Dagur - 13.08.1942, Blaðsíða 4
4
Fimmtudaginn 13. ágúst 1942
ÚR BÆ OG BYGGÐ
Kirkjan. Messað verður í Akureyr-
arkirkju næstk. sunnudag kr. 2 e. h.
Nýtt iSnfyrirtæki. Nýlega hafa
nokkrir vélsmiðir hér í bænum stofn-
að fyrirtæki, sem nefnist Véla- og
plötusmiðjan Atli h.f. Smiðjan er til
húsa þar sem áður var Vélaverkst.
Júní, eign Snæbjamar Magnússonar,
á Oddeyrartanga. Vélsmiðjan Atli tók
til starfa 1. júlí s.l. og hefir þegar
meira en nægileg verkefni til þess að
vinna úr. Smiðjan er þegar mjög
sæmilega vel búin að vélum og
áhöldum og tjáði einn eigendanna
fréttaritara blaðsins, að unnið væri
að því að útvega nýrri og fullkomnari
tæki. Húsakynnin eru ennþá nokkuð
þröng, en úr því er ætlun þeirra að
bæta eins fljótt og auðið er.
Hjónaefni. Ungfrú Áslaug Einars-
dóttir, verzlunarmær og Haraldur
Helgason, verzlunarmaður hjá K. E.
A., hafa nýlega opinberað trúlofun
sína.
Vegna stórfelldrar hækkunar á út-
gáfukostnaði, einkum prentun, hefir
blaðið orðið að hækka auglýsingaverð
í kr. 3.00 pr. dálksentimetra.
Guðsþjónustur í Grundarþinéa-
prestakalli. Kaupangi, sunnudaginn
16. ágúst, kl. 2 e. h. — Munkaþverá,
snnudaginn 23. ágúst, kl. 1. e. h. —
(Safnaðarfundur). — Hólum, sunnu-
daginn 6. sept., kl. 1 e. h. — Saurbæ,
sunnudaginn 23. ágúst, kl. 1 e. h. —
Möðruvöllum, sama dag, kl. 3 e. h. —
Grund, sunnudaginn 20. sept., kl. 1
e. h.
Dánardægur. Aðfaranótt s.l. mánu-
dags andaðist að heimili sínu, Hlíð-
argötu 1 hér í bænum, Bergljót Sig-
urðardóttir, öldruð sæmdar- og dugn-
aðarkona.
Athygli skal vakin á auglýsingu
Hreiðars Stefánssonar kennara hér i
blaðinu. Kennir hann í vetur ungum
börnum, aðallega 6—7 ára gömlum,
og mun nota hinar nýjustu kennslu-
aðferðir í þeirri grein, þar sem hann
lauk kennaraprófi í Rvík s.l. vor.
Nýja Bíó
sýnir í kvöld kl. 9:
FLÓÐBYLGJ AN.
Föstudaginn kl. 6 og 9:
EKKJA
AFBROTAM ANNSIN S.
Laugardaginn kl. 6 og 9:
FLÓÐBYLG J AN.
Sunnudaginn kl. 3:
NÝLIÐARNIR.
Kl. 5 og 9:
EKKJA
AFBROTAM ANN SINS.
Mánudaginn kl. 9:
BLÓÐ OG SANDUR.
Mixsnæði
Barnlaus hjón óska eftir íbúð
(2—4 herbergi og eldhús) í ný-
legu húsi, frá 1 okt. næstk. —
Fyrirfram greiðsla og afnot af
síma. — Ritstj. I. EYDAL
vísar á.
smðbarnasHðla
starfræki eg hér í vetur. Þeir
sem hafa í hyggju, að koma
börnum til mín, tali við mig
fyrir haustið. Kenni eftir
hljóðlestraraðferðinni.
HREIÐAR STEFÁNSSON,
kennari, Eiðsvallagötu 30.
DAGUR
Nokkrar stúlkur
vanar karlmannafata- eða kápusaum, eða sem
vildu læra slíkan saum, geta komizt að á sauma-
stofu vorri nú þegar, eða síðar, eftir samkomulagi.
Ennfremur er hægt að bæta við nokkrum
stúlkum, sem vildu sauma buxur í heimahúsum.
Nánari upplýsingar í síma 305 eða hjá klæð-
skerameistara stofunnar Ólafi Daníelssyni.
SAUMASTOFA GEFJUNAR.
Gasluktir
OLÍULAMPAR
nægar birgðir.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Járn- og glervörudeild.
Stúlka
getur fengið atvinnu við verzl-
unarstörf nú þegar. — Upplýs-
ingar í síma 356.
Hrífuhausar
ÞVOTTASNÚRUR
BLÁSTEINN
BURSTAVÖRUR
Vöruhús Akureyrar
Nýtt
NÁTTFATASATIN
BLÚSSUR
KJÓLAR
DRAGTAREFNI
TREFLAR
(hvítir og misl.)
BLÚNDUKLÚTAR
VERZLUN
Guðiöns Bernharðssonar
_________SKIPAGÖTU 1
BÓKAFREGNIR
Varnarmál, Nr. 3., apr.
1942. Útg. Ármann Sig-
urðsson.
Rit þetta er talið hafa inni að
halda ýmis erindi og hugleiðingar, er
„vorir mestu fræðimenn tala frá öðr-
um heimi“, og borizt hafi hingað fyr-
ir milligöngu hjónanna vestur-
heimsku, Guðlaugar og Jóhannesar
Frímann. Tala þarna til lýðsins vms-
ir höfuðskörungar, allt frá Höfundi
lífsins, Maríu mey, Skarphéðni Njáls-
syni og Egéerti Ólafssyni „frá Skor“,
til Stefáns Eiríkssonar myndskera og
Stefáns Stefánssona, „gagnfræða-
skólakennara" (hér). —Blaðið skort-
ir sæmilega vog til þess að vega á
gildi þessara nýju opinberana, en það
mun flestra manna mál, að ekki hafi
þessum ágætu mönnum farið stórlega
fram af krafti, andríki og málsnilld,
síðan þeir fluttu yfir um, né heldur
höfundi lífsins frá því á dögum Gamla
testamentisins, svo að ekki sé meira
sagt. Ein undantekning virðist þó á
þessu: Júdas okkar ískariot segist
hafa legið á bæn síðan hann hengdi
sig forðum, sællar minningar, og virð-
Árabátur
til sölu.
HELGI PÁLSSON.
Millisíldar- Oö
hafsíldarnet til sölu.
HELGI PÁLSSON.
EnsKir rdsHinnsiianzHar
mjög vandaðir,
svartir og dökkbláir.
Hannyrðaverzlun
Ragnh. O. Bjömsson.
Skraut-
púðurdósir
nýkomnar.
STJÖRNU APÓTEK
K. E. A.
ist það til eftirbreytni undir þeim
kringumstæðum. Og þess er engin
von, að hann tali eða riti öllu betri
íslenzku en t. d. Halldór Kiljan Lax-
ness, þótt Júdas telji sig nú líka til
þess kallaðan að fræða lýðinn „í
ykkar trúverðuga plássi“, eins og
hann orðar það!
Jóhann J. E. Kúld: Á
hættusvæðinu. — Útg.
Pálmi H. Jónsson. Ak.
1942.
Bók þessi er fjörlega skrifuð lýsing
á lífi og kjörum íslenzkra sjómanna í
millilandasiglingum nú á ófriðarárun-
um. Höfundurinn virðist hafa góða
athugunargáfu og trútt minni. Stíll
hans er látlaus og víða allþróttmikill,
málið gott og prófarkalestur vandaðri
en títt er nú orðið um margar slíkar
bækur. Það er rétt, sem höf. segir í
eftirmálsorðum: „Þetta getur óneit-
anlega skoðast sem lítill þáttur at-
vinnusögu íslendinga á þessum stríðs-
tímum“, enda mun Kúld eini ísl. rit-
höfundurinn, sem tekið hefir sér fyrir
hendur að kynnast af eigin sjón og
raun erfiðleikum þeim, er nú mæta
sjómannastéttinni „á hættusvæðinu",
Takið eftir!
Skóverksmiðjan „KRAFXUR**
er flutt í Hafnarstræti 85 (áður skóverk-
smiðja J. S. Kvaran).
Smíðar nú kven-götuskó og skó með Kína-
hæl. Ennfremur inniskó úr flóka, skinni og
striga, barnaskó og herraskó.
Nokkur skópör til sölu með tækifærisverði.
Pálmi Ólafsson.
Tilkyaming
Vegna stórhækkandi verðlags á flestum lífsnauðsynjum, og
stórhækkaðs grunnkaups hjá fjölda mörgum iðnfélögum í land-
inu, þá sjáum við, undirritaðir trésmiðir á Akureyri, okkur ekki
fært að vinna lengur fyrir það kaup sem við nú höfum. Við höf-
um því ákveðið að grunnkaup okkar hækki um 25% frá og með
10. ágúst 1942. Verður því frá þeim tíma tímakaup i dagvinnu
kr. 2.25 sem grunnkaup. Að öðru leyti vísast til kauptaxta Tré-
smiðafélags Akureyrar.
Akureyri 9. ágúst 1942.
Fyrir hönd trésmiða á Akureyri.
Lárus Björnsson. Páll Tómasson. Jón Sigurjónss.
Herra sokkar,
ULLAR OG BÓMULLAR
í miklu úrvali.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Vefnaðarvörudeild.
iQ 0
En þar mun mikið efni og merkilegt, I ari bók sinni, svo langt sem frásögn
og gerir Kúld því góð skil með þess-1 hans nær. J, Fr.