Dagur - 13.08.1942, Blaðsíða 1
Vikublaðið DAGUR
Ritstjórar: INGIMAR EYDAL,
JÓHANN FRÍMANN.
Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta:
Jóhann Ó. Haraldsson.
Skrifstofa við Kaupvangstorg.
Simi 96.
Árgangurinn kostar kr. 8,00.
Prentverk Odds Björnasonai.
Fréttir fré
N opöurlönd-
um
T TÍMARITI Amerísk-Skandinavísku
stofnunarinnar í New York, er frá var
skýrt í síðasta blaði, er m. a. sagt svo frá
Svíþjóð.
— Á síðastliðnu vori var opnaður til
umferðar nýr kafli rafmagnsjámbrautar.
Svíar eiga nú meira af rafmagnsknúðum
járnbrautarlestum og lengra kerfi raf-
magnsjámbrauta en nokkur þjóð í Ev-
rópu, nema ítalir. Rafmagnsknúðar járn-
brautarlestir ganga nú frá Tralleborg,
syðst í landinu, að Riksgransen við
landamæri Noregs, og þaðan aflt norður
að heimskautsbaug. Þessi vegalengd öll
er 2022 kílómetrar. Þessar framkvæmdir
spara þúsundir smálesta af kolum árlega.
Hin nýja 5 ára landvarnaráætlun kom
til umræðu í Ríkisþinginu 9. april s. 1.
Þar er ráðgert, að Svíar verji 755 millj.
króna til landvarna á ári hverju í þessi
fimm ár. Þessi nýja áætlún tekur við af
10 ára áætluninni frá 1936, en sam-
kvæmt henni skyldi verja 147 milljónum
króna á ári til landvamanna. Fyrri á-
ætlunin kvað svo á, að af þessari fjár-
hæð skyldi landherinn fá 55%, flotinn
27% og flugherinn 18%. í hinni nýju
áællun er landhemum ætlað að fá 45%,
flotanum 19% en flughernum 36%.
Sórstök nefnd, er undirbjó áætlun
þessa, lagði til að herinn fengi stærri
skriðdreka, stærri stórskotabyssur, meira
af and-skriðdrekavopnum, og að f jórum
fótgönguliðs- og riddaraherfylkjum yrði
breytt í vélbúnar sveitir. Flotinn á að
fá a. m. k. einn 1800 smálesta tundur-
spilli og 7000 smál. beitiskip til viðbótar
við þau tvö, sem byrjað var á árið 1940.
Gautaborg verður gerð að flotahöfn og
strandvamimar verða mjög auknar og
styrktar þar að auki. Sex nýjar flug-
deildir verða stofnaðar.
Frá Danmörku er m. a. sagt svo: . . .
Thorvald Stauning, forsætisráðherra,
andaðist svo sem kunnugt er, hinn 3.
maí s. 1. Konungur skipaði fjármálaráð-
herrann, Vilhelm Buhl, til þess að taka
við embætti forsætisráðherra og gegnir
hann því starfi ennþá. Buhl er sagður
vera „sterkur" maður, sem ekki muni
fús á að láta sveigja sig eða stjómina til
samvinnu við Þjóðverja, frekar en orð-
ið er. Þó er enganveginn hægt að full-
yrða, að þessi breyting á stjóm landsins
kunni ekki að hafa ýmislegt í för með
sér. Því að ekki er nokkur vafi á, að
innan dönsku stjórnarinnar er litill hóp-
ur tækifærissinna, sem trúa á þýzkan
sigur og sjá persónulegan frama búinn
sér og sínum með algerðri samvinnu við
Þjóðverja. En það er ekki ofáætlað, að
99% af þjóðinni, — og þar með vonandi
talinn Buhl forsætisráðherra, séu alger-
lega andvígir Þjóðverjum og „nýskipun"
þeirra.
Hættumerki
gerast tíd
Sl. þriðjudag um kl. 5, var gef-
ið aðvörunarmerki um loftárás-
arhættu hér í bænum og stóð í
tæpa klukkustund.
Enn sem fyrr eru engar upp-
lýsingar að fá um ástæðuna, en
ýmsar sögur ganga manna í
milli um þýzkar flugvélar í
norðri og suðri. Er þetta þagn-
arfyrirkomulag yfirvaldanna
vægast sagt óhafandi og von-
andi má vænta breytinga á því.
Það væri áreiðanlega til bóta
fyrir alla aðila.
XXV. árg.
Akureyri, fimmtudaginn 13. ágúst 1942
44. tbl.
Gunnar Jónsson sjúkrahússgjaldkeri;
Vfsitala oy verðlag
Er ufsitalan rétt? OtreiRnlngur ueritiagsuppiiðtariiinar
ætti að uera birtur almenningi a. m. k. 4 sinnum í
ðri. suu al stður uerðl um iiann ðeiit
Síðan gengishækkunin var
staðfest og stríðið hófst, hefir
eins og kunnugt er allt verðlag
í landinu hækkað mjög mikið.
Til þess að launþegar stand-
ist kaup á lífsnauðsynjum, hef-
ir verið fundin út hlutfallstala,
sem á að vera í réttu hlutfalli
tala þessi of lág — dýrtíðar-
þunginn svo mikill, að þeim, sem
sjá þurfa fyrir mörgum í heim-
ili, finnst þröngt í búi.
Eg vil í þessu sambandi !
birta verðlagstöflu þá, sem hér
fer á eftir, til þess að hver og
einn geti séð verðsveiflur þær,
við dýrtíðina. Hlutfallstala þessi sem orðið hafa síðan 1. jan.
er nú 83% og er hún greidd 1938 til 1. jan. og 1. ágúst
sem kaupuppbót á grunnlaun 1942.
allt að kr. 650.00 á mánuði. Vöruverð það, sem birt er
Nú finnst mörgum hlutfalls- hér, er smásöluverð á Akureyri. Hækkun
1 jan. 1938 l.jan. 1942 1. ág. 1942 prósentvis
Rúgmjöl 0.30 0.58 0.62 101%
Hveiti 0.43 0.74 0.68 55%
Hrísgrjón 0.38 1.34 1.34 253%
Sagogrjón 0.80 2.10 1.96 145%
Hafragrjón 0.42 0.85 0.97 131%
Kartöflumjöl 0.55 1.80 1.50 173%
Baunir 0.52 1.33 1.33 156%
Rúgbrauð 0.55 0.90 63%
Hveitibrauð 0.45 0.64 44%
Jarðepli 0.35 0.75 0.75 114%
Gulrófur 0.25 0.75 0.75 200%
Kandís 0.80 2.80 2.80 250%
Melís 0.56 1.22- 1.38 129%
Strásykur 0.48 0.97 1.36 183%
Kaffi óbr. 2.40 3.40 4.40 83%
Kaffibætir 2.70 4.50 5.20 93%
Kako 2.70 6.20 6.20 130%
Te 10.00. 15.00 15.00 50%
Smjör 3.80 11.50 14.40 280%
Smjörlíki 1.60 3.68 3.68 130%
Tólg 1.80 5.50 5.50 206%
Nýmjólk 0.30 0.70 0.93 210%
Mysuostur 1.25 2.85 3.80 204%
Mjólkuro. (30%) 2.50 6.30 8.50 240%
Egg 3.00 12.00 10.80 260 %
Nautakjöt 1.50 3.50 5.00 233%
Kálfakjöt 0.90 2.00 3.00 233%
Kindakjöt 1.55 4.00 6.00 288%
Hangikjöt 2.00 5.50 6.00 200%
Kæfa 2.00 5.00 7.00 250%
Kristalssápa 0.90 2.30 3.00 233%
Steinolía 0.30 0.54 0.54 80%
Kol 0.53 1.45 1.45 174%
Fiskur, óslægður 0.15(þorskur) 0.60 300%
Þótt nú tafla þessi gefi rétta
hugmynd um verðhækkun
hinna ýmsu lífsnauðsynja, þá
sýnir hún ekki glöggt, hvaða
áhrif verðhækkun þessi hefir t.
d. á hinn daglega fæðiskostnað.
Til þess að sjá glöggt hvaða
áhrif verðhækkun þessi hefir á
dagfæðið, verður að finna út
hvað mikið magn er af hverri
tegund í fæðinu. Vil eg í því
sambandi birta hér sundurlið-
aðan fæðiskostnað sjúkrahúss-
ins á Akureyri 1938. Má af
honum nokkuð marka niður-
reikna síðan hækkun þess hluta
vísitölunnar út frá því. Eru
samanlagðar fæðistegundirnar
hið umrædda ár 127,5 aurar á
dag samkv. eftirfarandi töflu:
(Framhald á 3. síðu).
ilýr sendinerra
Mr. L. B. Morris hefir verið
skipaður sendiherra Bandaríkj-
anna á íslandi, í stað Lincoln
MacVeagh. Mr. Morris var
sendifulltrúi Bandaríkjanna í
Berlín þangað til í desember s.l.
Mun hann væntanlegur hingað
röðun fæðistegundanna
og
innan skamms,
tlmræður um hosnæðismði-
in t bæjarsfjðrn
Fjðrbagsnðlnd heimilað að
reisa 10 tbOðlr
Bæjarstjórn hélt fund s.l.
þriðjudag. Helzta mál fundarins
var húsnæðiseklan í bænum. —
Var samþykkt tillaga frá Árna
Jóhannssyni, svohljóðandi:
„Bæjarstjórnin heimilar bæj-
arstjóra og fjárhagsnefnd að
láta reisa á kostnað bæjarins
og ákveða lóð með samþykki
bygginganefndar, einnar hæðar
sambyggingu með innréttuðum
allt að 8 íbúðum, sem verði eitt
stórt herbergi. og eldhús og 2
íbúðum með 2 herbergjum og
eldhúsi“.
Er ráðgert, að framkvæmdir
séu hafnar nú þegar og hraðað
svo sem frekast er unnt.
Timbupfarm-
up kominn til
landsins
Undanfarnar vikur hefir ver-
ir mjög tilfinnanlegur skortur á
timbri í landinu og hafa bygg-
ingaframkvæmdir víða um land,
t. d. hér á Akureyri, stöðvast af
þeim sökum. Nú er von um að
TJndaniarna daga hefir siaðið yiir
mikil sjóorusta við Salomonseyjar,
milli amerískra og brezkra herskipa
annarsvegat og japanskra hinsvegar,
en Bandaríkjamenn hafa gengið á
land á eyjunum og heyja þar snarpar
orustur við Japani. — Ekki er kunn-
ugt ennþá um skipatjón í orustunni.
Myndin sýnir bryndrekarm „King
George V.“, 35000 smál. orustuskip.
úr þessu rætist í bráð a. m. k.
Timburfarmur til Sís er kom-
inn til landsins og væntanlega
kemur timbur hingað norður
næstu daga.
50 íbúðarhús í smíðum
Þetta eru 100% meiri byggingaframkvæmdir en
íyrir stríö, — en 20 fjölskyldur eru samt húsnæðis-
lausar.
Fimmtíu íbúðarhús eru í
smíðum hér í bænum í sumar,
að því er byggingafulltrúi bæj-
arins hefir tjáð blaðinu. Árið
1941 voru byggðar hér um 30
íbúðir, en fyrir stríðið voru
Frð tsi. nðmsmðnnum
r ðmertbu.
Halldór Þorsteinsson stúdent
héðan frá Akureyri, er nú
stundar nám við háskólann í
Berkeley í Californíu, hefir á
prófi nú í vor hlotið hæstu eink-
unn, sem hægt er að taka í
spönsku, og var eini stúdentinn
er hlaut svo háa einkunn í
þeirri námsgrein. Aðalnáms-
grein Halldórs í skólanum er
hinsvegar franska, og hlaut
hann einnig svo háa einkunn í
þeirri námsgrein, að hann varð
heiðursstúdent, en það er nafn-
bót, sem veitt er stúdentum
vestra, er hljóta mjög háar eink-
unnir. — Halldór er sonur Þor-
steins M. Jónssonar skólastjóra
hér í bæ.
byggðar hér 25 íbúðir á ári,
að meðaltali. Þrátt fyrir þessar
stórauknu byggingafram-
kvæmdir eru húsnæðisvand-
ræði með mesta móti á komandi
hausti. Munu um 20 fjölskyldur
með 79 manns á framfæri sínu
telja sig húsnæðislausar 1.
október og hafa leitað aðstoðar
bæjarins. Þess ber þó að geta,
að mörg af þeim húsum, sem nú
eru í smíðum munu ekki tilbú-
in til íbúðar fyrr en í vetur eða
næsta vor. Má því vera að eitt-
hvað rætist úr húsnæðisvand-
ræðunum þá. Það er þó engan
veginn öruggt, þar sem reynsl-
an hefir sýnt, að hinar árlegu
byggingaframkvæmdir hafa
vart nægt til þess að leysa hús-
næðismál bæjarbúa allra.
Hernaðaraðgerðir fyrir Vest-
fjörðum?
Samkvæmt símtali við Ingólfsfjörð
í gær, hafa rekið þar 2 lík hermanna
undanfarna daga. Ekki er vitað með
vissu um þjóðerni þeirra. Ekki höfðu
heimamenn þar orðið varir við neitt
óvenjulegt þar úti fyrir síðustu daga.