Dagur - 05.02.1942, Page 3
Fimmtudagur 5. febrúar 1942
DAGUR
3
t Hjartanlega þakka éé öllum hinum mörgu fyrrverandi nemend- %
4 um minum, nær oá fjser, sem sendu mér. rausnarlega peningagjöf %
4» oé élöddu mi& á annan hátt á sextugsafmæli minu. Ennfremur §
É þakka éé öllum hinum, sem fjlöddu mié með heimsókn oé heilla- ¥
X skeytum sama dag. Huéheilustu haminéjuóskir minar íyléja öllum 4
T þessum vinum mínum í framtíöinni. Þetta er og mun veröa mér %
§ sólskinsblettur í heiði, sem mun orna mér í ellirmi. X
Hafiö öll hjartans þökk. x
I GRÍMUR GRÍMSSON, i
fyrrverandi skólastjóri í Olafsfirði, <|
$^><$*Sk3x$x$><$x$x$>3x$>3><$x$^><£<$#<S><$h$><Sk^k£>Sx^<Sx$><S><$x$x^x$><^<Sx$x3x$<$x$*^®><^<£3x$3x$xS>3
Litla dóttir okkar, Arma Inger, andaðist aðfaranótt 29.
jan. s. 1. — Jarðarförin er ákveðin laugardaginn 7. febr.
n. k. og hefst með húskveðju ó heimili okkar, Hlíðargötu
8, kl. 1 e. h.
Brynhildur og Brynjar Eydal.
Það tilkynnist ættingjum og vinum, að jarðarför
mannsins míns og föður, Magnúsar Oddssonar, er and-
aðist 27. jan. s. 1., fer fram föstudaginn 6. þ. m. og hefst
með húskveðju frá heimili hins látna, Norðurgötu 26, kl.
1 eftir hádegi.
Ólöf Árnadóttir. Jónatan Magnússon.
Akureyrarbær.
Tilkynning.
Ár 1942, hinn 29. janúar, framkvæmdi notarius publicus í
Akureyrarkaupstað fyrsta útdrátt á skuldabréfum bæjarsjóðs
Akureyrar fyrir 6% láni bæjarsjóðsins til raforkuveitu frá
Laxárvirkjun. — Þessi bréf voru dregin út:
Litra A: nr. 11 - 21 - 50 - 52 - 70 - 76 - 96 - 109.
Litra B: nr. 3 - 5 - 6 - 19 - 40 - 53 - 84 - 99.
Litra C: nr. 9 - 30 - 54 - 153 - 172 - 251 - 257 - 275 - 295
331 - 346 - 355 - 377 - 403 - 450 - 477 - 483 - 496 - 530
533 - 535 - 539 - 553 - 555 - 581 - 623 - 640 - 651 - 667
673.
Skuldabréf þessi verða greidd á skrifstofu bæjargjaldkerans
á Akureyri þann 1. júlí 1942.
Bæjarstjórinn á Akureyri, 29. janúar 1942.
STEINN STEINSEN.
Akureyrarbær.
Tilkyiming.
Ár 1942, hinn 29. janúar, framkvæmdi notarius publicus í
Akureyrarkaupstað hinn árlega útdrátt á skuldabréfum bæjar-
sjóðs Akureyrar fyrir 6% láni bæjarsjóðsins til raforkuveitu
frá Glerárvirkjun. — Þessi bréf voru dregin út:
Litra A: nr. 24 - 64 - 90 - 98 - 120 - 137 - 141 - 154 - 155.
Litra B: nr. 5 - 24 - 83 - 104 105.
Litra C: nr. 25 - 43 - 46 - 47 - 72.
Skuldabréf þessi verða greidd á skrifstofu bæjargjaldkerans
á Akureyri þann 1. júlí 1942.
Bæjarstjórinn á Akureyri, 29. janúar 1942.
STEINN STEINSEN.
Auglýsing
uin verðlagsákvæði.
Verðlagsnefnd hefir, samkvæmt heimild í lögum nr. 118, 2.
júlí 1940, ákveðið hámarksálagningu á timbur sem hér segir:
1. Allur algengur hús- og skipaviður, svo sem fura, grení,
eik (skipaeik), pitch pine og oregon pine........... 22%
2. Krossviður, gabon og masonite........................ 22%
3. Allur annar viður.................................... 27%
4. Sé viður úr 1. flokki keyptur hingað fullþurrkaður,
skal gilda sama álagning, en sé hann þurrkaður hér,
má reikna 10% aukaálagningu, eða samtals............ 32%
Ef byggingarvöruverzlun kemur fram sem heildsali gagnvart
annarri verzlun og þurfi af þeim ástæðum að skipta álagning-
unni, má heildsöluverzlunin (innflytjandinn) reikna 3% um-
boðslaun umfram ofangreinda hámarksálagningu, og láta þann-
ig koma til skipta þeim mun hærri álagningu milli hlutaðeig-
andi verzlana. Þessa aukaálagningu má innflytjandi þvx aðeins
reikna, að varan sé seld í annað verzlunarumdæmi og vitað sé,
að sá aðili, sem kaupir, hafi þar opna verzlun með bygginga-
vörur.
Ákvæði þessi skulu gilda um allt það timbur, er komið hefir
og kemur til landsins eftir fyrsta janúar 1942.
Jafnframt fellur niður auglýsing um verðlagsákvæði, dags.
12. sept. s. 1., að því er snertir timbur.
Þetta birtist hér með öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Viðskiptamálaráðuneytið, 16. janúar 1942.
Nýja Bíó
sýnir í dag kl. 6:
UPPREISNIN Á ÞRÆLA-
SKIPINU.
kl. 9:
LEYNDARMÁL
LÆKNISINS
Föstudaginn kl. 6 og 9:
SVIPTUR MÁLAFLUTN-
INGSLEYFI
Laugardaginn kl. 6 og 9:
LEYNDARMÁL
LÆKNISINS
Sunnudaginn kl. 3:
SMÁMYNDIR (barnasýning).
kl. 5:
MAÐURINN FRÁ DAKOTA
kl. 9:
SVIPTUR MÁLAFLUTN-
INGSLEYFI
Mánudaginn kl. 9:
MORÐGÁTAN
Bursfavörur
í miklu úrvali.
Vöruhús Akureyrar.
Kaupfél. Eyfirðinga
Járn- og glervörudeild.
samkeppnisfær við atvinnu-
rekstur annarra þjóða á því
sviði. Þeim hafði einnig tekizt
að efla landbúnaðinn svo, að
hann stóð á sama stigi og land-
búnaður Dana í lok 19. aldar.
Strax eftir hemámið bar nýtt
að höndum. íslendingar, sem
frá alda öðli höfðu orðið að
sætta sig við það vinnufram-
boð, er vinnumarkaður lands-
manna gat veitt þeim, fá nú
allt í einu vinnutilboð frá nýj-
um aðila, þar sem þeir geta
ausið upp peningunum, svo að
hver almennur daglaunamaður
hefir nú yfir meira fé að ráða
en efnamenn fyrir styrjöldina.
Atvinnuleysing j amir taka
vinnu þessari með þökkum.
Margur axlabreiður sjómaður
hættir að beita skipi sínu upp
í vindinn, bóndinn hleypur frá
orfinu, einmitt þegar búskapur-
inn er að komast í sæmilegt
horf og litli íslenzki prangarinn
fitnar og ávaxtar sína talentu
dyggilega af ágóða hinna. Allir
gerast þeir auðmjúkir þjónar
hinna nýju atvinnuveitenda, og
fé það, sem þeir ausa upp, er
hvergi sparað, þá er þeir kaupa
allan þann munað, sem sendur
er hingað í ruslakompur stríðs-
gróðamannanna. íslenzkar kon-
ur bera nú yzt og innst gljáandi
og skræpóttan silkifatnað, ís-
lenzkir herrar verða frægir fyr-
ir óhófleg fatakaup erlendis, og
sum íslenzk börn hafa nú á
milli handanna leikföng, sem
kosta meira en það, sem marg-
ur hafði til þess að fleyta fram
lífinu fyrir stríð. Þetta minnir
mig á sögur, sem ég hefi heyrt.
Sögur um fyrstu kynni villi-
manna og Norðurálfubúans.
Þar sem villimenn láta gull sitt
og gersemar í skiptum fyrir
glingur og verðlaust drasl hvíta
mannsins.
Ég vil, að íslendingar skilji,
að þeir mega ekki láta það gull
og þær gersemar, sem þeir eiga
—atvinnuvegi sína og atvinnu-
fyrirtaéki, fjöregg sitt og hyrn-
ingarstein undir lífsafkomu
sinni — fyrir skjótt unnin og
skammgóð uppgrip erlends
stríðsgróðafjár, því að þegar
allt kemur til kastanna, þá er
sjálfstæður og blómlegur at-‘
vinnurekstur aðalskilyrði til
þess, að þjóð okkar geti verið
sjálfstæð, og það veitir okkur
einnig skýlausastan rétt til
sjálfræðis, ekki síður en forn-
bókmenntir og þúsund ára
andleg menning.
Yfir ísland hefir aldrei runn-
ið önnur eins gullöld og nú.
Það má með réttu segja, að
hver maður hafi meira en þarí-
ir hans krefjast. Vandamálið er
því ekki skortur, heldur spurn-
ingin: kunna Islendingar að
hagnýta þau auðæfi, er þeim
hafa borizt upp í hendur, til
eflingar atvinnuvegum sínum
og til þess að búa svo í haginn,
að hér búi ríkari, sjálfstæðavi
og menntaðri þjóð eftir strlð en
fyrir.
Atvinnufyrirtækin, er ganga
heldur saman og sífelldur
straumur hins vinnandi fólks úr
sveitunum til bæjanna, sýnir,
að almenningur sér skammt í
máli þessu. Prangararnir, sem
hrópa á rýmra verzlunarfrelsi,
og að „allt verði gefið laust“,
benda á það, að miklum hluta
þeirra, sem fer með fé lands-
manna, er kærari auðfenginn
veltuauður, en hagur þeirra og
landa sinna.
Það má því segja, að síðasti
bakhjallurinn í þessu máli, sá
bakhjallur, sem ekki má bresta,
sé hjá þeim mönnum, sem fara
með völd þessa lands. En verk-
efni þeirra er nokkuð áþekkt
því, sem íslenzki bóndinn hafði
fyrr meir, er hann safnaði fyrn-
ingum fyrir bústofninn í góðær-
inu, til þess að búa sig unóir
hörðu árin. Valdhafarnir verða
að vinna á móti þeirri víxnu,
er sigið hefir á landsmenn, með
öllum þeim vopnum, er þeir
hafa, og beita öllum kröftum
til að búa svo í haginn, að auð
þeim, sem nú berst inn í land-
ið, sé veitt til eflingar atvinn-
fyrirtækjum landsmanna, land-
búnaði þeirra og til þess að
tryggir markaðir séu unnir fyr-
ir afurðir og iðnaðarvörur
þeirra, þannig, að í staðinn fyr-
ir að standa með stríðsgróðann
fokinn á braut og atvinnufyrir-
tækin í rústum að stríðinu
loknu, þá eigum við efld at-
vinnufyrirtæki og betri aðstöðu
til þess að veita öllum landslýð
vinnu og brauð en fyrir stríð.
Þetta er stærsta vandamál
okkar Islendinga nú sem stend-
ur, og lausn þess verður þung
á metunum, er vega skal, hvort
við erum menningarþjóð eða
ekki.
Flestar þjóðir láta nú ein-
staklingshyggjuna víkja fyrir
heildarhag, af því að þörfin
knýr þær til þess. Því skyldum
við ekki einnig geta það. Hver
veit, nema að við séum einmitt
nú að heyja þá ströngustu bar-
áttu, er við höfum ennþá háð
fyrir frelsi voru og sjálfstæði?
Gætum við því ekki látið
niður falla alla klíku- og eigin-
hagsmunapólitík, sem fyllir
málgögn landsmanna af auð-
virðilegu moldryki um smá-
vægilega hluti, sem ekkert
snerta hin sönnu hagsmunamál
íslendinga?
Gætum við ekki samið með
okkur grið á meðan þessi ógn-
aröld geysar, og fylkt okkur um
hagsmuni heildarinnar?
Þjóð, sem hælir sér af forn-
um bókmenntum og vill vera
menntuð þjóð — þjóð, er hefir
þolað „áþján, nauðir, svarta-
dauða“ — þjóð, sem eitt sinn
átti syni, er mæltu við harð-
stjóra sína: „Vér mótmælum
allir,“ hlýtur enn að eiga fram-
sýni, samheldni og dug til þess
að bjóða hættunum byrginn og
sigra þær.
Sk.
• . ■ r * r ■ "■ -- -