegt, að ef of-
drykkjumaðurinn á að bæta ráð
sitt, þá verður hann að íorðast
það, sem hefir gert hann að of-
drykkjumanni, og heldur honum
enn föstum við þann löst.
Það er ómótmælanlegt, að ef of-
drykkjumaðurinn forðast þetta,
þá verður honum bjargað.
Það er ómótmælanlegt, að ef eg
ætla að verða honum til góðrar
fyrirmyndar, í því skyni að fá
hann til að bæta ráð sitt, þá verð
eg sjálfur að vera bindindismaður.
Það er ómótmælanlegt, að ef
allir væru bindindismenn, þá væri
enginn ofdrykkjumaður til, og
ekki heldur nein ofdrykkja.
Það er ómótmælanlegt, að haldi
menn áfram að drekka eins og
þeir nú gera, þá eykst tala of-
drykkjumannanna, og ofdrykkjan
heldur áfram.
Hvað getur þá verið ómótmœl-
anlegra en þetta, að það er skylda
mín að vera bindindismaður?
Og er það svo ekki ómótmælan-
legt, að eg á að leitast við að fá
alla félaga mína, vini og kunn-
ingja, til að vera bindindismenn,
til þess að þeir skuli aldrei leiðast
út í ofdrykkju, enda þótt þeir séu
hófdrykkjumenn sem stendur“.
Hvenær ætlar þú að rumskast,
samborgari góður? E. t. v. gengur
þú vegu hinnar drekkandi tízku.
E. t. v. áttu frændur og vini, sem
eru á sömu leið. Og hver veit
nema þú eigir börn, sem koma
svo á eftir. Gættu þín að verða
ekki of seinn.
X.
Kirkjan. — Messað á sunnudag-
inn klukkan tvö á Akureyri.
Guðsþjónustur í Grundarþinga-
prestakalli: Möðruvöllum sunnud.
5. febr. kl. 12 á hádegi.
I. O. O. F. — 120239 =
Sunnudaginn 5. febr. verður
samkoma í Zíon til ágóða fyrir
hússjóð. Þar verður erindi (sr. Fr.
Rafnar), söngur, upplestur (St.
Kristj.). Aðgangur 1 króna. Sam-
koman byrjar kl. 8V2 e. h. Ættu
bæjarbúar að fjölmenna á sam-
komuna, veita sjálfum sér upp-
byggilega stund og styðja gott
málefni.
Indriði Helgason
bóndi á Dvergstöðum í Eyjafirði,
átti sjötugsafmæli 26. janúar síð-
astl. Hann var um skeið ráðsmað-
ur á búi Hallgríms Kxistinssonar í
Reykhúsum og síðan rekið búskap
á tveimur jörðum í Eyjafirði,
fyrst á Botni og síðan á Dverg-
stöðum. Indriði hefir verið og er
enn víkingur til allra verka, vin-
sæll og vel metinn af sveitungum
sínum. Hann er kvongaður Helgu
Hannesdóttur frá Árbakka á
Skagaströnd.
Uppreisnarmenn á Spáni tóku
Barcelona síðastl. fimmtudag, án
pess að til verulegra bardaga
kæmi. Mun stjómarherinn hafa
talið vömina vonlausa þegar til
kom. Síðan hafa uppreisnarmenn
haldið áfram sókn sinni í Kata-
loníu og hafa hana nú nálega alla
á valdi sínu, nema litla sneið
norður við landamærin.
Þenna stórsigur Francos telja
ýmsir sama sem úrslit Spánar-
styrjaldarinnar. Þó eiga uppreisn-
armenn enn eftir að vinna borg-
irnar Madrid og Valencia og þá
landshluta, sem eru í nánd við
þær. Þar hefir stjórnarherinn
komið sér upp öflugum vörnum,
og getur það því tekið unppreisn-
arherinn langan tíma að vinna
þessar borgir.
Ogurlegur fjöldi spánskra
flóttamanna hefir safnast saman
að landamærum Frakklands, og
er ástand þess fólks hið hörmu-
legasta: klæðleysi, hungur og
sjúkdómar. Er þó allt gert sem
hægt er frá Frakka hálfu til þess
að lina þjáningar þess, og er ráð-
gert að koma því fyrir á hlut-
lausu svæði við landamærin og
halda þar í því lífinu, að svo
miklu leyti sem fært er.
— Hræðilegir jarðskjálftar urðu
í ríkinu Chile í Suður-Ameríku
25. janúar. Manntjón og eignatjón
af völdum jarðskjálftanna er gíf-
urlegt og heilar borgir í rústum.
Aðaldansleikur (afmælisfagnað-
urinn) í. F. Þór verður í Skjald-
borg laugardaginn 4. febr. kl. 8%
e. h. Áskriftalisti er í Kjötbúð K.
E. A. til föstudagskvölds kl. 6 e. h.
Ungmennastúkan Akurlilja nr.
2 heldur fund sunnudaginn 5.
febr. n. k. á venjulegum stað og
tíma. Kosning emhættismanna.