Dagur - 26.03.1942, Page 6
6
Fimmtudaginn 26. marz 1942
ÚR BÆ OG BYGGÐ
□ RÚN 5942417 — Frl.
I. O. O. F. = 1233279 = 2
Messur í Akureyrarprestakalli:
Pólmasunnudag, Akureyri, kl. 2 e. h.
— Skírdag, Akureyri, kl. 2 e. h. —
Föstudaginn lánga, Akureyri, kl. 2. e.
h. — Páskadag, Lögmannshlíð, kl. 12
á hádegi, Akureyri kl. 2 e. h. — 2.
Páskadag, Akureyri, kl. 2 e. h.
Skíðamót (Iandsmótið) hefst vænt-
anlega hér í nágrenni bæjarins á
Skírdag. Er unnið af kappi að undir-
búningi mótsins.
Athuéasemd. Undir síðara erfiljóði
því, eftir Eymund Jóhannsson, er birt-
ist í síðasta tbl., átti að standa: Þ. Þ.
Afspyrnurok af suðri gekk hér yfir
s.l. sunnudag. Ekki er kunnugt um að
tjón hafi orðið af völdum þess hér í
bænum eða næsta nágrenni.
Héraössamband eyíirzkra kvenna
heldur skemmtisamkomu í þinghúsi
Öngulsstaðahrepps, að Þverá, laugar-
daginn 28. marz næstk., kl. 9 e .h.
Til skemmtunar verður: Gamanleik-
urinn Sumaréjöi Péturs og dans.
Kaffiveitingar á staðnum. — Aðeins
fyrir íslendinga.
Barnastúkan Bernskan heldur fund
í Skjaldborg n.k. sunnudag, kl. 2 e. h.
Barnastúkan Sakleysið heldur fund
n.k. sunnudag kl. 10 f. m. Kosinn full-
trúi á umdæmisstúkuþing. A-flokkur
skemmtir.
Saumanámskeið heldur Heimilis-
iðnaðarfélag Norðurlands á Akureyri
upp úr páskunum, ef nægileg þátttaka
fæst Umsóknir séu komnar fyrir
páska til frú Elísabetar Friðriksdótt-
ur, Eyrarlandsvegi 19, er gefur allar
nánari upplýsingar.
Hjónabönd. Ungfrú Valborg Jónas-
dóttir hárgreiðslumær, Akureyri, og
Svavar B. Björnsson verkstjóri, Hjalt-
eyri. Ungfrú Þórunn Baldursdóttir
símamær og Walther R. Petty, brezk-
ur hermaður.
Frá Húsavik. Framsóknarfélag
Húsavíkur hélt skemmtisamkomu að
kvöldi laugardagsins 21. þ. m. í sam-
komuhúsi þorpsins. Var samkoman
boðuð fyrir þá, sem fylgja Framsókn-
arflokknum að málum í Húsavík og
nærsveitum. Var samkoman mjög
f jölmenn og fór hið bezta fram. Ræð-
ur fluttu Karl Kristjánsson oddviti,
Friðrik A. Friðriksson prófastur og
Andrés Kristjánsson kennari. Karla-
kór Reykhverfinga undir stjórn Sigur-
jóns Péturssonar bónda í Heiðarbót
söng, og söngflokkur úr Reykjadal,
undir stjóm Páls H. Jónssonar á
Laugum, söng nokkur lög. Þá var
sýndur sjónleikur í 2 þáttum og -ð
lokum stiginn dans.
Dagur er 6 bls. í dag.
Nýtt heíti afWorinu, tímariti þeirra
kennaranna Hannesar Magnússor -r
og Eiríks Sigurðssonar fyrir börn -g
unglinga, er nýkomið út. Flytur þ-3
að vanda margbreytt og skemmtilegt
lestrarefni fyrir ungt fólk. Ritið :r
mjög ódýrt og hefir það þó stækkað
nú um áramótin.
Annáll 19. aldar, eftir séra Pétur
Guðmundsson í Grímsey, 1.—2. hefti
IV. bindis er nýkomið út. Nær það
yfir árin 1870—1874. Þetta mikla
safn frétta og þjóðfræða síðustu aldar
er víða skemmtilegt aflestrar og alls
staðar fróðlegt, og er þegar orðið
merkt heimildarrit um ýms efni. —
Bókaverzl. Edda hefir nú tekið við
útgáfu þess fyrir nokkru, svo sem
kunnugt er.
Símskák tefld á 3. borði í keppni
Akureyringa og Húsvíkinga fyrir
skemmstu.
Spanskur leikur. Hvítt Jóhann
Snorrason, Ak. Svart Árni Stefánsscn,
Húsavík:
1. e4—e5. 2. Rf3—Rc6. 3. Bg5—
a6. 4. Ba4—d6. 5. 0-0—Rf6. 6. c3—
Bd7. 7. Hel—Be7. 8. d4—exd4. — .
cxd4—0-0. 10. Rc3— He8. 11. h3—
h6. 12. a3—Ra7. 13. Bc2—Rh7. 14.
Dd3—Rf8. 15. Bf4—Rc6. 16. d5—
Ra7. 17. e5—dxe5. 18. Rxe5—Bd6.
19. Dg3—Bxe5. 20. Dxe5—f6. 21.
Bxc7—Dc8. 22. Re4—Kh8. 23. Rd6
—Dxc7. 24. RÍ7—Kgd. 25. Rxh6x.
Gefu* _______
DAGUR
♦ BWWh*jKhKHKKKhKKKKKKKKKhKhKH«KKHKKKKKKKKKKhKKKKKKKKKKí
Páskarnir nálgast.
Munið að panta yður í páska-
matinn í tíma.
ATHUGIÐ:
Á laugardag fyrir páska, verður pöntunum til heim-
sendingar aðeins veitt móttaka til kl. 1. Eftir þann
tíma verður ekkert sent heim.
KJÖTBÚÐ K.E.A.
*<*<*<*<*<*<*<*i>i*i*iíi*i*i*<*i*^^
Slægjuíönd bæjarins
— hólmamir — verða seldir á leigu í bæjarstjórnarsalnum mið-
vikudaginn 8. apríl n. k., kl. 2 síðdegis. Leigutími 2 ár.
Þeir, sem skulda fyrir slægjulönd, geta ekki vænzt þess, að
fá slægjur á leigu.
Bæjarstjórinn á Akureyri, 25. marz 1942.
Steinn Steinsen.
Iðgjöld
síðasta mánaðar og eldri, óskast greidd fyrir næstu mánaðamót.
SJÚKRASAMLAG AKUREYRAR.
Páskaskór
fyrir dömur og
herra.
Kaupið páskaskóna hjá oss.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Skódeild.
Nýja Bíó
Sfílabækui?
hinar amerísku með góða
skrifpappímum, 13, 16 og
19 línur á síðu,
ReikningabækKir,
rúðustrikaðar, eins og áður
voru notaðar, og
Vinnubókapappír
13 línu, 16 og 19, smá- og
stórrúðustrikaður, og
VINNUBÓKAKÁPUR
er nú aftur komið.
Bókaverzlun
Þ, Thorlacius.
Hafi§t handa . . .
Framh. af 1. síðu.
byggingar húsa fyrir gagnfræða-
skólann, húsmæðraskólann og
bókasafnið.
Nefndin hafði lagt til að haf-
izt verði handa á þessu vori um
byggingu húss fyrir Gagnfræða-
skólann og verði húsnæðið haft
svo við vöxt, að bókasafnið geti
fengið þar inni til bráðabirgða,
þar sem uppdrættir þeir, sem
liggja fyrir af væntanlegri bók-
hlöðu eru þannig gerðir, að þeg-
ar ráðizt verður í bygginguna
verður að gera hana alla í einu.
Nefndin taldi því, að þeirri
byggingu yrði að fresta um
stundarsakir.
Þá taldi nefndin heppilegast,
að húsmæðraskóli og gagn-
fræðaskóli yrðu byggðir hvor í
sínu lagi, en ekki hafðir í sömu
byggingunni. Nefndin lagði því
til, að hús fyrir gagnfræðaskól-
ann verði byggt á þessu ári og
að athugað verði hvort tök séu á
að reisa hús fyrir húsmæðra-
skólann í sumar. Fáist ekki fé
úr ríkissjóði til þess, vill nefndin
samt að húsmæðraskóli verði
stofnaður og bendir á, að fá
megi til afnota húsnæðið í
gamla barnaskólanum, þar sem
bókasafnið nú er.
Bæjarstjórnin samþykkti til-
lögur nefndarinnar í aðalatrið-
um. Ákveðið var þó að vísa til
bókasafnsnefndar því nýmæli
nefndarinnar, að bókasafnið fái
húsnæði í gagnfræðaskólabygg-
ingunni til bráðabirgða, og á-
kvörðun í því máli frestað.
Svohljóðandi ályktun var
samþykkt:
„Þar sem bæjarstjórnin hefir
samþykkt að hefja þegar bygg-
ingu gagnfræðaskóla, felur hún
bæjarstjóra að leita til Alþingis
sem nú situr, eftir lögboðnu
framlagi ríkissjóðs".
Með þessum aðgerðum er
byggingu húss fyrir Gagnfræða’-
skólann og Iðnskólann, sem var
aðkallandi nauðsynjamál, —
hrundið af stað og verða upp-
drættir og áætlanir að bygging-
anni væntanlega tilbúnir áður
an langt líður. Bókasafns- og
húsmæðraskólamálin eru óleyst
annþá, en líkur eru til, að bráða-
birgðalausn fáist í þeim málum
fljótlega.
Þá er hin mjög umtalaða
stækkun stöðvarinnar við Laxá
væntanleg, ef lán og leyfi fást
til mannvirkisins, og ólíklegt er,
að elíkt standi því fyrir þrifum.
HJARTANS þakklœti votta
eg kveníélaginu ,JBaldursbrá“
fyrir meðtekna perúngagjöf.
Cuðrún Hálfdánardóttir.
KARLMANNAFRAKKAR
KARLMANNAHATTAR
FATAEFNI
SPORTSKYRTUR
SPORTSOKKAR
FLIBBAR
nýkomið.
Kaupfél. Verkomanna
Vefnaðarvörudeildin
Hefi fengið NÝJUSTU gerð af
PernianenlvéL
sem hefir reynst afbragðs vel.
Hárgreidslustofan
Bylgj a.
Frá
luftvarnanefnd.
Framkvæmdastjóri nefnd-
arinnar Eggert St. Melstað
hefir viðtalstíma kl. 12,30
til 1,30. Sími 115.
til sölu um næstu helgi.
Upplýsingar gefur
SIGURJÓN RIST,
Hlíðargötu 7.
1.—2. hefti IV. bindis
Annáls 19. aldar
komið út.
Bókaverzlun Eddu,
Brekkug. 7, Akureyri. Sími 334.
WKHKHKHKHttHKKKHWHKHKHMHWH>
NÆRFÖT,
karla.
NÁTTFÖT
á unglinga.
Pöntunarfélagið.
<HKHKHKHKKKKKKKKKKKKKKKKH>f
Verzl. Livcrpool
R. Söebech.
í símskeyti rafmagnsstjóra er
ekki getið um afgreiðslutíma
vélanna, en nánari greinargerð
frá honum mun vera á leiðinni
og liggur málið þá ljósar fyrir.
„Dagur“ mun innan skamms
rseða þessi mát öll nánar.
sýnir í dag kl. 6: '
Primadonna.
Kl. 9:
Blaðamaðurirm, sem vissi
of mikið.
Föstudaginn kl. 6 og 9:
Mirmisstæð nótt.
Laugardaginn kl. 6 og 9:
Blaðamaðurirm, sem vissi
of mikið.
Sunnudaginn kl. 5:
Primadonna.
Kl. 9:
Minnisstæð nótt.
KAUPUM
V2 flöskur og
meðalaglös.
STJÖRNU APÓTEK
K.E.A.
Telpu,
12—14 éra, vantar mig i vor
og sumar.
SNORRI PÁLSSON, Holtagötu 5,
Handofnu treflamir og
tvíbanda vettlingamir.
Gott í kuldanum.
Hannyrðaverzlun
Ragnh. O. Björnsson.
Í$$Í$$$$$$$$$Í$$$$$$$$$$$$$$Í$K$*«$«