Dagur - 20.06.1940, Blaðsíða 3

Dagur - 20.06.1940, Blaðsíða 3
25. tbl. D A G U R 105 FinRland ris úr rúsfum. 1J. júní. Rœða Þórarins Björnssonar, á hátíða- höldum iþróttamanna hér, var sómi minningunni um Jón Sigurðsson. Og þó voru margir, sem létu sér fátt um finn- ast. En hvers virði er þá minningin um Jón Sigurðsson, ef hún nær dýpst til botns í sundlauginni hér og lengst þver- an knattspymuvöllinn? Starf forsetans var bundið frelsi, rétt- laeti og menningu. Þess vegna varð hann óskabarn Islands. Þess vegna er minn- ingin um hann gimsteinn í hugum ís- lenzks almennings. Þeir, sem skella við skollaeyrum þegar þessara nú fótum- troðnu hugsjóna er minnst, á fæðingar- degi forsetans, en æpa í hrifningu að fótatraðki og laugabusli, þeir brjótast enn um í þeim myrkraviðjum, sem Jón Sigurðsson leysti ættland þeirra úr, og eru að verða nátttröll á miðjum morgni hins frjálsa Islands. Hugmynd kristinna þjóða um réttlæti, hornsteinninn að starfi Jóns Sigurðsson- ar, er nú helmarin undir járnhæl her- valds og ógna í flestum, fyrr frjálsum, lýðríkjum Evrópu. Okkar eigin framtíð er óviss, en ennþá erum við frjálsir menn, jafnvel þótt erlent herlið hafist hér við. En einmitt vegna óvissunnar um framtfð komandi kynslóða, þarf að festa hugsjónir Jóns forseta um frelsi og rétt- læti í hugum allra ungra manna og kvenna þessa lands. Barátta mannkyns- ins, til menningar og fullkomnunar, hefir fyrr verið heft, en menningin lifir meðan Hin ógurlega sókn Þjóðverja 1 Frakklandi leiddi til þess, að Parísarborg gafst upp síðastl. föstudag og féll í hendur óvin- anna bardagalaust. Síðan hafa hersveitir Þjóðverja sótt óðfluga fram suður eftir Frakklandi og rofið Maginotlínuna á ýmsum stöðum, þar sem þeir hafa getað ráðizt á hana bæði að austan og vestan. Reynaud, forsætisráðherra Frakka, ávarpaði Roosevelt Bandaríkjaforseta í ræðu og kvaðst í síðasta sinn biðja um hernaðarlega hjálp Bandaríkj- anna, „svo að bjarga mætti Frakk- landi, heimsmenningunni og lýð- ræðinu“. Svar Roosevelts við beiðni Reyn- auds var á þá leið, að Bandaríkin myndu margfalda hergagnasend- ingar til Bandamanna, en það væri ekki á valdi forsetans að veita að öðru leyti beina hernað- arlega hjálp. Eftir að þetta svar hafði borizt, sagði Reynaud-stjórnin af sér. Var þá mynduð ný stjórn í Frakklandi undir forystu hins aldraða herfor- ingja Petains marskálks. Hið fyrsta verk hins nýja forsætisráð- herra var að snúa sér til Hitlers og biðja hann um „heiðarlegt vopnahlé", eins og samið er milli hermanna eftir bardaga. Jafn- framt var það fram tekið, að Frakkar myndu aldrei fallast á skilyrðislausa uppgjöf. frjáls andi lifir; ef hann deyr og þræls- andinn einn ríkir, þá er allt tapað. Öm- urlegast er það því, þegar ungir menn og konur snúa baki við hugsjónum Jóns forseta, en færa daglegar fórnir á altari ofbeldismannanna. Utan úr heimi berast fregnir um yfir- vofandi hrun Frakklands. Bretland stendur þá eitt eftir í baráttunni fyrir lífi sona sinna, smáþjóðanna í Evrópu og þeirra hugsjóna, sem einkenndu starf Jóns forseta og báru málstað íslands fram til sigurs. Meðan einræðisríkin sameinast í hernaði og grímuklæddu hlutleysi, eru lýðræðisrikin sundruð og ósamtaka í vörninni gegn þeim örlögum, sem bíða þeirra allra, ef Bretinn fellur í valinn. Hvað verður það lengi? Sautjándi júní er helgaður minningu Jóns Sigurðssonar. Aldrei fremur en þá var stund til þess að sameinast og hylla þær hugsjónir, sem einkenndu líf hans og eru stoðir íslenzks frelsis og íslenzkr- ar menningar. Aldrei fremur en þá, var stund til þess að óska þessum hugsjón- um sigurs í þeirri baráttu, sem nú er háð. Og kannske er sú stund ekki eins óra- langt í burtu, eins og margir halda, þeg- ar þeir menn, sem dýrka upphafsmenn þessara blóðsúthellinga eins og skurð- goð, og þeir sem eiga ekki meiri sann- færingarkraft en svo, að hann dinglar eins og pendúll í klukku, eftir því sem lukkunnar hjól snýst á vígvöllunum, líta til baka með hinum, og minnast þess með hryllingi að sagan getur endurtekið sig. Æfisaga Napoleons var eitt sinn skráö þannig: Tíu miljónir dauðra og stytt landamæri. Hitler var ekki viðbúinn að svara beiðninni um vopnahlé, því hann kvaðst áður þurfa að tala við Mussolini um hið breytta við- horf. Á þriðjudaginn hittust svo þess- ir tveir einræðisherrar í Miinchen og ræddust við. Eftir þá viðræðu var tilkynnt, að fullt samkomu- lag hefði orðið á milli þeirra um það hvernig snúast skyldi við vopnahlésbeiðni Frakka, en engar upplýsingar munu enn vera birtar um það, í hverju þetta samkomu- lag sé fólgið. Afstaða þýzku blaðanna í garð Frakka er sögð mjög kuldaleg. Bersýnilegt er, að móðurland lýðræðisins, Frakkland, er nú í hinum mestu nauðum statt, er nokkurntíma hafa yfir það komið. Bretar hafa boðið Frökkum að stofna brezkt-franskt sambands- ríki, en því munu Frakkar hafna. „Við munum berjast áfram, og að lokum mun allt fara vel“, segir Churchill. □ Rún 59406247 - Frl. Atkv. Hjartans þakkir til allra þeirra, er auðsýndu mér samúð og hlut- tekningu við andlát og jarðarför móður minnar, Sigurbjargar Frið- bjamardóttur. puríður Sigurðardóttir, Lækjargötu 22. Finnland er nú horfið í skugga hinna stóru viðburða í Evrópu. En ennþá heyja Finnar baráttu fyrir lúnd sitt með engu minna harð- íengi en í vörninni gegn innrás Rússa. Viðreisnarstarfið er jötunvaxið. Hinar gegndarlausu loftárásir á borgir og þorp, jafnvel víðsfjarri öllum hernaðarstöðvum, skildu landið eftir hulið rjúkandi rústum og flakandi sárum. Þar við bættist svo ránsfengur Rússa, — tap auð- ugra héraða og borga. Hinn nýi utanríkismálaráðherra Finna, prófessor Rolf Witting, seg- ir um þetta í nýlegri grein í „The Finnish Trade Review; „Ennþá er varla hægt að meta til fulls tjón þjóðarinnar af völd- um stríðsskemmda og taps mikils- verðra héraða og borga, en það mun vera varlega áætlað að það nemi a. m. k. 20.000 miljónum finnskra marka. Til samanburðar má geta þess að allar þjóðartekjur Finnlands árið 1937 voru 24.000 miljónir marka. Meira en 10% af ræktanlegri jörð þjóðarinnar, 10% af iðnaðartækjunum og 17% af járnbrautunum, urðum við að láta af hendi. Ofan á þetta bætist svo það, að við verðum að koma nið- ur nú strax um 500 þúsund flótta- mönnum og útvega þeim tækifæri til sjálfbjargar. En þrátt fyrir þetta allt og marga aðra örðugleika örvæntum við ekki um framtíðina. Við treystum á gæði lands okkar til þess að græða öll þessi sár, og á óbilaðan kjark þjóðarinnar, fram- kvæmdaþrek og þrautseigan vilja hennar. Þessir eiginleikar allir hafa jafnan endurreist landið, eft- ir hvers kyns hörmungar, sem yfir okkur hafa dunið á ýmsum tímum í sögunni......“ Finnar hafa stundum verið nefndir samvinnuþjóðin, vegna þess hversu samvinnufélagsskap- urinn hefir staðið föstum fótum þar. í árslok 1938 var um 40% af verzlun þjóðarinnar í höndum samvinnufyrirtækja. Þessi tala hefir líklega hækkað síðan. Sap- vinnumenn biðu mikið tjón af völdum ófriðarins og endaloka hans, — landráni Rússa. Um þetta gefa eftirfarandi tölur nokkra vit- neskju: Með Viborg töpuðust mörg af glæsilegustu fyrirtækjum sam- vinnumanna. Þar á meðal nýjasta kornmylla sambandsins, S. O. K., og margar aðrar verksmiðjur þess. Framleiðsla þessara verksmiðja nam að verðmæti meira en 100 milj. marka árlega, eða 35% af heildar framleiðslumagni sam- vinnusambandsins. í Viborg hafði kaupfélagsskapurinn á Kirjálanesi einnig höfuðsetur. Stærsta félagið taldi um 13000 félagsmenn og hafði um 200 sölubúðir víðsvegar í héraðinu. Alls munu 30 kaupfé- lög hafa verið starfandi á þeim svæðum er Rússar tóku, með um 40.000 félagsmenn. Öll þessi frjálsu samvinnufyrir- tseki Qg allur árangurinn af starfi samvinnunnar á þessum slóðum, er nú tapaður samvinnuhreyfing- unni í heild sinni, og líklega lagð- ur undir hinn rússneska ríkis- rekstur, sem kommúnistar stund- um nefna samvinnufélagsskap, en er, eins og dr. Fay (dr. C. R. Fay, brezkur hag- og þjóðfélagsfræð- ingur) kemst að orði í bók sinni „Samvinnan heima og erlendis11, „eins ólífrænn og fjarri því að vera samvinna og dauðu sálirnar í skáldsögu Gogols að vera lifandi“. Með öðrum orðum, að þeir menn, sem eru þvingaðir til þess að vera meðlimir í þessum félögum, ráða álíka miklu um starf þeirra eins og galeiðuþrælar Rómverja um stefnu skipanna, til forna. Iðnaðartækin, sem féllu í hend- ur Rússa á Kirjálanesi eru töpuð úr baráttufylkingum samvinnu- manna. En samvinnan í Finnlandi lifir áfram, af því að Finnar eru menntuð og glæsileg þjóð, sem gefst ekki upp þótt í móti blási, og af því að þeir hafa unnið sér að- dáun og virðingu allra heiðarlegra manna hvar sem er. Finnar upp- skera nú árangurinn af þjóðar- orðstír sínum. Allar þær þjóðir, sem enn eru frjálsar og einhvers megnugar, senda þeim nú hjálp til ?ess að fullkomna hið mikla end- urreisnarstarf. Samvinnuhreyfing- in hefir lagt sinn skerf til endur- reisnarinnar. Alþjóðasamband samvinnumanna hefir safnað fé íjá samvinnufélögum um víða veröld til þessarar uppbyggingar. Saga Finnlendinga, kjarkur þeirra og dugnaður glæða vonir um að menningunni og frelsinu verði aldrei tortímt af óskapnaði ómenningarinnar, þótt lýðræðis- ríkin hafi lítinn byr í hinum hern- aðarlegu átökum, enn sem komið er. 17. jtini á flknreyri. íþróttaráð Akureyrar gekkst fyrir hátíðahöldum dagana 16. og 17. júní til ágóða fyrir væntanlega íþróttahússbyggingu hér í bæ. Fyrri daginn voru haldnar í- þróttasýningar á Þórsvellinum, og kepptu þar í knattspyrnu gamlir knattspyrnumenn, 40 ára og eldri. Þótti þetta ágæt skemmtun. Seinni daginn fóru hátíðahöld fram við sundlaugina. Var þar keppt í ýmsum sundíþróttum. Mesta skemtun vakti boðsunds- keppni 40 ára gamalla borgara og þaðan af eldri. Var Snorri Sigfús- son skólastjóri foringi annarar sveitarinnar, en Þorsteinn Þor- steinsson bæjarfulltrúi hinnar. Vann sveit Snorra keppnina. Einnig skemmti karlakórinn Geysir með söng, og Þórarinn Björnsson menntaskólakennari mælti skörulega fyrir minni Jóns Sigurðsson, Hóðorland lýðræðisins biður um hjálp, en fær hana ekki svo að gagni komi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.