Dagur - 02.02.1939, Qupperneq 2
18
D A G TJ R
5. tbl.
> #
Mikilmenni.
Þegar við lesum sögu liðinna
tíma, komumst við ekki í'ram hjá
að reka okkur á ýms stór nöfn,
semi með afrekum sínum, hvort
heldur á sviði bókmennta, lista
eða athafna, hafa reist sér ódauð-
lega minnisvarða í sögunni.
Flestallir slíkir menn hafa ekki
litið á meðbræður sína sem smæl-
ingja, sem væru aumkunarverðir
og andlega lítilsigldir. Þeir hafa að
vísu komið auga á eitt og annað,
sem mannkyninu mátti verða að
bót frá því sem var, en í sínum
mikilleik hafa þeir þó ávallt haft
fulla meðvitund um það, hversu
jafnvel þeir — mikilmennin —
áttu langt í land til þess að geta
talað eins og sá sem hlotið hefir
hina æðstu fullkomnun til að
geta dæmt verk vor mannanna.
Hér á Akureyri er nú risinn
upp ein slík stærð, sem hefir tek-
ið sér fyrir hendur að dæma
menn og málefni, eins og sá sem
hlotið hefir hina æðstu fullkomn-
un og einn getur dæmt hin ófull-
komnu verk vor. Þessi andlega
stærð er Jakob S. Kvaran, skó-
verksmiðjueigandi. Hann hefir nú
að undanförnu verið að skrifa í
blaðið íslending eða tölublöðin
54. — f. á. og 1. og 3. þ. á.
Þar sem J. K. virðist eigi vera
það fyllilega ljóst, hverja hann er
að ásaka með þessum greinum
sínum, er ekki úr vegi að gera til-
raun til að koma vitinu fyrir hann
í þessu efni. Hér fer á eftir orð-
réttur kafli úr grein J. K. í 1. tbl.
„íslendings11:
„Til þess að útiloka misskilning,
vil ég taka það fram, að ég hef
ekki hafið neina árás á samvinnu-
félögin, heldur á Gjaldeyris- og
innflutningsnefnd, en vitanlega
verður nefndin ekki gagnrýnd, án
þess að minnzt sé á samvinnufé-
lögin, svo náið samband er þar á
milli“.
Við skulum hugsa okkur að
síðari hlutinn af grein J. K. hefði
verið eftir einhvern annan en
hann og orðaður eitthvað á þenn-
an hátt:
En vitanlega verður nefndin
ekki gagnrýnd, án þess að minnzt
sé á Jakob S. Kvaran, skóverk-
smiðjueiganda, svo náið samband
er þar á milli.
Síðan hefði svo í áframhaldi af
þessu verið farið hinum verstu
orðum um J. K. og þau fyrirtæki,
sem hann hafði með höndum.
Mundi J. K. ekki hafa talið það
neina árás á sig?
Nei, J. K„ við samvinnumenn
erum nú farnir að þekkja bar-
dagaaðferðir ykkar íhaldsmann-
anna yzt til hægri. Við höfum
ekki lengur lokuð augu fyrir til-
gangi ykkar um þrotlausar árásir
á samvinnufélögin. Við vitum
hvaða meðferð samvinnufélags-
skapurinn hefir hlotið hjá skoð-
anabræðrum ykkar í Þýzkalandi,
og við vitum fullvel hug ykkar til
þeirra.
Það er því tilgangslaust fyrir J.
K. að klæðast í sauðargæru sak-
leysisins og látast í öðru orðinu
vera fylgjandi samvinnufélögun-
um, það skín í gin úlfsins í þeirra
garð næstum í hverju orði í öll-
um greinum hans.
J. K. telur það réttlætiskröfu að
sér sé úthlutað jafnmiklum leyf-
um til véla- og efniskaupa og skó-
verksmiðju S. í. S„ sem svo til
eingöngu vinnur allan sinn skó-
fatnað úr íslenzkum skinnum, og
er ein meginástæðan sú, að af því
hann sé íslenzkur ríkisborgari, þá
eigi hann heimtingu á því, að
krafa hans um jafnrétti sé tekin
til greina. — Það er eins og J. K.
haldi valdhafana, sem nú fara
með völdin í landinu, og sem hann
óskar eftir að geta • gengið yfir
sem pólitísk lík, algjörlega blinda.
í því sambandi er ekki úr vegi
að gera sér ljósar þær stoðir, sem
runnu undir þá ákvörðun sam-
vinnufélaganna, að ráðast í að
reka hér sútun og skógerð. Ann-
arsvegar var það gert til að skapa
bændum landsins öruggari mark-
að á þeim húðum og skinnum, er
til falla frá ári til árs, en hinsveg-
ar sem liður í þeirri baráttu þjóð-
arinnar, að bæta gjaldeyrislega
afkomu hennar.
Báðar þessar starfsgreinar sam-
vinnufélaganna hafa á þeim stutta
tíma, sem þær hafa starfað, sparað
þjóðinni svo hundruðum þúsunda
króna nemur í erlendum gjald-
eyri. Það má og geta þess, að sút-
unin hefir á s. 1. ári tekið við öll-
um húðum og skinnum, sem sam-
vinnufélögin hafa fengið, en vitað
er að til þeirra gengur langsam-
lega mestur hluti þess, sem til
fellur í landinu frá ári til árs.
Svo kemur J. K. eins og álfur
út úr hól, og er undrandi yfir að
valdhafarnir skuli ekki veita hon-
um innflutning á vélum og efni
til jafns við samvinnufélögin, þó
hverju barni sé Ijóst, að þar er á
engan hátt um neinar hliðstæður
að ræða. Því Kvaran vinnur, eins
og áður hefir verið getið, svo til
eingöngu kvenskófatnað, og er
ekki vitað að hann hafi til þessa
talið gerlegt að nota í hann ís-
lenzk skinn. Aftur á móti vinnur
skógerð samvinnufélaganna, eins
og áður er getið, allan sinn skó-
fatnað úr innlendu yfirleðri, og
má af því vera ljóst hvor skógerð-
in muni vera þjóðhollari á gjald-
eyriserfiðleikatímum eins og þjóð-
in á nú við að búa, — og því á-
stæðulaust fyrir J. K. að gapa af
undrun yfir ráðstöfunum Gjald-
eyris og innflutningsnefndar í
þessu efni.
Það er eftirtektarvert þegar J.
K. fer að reyna að verja það, að
hann eigi núverandi valdhöfum
ekkert upp að unna um þá aukn-
ingu, sem orðið hefir á skóiðnaði
hans hin síðustu ár, og er helzt á
honum að skilja að árið 1932 hafi
aðstaðan verið jafngóð og nú til
að selja framleiðsluna. Sannleik-
urinn er sá, að 1932 var skófram-
leiðsla J. K. sama og engin, og að-
staðan til sölu mjþg erfið, það er
fyrst eftir 1934 að stefnu Fram-
sóknarmanna fer að gæta í land-
inu, og iðnaðurinn fær beinan og
óbeinan stuðning frá henni í gegn-
um gjaldeyrismál þjóðarinnar, að
þessi skóiðnaður J. K. fer að
vaxa. — Það er því síður en svo
að þessi skóiðnaður J. K. sé neitt
persónulegt kraftaverk hans. Nei,
J. K. hefir bara rekið fyrir vindi
þeirrar stjórnarstefnu, sem fram-
sóknarmenn hafa beitt sér fyrir
undir foryztu Eysteins Jónssonar
fjármálaráðherra, og er því alveg
ástæðulaust fyrir hann að láta
þessa litlu skóverksmiðju stíga sér
svo mikið til höfuðs.
Það er kaldhæðni örlaganna, að
J. K. skuli sífellt kalla á hjálp
Sjálfstæðisflokksins, þegar eitt-
hvað þrengir að fyrir honum i
iðnrekstri hans. Því ekki er annað
vitað, en Sjálfstæðisflokkurinn
hafi til skamms tíma verið mót-
fallinn þeim iðnaði, sem risið hef-
ir upp í landinu á síðustu árum.
Það er því engin furða, þó manni
detti í hug rödd hrópandans á
eyðimörkinni, þegar maður heyrir
þessi ámátlegu vein J. K. til Sjálf-
stæðisflokksins um styx'-k í þreng-
ingum hans.
J. K. hefir veitt nokkrum hóp
manna atvinnu við skógerð sína,
enda hefir hann ekki sparað að
auglýsa það, og æfinlega á þann
hátt, að hann væri fullur af föð-
urlegri umhyggju fyrir velferð
þessa fólks síns, og hefir þá mörg-
um, er manninn þekkja, dottið tár
krókódílsins í hug.
J. K. er að reyna að klóra yfir
þá staðreynd, að Skógerðin Iðunn
hefir aðallega fengið þær vélar,
sem hún hefir flutt inn nú nýlega,
til að koma í stað 2ja annara véla,
er verksmiðjan endursendir, og
jafnvel þó þessi mikli maður telji
sig hafa gott vit á verði umget-
inna skógerðarvéla, og manna bezt
umkominn að fara með réttar töl-
ur í því efni, þá hefir honum
samt tekist svo óhönduglega þessi
reikningur, að t. d. notuð Soh-
burissmaschine, sem hann telur
að hafi kostað kr. 1200.00 — eitt
þúsund og tvö hundruð krónur,—
kostaði* verksmiðjuna aðeins kr.
575.00 — fimm hundruð sjötíu og
fimm krónur. — Það er sagt, að
fáir ljúgi meir en um helming, en
J. K. hefir tekist að verða í þessu
efni í tölu þeirra, sem stíga skref-
inu lengra.
NÝJA-BÍÓ
Fimmtudagskvöld kl. 9:
Aðalhlutverkið leikur:
Eddie Canfor.
Þetta nægir til þess að sýna
hversu heimildirnar eru merki-
legar, sem J. K. byggir greinar
sínar upp með.
Annars skal þessum mikla
manni, sem tekur sér það vald, að
dæma stjórnarstefnu framsóknar-
manna hin síðustu ár, bent á það,
að heppilegra væri fyrir þann
málstað, sem hann telur sig full-
trúa fyrir, að hann reyndi að
bera fram einhver rök fyrir þeim
ásökunum, sem hann ber á flokk-
inn og leiðandi menn hans. Því
innantóm slagorð og órökstuddar
fullyrðingar verða ekki tekin há-
tíðlega úr penna þess manns, sem
aldrei sézt á ritvellinum nema i
■persónulegum erindagjörðum.
Einnig má J. K. vita það, að ef
hann hugsar sér að þjóðin fari að
leggja-hlustirnar eftir því, sem úr
sál hans drýpur, þá verður hann
að skrifa eitthvað meira en hann
hefir gert til þessa um þau dags-
ins mál, er þjóðin á 1 stríði við,
eða með öðrum orðum, hann verð-
ur að fara að hugsa eins og sann-
ur íslendingur, sem finnur til með
þjóð sinni í erfiðleikum hennar,
og leggur eitthvað til málanna
annað og meira en það, sem við-
kemur hans eigin persónu.
Ef þessi lífsvenjubreyting tæk-
ist vel hjá J. K„ þá mætti vel svo
fara, að komandi tímar gætu
talað um hann sem andlegt mikil-
menni og sannan íslending, en
því miður standa ekki miklar
vonir til þess, að slík lífsvenju-
breyting verði hjá J. K„ en hins-
Ljósmyndastofan
f QránufélagrsKÖtu 21
er opin frá kl. 10—6.
HVERGI ÓDÝRAR.
Guðr. Funch-Rasmussen.
gmfHffninnmtinj
I Rykfrakkar
karla, ódýrir.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Vefnaðarvörudeildin.